Stjórnmál

Stjórnmál

Fréttir frá störfum ríkisstjórnarinnar, Alþingis og stjórnmálum almennt.

Fréttamynd

„Fokk ðe queers og fullt af at­kvæðum?“

Fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar gagnrýnir orðræðu Miðflokksmanna um hinsegin málefni og sakar þá um popúlisma. Þetta gerir hann eftir að varaformaður Miðflokksins líkti flöggun regnbogafánans í skólum við eins konar „kröfu um hugmyndafræðilega undirgefni“.

Innlent
Fréttamynd

Ekki síður í vand­ræðum með bók­lega kennslu

„Þetta er bara verk- og starfsnámsaðstaða. Það vantar líka að gera úrbætur varðandi bóklega kennslu,“ segir Kristján Ásmundsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, spurður út í yfirlýsingu sem menntamálaráðuneytið birti í kjölfar afsagnar hans, þar sem greint er frá uppbyggingaráformum fyrir verknámsaðstöðu við skólann.

Innlent
Fréttamynd

MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á ein­kunna­gjöf

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnakerfi grunnskólanna. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sagði á menntaþingi í gær að skólar ættu aftur að taka upp tölustafakerfi. Slíkar breytingar krefðust breytinga á aðalnámskrá.

Innlent
Fréttamynd

Hvað sagði konan?

Inga Sæland hélt ræðu á þingi Kennarasambands Íslands í gær sem skildi salinn eftir í nokkru uppnámi.

Skoðun
Fréttamynd

„Á­fall fyrir starfs­fólk“

Starfsmenn Fjölbrautaskóla Suðurnesja fordæma vinnubrögð og framkomu barna- og menntamálaráðuneytisins en skólameistari skólans sagði af sér í dag í kjölfar fundar með starfsmönnum ráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

Nefndin sam­mála Ólafi Ragnari um skipun for­seta­ritara

Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar leggur nú til að forseti skipi sjálfur forsetaritara og það til fimm ára. Í frumvarpinu var upprunalega lagt til að forsætisráðherra myndi skipa forsetaritara. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, gagnrýndi þetta harðlega og sagði það aðför að sjálfstæði embættisins að forsætisráðherra fengi þetta hlutverk.

Innlent
Fréttamynd

Hækjubræður á þingi

Guðmundur Ingi Kristinsson, sem er utan flokka á þingi eftir að hann yfirgaf óvænt Flokk fólksins, lætur fjölmiðla ekki ná í sig. Hann gaf sér hins vegar tíma til að stilla sér upp ásamt Ingvari Þóroddssyni, þingmanni Viðreisnar, en þeir eru báðir á hækjum.

Innlent
Fréttamynd

Fram­sókn kynnti til­lögu að þjóðar­sátt

Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknar kynnti í dag efnahagsaðgerðir flokksins ásamt tillögu að nýrri þjóðarsátt um efnahagsmál. Aðgerðunum er ætlað að létta undir með heimilum landsins en í tilkynningu frá flokknum segir að breyta þurfi verklagi í hagstjórn landsins.

Innlent
Fréttamynd

Skóla­meistari hefur fengið nóg og segir af sér

Kristján Ásmundsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur sagt af sér embætti þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af fimm ára skipunartíma sínum. Ástæðan er óánægja með húsnæðismál skólans og að menntamálaráðuneytið hafi engar ákvarðanir tekið varðandi úrbætur.

Innlent
Fréttamynd

„Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ó­sannindi eða blekkingar“

Uppnám var á þinginu nú áðan og kvartaði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra undan því að vera sökuð um ósannindi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins var heitur í umræðunni og mátti sæta ákúrum Þórunnar Sveinbjarnardóttur forseta Alþingis fyrir frammíköll. Sigmundur Davíð var ósáttur við þetta og taldi Þórunni misbeita valdi sínu í þágu forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

„Það er ekki hægt að taka jafnaðar­manninn úr mér“

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins hélt áfram að hamast í Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vegna kosningafundar Samfylkingarinnar í Kópavogi en Sjálfstæðismenn vilja meina að þar hafi Kristrún lofað um 15 milljörðum árlega úr ríkissjóði í kosningaloforð Samfylkingar á sveitarstjórnarstigi.

Innlent
Fréttamynd

Vanda­mál leikskólanna verða ekki leyst nema með að­komu ríkisins

Vandamál leikskólanna í borginni og víðar eru tíðrædd. Biðlistarnir eru of langir, leikskólarnir eru ekki nógu vel mannaðir, þið hafið heyrt þetta allt áður. Það sem mér þykir erfiðast við þessa umræðu er tilhneigingin til þess að okkur sem myndum þessi litlu samfélög sem eru leikskólarnir; starfsfólki leikskólanna og foreldrum, sé stillt upp í andstæðar fylkingar.

