Ljónin stungu af í seinni hálfleiknum Rhein-Neckar Löwen vann öruggan sjö marka sigur á Wetzlar, 27-20, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og náði efsta sæti deildarinnar í að minnsta kosti rúman klukkutíma. Handbolti 19. nóvember 2014 19:32
Ellefu sigrar í röð hjá strákunum hans Arons Lærisveinar Arons Kristjánssonar í KIF Kolding lentu í hörkuleik á móti Tvis Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld en lönduðu að lokum fjögurra marka sigri, 30-26. Handbolti 19. nóvember 2014 19:15
Birna Berg markahæst í sigri Sävehof Íslenska landsliðskonan Birna Berg Haraldsdóttir átti flottan leik í kvöld þegar Sävehof vann 18 marka útisigur á Skånela IF, 37-19, í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta. Handbolti 19. nóvember 2014 19:08
Heldur ævintýri Göppingen áfram gegn Kiel? Það er boðið upp á stórleik í þýska handboltanum í kvöld er Göppingen tekur á móti Kiel. Handbolti 19. nóvember 2014 17:45
Frænkur að stíga sín fyrstu skref með landsliðinu Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir er ekki sú eina úr fjölskyldunni sem er í kvennalandsliðinu í handbolta að þessu sinni því þar er einnig frænka hennar, Karen Helga Díönudóttir. Handbolti 19. nóvember 2014 06:30
Landsliðskona í handbolta vann bæði gull og brons á EM í hópfimleikum Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, Evrópumeistari með unglingalandsliði Íslands í hópfimleikum árið 2012, tók handboltann fram yfir fimleikana og komst í gær í A-landslið kvenna í handbolta í fyrsta sinn. Hún er einn af þremur nýliðum fyrir leiki í forkeppni HM. Handbolti 19. nóvember 2014 06:00
Aron Rafn varði vel í góðum útisigri Guif Lærisveinar Kristjáns Andréssonar í Eskilstuna Guif unnu tveggja marka útisigur á Hammarby, 29-27, í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Handbolti 18. nóvember 2014 19:40
Barein og Furstadæmin biðja IHF um að fá að vera aftur með Barein og Sameinuðu arabísku Furstadæmin hafa nú óskað eftir því formlega við Alþjóðahandboltasambandið að fá aftur sæti sín á HM í handbolta í Katar. Veik von Íslands um að fá að vera með á heimsmeistaramótinu er því væntanlega úr sögunni. Handbolti 18. nóvember 2014 16:14
Olason búinn að læsa markinu eftir komu Atla til Akureyrar Daninn ver allt hvað af tekur í marki Akureyrar í Olís-deildinni í handbolta þessa dagana, en munurinn á tölfræði hans á heimavelli nú og í byrjun tímabils er gríðarlegur. Handbolti 18. nóvember 2014 13:15
Ágúst valdi þrjá nýliða í hópinn Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari kvenna, tilkynnti í dag hvaða 22 manna landsliðshóp fyrir komandi verkefni landsliðsins. Handbolti 18. nóvember 2014 12:41
Verða Barein og SAF með á HM í Katar eftir allt saman? Það virðist ekki vera loku fyrir það skotið að þjóðirnar taki sæti sín á HM eftir allt saman. Handbolti 18. nóvember 2014 09:00
Patrekur: Þarf að finna menn sem eru ekki farþegar Patrekur Jóhannesson, þjálfari Hauka, var allt annað en ánægður með frammistöðu sinna manna á Akureyri þegar liðið tapaði með sjö marka mun fyrir liði Akureyrar í 11. umferð Olís-deildar karla. Handbolti 17. nóvember 2014 21:32
Stjarnan með sigurmark í lokin og FH burstaði Fram | Úrslit kvöldsins FH-ingar áttu ekki í miklum vandræðum með Framara í 11. umferð Olís-deildar karla í kvöld en en bæði botnlið deildarinnar urðu að sætta sig við tap í sínum leikjum því HK tapaði með eins marks mun á heimavelli á móti Stjörnunni. Handbolti 17. nóvember 2014 21:23
