
Þýski handboltinn: Ómar Ingi með átta mörk í sigri
Ómar Ingi Magnússon, leikmaður Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, skoraði átta mörk þegar að Magdeburg vann Flensburg 33-28.
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.
Ómar Ingi Magnússon, leikmaður Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, skoraði átta mörk þegar að Magdeburg vann Flensburg 33-28.
Selfoss tók á móti slóvenska liðinu Jeruzalem Ormoz í annarri umferð Evrópubikarkeppninnar í handbolta í kvöld. Selfyssingar eru í fínum málum fyrir seinni leik liðanna, en ótrúlegar lokamínútur tryggðu liðinu jafntefli, 31-31.
Fyrri leikur FH og SKA Minsk í 2. umferð EHF-bikarsins í handbolta karla fór fram í dag í Kaplakrika. Endaði hann með tapi heimamanna í FH 29-37.
Stjarnan fékk sín fyrstu stig í Olís-deild kvenna í handbolta í dag eftir eins marks sigur á Aftureldingu í Mosfellsbænum, 18-17.
Sebastian Alexandersson mætti með HK-inga á sinn gamla heimavöll í Safamýrinni í 4. umferð Olís-deildar karla í handbolta í dag. Hörkuleikur þar sem bæði stigin enduðu hjá Fram. Lokatölur 27-25.
Einar Jónsson, þjálfari Fram í handbolta, var að vonum sáttur með sigur á HK er liðin mættust í 4. umferð Olís-deildar karla í handbolta í dag. Hörkuleikur sem endaði með sigri Fram. Lokatölur 27-25.
Íslandsmeistarar KA/Þór og Kósovómeistarar KHF Istogu áttust við í annað sinn á tveim dögum í annarri umferð Evrópubikarkeppninnar í handbolta í dag. KA/Þór vann fyrri leikinn með fjórum mörkum, og eftir þriggja marka sigur í dag, 37-34, er liðið komið áfram.
Haukar heimsóttu kýpverska liðið Parnassos Strovolou í annarri umferð Evrópubikarkeppninnar í handbolta í dag. Þetta var fyrri leikur liðanna, en Haukar fara með 11 marka forskot í seinni leikinn eftir stórsigur, 25-14.
Fjórir leikir fóru fram í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, og í tveimur þeirra voru Íslendingar í eldlínunni. Arnon Pálmarsson skorai sjö mörk þegar að Álaborg sigraði Skjern með einu marki, 27-26, og Viktor Gísli Hallgrímsson stóð vaktina í marki GOG sem vann fimm marka sigur gegn TMS Ringsted, 36-31.
Íslandsmeistarar KA/Þórs heimsóttu Kósovómeistara KHF Istogu í annarri umferð Evrópubikarkeppninnar í handbolta í dag. KA/Þór reyndist sterkari aðilinn á lokakaflanum og vann að lokum góðan fjögurra marka sigur, 26-22.
Janus Daði Smárason og félagar hans í Göppingen björguðu stigi gegn Íslendingaliði MT Melsungen með Arnar Freyr Arnarsson, Elvar Örn Jónsson og Alexander Petersson innanborðs í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Lokatölur 26-26, en Göppingen var mest fimm mörkum undir í seinni hálfleik.
Rúnar Kárason, leikmaður ÍBV, er afar ósáttur með bannið sem hann var dæmdur í vegna rauða spjaldsins sem hann fékk í leiknum gegn KA á laugardaginn.
Łomża Vive Kielce og Montpellier unnu góða sigra í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.
Þau Björgvin Páll og Karen kynntust þegar þau voru unglingar. Björgvin var staddur í strákapartýi hjá bróður Karenar þegar hann sá fermingarmynd af henni uppi á vegg og ákvað að biðja um númerið hennar. Það vatt heldur betur upp á sig og hafa þau nú verið gift í tíu ár og eiga saman fjögur börn.
FH tók á móti nýliðum Víkings í eina leik kvöldsins í Olís-deild karla í handbolta. Eftir jafnan fyrri hálfleik stungu heimamenn af í síðari hálfleik og unnu sjö marka sigur, lokatölur 31-24.
Landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson sneri aftur í lið Álaborgar í eins marks sigri á Meshkov Brest í Meistaradeild Evrópu í kvöld, lokatölur 34-33.
Valsmaðurinn Benedikt Gunnar Óskarsson átti frábæran leik þegar Valur vann sjö marka sigur á HK í Olís-deild karla í handbolta í gær.
Seinni bylgjan tók sérstaklega fyrir samskipti tveggja leikmanna í leik ÍBV og KA í síðustu umferð Olís-deildar karla í handbolta. Leikmennirnir eru Einar Rafn Eiðsson hjá KA og Dagur Arnarsson hjá ÍBV.
Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, er að komast í gang eftir að hafa meiðst í upphafi leiktíðar. Búast má við því að hann spili með Aalborg í Meistaradeild Evrópu í dag.
Seinni bylgjan er búin að tala mikið um Guðmund Braga Ástþórsson á þessu tímabili og ekki af ástæðulausu því strákurinn, sem er ekki pláss fyrir í Haukum, hefur spilað mjög vel með liði Aftureldingar.
Valur vann sjö marka sigur á nýliðum HK. Þetta var annar sigur Vals á nýliðum á síðustu þremur dögum. Valur átti góðan kafla um miðjan seinni hálfleik og vann á endanum sannfærandi sigur 32-25.
Enn bætist á meiðslalista handknattleiksliðs Selfoss, en línumaðurinn reyndi, Atli Ævar Ingólfsson, verður að öllum líkindum ekki með liðinu fyrr en eftir áramót eftir að hann fór í aðgerð á hné.
Valur vann sjö marka sigur á nýliðum HK 32-25. Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var þó ekki í skýjunum með frammistöðu Vals.
Guðjón Guðmundsson verður með reglulegan dagskrárlið í Seinni bylgjunni í vetur og í gær var frumsýnd nýjasta Eina innslagið hans Gaupa þar sem hann ræddi við Magnús Bragason, hótelstjóra og bjargvætt handboltans í Vestmannaeyjum.
Ísland á fulltrúa í úrvalsliði fyrstu tveggja umferðanna í undankeppni Evrópumóts kvenna í handbolta. Elín Jóna Þorsteinsdóttir stóð sig betur en markverðirnir í hinum 23 liðunum að mati EHF.
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar í handbolta var sáttur eftir sigur á Haukum í 3. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Eftir erfiða byrjun komu Stjörnumenn til baka og unnu leikinn 30-28.
Deildarmeistarar Hauka tóku á móti Stjörnunni í Olís-deild karla í kvöld. Lokatölur 30-28 gestunum úr Garðabæ í vil í hörkuleik.
Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu, var vægast sagt ósáttur með eins marks tap sinna manna gegn Fram í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Leiknum lauk með 24-23 sigri gestanna.
Fram kom sér upp í fjórða sæti Olís deildar karla eftir eins marks sigur á Gróttu 24-23 í Hertz-höllinni fyrr í kvöld. Grótta er enn án stiga eftir fyrstu þrjár umferðir deildarinnar.
Stjarnan er eitt af þremur liðum í Olís deild karla í handbolta með fullt hús stiga. Ólíkt hinum tveimur þá hefur Stjarnan aðeins spilað einn leik. Garðbæingar tvöfalda þá tölu í Hafnarfirðinum í kvöld.