Óvenjuleg flautukarfa í spænska körfuboltanum Felipe Reyes, fyrirliði Real Madrid í spænska körfuboltanum, skoraði magnaða þriggja stiga körfu í stórsigri á La Bruixa d'Or í dag. Felipe Reyes tók bara eitt þriggja stiga skot í leiknum og það var af ótrúlegri gerðinni. Körfubolti 10. nóvember 2013 22:30
Elvar með 37 stig í sigri Njarðvíkur í tvíframlengdum leik Njarðvíkingar eru komnir upp í þriðja sæti Dominos-deildar karla í körfubolta eftir fimm stiga sigur, 106-101, í frábærum tvíframlengdum leik í Icelandic Glacial höllin í Þorlákshöfn í kvöld. Körfubolti 10. nóvember 2013 21:20
Jón Arnór og félagar töpuðu í Valencia Jón Arnór Stefánsson og félagar í CAI Zaragoza töpuðu 96-76 gegn Valencia í spænska körfuboltanum í dag. Jón átti rólegan dag með átta stig og þrjú fráköst. Körfubolti 10. nóvember 2013 19:29
Hörður Axel spilaði í tapleik Hörður Axel Vilhjálmsson átti rólegan dag í 87-58 tapi Valladolid gegn Laboral Kutxa í ACB deildinni í körfubolta í dag. Körfubolti 10. nóvember 2013 13:08
NBA: Flautukarfa Green tryggði Celtics sigur á Miami | Indiana óstöðvandi Jeff Green leiddi Boston Celtics til þriðja sigursins í röð þegar Boston lagði Miami Heat. Þrátt fyrir góðan leik frá LeBron sem daðraði við þrefalda tvennu í leiknum með 25 stig, 10 stoðsendingar og 8 fráköst voru það Celtics menn sem sigruðu á endanum. Körfubolti 10. nóvember 2013 11:00
Morris-tvíburarnir blómstra í Phoenix Tvíburabræðurnir Markieff og Marcus Morris eru að standa sig vel í NBA-deildinni í körfubolta en þeir spila nú báðir með Phoenix Suns. Morris-bræðurnir áttu mikinn þátt í sigri á Denver Nuggets í fyrrinótt. Körfubolti 10. nóvember 2013 06:00
Dramatísk sigurkarfa hjá Hauki og félögum Haukur Helgi Pálsson og félagar í CB Breogan unnu dramatískan tveggja stiga sigur í nágrannaslag á móti CB Ourense, 62-60, í spænsku b-deildinni í körfubolta í kvöld. Körfubolti 9. nóvember 2013 20:16
Svipmyndir frá sigri KR-inga í Jakanum KR-ingar héldu áfram sigurgöngu sinni í Dominos-deild karla í körfubolta á föstudagskvöldið þegar Vesturbæingar fóru vestur á Ísafjörð og unnu fjórtán stiga sigur á heimamönnum í KFÍ, 91-77. Körfubolti 9. nóvember 2013 14:00
Maggi Gun: Þetta er það ömurlegasta í heimi Magnús Þór Gunnarsson, fyrirliði Keflavíkur, missti af sínum fjórða leik í röð þegar Keflavík vann 97-88 sigur á Þór Þorlákshöfn í TM-Höllinni á fimmtudagskvöldið. Körfubolti 9. nóvember 2013 13:00
NBA: Indiana áfram taplaust - annar sigur Boston í röð Indiana Pacers er eina ósigraða lið NBA-deildarinnar í körfubolta og það breyttist ekki í nótt þegar liðið vann sinn sjötta leik í röð. Los Angeles Lakers og Brooklyn Nets töpuðu sínum leikjum en Boston Celtic og Philadelphia 76ers unnu. Körfubolti 9. nóvember 2013 11:00
Aldrei að vita hvað Útlendingastofnun dettur í hug að gera Grindvíkingar sætta sig ekki við neina meðalmennsku þegar kemur að bandarískum leikmönnum liðsins og hafa þegar sent tvo heim og spilað stóran hluta tímabilsins útlendingalausir. Körfubolti 9. nóvember 2013 08:30
Pavel ekki einn í þrennuklúbbnum Þrennuklúbbur Dominos-deildar karla í körfubolta er alíslenskur eftir leiki fimmtudagskvöldsins en þá tryggði þriðji íslenski leikmaðurinn sér aðild að klúbbnum. Þrenna telst það þegar körfuboltamaður kemst yfir tíu í þremur tölfræðiþáttum sem eru vanalega stig, fráköst og stoðsendingar þótt sumir nái því einnig stundum í stolnum boltum og vörðum skotum. Körfubolti 9. nóvember 2013 08:00
Stórleikur Jakobs og Hlyns ekki nóg fyrir Drekana Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson báru lið Sundsvall Dragons á herðum sér í sænska körfuboltanum í kvöld. Stórleikur þeirra dugði því miður ekki til sigurs gegn Norrköping Dolphins. Körfubolti 8. nóvember 2013 19:34
KR með fullt hús | Auðvelt hjá Njarðvík Tveir leikir fóru fram í Dominos-deild karla í kvöld. KR og Njarðvík unnu þá frekar þægilega sigra á andstæðingum sínum. Körfubolti 8. nóvember 2013 14:38
