Á eigin vegum Hjá Vöku-Helgafelli er komin út bókin Á eigin vegum eftir Kristínu Steinsdóttur. Menning 10. nóvember 2006 16:11
Ég er ekki dramadrottning Hjá Máli og menningu er komin út Ég er ekki dramadrottning eftir Sif Sigmarsdóttur. Menning 10. nóvember 2006 16:07
Skeggbylgja meðal íslenskra karlmanna Sífellt fleiri íslenskir karlmenn bera nú skegg. Þetta er sérstaklega algengt meðal þekktra Íslendinga en almennt má segja að komið sé í tísku að vera með skegg. Logi Bergmann Eiðsson var meðal þeirra fyrstu til að ríða á vaðið og í kjölfarið birtist Haukur Holm með myndarlegt skegg. Fleiri virðast vera farnir að bætast í hópinn. Lífið 10. nóvember 2006 16:00
Fljótandi heimur Hjá Máli og menningu er komin út bókin Fljótandi heimur eftir Sölva Björn Sigurðsson. Sölvi Björn hefur áður sent frá sér skáldsöguna Radíó Selfoss auk nokkurra ljóðabóka. Síðasta bók hans Gleðileikurinn djöfullegi vakti mikla athygli. Menning 10. nóvember 2006 15:40
Vill verða ljóðskáld Hinn ungi leikari Daniel Radcliffe, sem er þekktastur fyrir túlkun sína á galdrastráknum Harry Potter, vill gerast ljóðskáld í nánustu framtíð. Þessi sautján ára gamli leikari er til í að leggja leiklistarframann á hilluna ef hann „fyndi andann koma yfir sig" eins og hann orðar það. Lífið 10. nóvember 2006 15:30
Tvær nýjar bækur um Magga mörgæs Hjá Vöku-Helgafelli eru komnar út tvær bækur um Magga mörgæs, Maggi verður lasinn og Sleðaskólinn sem Halla Sverrisdóttir þýddi. Margir krakkar þekkja Magga mörgæs og vini hans úr sjónvarpinu sem Pingú í Íslandi í bítið. Menning 10. nóvember 2006 15:27
Fyrir kvölddyrum Hjá Máli og menningu kemur út á morgun ný ljóðabók eftir Hannes Pétursson, Fyrir kvölddyrum. Hannes yrkir um mannlegar tilfinningar í öllum sínum fjölbreytileika, en ekki síst eru það yrkisefni tengd náttúru og sögu Íslands sem hafa gert hann ástsælan með þjóðinni. Menning 10. nóvember 2006 15:14
Vala Matt í Íslandi í dag Sjónvarpskonan góðkunna Vala Matt hefur gengið til liðs við dægurmálaþáttinn Ísland í dag á Stöð 2. „Ég er byrjuð að vinna efni og er bara mjög spennt. Þetta er eiginlega allt fólk sem ég hef unnið með áður og það hefur verið að gera frábæra hluti. Þess vegna verður þetta virkilega spennandi og skemmtilegt. Lífið 10. nóvember 2006 15:00
Pétur Már með sýningu í i8 Samhliða sýningu Katrínar Sigurðardóttur opnar Pétur Már Gunnarsson (f.1975) sýningu sína undir stiganum í i8. Pétur stundaði nám við Listaháskóla Íslands og við Listakademíuna í Vínarborg. Menning 10. nóvember 2006 14:31
Tómas og kó í Dómó Nýr diskur með lagasafni úr fórum Tómasar Einarssonar hefur verið undir geislanum víða um land frá því hann kom út fyrir fáum vikum. Diskinn kallaði Tómas Rom Tom Tom. Tónlist 10. nóvember 2006 14:30
Aríur um ástina í hádeginu á þriðjudaginn Hádegistónleikaröð Íslensku óperunnar hefur fest sig í sessi sem einn af föstum liðum í dagskrá Óperunnar yfir vetratímann. Þriðjudaginn 14. nóvember er komið að öðrum tónleikunum í hádegistónleikaröðinni í vetur og bera þeir yfirskriftina „Aríur um ástina”. Menning 10. nóvember 2006 14:15
Syngur Thriller Fyrrverandi konungur poppsins, Michael Jackson, mun flytja lagið Thriller á heimstónlistarverðlaunahátíðinni sem verður haldin í London í næstu viku. Þetta verður í fyrsta sinn í níu ár sem Jackson treður upp í Bretlandi. Tónlist 10. nóvember 2006 14:00
Orð má finna Fjórða breiðskífa Í svörtum fötum kemur út í dag en hljómsveitin hefur verið starfandi síðan 1998. Á þessari plötu sem heitir Orð má finna 12 ný lög sem öll eru samin af strákunum í hljómsveitinni og þess má einnig geta að þeir sáu sjálfir um stjórn upptöku og útsetningar. Tónlist 10. nóvember 2006 14:00
Fjölbreytt stemning á nýrri plötu Hljómsveitin Í svörtum fötum hefur gefið út sína fjórðu plötu, Orð. Á plötunni eru tólf ný lög sem eru öll samin af meðlimum sveitarinnar, þar á meðal „Þessa nótt“ sem hefur fengið góðar viðtökur að undanförnu. Tónlist 10. nóvember 2006 13:30
Segir snemmbúnum jólaundirbúningi stríð á hendur Mörgum blöskrar að jólaskreytingar skuli vera komnar upp, jólalög fari bráðum að hljóma á öldum ljósvakans og jólin séu hreinlega komin í byrjun október eða miðjan nóvember. Lífið 10. nóvember 2006 13:30
Portrett af Skarði Einar Falur Ingólfsson og Helgi Þorgils Friðjónsson opna óvenjulega sýningu í Anima galleríi kl. 17 í dag. Sýningin ber heitið „Portrett af stað“ og geymir verk þeirra félaga í ljósmyndum, textum og málverkum er öll tengjast bænum Skarði á Skarðsströnd í Dalasýslu. Menning 10. nóvember 2006 13:00
