

Meistaradeildin
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Leikirnir

Strákarnir af Skaganum horfðu í augun á mulningsvél Man City og bognuðu hvorki né brotnuðu
Það var einfaldlega skítkalt þegar blaðamaður mætti á Parken, heimavöll FC Kaupmannahafnar, fyrir leik FCK og Manchester City í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Hvort það hafi haft áhrif á suðræna og seiðandi leikmenn gestaliðsins skal ósagt látið en leiknum lauk með markalausu jafntefli þar sem tveir ungir drengir frá Akranesi komu við sögu hjá heimaliðinu.

„Allur Parken var að spila þennan leik“
Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson komu báði við sögu í liði FC Kaupmannahafnar er liðið gerði markalaust jafntefli gegn Englandsmeisturum Manchester City í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Chelsea á topp E-riðils eftir sigur gegn tíu leikmönnum AC Milan
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea vann öruggan 0-2 útisigur er liðið heimsótti Ítalíumeistara AC Milan í fjórðu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Heimamenn þurftu að spila stærstan hluta leiksins manni færri og sigur gestanna því í raun aldrei í hættu.

Rüdiger hetja Evrópumeistaranna | Benfica tók stig af PSG
Antonio Rüdiger reyndist hetja Evrópumeistara Real Madrid er hann tryggði liðinu 1-1 jafntefli í heimsókn Madridinga til úkraínska liðsins Shakhtar Donetsk til Varsjá í Póllandi í fjórðu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Þá gerðu franska stórliðið PSG og Benfica 1-1 jafntefli í París á sama tíma.

Íslendingaliðið tók stig gegn Englandsmeisturunum | Juventus tapaði í Ísrael
Ísak Bergmann Jóhannesson, Hákon Arnar Haraldsson og félagar í danska meistaraliðinu FC Kaupmannahöfn sóttu sitt annað stig í G-riðli Meistaradeildar Evrópu þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn ógnarsterku liði Manchester City í kvöld.

Gummi Ben og Baldur í miðju Meistaradeildaræði í Glasgow
Glasgow í Skotlandi iðar af lífi þessa dagana enda fara tveir leikir fram í borginni í Meistaradeild Evrópu á jafn mörgum dögum. Okkar menn, Guðmundur Benediktsson og Baldur Sigurðsson, eru í Glasgow og fylgjast þar með gangi mála.

Lagerbäck minnir fólk á að góðu gen Haaland komi ekki síst frá mömmu hans
Lars Lagerbäck, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, þekkir vel til Norðmannsins Erling Braut Haaland eftir að hafa þjálfað hann í norska landsliðinu.

Messi skoraði í jafntefli gegn Benfica | Juventus sótti sín fyrstu stig í Meistaradeildinni
PSG og Benfica deila toppsæti H-riðls eftir 1-1 jafntefli á meðan Juventus tókst loksins að koma sér á blað eftir 3-1 sigur á Maccabi Haifa.

Chelsea sigraði slakt lið AC Milan
Chelsea vann þægilegan 3-0 sigur á AC Milan í stórleik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu en Milan var alls án níu leikmanna vegna meiðsla í kvöld.

Ísak og Hákon réðu ekki við Englandsmeistarana
Manchester City vann auðveldan 5-0 sigur gegn FC Kaupmannahöfn í G-riðli Meistaradeild Evrópu í kvöld. Sigur City var aldrei í hættu.

Leipzig fór auðveldlega í gegnum Celtic | Salzburg á topp E-riðils
Red Bull liðin Leipzig og Salzburg unnu bæði sigra í sínum leikjum í fyrstu viðureignum Meistaradeildar Evrópi í dag.

Gaf mark og fékk svo glórulaust rautt spjald: „Þetta er hræðilegt“
Antonio Adán, markvörður Sporting frá Lissabon, hefur átt betri daga en í gær. Hann gaf Marseille mark og fékk svo beint rautt spjald fyrir að handleika knöttinn utan teigs í 4-1 tapi Sporting í Frakklandi í Meistaradeild Evrópu.

„Ég er hneykslaður“
Þjálfara Barcelona, Xavi, var heitt í hamsi eftir 1-0 tapið gegn Inter í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld og taldi óréttláta dómgæslu hafa orðið sínu liði að falli.

„Það eina sem skiptir máli er að vinna og hjálpa liðinu“
Trent Alexander-Arnold, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, gat leyft sér að brosa eftir 2-0 sigur liðsins gegn Rangers í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Napoli fór illa með Ajax | Club Brugge enn með fullt hús stiga
Þriðja umferð Meistaradeildar Evrópu fór hófst í kvöld með átta leikjum. Í A-riðli vann Napoli afar sannfærandi 1-6 sigur gegn Ajax og í B-riðli er belgíska liðið Club Brugge enn með fullt hús stiga eftir 2-0 sigur gegn Atlético Madrid.

