

Menning
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.

Einn flottasti lúxussalur landsins rís úr þaki Kringlunnar
Einn glæsilegasti lúxus bíósalur landsins er meðal nýjunga á 3. hæð Kringlunnar en salurinn opnar með frumsýningu á stórmyndinn Avatar í desember. Arkitektar og verkfræðingar Kringlunnar fengu þá djörfu hugmynd að byggja salinn ofan á þak Kringlunnar.

11 dagar í Idol: Var fyrsta konan til þess að negla Pál Óskar
Það var spennuþrungið andrúmsloft í Vetrargarðinum fyrir sextán árum síðan þegar þau Ína Valgerður og Snorri stóðu aðeins tvö eftir í úrslitaþætti Idol.

Penélope boðið í Bíó Paradís
Evrópskur kvikmyndagerðamánuður hefst í kvöld en hápunktur mánaðarins eru evrópsku kvikmyndagerðaverðlaunin sem haldin verða í Hörpu í desember.

Nokkrir tímar eftir af uppboðinu og nokkur verk komin yfir verðmat
Í kvöld lýkur listaverkauppboðinu sem haldið var til styrktar Kvennaathvarfinu. Safnast hafa yfir tíu milljónir með uppboðinu.

12 dagar í Idol: Bubba var nóg boðið og stormaði út
Dómararnir voru ekki alveg sammála eftir fyrstu áheyrnarprufur hins lífsglaða Benedikts Van Hoof á Hótel Loftleiðum fyrir sautján árum síðan.

Bandið sem var næstum því Bítlarnir
Um mitt ár 1966 luku Bítlarnir við upptökur á plötu sem fylgja átti eftir sjöundu breiðskífu hljómsveitarinnar, Revolver. En á einhvern óútskýranlegan hátt hurfu öll segulböndin úr upptökuverinu. Þetta var ekki eina áfallið sem dundi á Bítlunum þetta ár því skömmu síðar varð sveitin fyrir gríðarlegri blóðtöku þegar Paul McCartney lést í hræðilegu bílslysi. Í kjölfarið ákváðu eftirlifandi meðlimir sveitarinnar að gefa týndu tónsmíðarnar alfarið upp á bátinn og láta af öllu tónleikahaldi.

Love Island-stjörnur fóru í Bláa lónið og skemmtu sér á Auto
Love Island-stjörnurnar Dami Hope og Indiyah Polack eru stödd hér á landi. Í gær skellti parið sér í Bláa lónið, borðaði á Héðinn Kitchen & Bar og fóru þau svo á skemmtistaðinn Auto við Lækjargötu.

Ætluðu að reyna að fanga ísbjörninn en búrið var of lítið
Árið 2008 lagði Ragnar Axelsson upp í erfiða flugferð norður í land til þess að mynda ísbjörn sem hafði gengið á land við Hraun á Skaga. Viðbúnaður var á svæðinu og til stóð að fanga ísbjörninn.

Einn stofnenda The Clash og PiL er látinn
Gítarleikarinn Keith Levine er látinn, 65 ára að aldri. Hann var einn af þeim sem stofnuðu goðsagnakenndu pönkhljómsveitina The Clash og síðar hljómsveitina Public Image Ltd.

Dansað og tjúttað hjá „Komið og dansið“ í hverri viku í Reykjavík
Hópur fólks kemur saman á hverri viku og dansar saman í Álfabakkanum í Reykjavík hjá „Komið og dansið“. Karlarnir dansa oft við þrjár til fjórar konur í einu. Þá hefur saman konan stjórnað danstónlistinni á staðnum í 23 ár.

Lést á flugvellinum þar sem hann dvaldi í átján ár
Mehran Karimi Nasseri, Íraninn sem dvaldi á Charles De Gaulle flugvellinum í París í átján ár er látinn. Hann lést á flugvellinum eftir að hafa snúið aftur þangað fyrir skömmu. Saga Nasseris varð kveikjan að kvikmyndinni vinsælu The Terminal með Tom Hanks í aðalhlutverki.

Rihanna var nálægt því að hafna Super Bowl
Tónlistarkonan Rihanna er mætt á Íslenska listann á FM957 eftir langa fjarveru en hún gaf út sitt fyrsta lag í sex ár í lok október. Lagið heitir „Lift Me Up“ og var samið fyrir kvikmyndina „Black Panther: Wakanda Forever“.

Karlakór Akureyrar Geysir fagnar 100 ára afmæli sínu í dag
Það stendur mikið til í Hofi á Akureyri í dag því þar verður Karlakór Akureyrar með stórtónleika í tilefni af 100 ára afmæli kórsins. 42 karlar syngja með kórnum, sá yngsti 16 ára og sá elsti er að verða áttræður.

13 dagar í Idol: Manst þú eftir félögunum Arnari og Gunnari?
„Þið tveir ættuð eiginlega bara að flétta hárið ykkar saman og labba eins og síamstvíburar í einni og sömu lopapeysunni í leiklistarskólann.“ Þetta hafði Idol dómarinn Páll Óskar að segja eftir áheyrnarprufu félaganna Arnars og Gunnars.

