Björgvin Páll meðal markaskorara í tapi | Kiel aftur upp í annað sætið Björgvin Páll Gústavsson var meðal markaskorara í 27-22 tapi Bergischer gegn Minden á útivelli í þýska handboltanum í dag en fyrr í dag vann Kiel nauman sigur á Hannover-Burgdorf. Handbolti 26. mars 2017 17:30
Bjarki með sex mörk í öruggum sigri Bjarki Már Elísson skilaði af sér góðu dagsverki í öruggum átta marka sigri Füsche Berlin á Ribnica í EHF-bikarnum á heimavelli í dag en Bjarki skoraði sex mörk í öruggum sigri. Handbolti 26. mars 2017 16:45
FH-ingar enn með örlögin í eigin höndum eftir sigur á Gróttu | Sjáðu myndirnar FH-ingar gerðu sitt og jöfnuðu Hauka og ÍBV að stigum með 28-20 sigri á Gróttu í dag en eftir það þýðir að öll þrjú liðin eru jöfn þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Handbolti 26. mars 2017 16:09
Guðjón Valur markahæstur í sigri á Lemgo | Naumur sigur Veszprem Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í liði Rhein-Neckar Löwen í öruggum sigri á Lemgo í þýsku deildinni en með sigrinum kemst Löwen upp fyrir Kiel í annað sætið. Handbolti 25. mars 2017 19:31
Valsmenn í góðri stöðu eftir sigur í Serbíu Valsmenn unnu frábæran þriggja marka sigur á Sloga frá Serbíu 30-27 í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Áskorendabikars Evrópu í dag Handbolti 25. mars 2017 18:31
Umfjöllun og viðtöl: Akureyri - Fram 26-27 | Framarar upp úr fallsætinu Framarar unnu mikilvægan sigur fyrir norðan þegar tvö neðstu lið deildarinnar mættust en með sigrinum skaust Fram upp úr fallsæti í bili. Handbolti 25. mars 2017 18:15
Stjörnukonur halda í við Fram | Grótta upp í fjórða sætið Garðbæingar náðu að kreista fram nauman sigur í Eyjum gegn ÍBV í Olís-deild kvenna en á sama tíma fleytti sigur Gróttukvenna þeim upp í fjórða sæti þegar tvær umferðir eru eftir. Handbolti 25. mars 2017 15:30
Fram heldur toppsætinu eftir sigur á Hlíðarenda Fram átti ekki í teljandi vandræðum með Val í stórleik kvöldsins í Olís-deild kvenna. Fram vann að lokum með sex marka mun, 26-20. Handbolti 24. mars 2017 21:50
Umfjöllun og viðtöl: FH - Afturelding 30-26 | Öruggur sigur FH gegn Aftureldingu FH vann fjögurra marka sigur á Aftureldingu á heimavelli sínum í Kaplakrika í kvöld. Lokatölur urðu 30-26 og FH styrkti sögðu sína í toppbaráttunni. Handbolti 23. mars 2017 22:00
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Haukar 40-23 | Eyjamenn slátruðu Haukum ÍBV hafði hreint ótrúlega yfirburði í toppslagnum gegn Haukum í kvöld og hreinlega niðurlægði Haukana er þeir tóku af þeim toppsætið í Olís-deildinni. Handbolti 23. mars 2017 21:00
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Selfoss 24-25 | Einar tryggði Selfoss dramatískan sigur Selfoss vann gífurlega mikilvægan sigur í botnbaráttu Olís-deildar karla í TM-höllinni í kvöld þegar liðið lagði Stjörnuna í botnslag, en lokatölur urðu 25-24. Stjarnan leiddi 12-10 í hálfleik. Handbolti 23. mars 2017 20:45
Kvennalið Fjölnis fær nýjan þjálfara Arnór Ásgeirsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri/starfsmaður handknattleiksdeildar Fjölnis og þjálfari meistaraflokks kvenna hjá félaginu. Handbolti 23. mars 2017 18:15
Ágúst íhugar framboð til formanns HSÍ Ágúst Jóhannsson, fyrrverandi þjálfari íslenska kvennalandsliðsins og núverandi þjálfari karlaliðs KR, íhugar að bjóða sig fram til formanns HSÍ. Handbolti 23. mars 2017 12:30
Álaborg fagnaði titlinum með stæl Lið Arons Kristjánssonar, Álaborg, varð deildarmeistari fyrr í kvöld og fagnaði því svo með því að vinna öruggan sigur, 26-22, á Kolding. Handbolti 22. mars 2017 21:05
