Vinna að því að færa átta vélar frá íslenska félaginu yfir til þess maltneska Fulltrúi skuldabréfaeigenda sem lögðu Play til samtals um 2,8 milljarða króna í lok síðasta mánaðar á nú viðræðum við stjórnendur flugfélagsins og flugvélaleigusala þess um að færa átta þotur yfir til maltneska félagsins. Gert er ráð fyrir að sú yfirfærsla klárist í vikunni og er búið að boða til fundar með kröfuhöfum í næstu viku. Innherji 29. september 2025 15:28
Gjaldþrot Play setur RIFF úr skorðum: „Þetta kemur á versta tíma“ Gjaldþrot Play hefur sett starfsemi kvikmyndahátíðarinnar RIFF úr skorðum þar sem tugir erlendra kvikmyndagerðarmanna, sem áttu að taka þátt í dagskrá hennar, sitja fastir á flugvöllum víða um heim. Aðstandendur biðla til Icelandair um að hjálpa sér. Lífið 29. september 2025 14:47
Sömu miðarnir kosti nú 370 þúsund Einn farþega Play sem átti flug til Tenerife í morgun segist efast um að hún og fjölskyldan muni fara til Tene í bráð. Flugmiðar sem hún hafi skoðað í morgun hafi síðan þá hækkað um tugi þúsunda. Viðskipti innlent 29. september 2025 14:37
Fargjöld ekki hækkuð af ásettu ráði Forsvarsmenn Icelandair eiga í samtali við stjórnvöld um mögulega aðkomu félagsins að því að bjarga strandaglópum sem sitja fastir erlendis vegna gjaldþrots Play. Forstjóri Icelandair segir samtalið á frumstigi, engar ákvarðanir hafi verið teknar. Viðskipti innlent 29. september 2025 13:22
Sjokk, stress og særindi í Leifsstöð Nokkur ringulreið skapaðist á Keflavíkurflugvelli í morgun eftir að óvænt var tilkynnt að starfsemi flugfélagsins Play hafi verið hætt. Innlent 29. september 2025 13:11
Samgöngustofa fundaði nýlega með Play og fékk gögn frá KPMG Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir Samgöngustofu hafa fengið upplýsingar frá endurskoðendafyrirtækinu KPMG í byrjun september að staða flugfélagsins Play væri í lagi og ekki tilefni til aðgerða gagnvart félaginu. Viðskipti innlent 29. september 2025 12:34
Ekki erfitt að vera föst í 25 gráðum en ástæðan sorgleg Tæplega áttatíu starfsmenn rekstrarfélags Kringlunnar og Reita í árshátíðarferð eru fastir í Sitges á Spáni eftir að flugi Play var aflýst vegna yfirvofandi gjaldþrots félagsins. Markaðsstjóri Kringlunnar segir það ekki amalegt að vera strandaglópur í 25 gráðum en tildrögin séu þó ansi sorglegar fréttir. Innlent 29. september 2025 12:05
„Óvænt og líka mjög leiðinlegt“ „Þetta er óvænt og líka mjög leiðinlegt. Ekki bara fyrir hönd okkar og ég verð að segja fyrir hönd Play og fyrir hönd Íslendinga,“ segir Elma Dís Árnadóttir starfsmaður Play, eftir tíðindi morgunsins um að flugfélagið væri hætt starfsemi. Innlent 29. september 2025 11:45
„Við erum ekki með öll eggin í sömu körfu“ Fjármálaráðherra segir tíðindi af gjaldþroti Play í morgun ekki góð. Aftur á móti fljúgi fjöldi flugfélaga til og frá Íslandi og því séu ekki öll eggin í sömu körfu hvað það varðar. Þá segir hann ríkið vel í stakk búið til að takast á við áfallið. Viðskipti innlent 29. september 2025 11:45
Föst í Portúgal: „Siðlaust“ að fljúga vélunum út í morgun Hópur tuttugu Íslendinga í Lissabon í Portúgal var búinn að tékka sig inn í flug Play til Íslands þegar tíðindi bárust af falli félagsins. Einn þeirra segir aðstæðurnar einkar sérkennilegar. Henni þyki siðlaust af forsvarsmönnum félagsins að hafa sent flugvélar út í morgun rétt fyrir tilkynningu um fall félagsins. Innlent 29. september 2025 11:30
„Hver fyrir sig hvað það varðar“ Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, segir gjaldþrot félagsins miklar sorgarfréttir fyrir starfsfólk félagsins. Margir muni tapa á gjaldþrotinu, hluthafar, kröfuhafar, birgjar og viðskiptavinir. Þá verði það til þess að Íslendingar tapi til lengri tíma vegna hærra verðs flugfara og minna framboðs. Félagið sé illu heilli ekki í neinni stöðu til að aðstoða strandaglópa erlendis. Viðskipti innlent 29. september 2025 10:49
