Nýsköpun

Nýsköpun

Fréttamynd

Vextir og vöxtur ný­sköpunar

Meginvextir Seðlabanka Íslands eru 8%. Verðbólga mælist 5,9% og undirliggjandi verðbólga hefur um nokkurt skeið verið rúmlega 4%. Við þær aðstæður telur peningastefnunefnd enn nauðsynlegt að halda peningalegu aðhaldi þéttu.

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Há­grét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn

Davíð Már Stefánsson var nítján ára þegar hann settist niður með foreldrum sínum og sagði þeim loksins frá því sem hafði verið í gangi. Hann var orðinn spilafíkill og búinn að eyða öllum peningnum sem hann átti. Nokkrum klukkutímum síðar læsti hann sig inni í herbergi og byrjaði aftur að spila.

Lífið
Fréttamynd

Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn

„Ég hef spilað fótbolta frá því að ég var gutti og alltaf verið mjög aktívur. Vildi eftir fótboltann kannski fara í ræktina, skella mér síðan á annan stað í jóga, fara í padel og eins í sund á mismunandi stöðum,“ segir Elvar Páll Sigurðsson, markaðssérfræðingur og fyrrverandi knattspyrnumaður.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Selur gamla fyrir­tækinu annað á tæpa þrjá milljarða

Að undangengnu alþjóðlegu útboði hefur Infocapital undirritað kaupsamning við Creditinfo Group um kaup hins síðarnefnda á öllu hlutafé í Everydata Group, leiðandi fjárhagsupplýsingastofu með starfsemi í Karabíska hafinu. Heildarvirði viðskiptanna getur farið yfir 20 milljónir bandaríkjadala, um 2,9 milljarða króna, náist tiltekin árangursviðmið á árinu. Reynir Finndal Grétarsson er langsamlega stærsti eigandi Infocapital en einnig stofnandi Creditinfo. Hann seldi 69 prósenta hlut sinn í Creditinfo á 13,5 milljarða árið 2022.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir til­kynningu

Gengi lyfjafyrirtækisins Oculis hefur hækkað um tæp sjö prósent í tveimur viðskiptum fyrir alls 363 þúsund krónur í morgun. Félagið gaf út tilkynningu í gær um jákvæð viðbrögð taugasjúkdómadeildar Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna við umsókn varðandi klíníska þróunaráætlun lyfsins Privosegtor við bráðum MS-köstum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug

Rafmagnsflugvélin sem líklegust þykir til að ryðja brautina í átt að sjálfbærum og arðbærum mengunarlausum flugsamgöngum hefur fengið samþykki bandarísku flugmálastjórnarinnar, FAA, til að fara í sitt fyrsta reynsluflug og hefja flugprófanir. Icelandair hefur með viljayfirlýsingu skráð sig fyrir kaupum á fimm eintökum þessarar tegundar.

Innlent
Fréttamynd

Ómál­efna­legir dónar fara í skammar­krókinn

Speakness er íslenskt athugasemdakerfi sem hefur verið í prófun og er nú að færast á næsta stig. Einn forkólfa fyrirtækisins Veriate ehf. segir hugmyndina með vörunni þá að styrkja fjölmiðla í sessi því ef þeir holast að innan meira en orðið er verður lýðræðið næst í röðinni.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt app til að finna týndar kisur frum­sýnt í dag eftir sex ára þróunar­vinnu

Hugbúnaðarfræðingur sem hefur síðustu sex ár unnið að og þróað Kattaskránna leggur nú lokahönd á nýtt app sem hann er hægt að hlaða niður í gegnum glænýjan kattarvef. Þar er hægt að haka við að kisa sé týnd og fá þá „kattavinir“ í nágrenninu skilaboð í símann sinn um týndu kisuna. Ríflega tvö þúsund kisur eru þegar skráðar í gagnagrunn Kattaskránnar og hafa bæði dýralæknar og lögreglan leitað í grunninn við mál sem snúa að köttum.

Innlent
Fréttamynd

Fjár­mögnunin á að auka trúverðug­leika Controlant í augum við­skipta­vina

Tæknifyrirtækið Controlant, sem hefur boðað til hluthafafundar í byrjun næsta mánaðar, áformar núna að sækja sér allt að þrettán milljónir Bandaríkjadala í aukið fjármagn með útgáfu breytanlegra skuldabréfa. Markmiðið með útgáfunni er meðal annars sagt vera til að auka trúverðugleika félagsins gagnvart væntanlegum viðskiptavinum.

Innherji
Fréttamynd

Stjörnufans í eins árs af­mæli

Það var líf og fjör í Vesturbænum á dögunum þegar nýsköpunarstofan Studioek fagnaði eins árs afmæli sínu með teiti á skrifstofu sinni. Meðal gesta voru Benedikt Bjarnason, Marteinn Högni og Eva Einarsdóttir.

Lífið
Fréttamynd

Bein út­sending: Ný­sköpunar­verð­laun Norður­landanna

Nýsköpunarverðlauna Norðurlandanna verða afhent verða í Osló í dag, fimmtudaginn 21. maí kl. 13:30. Nýsköpunarfyrirtækið Hefring Marine er tilnefnt til verðlaunanna fyrir Íslands hönd. Fyrirtækið hefur þróað snjallsiglingarkerfi sem nýtir gervigreind til að birta skipsstjórnendum leiðsögn í rauntíma. Fylgjast má með afhendingu verðlaunanna í beinu streymi hér að neðan. 

Erlent
Fréttamynd

Gengi Alvotech tekur kipp

Gengi hlutabréfa í Alvotech hefur tekið vænan kipp í morgun, eftir að tilkynnt var að niðurstaða úttektar Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna, FDA, væri að fyrirtækið uppfylli nú ströngustu kröfur góðra framleiðsluhátta í lyfjaframleiðslu.

Viðskipti innlent