Guðjón Valur komst ekki í úrvalslið Meistaradeildarinnar | Myndband Íslenski landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson var ekki valinn í úrvalslið Meistaradeildarinnar á þessu tímabili en evrópska handboltasambandið tilkynnti niðurstöður kosningarinnar á heimasíðu sinni. Handbolti 27. maí 2016 23:00
Aron verður lykilmaðurinn í undanúrslitunum gegn Kiel Aron Pálmarsson og Niklas Landin, markvörður Kiel, munu hafa mest áhrif á leikinn í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á morgun. Handbolti 27. maí 2016 22:30
Stefán Rafn: Var búinn að segja nei við mörgum tilboðum Stefán Rafn Sigurmannsson er spenntur fyrir næstu árum hjá Aalborg. Handbolti 26. maí 2016 16:15
Aron: Vonbrigði ef við vinnum ekki Meistaradeildina Aron Pálmarsson, leikmaður Veszprém, segir að allt annað en sigur í Meistaradeild Evrópu nú um helgina yrðu vonbrigði fyrir hann. Handbolti 26. maí 2016 14:45
Stefán Rafn bætist í hóp Íslendinga hjá Aalborg Landsliðsmaðurinn Stefán Rafn Sigurmannsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við danska úrvalsdeildarliðið Aalborg. Handbolti 26. maí 2016 14:11
Arnór hafði aftur betur gegn Ásgeiri Arnór Atlason og félagar í Saint Raphaël styrktu stöðu sína í öðru sæti frönsku handboltadeildarinnar eftir útisigur í Íslendingaslag í kvöld. Handbolti 25. maí 2016 19:55
Straumur frá Fram í Garðabæinn í handboltanum Stjörnumenn halda áfram að styrkja sig fyrir átökin í Olís-deild karla næsta vetur en Stjarnan vann sér aftur sæti í deildinni í vetur. Handbolti 25. maí 2016 17:57
Rut semur við Meistaradeildarlið Landsliðskonan Rut Jónsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við danska handboltaliðið FC Midtjylland. Handbolti 25. maí 2016 17:01
Karólína kemur í stað Díönu hjá ÍBV Hornamaðurinn Karólína Bæhrenz Lárudóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV. Handbolti 25. maí 2016 10:39
Lovísa valin í landsliðshópinn fyrir síðustu leikina í undankeppni EM Ágúst Jóhannsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, hefur valið 19 manna hóp fyrir leikina gegn Frakklandi og Þýskalandi í undankeppni EM 2016 í byrjun júní. Handbolti 24. maí 2016 15:17
Haukar stórhuga | Sömdu við fjóra leikmenn Karla- og kvennalið Hauka ætla ekki að gefa neitt eftir á næsta tímabili en félagið hefur samið við fjóra leikmenn. Handbolti 22. maí 2016 22:05
Ólafur Andrés sænskur meistari með Kristianstad Ólafur Andrés Guðmundsson og liðsfélagar hans í Kristianstad tryggðu sér sænska meistaratitilinn með 27-18 sigri á Alingsås í úrslitaleik um titilinn. Handbolti 22. maí 2016 17:30
Titilvörn Kiel nánast úr sögunni eftir óvænt tap Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel töpuðu óvænt 30-29 gegn MT Melsungen á útivelli í þýsku deildinni í handbolta í dag en fyrir vikið er titilvörn Kiel nánast úr sögunni þegar stutt er eftir af tímabilinu. Handbolti 22. maí 2016 17:09
Atli Ævar í úrvalsliði sænsku deildarinnar Atli Ævar Ingólfsson, línumaður Savehof, var í dag valinn í úrvalslið sænsku deildarinnar í handbolta en hann var eini liðsmaður Savehof í úrvalsliðinu. Handbolti 22. maí 2016 14:00
Janus og Ramune valin best á lokahófi HSÍ | Lovísa og Ómar efnilegust Haukar voru sigursælir á lokahófi HSÍ í gærkvöldi þá voru Janus Daði og Ramune kosin bestu leikmenn tímabilsins á meðan Ómar Ingi og Lovísa voru kosin efnilegust, Lovísa annað árið í röð. Handbolti 22. maí 2016 06:00
Arnór fór á kostum í fjórða sigri Bergischer í röð Bergischer með Arnór Þór Gunnarsson og Björgvin Pál Gústavsson innanborðs fjarlægist fallsvæðið eftir fjóra sigurleiki í röð. Handbolti 21. maí 2016 19:39