Inter hafði betur í stórleik dauðariðilsins
Inter vann afar mikilvægan 1-0 sigur er liðið tók á móti Barcelona í þriðju umferð C-riðils Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Öruggur sigur Liverpool gegn Rangers
Liverpool vann öruggan 2-0 sigur er liðið tók á móti Rangers í A-riðli Meistaraeildar Evrópu í kvöld. Sigurinn þýðir að Liverpool heldur í við topplið Napoli sem valtaði yfir Ajax á sama tíma.

Bayern valtaði yfir Viktoria Plzen og Marseille sýndi tíu mönnum Sporting enga miskunn
Tveimur leikjum í þriðju umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu er nú lokið þar sem Þýskalandsmeistara Bayern München unnu öruggan 5-0 sigur gegn Viktoria Plzen í C-riðli og í D-riðli vann Marseille 4-1 sigur gegn Sporting.

Þegar Eyjafjallajökull og Mourinho stöðvuðu draumalið Guardiolas
Inter og Barcelona eigast við í stórleik dagsins í Meistaradeild Evrópu. Inter hefur aðeins einu sinni unnið Barcelona í tíu leikjum í Meistaradeildinni og sá sigur var eftirminnilegur.

Starfið undir í stórleiknum í kvöld?
Stórleikur er á dagskrá í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Inter tekur á móti Barcelona á Giuseppe Meazza leikvanginum í Mílanó en leikurinn gæti haft mikið að segja um hvort liðanna fari í 16-liða úrslit og einnig um framtíð Simone Inzaghi hjá ítalska liðinu.

Fjölbreytnin fer illa með íslenskan fótbolta
Um leið og það ætti kannski að vera gleðiefni að kvennalið Stjörnunnar og karlalið KA nái þeim tímamótum að komast í Evrópukeppni í fótbolta þá má segja að það sé alls ekki hagur íslensks fótbolta. Það er vegna fyrirkomulags UEFA, knattspyrnusambands Evrópu, sem þjónar hag stærstu knattspyrnuvelda álfunnar.

Klopp um Núñez: Liðið er ekki að hjálpa honum
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, kveðst hafa litlar áhyggjur af úrúgvæska framherjanum Darwin Núñez þrátt fyrir brösuga byrjun hans í Bítlaborginni.

Stuðningsmenn Liverpool ætla í hart gegn UEFA
Meira en 1.700 stuðningsmenn Liverpool, sem urðu fyrir skaða vegna þeirra ringulreiðar sem skapaðist á úrslitaleik Liverpool og Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í París á síðasta tímabili, ætla að ákæra UEFA vegna skipulagsleysis í kringum leikinn.

Upplausn eftir tapið fyrir Víkingi: Þjálfarinn entist í tíu daga
Levadia Tallinn, sem féll úr keppni fyrir Víkingi í Meistaradeild Evrópu fyrr í sumar, hefur rekið nýjan þjálfara sinn eftir aðeins einn leik. Félagið hefur farið í gegnum nokkra þjálfara frá tapinu í sumar.

Baulað á Hakimi í Ísrael
Achraf Hakimi, leikmaður París Saint-Germain, er greinilega ekki vinsæll í Ísrael. Ástæðan er sú að Hakimi, sem er frá Marokkó, hefur opinberlega stigið fram og stutt að Palestína verði frjálst ríki.

Danir verðlaunuðu ferðalanga með fríum bjór
Íslendingaliðin FC Kaupmannahöfn og Silkeborg eru ansi góðir gestgjafar að mati spænskra og enskra stuðningsmanna sem mætt hafa til Danmerkur vegna Evrópuleikja í fótbolta í vikunni.

Utan vallar: Íslendingar áberandi er Meistaradeildin mætti til Köben
Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði FC Kaupmannahafnar er liðið tók á móti Sevilla í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á heimavelli sínum Parken. Hákon Arnar Haraldsson og Orri Steinn Óskarsson hófu leik á bekknum á meðan fjöldi Íslendinga var í stúkunni, þar á meðal einn í fjölmiðlastúkunni.

Mörkin í Meistaradeildinni: Sjáðu ótrúlegt mark Haalands
Erling Haaland stal senunni í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gær þegar níu leikir fóru fram. Mörk og helstu atvik má nú sjá á Vísi.

Ísak Bergmann: „Veit að Man City er annað skrímsli“
Ísak Bergmann Jóhannesson varð í gærkvöld sextándi Íslendingurinn til að spila í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Hann lék 87 mínútur í markalausu jafntefli FC Kaupmannahafnar og Sevilla en leikurinn fór fram á Parken í Kaupmannahöfn. Vísir náði tali af Ísaki Bergmanni eftir leik.

Börnin réðu ekki við sig og föðmuðu Messi
Börnin sem fengu að leiða leikmenn inn á völlinn í leik Maccabi Haifa og PSG í Ísrael í gærkvöld sýndu kostuleg viðbrögð þegar þau sáu sjálfan Lionel Messi.