Geir tryggði Cesson-Rennes sigur Geir Guðmundsson var hetja franska liðsins Cesson-Rennes í kvöld er hann skoraði sigurmark liðsins gegn Saran í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Handbolti 22. mars 2017 20:41
Bjarki Már sterkur í sigri Berlin Füchse Berlin kost í kvöld upp að hlið Rhein-Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Handbolti 22. mars 2017 19:32
Löwen vann eins marks sigur í Kiel Rhein-Neckar Löwen er í fínum málum í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir útisigur, 24-25, gegn Kiel í fyrri leik liðanna. Handbolti 22. mars 2017 19:06
Töp hjá Íslendingaliðunum | Álaborg deildarmeistari Íslendingaliðin Århus og Team Tvis Holstebro urðu að játa sig sigraða í mikilvægum leikjum í danska handboltanum í kvöld. Handbolti 22. mars 2017 19:02
Róbert í liði umferðarinnar Róbert Gunnarsson var valinn í lið 24. umferðar í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Handbolti 21. mars 2017 23:30
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Grótta 25-25 | Ótrúleg endurkoma Gróttu tryggði stig Grótta og Valur skildu jöfn í Olís-deild karla í handknattleik í kvöld. Valsmenn náðu mest átta marka forskoti í síðari hálfleik en ótrúleg endurkoma Seltirninga tryggði þeim stig. Handbolti 21. mars 2017 22:45
Sex íslensk mörk er Kristianstad fór á toppinn Íslendingaliðið Kristianstad komst í kvöld aftur á topp sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Þá valtaði Kristianstad yfir lið Hammarby, 33-21. Handbolti 21. mars 2017 19:29
Eyjamenn skjóta lið í kaf: Unnið síðustu fjóra leiki með samtals 31 marki Eftir brösugt gengi fyrir áramót hefur ÍBV verið besta lið Olís-deildar karla í handbolta eftir áramót. Handbolti 21. mars 2017 17:00
Hrafnhildur Hanna með slitið krossband Selfyssingurinn Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, markahæsti leikmaður Olís-deildar kvenna, spilar ekki meira á þessu tímabili. Handbolti 21. mars 2017 16:08
Færir sig um set eftir tímabilið Línumaðurinn Atli Ævar Ingólfsson yfirgefur herbúðir sænska úrvalsdeildarliðsins Sävehof eftir tímabilið. Handbolti 20. mars 2017 22:30
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 30-28 | Fyrsti heimasigur Mosfellinga eftir áramót Afturelding vann tveggja marka sigur á Stjörnunni, 30-28, þegar liðin mættust í 24. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Handbolti 20. mars 2017 21:30
ÍBV stökk upp í annað sætið Eyjamenn eru á siglingu í Olís-deild karla og í kvöld flaug liðið upp í annað sætið eftir stórsigur, 26-37, í Suðurlandsslagnum gegn Selfossi. Handbolti 20. mars 2017 20:56
Var spurð hvort hún vildi eiga barnið Katrine Lunde, einn besti markvörður heims, segir að ungverska stórliðið Györ hafi sett óeðlilega pressu á hana þegar hún tilkynnti að hún væri barnshafandi sumarið 2014. Handbolti 20. mars 2017 17:45
Tvær goðsagnir leggja landsliðsskóna á hilluna Eftir samtals 665 landsleiki og fjölda stórtitla hafa Thierry Omeyer og Daniel Narcisse ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna. Handbolti 20. mars 2017 17:00
Einbeittu sér að varnarleiknum Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði stórt, 38-18, í seinni vináttulandsleiknum gegn Hollandi, silfurliðinu frá HM og EM, á laugardaginn. Handbolti 20. mars 2017 07:00
Viggó markahæstur í tapi Randers Viggó Kristjánsson var markahæstur í liði Randers sem tapaði 23-17 á heimavelli fyrir Kolding í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Handbolti 19. mars 2017 20:24
Uppgjörið og viðtöl: Tindastóll - Grindavík 101 - 109 | Grindavík er Íslandsmeistari Körfubolti