Formaður Fjölnis: Við fáum 35-38 milljónir fyrir Aron Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. janúar 2013 11:15 Mynd/Heimasíða AZ
Kristján Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Fjölnis, staðfesti í samtali við Vísi í dag að félagið muni fá 35-38 milljónir króna í sinn hlut vegna sölunnar á Aroni Jóhannssyni til AZ Alkmaar. Aron var í morgun kynntur til sögunnar sem nýr leikmaður AZ Alkmaar en hann var keyptur til liðsins frá danska liðinu AGF. Þangað kom hann frá Fjölni árið 2010, þegar Aron var 20 ára gamall. „Fyrir utan peningaumræðuna þá erum við í Fjölni fyrst og fremst rosalega stolt af stráknum. Hann hefur lagt gríðarlega mikið á sig síðan hann fór út og það er fyrst og fremst hann sem býr til þennan pening fyrir okkur," sagði Einar í samtali við Vísi. Það voru ekki margir sem vissu af Aroni þegar hann var skyndilega keyptur til AGF í Danmörku. Hann var að spila í fyrstu deildinni með Fjölni þegar hann komst á atvinnumannasamning. Einar vill ekki segja hvað félagið fékk fyrir hann við söluna til AGF en áður hefur verið greint frá því að Fjölnir fór frekar fram á minni upphæð fyrir hann við söluna en samdi þess í stað um ákveðið hlutfall af þeirri upphæð sem hann yrði seldur fyrir, kæmi til þess á samningstímanum hjá AGF. Það voru þó ekki allir hjá Fjölnir sáttir við það fyrirkomulag sem var gert á sínum tíma. „Við sem gerðum þennan samning á sínum tíma erum auðvitað afskaplega ánægðir í dag," sagði Einar í léttum dúr. Kaupverðið er ekki uppgefið en Fjölnir hefur þó fengið fullan aðgang að þeim upplýsingum sem snerta félagið. „Ég get staðfest að Fjölnir fær 35-38 milljónir vegna sölunnar," sagði Einar. Hann bætir við að þetta séu góð tíðindi fyrir Fjölni sem ætlar sér að fara vel með aurinn. „Við höfum nú rekið deildina okkar réttu megin við núllið síðustu tvö ár og það er ekkert bull í gangi hjá okkur. Nú tökum við því rólega og leyfum rykinu að falla áður en við tökum ákvörðun um framhaldið." „Það er þó ljóst að munum ekki breyta um stefnu hjá félaginu. Við munum áfram nota unga leikmenn þó svo að það geti verið að við munum styrkja okkur eitthvað." Fjölnir hafnaði í sjöunda sæti 1. deildar karla síðastliðið tímabil.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti Elvar kemur inn fyrir Elvar Handbolti Fleiri fréttir Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Sjá meira