Fjölgar enn í íslenska tuttugu stiga klúbbnum Íslenskir körfuboltamenn hafa fengið meiri ábyrgð í Dominos-deild karla í körfubolta á þessu tímabili eins og Fréttablaðið tók saman á dögunum. Körfubolti 8. nóvember 2013 13:30
Craion með ótrúlega troðslu yfir hávaxnasta leikmann deildarinnar Michael Craion, leikmaður Keflavíkur, sýndi mögnuð tilþrif er hann tróð boltanum á skemmtilegan hátt yfir hávaxnasta leikmann deildarinnar, Ragnar Nathanaelsson hjá Þór Þorlákshöfn í leik liðanna í gær. Körfubolti 8. nóvember 2013 12:45
Hann var ekki að „fíla“ sig á Íslandi Mychal Green hefur spilað sinn síðasta leik í Dominos-deildinni í körfubolta því bandaríski leikmaður Skallagríms er farinn heim. Pálmi Þór Sævarsson, þjálfari Skallagríms taldi það best fyrir alla að enda samstarfið enda var kappinn óánægður á Íslandi. Körfubolti 8. nóvember 2013 11:15
Skallagrímur sendir Green heim Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur ákveðið að senda Mychal Green heim eftir að hafa spilað fjóra leiki með liðinu í Dominos-deild karla en þetta kemur fram á vefsíðunni Karfan.is. Körfubolti 8. nóvember 2013 08:15
Dwyane Wade fór mikinn í sigri á Clippers Þrír leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt en þar ber helst að nefna góðan sigur Miami Heat á LA Clippers, 102-97, en leikurinn fór fram í Miami í nótt. Körfubolti 8. nóvember 2013 07:30
Úrslit kvöldsins í Dominos-deild karla Þrír leikir fóru fram í Dominos-deild karla í kvöld. Stjarnan, Keflavík og ÍR unnu leiki sína. Körfubolti 7. nóvember 2013 21:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Haukar 94-79 | Stjarnan steig upp Stjörnumenn rifu sig upp í kvöld eftir erfiða byrjun á tímabilinu. Þá mættu þeir spútnikliði Hauka og unnu afar mikilvægan sigur á nágrönnum sínum. Körfubolti 7. nóvember 2013 17:01
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Þór Þ. 97-88 | Keflavík enn ósigrað Leiknum er lokið með níu stiga sigri Keflvíkinga, þeir voru með góða forystu fyrir seinasta leikhlutann en með góðri baráttu komu gestirnir sér inn í leikinn. Meiri umfjöllun og viðtöl á eftir. Körfubolti 7. nóvember 2013 10:10
Loksins vann Boston | Pacers ósigraðir Boston Celtics vann loksins fyrsta leik í NBA-deildinni í nótt þegar liðið bar sigur úr býtum gegn Utah Jazz, 97-87, í Boston. Bæði lið höfðu farið skelfilega af stað í deildinni og tapað öllum sínum leikjum en Boston landaði mikilvægum sigri. Körfubolti 7. nóvember 2013 09:00
Fínn leikur Helenu dugði ekki til sigurs Helena Sverrisdóttir og félagar í ungverska liðinu Miskolc fengu mikinn skell í Eurocup í kvöld. Körfubolti 6. nóvember 2013 22:06
Góður sigur hjá Jóni og félögum í Evrópukeppninni Jón Arnór Stefánsson og félagar í spænska liðinu CAI Zaragoza unnu sterkan sigur, 74-68, á ítalska liðinu Virtus Rome í kvöld. Körfubolti 6. nóvember 2013 21:07
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar - Keflavík 92-61 | Fyrsta tap Keflavíkur Haukastúlkur bundu enda á sjö leikja sigurgöngu Keflavíkur, 92-61, í Dominos-deild kvenna í körfuknattleik í Schenker-höllinni. Suðurnesjastúlkur áttu fá svör við leik Hauka sem voru með 28 stiga forskot eftir þrjá leikhluta. Körfubolti 6. nóvember 2013 18:45
James fór hamförum í sigri Miami á Toronto Miami Heat vann góðan sigur á Toronto Raptors, 104-95, í NBA-deildinni í nótt en leikurinn fór fram í Kanada. Körfubolti 6. nóvember 2013 09:00
Hlynur og Jakob stigahæstir í sigri Drekanna Íslendingarnir fóru einu sinni sem oftar fyrir liði Sundsvall Dragons í sænska körfuboltanum í kvöld. Þá unnu Drekarnir flottan heimasigur, 78-76, á Uppsala Basket. Körfubolti 5. nóvember 2013 19:43
Tvöfaldur slagur Keflavíkur og Grindavíkur Það verður sannkallaður risaslagur í 16-liða úrslitum Powerade-bikars karla í körfubolta þegar Keflavík fær Grindavík í heimsókn. Körfubolti 5. nóvember 2013 14:12
KR-ingar komnir með nýjan Kana Kvennalið KR hefur fengið liðsstyrk úr vesturátt. Ebone Henry, 22 ára gamall bandarískur leikmaður, mun leika með þeim röndóttu í vetur. Körfubolti 5. nóvember 2013 12:30