Fara yfir stöðuna vegna Play og skipuleggja sig Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofunar, segir að starfsmenn stofnunar séu nú að fara að funda innan skammt vegna tíðinda dagsins. „Við ætlum að fara yfir stöðuna og skipuleggja okkur,“ segir Unnur í samtali við fréttastofu. Innlent 29. september 2025 10:44
Farþegar Play í Keflavík klóra sér í kollinum Anton Ingi Rúnarsson knattspyrnuþjálfari er einn þeirra farþega Play sem situr nú eftir á Keflavíkurflugvelli án flugs eftir gjaldþrot félagsins. Hann átti flug til Tenerife núna klukkan 10:30 og var á klósettinu þegar hann fékk tíðindin af falli félagsins. Miðann keypti hann fyrir gjafabréf sem hann fékk eftir ótrúlega seinkun á flugi félagsins í vetur. Viðskipti innlent 29. september 2025 10:36
Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Það skiptir máli fyrir þá sem hyggjast fá endurgreitt frá Play vegna flugferðar sem ekki var farið í eftir gjaldþrot félagsins, hvernig greitt var fyrir ferðina. Gjafabréf enda sem kröfur í þrotabú. Neytendur 29. september 2025 10:30
Kveðjubréf Einars forstjóra til starfsfólks Einar Ólafsson forstjóri Play þakkar starfsfólki sínu fyrir allt það sem það hefur gert fyrir félagið. Eftir á að hyggja hefði þurft að breyta viðskiptamódeli félagsins fyrr til að auka möguleika á árangri. Viðskipti innlent 29. september 2025 09:58
Play er gjaldþrota Flugfélagið Play er gjaldþrota og hefur hætt starfsemi. Fjögur hundruð missa vinnuna og ferðaáætlanir þúsunda farþega eru í uppnámi. Hægt er að lesa um nýjustu tíðindi í vaktinni að neðan. Viðskipti innlent 29. september 2025 09:37
Markaðsvirði Lotus hækkað um 500 milljónir dala eftir kaupin á Alvogen US Hlutabréfaverð taívanska lyfjafyrirtækisins Lotus, sem er meðal annars í eigu fjárfestingafélags Róberts Wessman, hefur rokið upp um tugi prósenta á nokkrum dögum eftir að tilkynnt var um kaupin á Alvogen US. Innherjamolar 28. september 2025 13:07
Vilja RÚV af auglýsingamarkaði Árvakur hf. og Sýn hf. hafa bæði skilað inn umsögn til Alþingis og lagst gegn frumvarpi menningar-, háskóla og nýsköpunarráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla. Með frumvarpinu er lagt til að hámarkshlutfall fjárveitinga til verkefna lækki úr 25 prósentum niður í 22 prósent, og myndi það þýða að styrkir til fjölmiðla á vegum Sýnar og Árvakurs myndu lækka. Innlent 27. september 2025 00:03
Kæmi ekki á óvart ef „illa nýtt“ bræðsla SVN á Seyðisfirði verði lokað Það ætti ekki að koma á óvart ef frekari brestur verður á uppsjávartegundum að Síldarvinnslan muni grípa til þess ráðs að loka fiskimjölsverksmiðjunni á Seyðisfirði, sem hefur verið illa nýtt, eftir að hafa farið í miklar fjárfestingar í bræðslunni á Neskaupstað, að mati hlutabréfagreinenda. Líklegast er Síldarvinnslan bregðist við hærri veiði- og kolefnisgjöldum með því að leggja skipum og hagræða, enda samkeppnislega erfitt fyrir félagið að leita leiða til sameininga og samvinnu. Innherji 25. september 2025 16:16
„Handagangur í öskjunni“ leiddi til þess að menntskælingar fengu áfengi Þrjú ungmenni í skólaferð á vegum Menntaskólans við Hamrahlíð voru afgreidd um áfengi í söluskála N1 á Hvolsvelli í gær. Framkvæmdastjóri félagsins segist harma málið. Það stafi af fljótfærni starfsmanna sem hafi ekki beðið um skilríki. Innlent 25. september 2025 15:09
Guðný ráðin fræðslustjóri og Kristófer Orri í gjaldeyrismiðlun Guðný Halldórsdóttir hefur verið ráðin fræðslustjóri Íslandsbanka og Kristófer Orri Pétursson hefur hafið störf í gjaldeyrismiðlun sama banka. Viðskipti innlent 25. september 2025 13:15
