Valur hefur áhuga á Grétari Sigfinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. janúar 2013 20:43 Kristinn fagnar bikarmeistaratitlinum með Gary Martin síðastliðið sumar. Mynd/Daníel
Kristinn Kjærnested segir að Valur hafi sett sig í samband við KR-inga til að kanna stöðu Grétars Sigfinns Sigurðarsonar. Grétar Sigfinnur sagði í samtali við Vísi í dag að honum hafi verið tilkynnt að hann væri kominn aftarlega í goggunarröðina og að honum væri frjálst að finna sér nýtt félag. „Valsararnir höfðu samband við okkur á mánudag. Þá fóru þjálfarar að skoða stöðu Grétars og mátu það þannig að það væri best að hleypa honum í viðræður við Val," sagði Kristinn við Vísi en hann er formaður knattspyrnudeildar KR. „Hann fékk leyfi til þess hjá okkur í gær. En ég held að hann hafi ekki enn rætt við Valsarana." Kristinn segir að það hafi ekki borist í tal að leyfa Grétari að fara annað fyrr en fyrirspurnin hafi borist frá Val. „Boltinn byrjaði ekki að rúlla fyrr en þá," sagði Kristinn. Grétar lýsti óánægju sinni í viðtalinu á Vísi fyrr í dag en Kristinn segir að félagið hafi komið heiðarlega fram. „Þegar fyrirspurn barst í leikmann á þessum aldri þá tókum við fagmannlega á málinu. Niðurstaðan var að stóla frekar á aðra leikmenn." „Það er þó alls ekki verið að henda honum út úr félaginu. Auðvitað hefur þetta komið honum á óvart eins og mörgum öðrum en við áttum fínan fund með honum í dag. Hann mun sjálfsagt líta í kringum sig og taka svo ákvörðun." Kristinn ítrekar að Grétari sé frjálst að vera áfram í KR og berjast fyrir sínu sæti. „En í ljósi þess að við höfum fengið Andra [Ólafsson] og þess háttar er staða hans í liðinu breytt." Brynjar Björn Gunnarsson hefur verið sterklega orðaður við KR en Kristinn getur ekki staðfest komu hans. „Ég vona eins og allir KR-ingar að hann komi. Það ætti að skýrast á allra næstu dögum. Það er ekki öruggt enn," sagði Kristinn.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Grétars ekki óskað hjá KR Grétar Sigfinnur Sigurðarson er líklega á leið frá KR. Honum var tilkynnt í gær að þjálfarinn Rúnar Kristinsson vilji frekar nota aðra leikmenn. 25. janúar 2013 16:52 Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira
Grétars ekki óskað hjá KR Grétar Sigfinnur Sigurðarson er líklega á leið frá KR. Honum var tilkynnt í gær að þjálfarinn Rúnar Kristinsson vilji frekar nota aðra leikmenn. 25. janúar 2013 16:52