Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? KLAK health 1. október 2026 10:01 KLAK health, viðskiptahraðal KLAK - Icelandic Startups hefst 21. október. Hulda Margrét Ertu að smíða lækningatæki í bílskúrnum? Starfar þú hjá fyrirtæki í heilsutækni og sérð ný tækifæri á markaði? Ertu rannsakandi sem vilt hagnýta rannsóknir þínar með stofnun fyrirtækis? Eða hefur þú jafnvel búið til app sem styður við heilsu fólks? Þá hvetjum við þig til að sækja um í KLAK health, viðskiptahraðal KLAK - Icelandic Startups sem hefst 21. október.
Umsóknarfrestur er til og með 4. október og hægt er að sækja um á www.klak.is/health. KLAK health er þátttakendum að kostnaðarlausu. KLAK health er viðskiptahraðall sem má hugsa um sem námskeið í því hvernig eigi að stofna, reka og efla nýsköpunarfyrirtæki í heilsutækni. Hraðallinn stendur yfir í fimm vikur og markmið hans er að hraða þróun nýsköpunarfyrirtækja umtalsvert og koma frumkvöðlum í tengsl við samstarfsaðila, viðskiptavini og fjárfesta. Þetta er í annað sinn sem hraðallinn er keyrður og upplifun fyrri þátttakenda gefur góða mynd af því sem hann skilar. Þátttakendur nefndu að KLAK health hefði dregið úr óvissu í þróunarferlinu, stækkað tengslanet þeirra, aukið þekkingu og veitt þeim góða leiðsögn til að hraða framgangi fyrirtækja þeirra. „KLAK health skipti sköpum við að skerpa fókusinn hjá okkur og gaf okkur skýran vegvísi fyrir næstu skref. Hraðallinn var hvetjandi og afar fræðandi og veitti um leið einstakt tækifæri til að tengjast lykilfólki í íslenskri heilsutækni. Þetta er reynsla sem breytir miklu fyrir öll nýsköpunarfyrirtæki í heilsutækni,“ segir einn þátttakenda úr fyrsta hópnum. Kynningarmyndband um fyrirkomulag og starfsemi KLAK health má nálgast hér En hvað er heilsutækni? Heilsutækni er í grunninn hvers kyns lausn sem nýtir tækni eða hugvit til að bæta heilsu fólks eða vellíðan. Lausnir geta því komið úr fjölbreyttum áttum en við skiptum þeim gróflega í fjóra flokka þegar kemur að KLAK health. Lækningatækni (e. MedTech): lækningatæki, greiningarbúnaður, ígræðslur og hugbúnaður sem telst til lækningatækja. Líftækni og lyfjaþróun (e. BioTech & Pharma): líftæknivörur, lyfjaþróun og stoðþjónusta við fyrirtæki í þessum geirum. Stafrænar heilsulausnir (e. Digital Health): hugbúnaður, gagnavinnsla, veflausnir, öpp og snjalltækjalausnir. Neytendalausnir (e. Consumer Health): vörur og þjónusta tengd forvörnum, vellíðan, geðheilbrigði og lífsstíl einstaklinga. Upptalningin er ekki tæmandi. Ef þú ert með hugmynd eða vinnur að lausn sem bætir heilsu fólks, þá átt þú erindi í KLAK health. Lausnin þarf heldur ekki að vera langt komin. Hraðallinn er ætlaður aðilum sem eru snemma í þróunarferlinu, allt frá þeim sem eru á hugmyndastigi upp í teymi sem hafa þegar komið vöru á markað og leita leiða til vaxtar. Fræðsla, leiðsögn og tengslanet Á þeim fimm vikum sem hraðallinn stendur yfir fá þátttakendur sérhæfða fræðslu á uppbyggingu nýsköpunarfyrirtækja og aðgang að víðtæku tengslaneti sérfræðinga og reyndra frumkvöðla í heilsutækni. Hraðlinum lýkur á fjárfestadegi þar sem teymin fá tækifæri til að kynna sínar lausnir.Hulda Margrét Þátttakendur fá aðstoð við að gera viðskiptaáætlun og finna leiðir til að nálgast viðskiptavini. Þeir fá einnig fræðslu um sölu, markaðssetningu, hugverkaréttindi og fjármögnun. Sérstök áhersla er lögð á reglugerðar- og tæknikröfur sem skipta miklu máli fyrir fyrirtæki sem starfa í heilsutækni. Samhliða fær hvert teymi þrjá sérvalda mentora úr mentoraneti KLAK VMS sem styðja teymið og hjálpa því að koma verkefninu áfram. Mentoraþjónustan sækir innblástur og fyrirmynd til MIT Venture Mentoring Service hjá MIT háskólanum í Boston, en stofnunin hefur í 25 ár þróað sambærilegt kerfi fyrir frumkvöðla í sínu háskólasamfélagi með góðum árangri. Þátttakendur fá þjálfun í að kynna lausnir sínar og tækifæri til að gera það á hinum ýmsu viðburðum á meðan hraðallinn stendur yfir. Hraðlinum lýkur svo á fjárfestadegi 25. nóvember, þar sem teymin stíga á svið fyrir fullum sal fjárfesta og lykilaðila í heilsutækni. Ef þú ert með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks, sama á hvaða stigi hún er, hvetjum við þig til að sækja um í KLAK health á www.klak.is/health. Umsóknarfrestur er til og með 4. október. Bakhjarlar KLAK health eru Landspítali, Heilbrigðisráðuneytið, Íslandsbanki, Helix, Securitas, Heilsuvernd, Lifa VC, Össur, Nox Medical, Frumtök og Lyfja.
Heilbrigðismál Heilsa Nýsköpun Mest lesið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Samherji selur Margréti til Færeyja Viðskipti innlent Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Viðskipti innlent Spá óbreyttum vöxtum Viðskipti innlent Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Fleiri valkostir í Bónus með Salling Ný kynslóð Scania rafmagnsvörubíla er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Greiðsluáskorun Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Toyota sýnir nýja bíla á laugardaginn Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Sjá meira