Guðjón Pétur hættur hjá Val Guðjón Pétur Lýðsson hefur spilað sinn síðasta leik með Val og verður ekki með liðinu í Pepsi-deildinni næsta sumar. Knattspyrnufélagið Valur birti fréttatilkynningu á heimasíðu sinni í kvöld. Samkomulag þetta er gert í bróðerni og óska báðir aðilar hvor öðrum alls hins besta í framtíðinni. Íslenski boltinn 6. febrúar 2013 18:50
Argentínumenn stilla upp "eins" og Íslendingar í kvöld Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, teflir fram mjög sókndjöfru liði í vináttulandsleiknum á móti Rússlandi á Spáni í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19.30 og er í beinni á Stöð 2 Sport sem og hér á Boltavaktinni á Vísi. Fótbolti 6. febrúar 2013 18:40
Eiður og Gylfi á köntunum - Kolbeinn með fyrirliðabandið Kolbeinn Sigþórsson ber fyrirliðaband íslenska fótboltalandsliðsins í fyrsta sinn í kvöld þegar Ísland mætir Rússlandi í vináttulandsleik á Marabella á Spáni en leikurinn hefst klukkan 19.30 og er í beinni á Stöð 2 Sport og á Boltavakt Vísis. Fótbolti 6. febrúar 2013 18:09
Áttunda tap 21 árs landsliðsins í röð Íslenska 21 árs landsliðið tapaði 3-0 á móti Wales í vináttulandsleik í Wales í dag. Wales var sterkara liðið í leiknum en skoraði ekki mörkin sín fyrr en á lokamínútum leiksins. Íslenski boltinn 6. febrúar 2013 17:01
Lettinn sem kom til Íslands í fyrra en hvarf síðan Það vakti mikla athygli í maí á síðasta ári þegar Lettinn Krisjanis Klavins varð formaður FFR í 3. deildinni. Íslenski boltinn 6. febrúar 2013 08:30
Við erum of grandalausir Mál tengd veðmálasvindli og hagræðingu úrslita leikja hafa komið upp hér á Íslandi síðustu ár. Framkvæmdastjóri KSÍ, Þórir Hákonarson, hefur miklar áhyggjur af þessari þróun. "Félögin halda að þetta eigi ekkert við á Íslandi,“ segir Þórir í viðtali við Fréttablaðið. Íslenski boltinn 6. febrúar 2013 08:00
Gylfi og Kolbeinn aðeins saman á vellinum í 193 mínútur Tvær stærstu stjörnur íslenska fótboltalandsliðsins verða báðar með í fyrsta leik liðsins á árinu þegar Ísland mætir Rússlandi í Marbella á Spáni í kvöld. Þeir voru aðeins saman inn á 21 prósent leiktímans í fyrra. Fótbolti 6. febrúar 2013 07:00
Lagerbäck leitar að réttu stöðunni fyrir Eið Smára Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður á Stöð 2, ræddi við landsliðsþjálfarann Lars Lagerbäck í tilefni af vináttulandsleiknum á móti Rússum í Marbella á Spáni á morgun en leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Fótbolti 5. febrúar 2013 17:50
Guðlaugur Victor söng Lífið er yndislegt Nýliðinn Guðlaugur Victor Pálsson var busaður af félögum sínum í íslenska landsliðinu í gær. Þurfti leikmaðurinn að halda ræðu, syngja og dansa. Íslenski boltinn 5. febrúar 2013 11:30
Lars vill spila við sterk lið Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Rússlandi í vináttulandsleik í Marbella á Spáni á morgun en þetta er fyrsti leikur liðsins á árinu 2013. KSÍ birti í gær svör landsliðsþjálfarans Lars Lagerbäck á blaðamannafundi með rússnesku pressunni. Íslenski boltinn 5. febrúar 2013 06:00
Skorin upp herör gegn einelti Myndband sem leikmenn A-landsliðs kvenna í knattspyrnu sendu frá sér í haust varð kveikjan að samstarfi KSÍ við yfirvöld um þátttöku knattspyrnuhreyfingarinnar í baráttunni gegn einelti í íslensku samfélagi. Íslenski boltinn 2. febrúar 2013 10:00
Elín Metta með fernu að meðaltali í leik Valskonan Elín Metta Jensen skoraði fimm mörk í 10-0 sigri á KR í Reykjavíkurmóti kvenna í gær og hefur þar með skorað tólf mörk í þremur fyrstu leikjum sínum á mótinu í ár. Elín Metta hefur skorað þrennu, fernu og fimmu í leikjunum þremur. Íslenski boltinn 1. febrúar 2013 17:45
48 milljóna rekstrarhagnaður hjá KSÍ á árinu 2012 Knattspyrnusamband Íslands birti í dag inn á heimasíðu sinni ársreikning sambandsins fyrir árið 2012 en rekstrarhagnaður ársins nam tæpum 48 milljónum króna eða fimmtán milljónum minna en áætlanir gerðu ráð fyrir. Íslenski boltinn 1. febrúar 2013 17:23
Hlynur Atli á leið til Þórs Hlynur Atli Magnússon mun spila með nýliðum Þórs í Pepsi-deild karla næsta sumar en hann mun skrifa undir tveggja ára samning um helgina. Íslenski boltinn 1. febrúar 2013 12:15
Kristín Ýr kemur aftur til Vals Kristín Ýr Bjarnadóttir mun spila með Val í Pepsi-deild kvenna í sumar en hún var síðast á mála hjá Avaldsnes í Noregi. Fótbolti 31. janúar 2013 10:00
