Eins og þrír erfiðir landsleikir Í dag klukkan 13 mæta Íslandsmeistarar Vals finnska liðinu FC Honka Espoo í fyrstu umferð Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu. Riðill Vals verður leikinn í Færeyjum og klárast á þriðjudaginn kemur. Íslenski boltinn 9. ágúst 2007 01:15
Útlitið dökkt í Vesturbænum Valur vann í gær þrjú dýrmæt stig á KR-vellinum og hélt þar með pressu á FH á toppi Landsbankadeildarinnar. KR situr enn á botni deildarinnar og virðast þjálfaraskiptin lítinn árangur hafa borið. Íslenski boltinn 9. ágúst 2007 01:00
Í heildina erum við með jafn gott lið Evrópuævintýri Íslandsmeistara FH er lokið í ár eftir 4-2 tap samanlagt gegn hvítrússneska liðinu BATE. Síðari leiknum í gær lyktaði með 1-1 jafntefli þar sem Tryggvi Guðmundsson kom FH yfir úr víti í fyrri hálfleik sem hann fékk sjálfur, en BATE jafnaði metin á lokamínútunni þegar FH freistaði þess að sækja annað mark. Íslenski boltinn 9. ágúst 2007 00:45
FH dottið úr undankeppni Meistaradeildar Evrópu FH féll í dag úr leik í undankeppni Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa gert 1-1 jafntefli FC Bate í Hvíta-Rússlandi í dag. FH-ingar töpuðu fyrri leiknum í Kaplakrika 3-1 og samanleg staða því 4-2 fyrir FC Bate. Tryggvi Guðmundsson skoraði mark FH úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik en Platonov jafnaði fyrir heimamenn undir lok leiksins. Auðun Helgason fékk rautt spjald í fyrri hálfleik. Íslenski boltinn 8. ágúst 2007 18:02
Gunnlaugur: Eyðileggjum titilvonir Valsmanna í kvöld Gunnlaugur Jónsson, fyrirliði KR, segir í samtali við Vísi að gott andrúmsloft sé í herbúðum liðsins fyrir komandi átök í fallbaráttu Landsbankadeildarinnar. KR-ingar mæta Valsmönnum á heimavelli í kvöld og greinilegt að leikurinn er mjög mikilvægur fyrir bæði lið þar sem Valsmenn eru í harðri toppbaráttu í deildinni, en KR situr á botni deildarinnar. Íslenski boltinn 8. ágúst 2007 16:56
Pesic hættur hjá Fram Stjórn Fram og Igor Pesic hafa komist að þeirri niðurstöðu að rifta samningi leikmannsins. Pesic hefur því lokið leik með Fram en hann kom til liðsins frá ÍA fyrir þetta leiktímabil. Hann lék níu leiki fyrir Fram í sumar og klúðraði meðal annars tveimur vítaspyrnum. Fram er í næstneðsta sæti Landsbankadeildarinnar með átta stig eftir 11 leiki. Félagið hefur fengið til sín tvo útlendinga á síðustu dögum, Nígeríumann og Dana. Íslenski boltinn 7. ágúst 2007 20:14
Vissi ekki að hann hefði skorað Paulo José de Oliveiera, brasilíski framherjinn hjá Häcken sem skoraði sigurmarkið gegn KR í Evrópuleiknum á fimmtudaginn, missti meðvitund í rúma mínútu þegar hann lenti í samstuði við markvörð KR. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús. Íslenski boltinn 4. ágúst 2007 14:15
Verð að fara að skora fyrir Breiðablik Fanndís Friðriksdóttir 17 ára stelpa úr Breiðabliki varð markahæsti leikmaður Evrópumóts 19 ára landsliða kvenna sem fram fór hér á landi og lauk með sigri Þjóðverja um síðustu helgi. Fanndís skoraði jafnmörg mörk og þær Mary-Laure Delie hjá Frakklandi og Ellen White hjá Englandi en lék færri leiki en þær báðar. Íslenski boltinn 4. ágúst 2007 05:30
KR úr leik eftir tap á heimavelli KR tapaði í kvöld fyrir sænska liðinu Häcken í Frostaskjóli. Leikurinn fór 1-0 fyrir gestina og þar með er KR úr leik í Evrópukeppni félagsliða þar sem fyrri leikurinn fór 1-1 í Svíþjóð. KR-ingar spiluð góðan bolta en voru óheppnir að fá á sig mark þegar aðeins 7 mínútur voru til leiksloka. KR hefði nægt markalaust jafntefli til að komast áfram. Þetta var fyrsti leikur Loga Ólafssonar sem þjálfari KR. Íslenski boltinn 2. ágúst 2007 20:49