Kostaði tvo milljarða að selja Íslandsbanka Kostnaður ríkisins við þriðja útboð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka nam rétt rúmum tveimur milljörðum króna. Það nemur 2,22 prósent af heildarsöluandvirðinu. Viðskipti innlent 25. september 2025 11:13
Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Greiningardeild Íslandsbanka telur líklegt að vaxtalækkunarferli Seðlabanka Íslands ljúki líklega með stýrivöxtum á bilinu 5,5 til 6,0 prósent árið 2027. Íslensk heimili séu neysluglöð í ferðalögum og bílkaupum án þess þó að skuldsetja sig. Kaupmáttur sé mikill og íbúðamarkaður í jafnvægi. Viðskipti innlent 24. september 2025 14:22
Ragnar er fyrir ofan bankastjórann í Fantasy-deild Kaupþings Metsöluhöfundurinn Ragnar Jónasson var gestur Fantasýnar, hlaðvarps Sýnar um Fantasy-leik ensku úrvalsdeildarinnar. Þar greindi hann meðal annars frá því að hann væri fyrir ofan bankastjóra Arion banka í Fantasy-deild þeirra. Enski boltinn 24. september 2025 14:02
Brim kaupir allt hlutafé í Lýsi fyrir þrjátíu milljarða króna Búið er að samþykkja kauptilboð sjávarútvegsfyrirtækisins Brim í alla hluti Lýsi fyrir samtals þrjátíu milljarða króna sé miðað við heildarvirði félagsins. Forstjóri og aðaleigandi Brims sér mikil sóknarfæri í því fyrir fyrirtækið að færa sig lengra í virðiskeðju sjávarafurða. Innherjamolar 23. september 2025 21:39
Heildarvirði Alvogen metið á tvo milljarða dala við sölu á félaginu til Lotus Alvogen Pharma í Bandaríkjunum, sem er að stórum hluta í eigu fjárfestingafélags Róberts Wessman, hefur verið selt til Lotus í Taívan en heildarvirði samheitalyfjafyrirtækisins í viðskiptunum getur numið um tveimur milljörðum Bandaríkjadala. Þetta er önnur risasala Róberts á félögum í lyfjageiranum þar sem hann fer með ráðandi hlut á fáeinum mánuðum. Innherji 23. september 2025 21:03
Gengi Alvotech rauk upp þegar Deutsche Bank ráðlagði fjárfestum að kaupa Hlutabréfaverð Alvotech rauk mest upp um liðlega fimmtán prósent eftir að Deutsche Bank uppfærði mat sitt á félaginu með ráðleggingu til fjárfesta að kaupa en gengishækkunin litaðist meðal annars af því að skortsalar voru að reyna kaupa bréf til að loka stöðum sínum. Greinendur þýska bankans benda á að markaðurinn með líftæknilyfjahliðstæður sé að slíta barnsskónum og telja að Alvotech verði í hópi þeirra félaga sem muni njóta hvað mest ávinnings þegar hann fer að vaxa. Innherji 23. september 2025 16:48
Þóttist hafa rekið bróður sinn sem mætti óvænt aftur Þættirnir Brjánn hófu göngu sína á Sýn á fyrir viku. Þættirnir fjalla um eilífðarunglinginn Brján, sem hefur enga reynslu af þjálfarastörfum, nema í Football Manager, en hann fær tækifærið sem þjálfari liðsins. Lífið 23. september 2025 11:01
Ferðum aflýst og einni vél snúið við vegna drónaumferðar í Kaupmannahöfn Icelandair aflýsti einni ferð frá Kaupmannahöfn í gærkvöldi og einni vél snúið við aftur til Keflavíkur eftir að hafa verið lent í Álaborg þar sem Kastrup flugvöllur í Kaupmannahöfn var lokaður vegna drónaumferðar í nokkra klukkutíma í gærkvöldi. SAS hefur einnig aflýst ferðum milli Kaupmannahafnar og Keflavíkur en uppákoman hefur ekki haft nein áhrif á áætlunarflug Play. Innlent 23. september 2025 10:38
T+1 framundan í Evrópu. Er íslenski markaðurinn tilbúinn? Verslun og viðskipti með ýmsa vöru og þjónustu á internetinu er nokkuð skilvirk og yfirleitt er lítið mál að panta vöru eins og til dæmis skó og fá þá afhenta samdægurs. Ef þú ætlar hins vegar að fjárfesta í hlutabréfum skóframleiðandans, færðu þau ekki afhent fyrr en tveimur dögum eftir kaupin. Umræðan 23. september 2025 09:55
Áfengi umtalsvert dýrara í íslensku fríhöfninni en öðrum og jafnvel dýrara en í Ríkinu Neytendur