Stelpurnar okkar spila við heimsmeistarana í hádeginu á morgun Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta spilar lokaleik sinn á Algarve-mótinu á morgun þegar liðið mætir Japan í leiknum um níunda sætið. Fótbolti 10. mars 2015 18:19
Mark og stoðsending Kristins telur ekki | Ólöglegur og ÍBV vinnur 3-0 Breiðablik vann ÍBV í Lengjubikarnum, 2-0, en ÍBV verður dæmdur 3-0 sigur. Íslenski boltinn 10. mars 2015 12:30
Þjálfari Bandaríkjanna tók gagnrýni Freys eftir leik illa Freyr Alexandersson sagðist ekki skilja hvers vegna Bandaríkin spörkuðu bara langt fram. Fótbolti 10. mars 2015 12:00
Jóhannes: Við teljum þetta vera mikinn feng ÍBV skrifaði í gær undir tveggja ára samning við 27 ára gamlan hollenskan miðjumann sem lofar góðu. Íslenski boltinn 10. mars 2015 06:30
Náðu ekki að skora hjá Guðbjörgu en komast samt í úrslitaleikinn Bandaríska landsliðið spilar til úrslita í Algarve-bikarnum þrátt fyrir að ná aðeins markalausu jafntefli á móti Íslandi í kvöld. Fótbolti 9. mars 2015 20:10
Íslensku stelpurnar náðu jafntefli á móti bandaríska landsliðinu Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta gerði markalaust jafntefli við Bandaríkin í þriðja og síðasta leik sínum í riðlakeppni Algarve-bikarsins í Portúgal í kvöld. Fótbolti 9. mars 2015 19:26
Fíflaði Ásgeir Börk og skoraði glæsilegt mark Ungur leikmaður Þróttar, Jón Kaldal, skoraði laglegt mark gegn Fylki í Lengjubikarnum á dögunum. Íslenski boltinn 9. mars 2015 17:45
Prinsinn talaði vel um íslenska boltann ÍBV fékk góðan liðsstyrk í dag þegar Hollendingurinn Mees Junior Siers samdi við félagið til tveggja ára. Íslenski boltinn 9. mars 2015 14:30
Eyjamenn sömdu við Hollending til tveggja ára Mees Junior Siers genginn í raðir ÍBV frá SönderjyskE í Danmörku. Íslenski boltinn 9. mars 2015 13:19
Byrjunarliðið gegn Bandaríkjunum: Margrét Lára ekki í hópnum Freyr Alexandersson gerir fimm breytingar á liðinu sem mætir Bandaríkjunum á Algarve-mótinu í dag. Fótbolti 9. mars 2015 13:09
Dagný: Man alveg hvað hún heitir Rétt rúm fimm ár eru síðan Dagný Brynjarsdóttir þreytti frumraun sína með landsliðinu en fyrsti leikurinn var gegn stórliði Bandaríkjanna á Algarve-mótinu í Portúgal. Íslenski boltinn 9. mars 2015 06:30
Frábær endurkoma Selfoss gegn Fjölni Haukar og Selfoss unnu sína leiki í A-deild Lengjubikars karla, en einungis tveir leikir voru á dagskrá í Lengjubikarnum í dag. Íslenski boltinn 8. mars 2015 23:30
Stjarnan með stórsigur fyrir austan Sex leikir fóru fram í A-deild Lengjubikarsins í fótbolta í dag. Íslenski boltinn 7. mars 2015 23:26
ÍA og HK með fullt hús stiga í Lengjubikarnum ÍA hefur byrjað frábærlega í Lengjubikarnum í fótbolta og það var engin breyting þar í dag. Skagamenn tóku þá á móti Grindavík í Akraneshöllinni og fóru með sigur af hólmi, 3-2. Íslenski boltinn 7. mars 2015 14:53
Ísland færði Noregi mark á silfurfati á Algarve | Myndband Íslenska landsliðið í fótbolta tapaði fyrir því norska á Algarve-mótinu í Portúgal í gær. Íslenski boltinn 7. mars 2015 12:15
Bjarni hafði betur gegn gömlu lærisveinunum KR vann fyrsta sigur sinn í Lengjubikarnum í fótbolta þegar liðið lagði Fram. Íslenski boltinn 6. mars 2015 21:11
Freyr: Noregur spilaði eins og þegar Drillo var með karlaliðið Leikstíll norska kvennalandsliðsins kom þjálfara íslands á óvart. Fótbolti 6. mars 2015 20:35
Stelpurnar töpuðu fyrir Noregi | Myndir Kvennalandsliðið án stiga eftir fyrstu tvo leikina á Algarve-mótinu og mætir stórliði Bandaríkjanna í lokaumferðinni. Fótbolti 6. mars 2015 19:45
Margrét Lára byrjar á móti Noregi | Átta breytingar Miklar breytingar á kvennalandsliðinu fyrir leikinn gegn Noregi í kvöld. Fótbolti 6. mars 2015 15:30
Lára Kristín: Má ekki gera of miklar kröfur Nýliðinn í landsliðinu spilaði út úr stöðu í fyrsta landsleiknum. Fótbolti 6. mars 2015 15:11
Guðrún kölluð til Algarve í stað Katrínar Miðjumaðurinn öflugi glímir enn við einkenni eftir höfuðhögg. Fótbolti 5. mars 2015 20:52
Eyjamenn semja við Norðmann | Var á mála hjá Manchester City ÍBV hefur samið við norska leikmanninn Tom Even Skogsrud. Íslenski boltinn 5. mars 2015 10:15
Freyr: Hefði verið rómantík að fá mark frá Margréti Láru Íslenska kvennalandsliðið tapaði fyrsta leiknum á Algarve-mótinu í gær á móti Sviss, 2-0. Landsliðsþjálfarinn ánægður með hvernig leikurinn spilaðist. Sport 5. mars 2015 06:00
Fjör í Reykjaneshöllinni Keflavík og Valur skildu jöfn, 3-3, í miklum markaleik í Lengjubikarnum í kvöld. Leikið var í Reykjaneshöllinni. Íslenski boltinn 4. mars 2015 20:09
Freyr: Þær opnuðu okkur aldrei í leiknum Landsliðsþjálfarinn ánægður þrátt fyrir tap gegn Sviss á Algarve-mótinu. Fótbolti 4. mars 2015 18:48
Tap gegn Sviss í fyrsta leik á Algarve-mótinu Stelpurnar okkar fengu á sig tvö mörk í seinni hálfleik. Fótbolti 4. mars 2015 16:53
Stjörnuliðið á móti Sviss | Margrét Lára byrjar á bekknum Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur tilkynnt byrjunarliðið sitt fyrir fyrsta leik liðsins á Algarve-mótinu í Portúgal og hann treystir mikið á fyrrum og núverandi leikmenn Íslandsmeistara Stjörnunnar. Íslenski boltinn 4. mars 2015 11:34
Margrét Lára: Kem aftur sem betri leikmaður Markadrottningin er með litla strákinn, kærastann og systur sína með sér á Algarve. Fótbolti 4. mars 2015 06:00
Freyr: Dagný er alveg grjóthörð og segist vera heil Kvennalandsliðið í fótbolta hefur leik á Algarve-mótinu á morgun. Fótbolti 3. mars 2015 20:51
Markverðir Íslands aðeins spilað 180 mínútur á árinu Staðan á markvörðum íslenska landsliðsins í fótbolta svipað slæm og á framherjunum fyrir leikinn gegn Kasakstan. Fótbolti 3. mars 2015 19:00