Keflavík tapaði í Danmörku og er fallið úr leik Keflavík tapaði fyrir FC Midtjylland í dag 2-1 í seinni leik liðanna í undankeppni Evrópukeppni félagsliða. Keflavík vann fyrri leikinn á heimavelli 3-2 og staðan því samanlagt 4-4 eftir leikina tvo. Keflavík er þar með dottið úr leik því að FC Midtjylland skoraði fleiri mörk á útivelli. Íslenski boltinn 2. ágúst 2007 18:58
Evrópumótið í mýrarknattspyrnu haldið um helgina Evrópumótið í mýrarknattspyrnu verður haldið um helgina á Ísafirði. Þetta er í fjórða sinn sem að mótið verður haldið og verður umgjörðin flottari en nokkru sinni fyrr. Leikið verður á í það minnsta fjórum knattspyrnuvöllum og hafa á þriðja hundrað manns skráð sig. Íslenski boltinn 2. ágúst 2007 17:22
Keflvíkingar leika í dag síðari leik sinn gegn danska liðinu Midtjylland Keflvíkingar leika í dag síðari leik sinn gegn danska liðinu Midtjylland. Búist er við 10 þúsund áhorfendum á leikinn sem fram fer í Danmörku. Keflvíkingar unnu fyrri leik liðanna sem fram fór fyrir hálfum mánuði í Keflavík. Danirnir náðu þá tveggja marka forystu en Keflvíkingar skoruðu þrjú mörk og unnu mikilvægan 3-2 sigur. Íslenski boltinn 2. ágúst 2007 14:29
KR mætir Häcken í kvöld KR-ingar taka á móti sænska liðinu Häcken í kvöld en þetta er síðari leikur liðanna í fyrstu umferð Evrópukeppninnar. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í fyrri viðureign liðanna í Gautaborg fyrir hálfum mánuði. Svíarnir komust í 1-0 eftir 10 mínútna leik, en Guðmundur Pétursson jafnaði metin fyrir KR á 68. mínútu og ættu KR -ingar því að teljast í ágætis málum fyrir leikinn í dag. Íslenski boltinn 2. ágúst 2007 14:24
FH-ingar lágu í Kaplakrikanum FH-ingar töpuðu í kvöld fyrir Bate frá Hvíta-Rússlandi í fyrri leik liðanna í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu, 1-3. FH-ingar komust yfir á 3. mínútu með marki frá Matthíasi Vilhjálmssyni en Hvít-Rússarnir náðu að jafna á 31. mínútu. Staðan var 1-1 í hálfleik, en leikmenn Bate náðu að setja tvö mörk í seinni hálfleik. Íslenski boltinn 1. ágúst 2007 21:00
KR sigraði Breiðablik. KR sigraði Breiðablik í kvöld í 9. umferð Landsbankadeildar kvenna með sex mörkum gegn tveimur. KR-ingar leiddu 2-0 í hálfleik. Með sigrinum er KR komið við hlið Vals á toppnum með 25 stig en Valur er með betri markatölu. Breiðablik er í 3. sæti með 13 stig. Íslenski boltinn 1. ágúst 2007 20:17
1-1 í Kaplakrika Flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign FH og Bate í fyrri leik liðanna í 2. umferð Meistaradeildar Evrópu. Staðan er 1-1, en FH-ingar komust yfir á 3. mínútu þegar Matthías Vilhjálmsson skoraði eftir góða sókn. Eftir markið náðu leikmenn Bate taki á leiknum og voru mun meira með boltann. Á 31. mínútu jöfnuðu þeir leikinn með góðu marki en Daði Lárusson var nálægt því að verja. Íslenski boltinn 1. ágúst 2007 19:45
FH mætir Bate í Kaplakrika í kvöld Íslandsmeistarar FH leika fyrri leik sinn í annarri umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. FH-ingar mæta Bate Borisov frá Hvíta-Rússlandi og hefst leikurinn kl. 19:00 á Kaplakrikavelli. Íslenski boltinn 1. ágúst 2007 17:30
Casper gerir samning við Breiðablik út 2008 Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur framlengt samning við markvörðinn Casper Jacobsen sem verið hefur hjá félaginu frá því í byrjun júní þar sem Hjörvar Hafliðason þurfti að gangast undir aðgerð vegna meiðsla. Samningurinn gildir út keppnistímabilið 2008. Íslenski boltinn 1. ágúst 2007 16:37
Einn leikur í Landsbankadeild kvenna í kvöld Einn leikur verður leikinn í 9. umferð Landsbankadeildar kvenna í kvöld. Breiðablik heimsækir KR í vesturbæinn og hefst leikurinn klukkan 17:30. KR er í öðru sæti deildarinnar og Breiðablik í því þriðja en talsverður munur er á liðunum í stigafjölda. Leikurinn er mjög þýðingamikill fyrir KR því að með sigri komast þær við hlið Vals á toppi deildarinnar. Íslenski boltinn 1. ágúst 2007 14:42