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Afturelding - Valur 28-28 | Sanngjörn niðurstaða í toppslagnum Afturelding og Valur skildu jöfn, 28-28, í uppgjöri efstu liðanna í 11. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Handbolti 17. nóvember 2014 14:12
Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - Haukar 28-21 | Akureyringar fóru illa með Hauka Akureyrarliðið fagnaði sínum þriðja sigri í röð í Olís-deild karla í handbolta í kvöld þegar liðið vann sjö marka stórsigur á Haukum, 28-21, í Höllinni á Akureyri. Handbolti 17. nóvember 2014 14:07
Björgvin prófar nýjar og áhugaverðar greiðslur Hárið á Björgvini Páli Gústavssyni hefur oft vakið athygli en þó aldrei meira en núna. Handbolti 17. nóvember 2014 11:30
Þrír íslenskir leikmenn og einn þjálfari tilnefndir í stjörnuliðið Kosning á leikmönnum í stjörnulið þýsku 1. deildarinnar í handbolta hefst í dag en þar koma fjórir Íslendingar til greina. Handbolti 17. nóvember 2014 10:45
Þórey Rósa næstmarkahæst í tapi Tíu íslensk mörk í norsku úrvalsdeildinni í dag. Handbolti 16. nóvember 2014 19:27
Fulkominn leikur hjá Örnu Sif Arna Sif Pálsdóttir nýtti öll sín fjögur skot í öruggum sigri SK Århus á Silkeborg-Voel KFUM. Handbolti 16. nóvember 2014 17:31
Aron vann Vigni Aron Kristjánsson og lærisveinar eru með sex stiga forystu í dönsku úrvalsdeildinni. Handbolti 16. nóvember 2014 17:06
Rut með sigur en Birna spilaði ekki Þrír Íslendingar voru í eldlínunni í Evrópukeppnunum í handbolta í dag þar á meðal tveir eftirlitsmenn. Handbolti 16. nóvember 2014 14:57
Umfjöllun og viðtöl: ÍR - ÍBV 27-25 | Baráttusigur ÍR-inga ÍR vann góðan sigur á ÍBV í Olís-deild karla í handknattleik, 27-25, í fínum handboltaleik. Handbolti 16. nóvember 2014 14:00
Guðjón skoraði tvö í markaleik Guðjón Valur Sigurðsson skoraði tvö mörk þegar Barcelona vann Flensburg í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í kvöld. Leikið var í Þýskalandi og var leikurinn mikill markaleikur. Handbolti 15. nóvember 2014 22:57
BjarkI Már og Hannes frábærir í sigri Eisenach Bjarki Már og Hannes léku vel í Íslendingaveislu í þýsku B-deildinni í handbolta. Handbolti 15. nóvember 2014 21:04
Torsóttur sigur Löwen Rhein-Neckar Löven lenti í vandræðum með Melsungen á útivelli, en vann að lokum þriggja marka sigur. Þrjú íslensk mörk litu dagsins ljós. Handbolti 15. nóvember 2014 20:52
Stjarnan og Haukar með sigra Stjarnan og Haukar unnu síðustu leikina sem fóru fram í Olís-deild kvenna. Báðir sigrarnir voru nokkuð öruggir. Handbolti 15. nóvember 2014 19:16
Auðvelt hjá Fram Fram vann síðari leikinn gegn gríska liðinu Megasi mjög auðveldlega. Handbolti 15. nóvember 2014 18:25
Grótta vinnur og vinnur | FH náði jafntefli við Íslandsmeistarana ÍBV og Grótta unnu góða sigra í dag og Valur og FH gerðu jafntefli. Handbolti 15. nóvember 2014 15:56
Geir og félagar töpuðu Lærisveinar Geirs Sveinssonar töpuðu á útivelli fyrir TuS N-Lübbecke í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Handbolti 15. nóvember 2014 15:41
Gríska liðið Megas varð fyrir valtara í Safamýri Fram þarf ekki að hafa mikið fyrir því að komast í næstu umferð eftir stórsigur í gær. Handbolti 15. nóvember 2014 08:00