Aron ungverskur meistari í fyrstu tilraun Aron Pálmarsson og félagar í Veszprem hömpuðu ungverska titlinum í dag eftir jafntefli gegn Szeged á útivelli en allt annað en tap þýddi að Veszprem yrðu meistarar. Handbolti 21. maí 2016 16:47
Sigurbergur með sex mörk er Holstebro komst í úrslit Sigurbergur Sveinsson fór á kostum í liði Tvis Holstebro í öruggum sigri á GOG í dag en Holstebro er komið í úrslit dönsku deildarinnar þar sem mótherjinn verður annaðhvort Kolding eða Bjerringbro/Silkeborg. Handbolti 21. maí 2016 13:45
Einar Andri: Mosfellingar nutu ekki sömu virðingar hjá dómurunum Þjálfari Aftureldingar sagði leikmenn sína á réttri braut en að það væri kominn tími til að dómarar landsins sýndu leikmönnum sínum þá virðingu sem þeir ættu skilið. Handbolti 21. maí 2016 10:00
Hákon Daði um eineltið: Var útilokaður og einn í Eyjum Hákon Daði Styrmisson sló í gegn í úrslitakeppninni með Haukum og var nálægt markameti. Hann þurfti að yfirgefa Vestmannaeyjar vegna eineltis og opnar sig um veturinn í viðtali við Fréttablaðið. Handbolti 21. maí 2016 06:00
Hákon Daði: Þetta var leiðindamál Hákon Daði Styrmisson, hornarmaður Hauka, reyndist himnasending fyrir Hauka á tímabilinu, en hann gekk í raðir Hauka frá ÍBV fyrr á tímabilinu. Handbolti 20. maí 2016 20:00
Reynir tekur við Fram á nýjan leik Reynir Þór Reynisson er tekinn við Fram í Olís-deild karla í handbolta, en hann snýr aftur í Safamýrina. Handbolti 20. maí 2016 17:35
Hákon aðeins einu marki frá því að jafna markametið í úrslitakeppni Hákon Daði Styrmisson, vinstri hornamaður Hauka, skoraði flest mörk allra í úrslitakeppni Olís-deildar karla sem lauk í gær þegar Haukar tryggðu sér sinn ellefta Íslandsmeistaratitil með 34-31 sigri á Aftureldingu. Handbolti 20. maí 2016 12:30
Janus Daði stígur sigurdans | Myndband Það var glatt á hjalla í búningsklefa Hauka eftir að þeir tryggðu sér sinn ellefta Íslandsmeistaratitil með 34-31 sigri á Aftureldingu í gær. Handbolti 20. maí 2016 08:41
Gunnar áfram á Nesinu Gunnar Andrésson verður áfram við stjórnvölinn hjá karlaliði Gróttu en hann hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Handbolti 20. maí 2016 08:15
Haukar langbestir á þessari öld Haukar urðu í gærkvöldi Íslandsmeistarar karla í handbolta annað árið í röð og í tíunda sinn á þessari öld eftir sigur á Aftureldingu, 34-31, í oddaleik á Ásvöllum. Ekkert lið stendur framar en Haukarnir á öldinni. Handbolti 20. maí 2016 06:00
Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Afturelding 34-31 | Haukar Íslandsmeistarar í ellefta sinn Haukar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta í Olís deild karla annað árið í röð með 34-31 sigri á Aftureldingu í oddaleik á heimavelli. Handbolti 19. maí 2016 23:00
Jón Þorbjörn: Þetta er ógeðslega gaman "Þetta er bara svo ógeðslega gaman og mér finnst við svo eiga þetta skilið,“ segir Jón Þorbjörn Jóhannsson, leikmaður Hauka, eftir sigurinn í kvöld. Handbolti 19. maí 2016 22:51
Sjáðu myndasyrpu frá fagnaðarlátum Hauka Haukar fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum vel og vandlega í Schenkerhöllinni að Ásvöllum í kvöld. Sjáðu frábærar myndir með fréttinni. Handbolti 19. maí 2016 22:43
Matthías: Nú er ég hættur og skórnir komnir á hilluna "Það fór rosalega orka í þennan leik en þegar maður er kominn í oddaleik þá er maður bara á adrenalíninu í 60 mínútur,“segir Matthías Árni Ingimarsson, fyrirliði Hauka, eftir sigurinn á Aftureldingu í kvöld. Handbolti 19. maí 2016 22:43