Margrét Lára með sex mörk gegn ÍR Valur valtaði yfir ÍR í kvöld í Landsbankadeild kvenna, 10-0. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði sex marka Vals, þar af tvö úr vítaspyrnum. Guðný Björk Óðinsdóttir skoraði tvö og þær Vanja Stefanovic og Dóra María Lárusdóttir sitt markið hvor. Íslenski boltinn 30. júlí 2007 21:25
U17: Strákarnir töpuðu gegn Englendingum Ísland tapaði í dag í fyrsta leik sínum á Norðurlandamóti U17 karla fyrir Englendingum. Leikurinn fór 2-0 og skoruðu Englendingar bæði mörk sín í seinni hálfleik með stuttu millibili. Strákarnir mæta Svíum á morgun klukkan 13:00. Mótið fer fram í Danmörku. Íslenski boltinn 30. júlí 2007 17:06
Teitur rekinn frá KR Teitur Þórðarson hefur verið rekinn frá KR og Logi Ólafsson fyrrverandi landsliðsþjálfari tekur við liðinu og stjórnar sinni fyrstu æfingu klukkan 18:30. KR-ingar eru í neðsta sæti Landsbankadeildarinnar, aðeins með 7 stig eftir 11 umferðir. Teitur skrifaði upphaflega undir fimm ára samning við KR-Sport. Íslenski boltinn 30. júlí 2007 16:44
Landsbankadeild kvenna: Toppliðin sigruðu örugglega Fjórir leikir voru leiknir í Landsbankadeild kvenna í kvöld. KR og Valur sitja enn á toppi deildarinnar eftir stóra sigra á andstæðingum sínum. Hins vegar sitja Fylkir og Þór/KA enn á botni deildarinar eftir að hafa tapað sínum leikjum. Íslenski boltinn 27. júlí 2007 21:41
Skagamenn hafa innbyrgt 13 stig af síðustu 15 mögulegum Skagamenn hafa innbyrgt 13 stig af síðustu 15 mögulegum í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. ÍA vann öruggan sigur á HK þegar liðin áttust við í 11. umferð deildarinnar í gær. Skagamenn eru nú í þriðja sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Keflavík. Íslenski boltinn 27. júlí 2007 19:56
Fjórir leikir í Landsbankadeild kvenna í kvöld Fjórir leikir fara fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld. Fylkir fær Breiðablik í heimsókn, KR tekur á móti Keflavík, Stjarnan tekur á móti ÍR og Valur mætir Þór/KA á Akureyri. Valur og KR eru á toppi deildarinnar með 19 stig eftir 7 leiki, en Þór/KA og Fylkir eru á botninum með 3 stig eftir 7 leiki. Leikirnir hefjast klukkan 19:15. Íslenski boltinn 27. júlí 2007 17:03
Skagamenn sigruðu HK á Akranesi Skagamenn sigruðu í kvöld HK á heimavell í landsbankadeild karla, 4-1. Þórður Guðjónsson skoraði tvö mörk fyrir ÍA og þeir Andri Júlíusson og Vjekoslav Svadumovic sitt markið hvor. Finnur Ólafsson skoraði fyrir HK. Með sigrinum er ÍA komið í 4. sæti með 18 stig eins og Keflavík, en lakara markahlutfall. HK er áfram í 8. sæti með 11 stig. Íslenski boltinn 26. júlí 2007 21:15
Einn leikur í Landsbankadeild karla í kvöld Einn leikur verður í Landsbankadeild karla í kvöld. Skagamenn taka á móti HK-ingum á Akranesi. Sigri skagamenn leikinn komast þeir upp að hlið Keflavíkur í bili með 18 stig í þriðja sæti en með lélegra markahlutfall. HK getur með sigri komið sér upp fyrir Víking og í sjöunda sæti. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Íslenski boltinn 26. júlí 2007 17:56
Blikar sáu eftir færunum og stigunum KR-ingar voru nálægt því að vinna fyrsta útisigurinn í Kópavogi í gær. Blikar náðu að jafna í lokin en þeir áttu öll stigin skilin. KR-ingar sitja enn sem fastast á botni Landsbankadeildar karla. Íslenski boltinn 26. júlí 2007 03:45
Enginn glansfótbolti hjá FH sem kláraði verkefnið örugglega FH og HB gerðu markalaust jafntefli í síðari leik liðanna í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í Færeyjum í gær. FH vann leikinn 4-1 og er þar með komið áfram en leikurinn í gær þótti ekki mikið fyrir augað. Íslenski boltinn 26. júlí 2007 00:30
Kóngurinn Sinisa Kekic gekk frá Frömurum Víkingar stigu stríðsdans fyrir framan stuðningsmenn í gærkvöldi og fögnuðu, því sem gæti á endanum orðið ómetanlegur sigur, sigri á Frömurum. Íslenski boltinn 26. júlí 2007 00:15