Skoðun
Fréttamynd

Ás­laug Arna boðar endur­komu á Al­þingi

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ætlar sér aftur á þing í maí þegar hún lýkur námi sínu í New York. Þetta staðfesti Áslaug á samfélagsmiðlinum Instagram en hún hefur verið í námi í Columbia háskóla síðastliðið ár.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri and­vígir aðild nú en í fyrra

Fleiri Íslendingar eru andvígir aðild að Evrópusambandinu nú en fyrir ári síðan miðað við árlega könnun sem Maskína gerir fyrir utanríkisráðuneytið. 46 prósent segjast vera andvíg aðild í dag en sá fjöldi var 39,8 prósent þegar könnunin var framkvæmd á svipuðum tíma í fyrra. Þá hefur stuðningur við aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu ekki mælst hærri.

Innlent
Fréttamynd

Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð

Sjö borgarfulltrúar sátu hjá þegar samþykkt var í borgarstjórn í dag að óháðu borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir myndu fá að verða áheyrnarfulltrúar í borgarráði, umhverfis- og skipulagsráði og forsætisnefnd borgarinnnar. Laun Kjartans hækka því um 868 þúsund og laun Mörtu um 578 þúsund.

Innlent
Fréttamynd

Halla Berg­þóra nýr ríkislögreglustjóri

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur skipað Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, í embætti ríkislögreglustjóra. Hún tekur við embætti mánudaginn 20. apríl. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins.

Innlent
Fréttamynd

„Nú hef ég auð­vitað ekkert á móti fólki frá Ní­geríu“

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Miðflokki, segir að kostnaður vegna útlendingamála sé enn að hækka þrátt fyrir yfirlýsingar um að verið væri að taka á vandamálinu. Nanna Margrét sagði tölur sýna að einn stærsti hópurinn sem kemur til landsins til að stunda háskólanám komi frá Nígeríu en það þótti Nönnu Margréti skjóta skökku við.

Innlent
Fréttamynd

Segir for­sætis­ráðu­neytið mis­notað í þágu sveitar­stjórnar­kosninga

Tómas Þór Þórðarson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins kvaddi sér hljóðs í dagskrárliðnum störf þingsins og gerði kynningarfund Samfylkingarinnar í Kópavogi að umtalsefni. Hann sagði að það kæmi sér hreint ekki á óvart að Samfylkingin notaði samstarfsflokkana í ríkisstjórn sem gólfmottur en þetta væri misbeiting á valdi.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfs­mark með „sjúk­lega sam­fylkingar­legu“ kjöt­vöru­banni

Ekki er laust við að borgar­full­trúinn Líf Magneu­dóttir fagni því sem hún kallar „sjálfs­mark“ þegar hún vekur at­hygli á Face­book-færslu Viðreisnar­odd­vitans Bjargar Magnús­dóttur þar sem hún segir „bara svo sjúk­lega sam­fylkingar­legt“ að banna unnar kjöt­vörur í skólum borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

„Já, ég er dá­lítið reiður“

Formaður Kennarasambandsins lýsir gríðarlegum vonbrigðum með orð ráðherra menntamála á þingi Kennarasambandsins í morgun um breytingar á námsmati í grunnskólum. Hann segir áhyggjuefni að ríkisstjórnin ætli að halda áfram að kasta hlutum til kennara sem ganga þvert gegn ríkjandi aðalnámskrá.

Innlent
Fréttamynd

Matarstefnan bara „orð út í loftið“

Næringarfræðingur fagnar viðleitni borgarstjórnar sem hyggst úthýsa unninni kjötvöru úr skólum borgarinnar. Hún segir verkefnið hins vegar algjörlega óútfært og telur það í raun óframkvæmanlegt í náinni framtíð. Mikill meirihluti kjötrétta í skólum sé unnin matvara.

Innlent
Fréttamynd

Árni vill stöðuna þrátt fyrir aug­lýsingu

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt lista yfir umsækjendur um þrjú embætti skólameistara, sem auglýst voru laus til umsóknar þann 19. mars síðastliðinn. Meðal tveggja umsækjenda um embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum er núverandi skólameistari skólans, sem heyrði í fréttum að staða hans yrði auglýst.

Innlent
Fréttamynd

Skjálfti vegna Írisar innan Sjálf­stæðis­flokksins í Eyjum

Mikill skjálfti er innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum og snýr ágreiningurinn um bæjarstjóraefnið Írisi Róbertsdóttur. Hitafundur fulltrúaráðs var haldinn í gærkvöldi þar sem menn töluðu út og víst er að ekki er gróið um heilt vegna klofningsins sem varð 2018 þegar H-listinn var myndaður sem klofningur úr Sjálfstæðisflokki.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Inga á­varpar kennara sem ráða ráðum sínum

Um 250 félagsmenn Kennarasambandsins mæta til þings á Hilton Nordica í dag, miðvikudaginn 15. apríl. Þing KÍ hefur æðsta vald í málefnum KÍ og á þinginu er ákveðið hvert skuli stefna í öllum málaflokkum næstu fjögur árin. Fjölmargar málefnanefndir munu starfa á þinginu og ræða margvíslega þætti sem snerta félagsfólk Kennarasambandsins.

Innlent