Handbolti

BjarkI Már og Hannes frábærir í sigri Eisenach

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bjarki Már var markahæstur með tíu mörk.
Bjarki Már var markahæstur með tíu mörk. Vísir/Aðsend
Það var íslensk markasúpa þegar ThSV Eisenach lagði EHV Aue að velli í þýsku B-deildinni í handbolta í kvöld. Bjarki Már Elísson var markahæsti maður vallarins.

Leikurinn var jafn og spennandi mest allan tímann. Eisenach leiddi í hálfleik með tveimur mörkum 17-15 og áfram hélt spennan í síðari hálfleik.

Þeir náðu mest fimm marka forystu og lokatölur urðu 33-28 Eisenach í vil.

Bjarki Már Elísson var algjörlega frábær fyrir Eisenach, en hann skoraði tíu mörk. Hannes Jón Jónsson skoraði sex.

Árni Sigtryggsson skoraði skoraði sex fyrir gestina og þeir Bjarki Már Gunnarsson og Hörður Sigþórsson sitthvort markið.

Eisenach er í áttunda sæti með þrettán stig, en EHV Aue í því tólfta með ellefu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×