Ingvar samdi við Stjörnuna á nýjan leik Markvörðurinn Ingvar Jónsson er búinn að skrifa undir nýjan samning við Stjörnuna og verður því áfram í Garðabænum. Íslenski boltinn 29. janúar 2013 18:14
Formaður Fjölnis: Við fáum 35-38 milljónir fyrir Aron Kristján Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Fjölnis, staðfesti í samtali við Vísi í dag að félagið muni fá 35-38 milljónir króna í sinn hlut vegna sölunnar á Aroni Jóhannssyni til AZ Alkmaar. Íslenski boltinn 29. janúar 2013 11:15
Grétar: Líklegra að ég verði áfram í KR Grétar Sigfinnur Sigurðarson, leikmaður KR, segist vilja berjast fyrir sæti sínu hjá félaginu þrátt fyrir að hafa fengið þau skilaboð að hann megi líta í kringum sig. Íslenski boltinn 28. janúar 2013 13:00
Geir áfram formaður KSÍ | Stjórnin óbreytt Geir Þorsteinsson fékk ekkert mótframboð í embætti formanns Knattspyrnusambands Íslands fyrir ársþing sambandsins um næstu helgi. Íslenski boltinn 28. janúar 2013 12:15
Báðir miðverðir Valsmanna farnir - Halldór Kristinn í Keflavík Valsmenn munu tefla fram tveimur nýjum miðvörðum í Pepsi-deild karla á komandi sumri því Halldór Kristinn Halldórsson er búinn að gera samning við Keflavík. Þetta kemur fram á vefsíðunni fótbolti.net. Íslenski boltinn 26. janúar 2013 14:00
Lagerbäck: Eiður var jákvæður Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari valdi Eið Smára Guðjohnsen í landsliðshóp sinn í annað skipti í gær. Þjálfarinn sænski hitti Eið Smára að máli í Belgíu um síðustu helgi og segir að framherjinn sé jákvæður gagnvart íslenska landsliðinu. Fótbolti 26. janúar 2013 06:00
Valur hefur áhuga á Grétari Sigfinni Kristinn Kjærnested segir að Valur hafi sett sig í samband við KR-inga til að kanna stöðu Grétars Sigfinns Sigurðarsonar. Íslenski boltinn 25. janúar 2013 20:43
Grétars ekki óskað hjá KR Grétar Sigfinnur Sigurðarson er líklega á leið frá KR. Honum var tilkynnt í gær að þjálfarinn Rúnar Kristinsson vilji frekar nota aðra leikmenn. Íslenski boltinn 25. janúar 2013 16:52
Stelpurnar spila við Svía 6. apríl Knattspyrnusambönd Íslands og Svíþjóðar hafa komist að samkomulagi um að kvennalandslið þjóðanna leiki vináttulandsleik ytra 6. apríl næstkomandi. Leikið verður í Växjö en á þeim velli mun íslenska liðið leika tvo af þremur leikjum sínum í riðlakeppni úrslitakeppni EM í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Íslenski boltinn 25. janúar 2013 13:08
Eiður og Kolbeinn snúa aftur í landsliðið Lars Lagerbäck, A-landsliðsþjálfari í knattspyrnu, valdi Eið Smára Guðjohnsen í landsliðshóp sinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Rússum í byrjun febrúar. Sá leikur fer fram á Spáni. Kolbeinn Sigþórsson er líka aftur kominn inn í hópinn eftir meiðsli. Íslenski boltinn 25. janúar 2013 12:44
KR vann 3-0 í fyrsta leik Andra Ólafs KR-ingar hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í Reykjavíkurmóti karla en Vesturbæjarliðið vann 3-0 sigur á Þrótti í Egilshöllinni í gærkvöldi. Andri Ólafsson kom frá ÍBV á sunnudaginn og lék sinn fyrsta leik með liðinu í gær. Íslenski boltinn 25. janúar 2013 09:15
Ásgeir Gunnar hættur Ásgeir Gunnar Ásgeirsson mun ekki spila knattspyrnu næsta sumar og segir að hann sé hættur. Íslenski boltinn 24. janúar 2013 15:57
Fylkir vann Fram í gær og svona voru mörkin Tveir leikir fóru fram í gærkvöldi í b-riðli Reykjavíkurmóts karla í fótbolta og eftir þá eru Leiknismenn á toppnum eftir tvær fyrstu umferðirnar. Fylkismenn voru þó lið kvöldsins í Egilshöllinni. Íslenski boltinn 24. janúar 2013 11:45
Líkaminn í betra standi nú en fyrir óléttuna Landsliðskonurnar Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir og Edda Garðarsdóttir eru á leiðinni til Englands þar sem þær munu spila með liði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Þæ´r eiga saman sjö mánaða stúlku og hefur Ólína því verið í fríi frá knattspyrnuiðkun síðasta árið eða svo. Hún segir þó að það hafi alltaf verið stefnan að taka knattspyrnuskóna fram á ný. Fótbolti 23. janúar 2013 10:30
Elín Metta með sjö mörk í fyrstu tveimur leikjunum Valskonan Elín Metta Jensen, sem fékk Gullskóinn í Pepsi-deild kvenna síðasta sumar, byrjar tímabilið vel því hún er búin að skora þrennur í tveimur fyrstu leikjum Valsliðsins á tímabilinu og alls sjö mörk í þessum tveimur leikjum. Íslenski boltinn 22. janúar 2013 16:00