Viðskipti innlent

Greenfish og sam­tök evrópskra út­gerða kort­leggja hrossamakríl

Árni Sæberg skrifar
Sveinn Sigurður Jóhannesson er framkvæmdastjóri Greenfish.
Sveinn Sigurður Jóhannesson er framkvæmdastjóri Greenfish. Greenfish

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Greenfish og samtök evrópskra uppsjávarútgerða, Pelagic Freezer Trawler Association, eða PFA, hafa tekið höndum saman um þróun nýs gervigreindarlíkans sem ætlað er að spá fyrir um hvar líklegast sé að finna brynstirtlu, sem einnig er kölluð hrossamakríll, til veiða á evrópsku hafsvæði.

Í fréttatilkynningu þess efnis frá Greenfish segir að samstarfið sameini spátækni Greenfish og fiskveiðigögn og þá þekkingu sem PFA hafi safnað úr flota aðildarfyrirtækja sinna. Afraksturinn verði hagnýtt verkfæri, þróað í nánu samstarfi við evrópskar uppsjávarútgerðir, sem styðji við reynslu og sérþekkingu skipstjóra frystitogara og þá tækni sem þegar er til staðar um borð.

PFA séu samtök átta fyrirtækja sem geri út uppsjávarfrystitogara í sex Evrópulöndum. Aðildarfyrirtækin séu Parlevliet & Van der Plas, Cornelis Vrolijk, W. van der Zwan & Zn., France Pélagique, Doggerbank Seefischerei, North Atlantic Fishing Company, Atlantex og Lithuanian Long Distance Fishery Association.

Fá gögn frá 18 togurum

Aðildarfyrirtækin geri samtals út 18 uppsjávarfrystitogara sem séu sumir meðal þeirra stærstu í heimi, eða allt að 144 metrar að lengd. Öll skipin muni taka þátt í gagnasöfnun með þeim mælitækjum sem skipin eru búin um borð og leggja þannig til viðbótargögn sem nýtast við vísindarannsóknir og líkanagerð.

Greenfish muni nota gögn sem PFA hefur safnað til að þjálfa vélanámslíkan sem spái daglega fyrir um hvar mestar líkur séu á að brynstirtlu sé að finna.

Skjáskot úr Greenfish-kerfinu.Greenfish

Spárnar verði birtar sem dagleg hitakort í Greenfish-kerfinu. Þannig fái áhafnir skipanna skýrari mynd af líklegum fiskimiðum, bæði áður en lagt er úr höfn og á meðan skipin eru á sjó.

Tíma- og eldsneytisfrekt verkefni

Þá segir að það að leita að fiski sé bæði tíma- og eldsneytisfrekt verkefni. Nákvæmar spár geti stytt leitartíma, aukið rekstrarhagkvæmni og minnkað umhverfisfótspor skipanna.

Markmið PFA sé engu að síður að meta hvernig verkfæri Greenfish geti stuðlað að því að minnka kolefnisspor á hvert landað tonn enn frekar. Jafnframt kunni verkefnið að skila nýrri þekkingu sem nýst geti við aðrar fiskveiðar þar sem við á.

PFA muni einnig leiða vísindalega sannprófun líkansins. Við sannprófunina verði notuð staðsetningargögn frá veiðum sem ekki voru hluti af þjálfunargögnum líkansins, ásamt óháðum gögnum úr rannsóknaleiðöngrum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×