Finnur æðruleysi í lægðunum
Tónlistarmaðurinn, leikarinn og lífskúnstnerinn Júlí Heiðar átti öfluga endurkomu inn í íslenskt tónlistarlíf á síðasta ári þegar hann sendi frá sér lagið Ástin heldur vöku sem sat meðal annars í fyrsta sæti Íslenska listans á FM957. Hann var að senda frá sér lagið Hærra og nýtir tónlistina sem tjáningarform. Júlí Heiðar er viðmælandi vikunnar í Innblæstrinum.

Sven-Bertil Taube er látinn
Einn ástkærasti listamaður Svía, Sven-Bertil Taube, er látinn, 87 ára að aldri. Hann var sonur tónskáldsins Evert Taube og öðlaðist frægð fyrir endurútgáfur af lögum föður síns.

Banksy staddur í Úkraínu
Dularfulli listamaðurinn Banksy er staddur í Úkraínu um þessar mundir. Hann birti í gær myndir af verki sínu á Instagram.

„Hann verður alltaf minn Leðurblökumaður“
Kevin Conroy, rödd Leðurblökumannsins til margra ára, er látinn 66 ára að aldri eftir baráttu við krabbamein.

Fallegur flutningur Unu Torfa á laginu Ekkert að
Söngkonan Una Torfa flutti lagið Ekkert að í söfnunarþættinum Saman byggjum við nýtt Kvennaathvarf. Þátturinn var sýndur á Stöð 2 í gær.

14 dagar í Idol: Hildur Vala hafði rétt fyrir sér
„Ég ætla að vinna Idol keppnina, af því ég held ég geti það,“ sagði hin 23 ára gamla Hildur Vala Einarsdóttir þegar hún mætti í sínar fyrstu prufur á Hótel Loftleiðum í ágúst árið 2004, ásamt um 1400 öðrum keppendum.

Fyrsta sýnishorn úr íslensku gamanmyndinni Villibráð
Vísir frumsýnir hér fyrstu stiklu úr gamanmyndinni Villibráð. Landslið íslenskra leikara kemur saman í þessari stórhættulegu kvikmynd undir leikstjórn Elsu Maríu Jakobsdóttur.

Tekur stéttaskiptingunni svolítið persónulega
Stéttaskipting er að aukast í tónlistarnámi að sögn Önnu Hugadóttur tónlistarkennara, þar sem eina leið margra fram hjá miklum biðlistum í tónlistarskólum er að kaupa einkatíma úti í bæ. Það er í mörgum tilfellum rándýrt og ekki á allra færi.

Skautahöllin í bandarískum búningi fyrir True Detective
Tökur á sjónvarpsþáttaröðinni True Detective eru komnar á fullt hér á landi. HBO, framleiðandi þáttanna, hefur birt mynd úr Skautahöllinni í Reykjavík, þar sem sjá má hana í bandarískum búningi.

15 dagar í Idol: „Ég man nákvæmlega eftir augnablikinu þegar nafn mitt var kallað“
Idolstjarnan Kalli Bjarni hefur marga fjöruna sopið síðan hann stóð á sviði Vetrargarðsins fyrir tæpum tveimur áratugum síðan. Hann segist vera í góðu jafnvægi í dag, hyggst gefa út nýja tónlist á næstunni og er spenntur að sjá nýja kynslóð spreyta sig í Idolinu á Stöð 2 nú í vetur.

Íslandsvinur kallar sig nú Rainnfall Heat Wave Rising Sea Levels Wilson
Íslandsvinurinn og gamanleikarinn Rainn Wilson tilkynnti í gær að hann hefði breytt nafni sínu í Rainnfall Heat Wave Rising Sea Levels Wilson á helstu samfélagsmiðlum. Það gerði hann í nafni baráttunnar gegn loftslagsbreytingum.

Mugison gefur allt í órafmagnaða tónleika hjá Bylgjunni
Klukkan 20 í kvöld verða sýndir tónleikar með Mugison úr tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð. Mugison gefur allt í tónleikana eins og honum einum er lagið.

Efla jólastemningu í Hafnarfirði með vistvænu skautasvelli
Í dag opnaði glæsilegt 200 fermetra skautasvell í hjarta Hafnarfjarðar. Svellið nefnist Hjartasvell og er því ætlað að efla jólastemninguna og stuðla að hreyfingu og afþreyingu fyrir fjölskyldur á aðventunni.

Baggalútur afhjúpar samstarf við frægan erlendan listamann
Ástsæla og sívinsæla sveitin Baggalútur var að senda frá sér myndband af áhugaverðum blaðamannafundi þeirra. Ástæðan er komandi jólatónleikatörn sveitarinnar og samstarf við tékkneska listamanninn og hönnuðinn Krištof Kintera..

Vann til alþjóðlegra verðlauna í píanóleik
Þrátt fyrir að Borgfirðingurinn Anna Þórhildur Gunnarsdóttir sé ekki nema tuttugu og fjögurra ára gömul þá var hún að vinna til alþjóðlegra píanóverðlauna en hún var að ljúka þriggja ára meistaranámi í Hollandi. Nú stefnir hún á doktorsnám.

Listaverkasafn stofnanda Microsoft selt fyrir metfé í þágu góðgerðarmála
Listaverkaverkasafn í eigu Paul Allens heitins, annars stofnanda Microsoft, er nú í söluferli hjá uppboðshaldaranum Christies.