Arnór fór á kostum í fjórða sigri Bergischer í röð Kristinn Páll Teitsson skrifar 21. maí 2016 19:39 Arnór Þór fagnar marki með Bergischer. Mynd/Bergischer
Arnór Þór Gunnarsson átti stórleik í 31-26 sigri Bergischer á Balignen-Weilstetten í þýsku deildinni í handbolta í dag en þetta var fjórði sigurinn í röð hjá Bergischer sem heldur áfram að fjarlægjast fallsætin. Balingen leiddi í hálfleik 15-13 á heimavelli en leikmenn Bergischer mættu áræðnir til leiks í seinni hálfleik og náðu að snúa leiknum sér í hag. Arnór var ásamt Fabian Gotbrod atkvæðamestur í liði Bergischer með sex mörk. Lærisveinar Erlings Richardssonar í Füsche Berlin unnu skyldusigur á Lübbecke á útivelli í dag en með sigrinum náðu Berlínarrefirnir smá forskoti á Hannover-Burgdorf í baráttunni um sæti í EHF-bikarnum á næsta ári. Topplið Flensburg vann öruggan sautján marka sigur á Ólafi Bjarka Ragnarssyni og félögum í Eisenach í dag en sigurinn var aldrei í hættu. Flensburg náði snemma tíu stiga forskoti og hleypti Eisenach aldrei aftur inn í leikinn. Þá vann Göppingen sannfærandi sigur á Gummersbach 28-21 í lokaleik dagsins en Gunnar Steinn Jónsson komst á blað með eitt mark í leiknum. Í 2. deildinni í Þýskalandi áttu Anton Rúnarsson og Oddur Grétarsson góðan leik fyrir Emsdetten sem vann 25-24 sigur á Bietigheim-Metterzimmern á heimavelli. Merten Krings var atkævðamestur fyrir Emsdetten í leiknum með sjö mörk en Anton bætti við sex mörkum og Oddur þremur.Úrslit dagsins: Flensburg 35-18 Eisenach Balingen 26-31 Bergischer Lubbecke 25-32 Füsche Berlin Göppingen 28-21 Gummersbach
Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Er katastrófa að vinna ekki í dag? Fótbolti Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Klopp býður við rasískum ásökunum Fótbolti Fleiri fréttir Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Stórbrotin varsla Grétars tryggði Haukum montréttinn: „Endar alltaf í svona vitleysu“ „Ég verð augljóslega að taka þetta tap alfarið á mig“ „Við erum Haukar og við horfum alltaf bara á toppinn“ Uppgjörið: FH - Haukar 34-35 | Haukar á toppnum og Hafnarfjörður er rauður Sjá meira