Endalok Sopranos Lokaþáttaröðin af Soprano-fjölskyldunni var sýnd í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Þættirnir verða ekki sýndir hér á landi fyrr en í byrjun október. Til að hita upp fyrir hana hefur Rúv endursýningar á síðustu þáttaröð um miðjan júlí. Bíó og sjónvarp 11. júní 2007 06:00
Plata fyrir jól Ástralska söngkonan Kylie Minogue vonast til að næsta plata sín kom fyrir jólin. Kylie er að snúa aftur á sjónarsviðið eftir að hafa greinst með brjóstakrabbamein. Fjögur ár eru liðin síðan síðasta plata hennar, Body Language, kom út. Tónlist 10. júní 2007 13:30
Heiðrar hermenn Leikstjórinn Spike Lee ætlar að gera kvikmynd til heiðurs þeim þeldökku bandarísku hermönnum sem börðust í síðari heimsstyrjöldinni. Bíó og sjónvarp 10. júní 2007 13:00
Allt æðislegt hjá Magna í Óðinsvéum Upptökur á fyrstu sólóplötu rokkarans Magna Ásgeirssonar, sem standa yfir í Danmörku, ganga prýðilega. Hljóðverið er í sveitabýlí rétt fyrir utan Óðinsvé þar sem Magni og félagar hans Baddi og Gunni úr Sóldögg hafa dvalið í góðu yfirlæti. Tónlist 10. júní 2007 12:00
Connery sagði nei við Spielberg Sean Connery hefur endanlega staðfest að hann muni ekki taka að sér hlutverk föður Indiana Jones í fjórðu kvikmyndinni um fornleifafræðinginn en tökur á henni hefjast í næsta mánuði. Connery sló í gegn sem Henry Jones í þriðju myndinni sem sýnd var fyrir 18 árum en skoska sjarmatröllið tilkynnti nýlega að hann væri hættur kvikmyndaleik. Bíó og sjónvarp 10. júní 2007 10:00
Ampop notar Star Wars-tækni Hljómsveitin Ampop notaðist við svokallaða „green screen“ tækni við upptökur á nýjasta myndbandi sínu við lagið Gets Me Down. Er það að finna á plötunni Sail to the Moon sem kom út fyrir síðustu jól. Tónlist 10. júní 2007 09:00
Margbreytileg framúrstefna Dansleikhúsflokkurinn UglyDuck.Productions sýnir þrjú verk í Hafnarfjarðarleikhúsinu í kvöld og annað kvöld í tilefni af Listahátíðinni Björtum dögum í Hafnarfirði. Menning 9. júní 2007 14:00
Listatengsl Birgitta Spur, safnstjóri Listasafns Sigurjóns Ólafssonar, verður með leiðsögn á morgun um sýninguna Cobra Reykjavík sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands. Menning 9. júní 2007 13:00
Gleymir ekki upprunanum Fyrsta sólóplata Færeyingsins Jógvans Hansen, sigurvegara X-Factor, kemur út á mánudag. Freyr Bjarnason spjallaði við Jógvan og komst að því að þar er á ferðinni jarðbundinn og rólegur piltur. Tónlist 9. júní 2007 11:00
90 mínútna veisla hjá McCartney Bítillinn fyrrverandi Sir Paul McCartney spilaði fyrir framan aðeins eitt þúsund aðdáendur í London á dögunum. Tilefnið var útgáfa nýjustu sólóplötu hans, Memory Almost Full. Tónlist 9. júní 2007 10:00
SSSól lætur aftur á sér kræla „Nú erum við komnir úr Borgarleikhúsinu og á NASA þar sem fólk er í aðstöðu til að hreyfa sig, dansa. Við hlökkum mikið til,“ segir Helgi Björnsson, söngvari hljómsveitarinnar Síðan skein sól, sem verður með tónleika á NASA í kvöld. Tónlist 9. júní 2007 09:00
Námskeið í handritagerð Kiks, samtök kvenna í kvikmyndum og sjónvarpi, stendur fyrir námskeiði í kvikmyndahandritagerð nú um helgina. Menning 9. júní 2007 08:00
Engin samkeppni hjá hjónunum Rúnar Freyr Gíslason mun leika eitt af aðalhlutverkunum í stóra barnasöngleik Þjóðleikhússins í vetur, Skilaboðaskjóðu Þorvalds Þorsteinssonar. Á sama tíma leikstýrir eiginkona hans, Selma Björnsdóttir, uppfærslu Borgarleikhússins á Gosa. Bíó og sjónvarp 9. júní 2007 07:00
Dansleikhús /samkeppnin í kvöld Hin árlega Dansleikhússamkeppni Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins fór fram í Borgarleikhúsinu í kvöld. Að þessu sinni tóku sex hópar dans-, og leikhúshöfunda þátt. Bíó og sjónvarp 8. júní 2007 23:35
Stones leggja Evrópu undir fót Hinir gamalreyndu Rolling Stones hrintu Evróputúr sínum úr vör í gær. Fyrstu tónleikarnir fóru fram í Belgíu fyrir framan 33 þúsund áheyrendur. Var eftirvæntingin svo mikil að 50 kílómetra umferðahnútur myndaðist. Tónlist 6. júní 2007 11:07
Gísli með lag í mynd Luc Besson Tónlistarmaðurinn Gísli Kristjánsson á lag í kvikmynd franska leikstjórans Luc Besson, Angela-A, sem var tekin til sýninga í Bandaríkjunum þann 25. maí síðastliðinn. Tónlist 5. júní 2007 09:15