Fáklæddar fyrirsætur á Mýrdalsjökli Kvikmyndafyrirtækið Labrador hefur staðið í ströngu undafarið en hér á landi hefur tökulið frá breska raunveruleikaþættinum Make Me a Supermodel. Lífið 10. nóvember 2006 12:45
Opið hús í Listaháskólanum Listaháskólinn verður með opin hús um helgina en þá gefst forvitnum kostur á að kynna sér fjölbreytta starfsemi skólans. Álfrún G. Guðrúnardóttir, kynningarstjóri skólans, útskýrir að svona opinn dagur hafi verið haldinn um árabil en þá jafnan á virkum degi. Menning 10. nóvember 2006 12:30
Frumflytur nýjan texta við Sjúddiraírei á sextugsafmælinu „Nei, nei, ég kvíði ekkert fyrir þessu, heilsan er aðalatriðið og ég er nokkuð brattur,“ segir Gylfi Ægisson sem fagnar í dag sextugsafmæli sínu en söngvarinn, málarinn og lagasmiðurinn var á hárgreiðslustofu þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Tónlist 10. nóvember 2006 12:15
Egill telur að sér vegið á Stöð 2 "Þetta er rétt, ég er mjög ósáttur," segir Egill Helgason, stjórnandi Silfurs Egils. Á bloggsíðu Steingríms Sævarrs Ólafssonar er því haldið fram að Egill sé afskaplega ósáttur við það hversu lítils stuðnings Silfrið nýtur meðan allt er lagt í nýjan þátt, Pólitík, sem fjallar um hliðstætt efni og Egill hefur haft til umfjöllunar. Lífið 10. nóvember 2006 12:00
Neitað af Lohan Söngvarinn og sjarmatröllið Robbie Williams lendir ekki oft í því að konur neiti honum en það gerði hin unga leikkona Lindsay Lohan á dögunum. Atvikið átti sér stað á næturklúbbi í Lundúnum þar sem Lohan og Williams voru bæði stödd ásamt fylgdarliði. Lífið 10. nóvember 2006 12:00
Styktartónleikar Ljóssins Úrval tónlistarmanna efnir til tónleika til styktar starfsemi Ljóssins, sem eru endurhæfingar– og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Tónleikarnir verða laugardaginn 11. nóvember í Neskirkju. Miðasala er hafin í Ljósinu í Neskirkju og í síma 5613770. Tónlist 10. nóvember 2006 12:00
Styttist í Skrekk Undanúrslit Skrekks, sem er hæfileikakeppni ÍTR fyrir nemendur grunnskóla Reykjavíkur, hefst þann 13. nóvember í Borgarleikhúsinu. Um er að ræða þrjú undaúrslitakvöld og fara þau farm 13., 14., og 15. nóvember. Allir grunnskólar í Reykjavík taka þátt í keppninni en þátttakendur eru í 8. - 10. bekk. Bíó og sjónvarp 10. nóvember 2006 11:38
Litirnir dansa Guðrún Bergsdóttir opnar sýningu á útsaumsverkum og tússteikningum í Boganum í Gerðubergi í dag. Litirnir dansa og iða fullir af kátínu og frelsiskennd og vitna um hina óheftu tjáningu sem sprettur fram úr hugarheimi Guðrúnar Bergsdóttur. Menning 10. nóvember 2006 11:30
Nylon í Smáralind Nylon flokkurinn í boði KBbanka hefur ákveðið að boða til tónleika í Vetrargarðinum í Smáralind Laugardag 18. nóvember nk. klukkan 15:00. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni þess að þriðja platan þeirra, sem ber nafnið Nylon, kemur út í næstu viku. Tónlist 10. nóvember 2006 11:15
Tveimur sýningum að ljúka Nú um helgina lýkur tveimur athyglisverðum sýningum í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Þetta eru, Reykjavík - Úr launsátri: Ljósmyndasýning Ara Sigvaldasonar og Flóðhestar og framakonur: Afrískir minjagripir á Íslandi. Menning 10. nóvember 2006 11:08
Kallar fram gæsahúð Nýjasta plata tónlistarmannsins Jóhanns Jóhannssonar, IBM 1401 - A User's Manual, fær ágæta dóma á hinni virtu bandarísku tónlistarsíðu Pitchfork, eða 6,9 af 10 mögulegum. Tónlist 10. nóvember 2006 11:00
Heather klippt út Myndskeið með Heather Mills hafa verið klippt út af tónlistarmynddiski sem Paul McCartney gefur út á næstunni og ber heitið The Space Within Us. Lífið 10. nóvember 2006 10:30
Gjaldmælir dauðans telur Áhugaverð og skemmtilega spunnin glæpasaga líður fyrir einfalda afgreiðslu lausra enda. Höfundarnir hafa áður sýnt að þeir geta betur en Farþeginn stendur þó vel fyrir sínu sem þokkalegur reyfari og manni leiðist aldrei við lesturinn. Menning 10. nóvember 2006 10:00
Framtakssömu stelpurnar frá Svíþjóð vekja athygli Svíþjóð hefur lengi verið í fararbroddi á Norðurlöndunum í tónlist. Undanfarin misseri hafa verið sérstaklega glæst hjá sænsku tónlistarfólki, þar sem stúlkur hafa ekki síður verið áberandi en piltarnir eins og Steinþór Helgi Arnsteinsson greinir frá. Tónlist 10. nóvember 2006 09:30