Sigursælir sjóræningjar MTV-kvikmyndaverðlaunin voru afhent í Los Angeles um helgina. Eins og venjan er vantaði ekki stórstjörnurnar á hátíðina. Johnny Depp, Cameron Diaz, Victoria Beckham og Paris Hilton voru á meðal gesta. Bíó og sjónvarp 5. júní 2007 09:00
Frábærir dómar Pétur Ben, Helgi Jónsson og hljómsveitin Reykjavík!, sem tóku þátt í Spot-tónlistarhátíðinni í Árósum um helgina, fengu öll fimm stjörnur af sex mögulegum í tónlistartímaritinu Gaffa fyrir frammistöðu sína. Tónlist 5. júní 2007 09:00
Upptökur hefjast í júlí Hljómsveitin Sprengjuhöllin ætlar að gefa út sína fyrstu plötu í haust og hefjast upptökur að öllum líkindum í júlí. Ekki hefur verið ákveðið hvar platan verður tekin upp en Danmörk hefur verið nefnd sem einn af mögulegum upptökustöðum. Tónlist 5. júní 2007 07:45
Rekstur fyrrum Benedikt Eyþórsson sagnfræðingur heldur í kvöld fyrirlestur í bókhlöðu Snorrastofu sem ber titilinn „Guðsorð og gegningar: af búskaparháttum og annarri umsýslu staðarhaldara í Reykholti á fyrri tíð“. Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni Fyrirlestrar í héraði, sem styrkt er af Menningarsjóði Borgarbyggðar. Menning 5. júní 2007 06:00
Roth kastaði upp yfir Alien Íslandsvinurinn Eli Roth ákvað að gerast kvikmyndagerðarmaður eftir að hafa farið með foreldrum sínum að sjá hryllingsmyndina Alien, þá sjö ára gamall. Roth kastaði upp yfir hryllingnum sem hann varð vitni að en ákvað um leið að hann vildi starfa við að láta aðra upplifa viðlíka hrylling. Bíó og sjónvarp 5. júní 2007 05:30
Ópera úr útrýmingarbúðum Óperetta sem samin var í útrýmingarbúðunum í Ravensbrück í Þýskalandi verður flutt í fyrsta sinn í París nú í vikulokin. Þýska vefritið Deutsche Welle greinir frá þessu. Tónlist 5. júní 2007 05:00
Söngveröld við Mývatn Árleg kórastefna fer fram við Mývatn nú í vikunni og stefnir fjöldi söngfólks þangað til að stilla saman sína tónlistarstrengi. Að þessu sinni liggja fyrir tvö stór verkefni auk þess sem þátttökukórarnir munu syngja fjölbreytt efni á þrennum tónleikum. Hátíðin stendur yfir frá 7.-10. júní. Tónlist 5. júní 2007 04:45
Morr ánægður á Íslandi Þýska útgáfufyrirtækið Morr Music heldur tónleika í Iðnó í kvöld. Fyrirtækið er eitt virtasta raftónlistarfyrirtæki heims og er með þrjár íslenskar hljómsveitir á sínum snærum. Thomas Morr, eigandi fyrirtækisins, er staddur hér á landi af þessu tilefni. Tónlist 5. júní 2007 03:00
Þekkt nöfn heiðra Kurt Stór nöfn á borð við R.E.M., David Bowie, Iggy Pop og Leadbelly eiga lög á plötu sem verður gefin út í tengslum við nýja kvikmynd um ævi rokkarans Kurt Cobain úr Nirvana. Tónlist 5. júní 2007 02:45
Norskt rokk og ról Quiritatio, ein efnilegasta þungarokkshljómsveit Noregs, spilar á fernum tónleikum hér á landi á næstu dögum. Fyrstu tónleikarnir verða í Hellinum í kvöld. Þar hita upp Myra, Ask the Slave og Peer. Á laugardag og sunnudag spilar sveitin síðan á tvennum tónleikum á Egilsstöðum og á mánudag verður hún á Dillon. Þar spila einnig Atómstöðin og Peer. Tónlist 1. júní 2007 10:00
Með ákveðna sýn á hlutina Plötusnúðurinn og upptökustjórinn Mark Ronson hefur nóg að gera þessa dagana. Hann á stóran þátt í velgengni bæði Lily Allen og Amy Winehouse, starfrækir eigið plötufyrirtæki og var að senda frá sér sína aðra plötu, Version. Trausti Júlíusson skoðaði Mark. Tónlist 1. júní 2007 09:15
Gerðu plötu með Ferrell Breska hljómsveitin Kaiser Chiefs hefur hætt við að gefa út plötu með nýju efni á þessu ári. Fyrir nokkrum mánuðum tilkynnti bassaleikarinn Simon Rix að þeir félagar ætluðu að gefa út efni sem þeir tóku upp á sama tíma og þeir tóku upp síðustu plötu sína Yours Truly, Angry Mob. Forsprakki Kaiser Chiefs, Ricky Wilson, hefur borið þetta til baka og segir að Rix hafi einfaldlega verið að grínast. Tónlist 1. júní 2007 09:00
Lóan við vatn í Feneyjum Steingrímur Eyfjörð stendur í stórum móttökusal við Stóra kanalinn í Feneyjum og stýrir uppsetningu á sýningu sinni sem verður framlag Íslands til tvíæringsins þar í borg sem er haldinn í 52. sinn í sumar. Menning 1. júní 2007 09:00
Græna ljósið tryggði sér sigurmyndina á Cannes Ísleifur B. Þórhallsson hjá dreifingarfyrirtækinu Græna Ljósið gerðu góða ferð til Cannes en þar tryggðu þeir sér sýningarrétt á mörgum af eftirtektarverðustu kvikmyndum hátíðarinnar. Bíó og sjónvarp 1. júní 2007 09:00