

Handbolti
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.

Umfjöllun: Selfoss - Fram 27-30 | Annar sigur Framara í röð
Fram vann þriggja marka sigur á Selfossi 27-30. Gestirnir komust snemma yfir og þrátt fyrir hetjulega baráttu Selfoss undir lokin þá hélt Fram sjó sem skilaði tveimur stigum í poka meistaranna.

Aron og félagar styrktu stöðu sína á toppnum
Aron Pálmarsson og félagar hans í danska úrvalsdeildarliðinu Álaborg styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar er liðið vann þriggja marka útisigur gegn SönderjyskE í dag, 33-36.

ÍBV lagði Hauka með minnsta mun
ÍBV vann nauman eins marks sigur er liðið heimsótti Hauka í Olís-deild kvenna í handbolta í dag, 23-24.

Ómar markahæstur er Magdeburg tryggði sér sæti í úrslitum
Ómar Ingi Magnússon var markahæsti maður vallarins með átta mörk er þýska liðið Magdeburg tryggði sér sæti í úrslitum heimsmeistaramóts félagsliða í handbolta í dag, en liðið vann öruggan átta marka sigur gegn egypska liðinu Al Ahli, 36-28.

„Ég held að ég taki þessar síðustu þrjár lokamínútur bara á mig“
Róbert Gunnarsson, þjálfari Gróttu, var niðurlútur eftir jafntefli sinna manna gegn Fram í Úlfarsárdal í kvöld. Lokatölur 29-29, en Grótta leiddi leikinn með fjögurra marka mun þegar um þrjár mínútur voru eftir af leiknum.

„Nú bara fengum við einn á kjaftinn“
Jónatan Magnússon, þjálfari KA, var eðlilega ósáttur eftir tíu marka tap sinna manna gegn Selfossi í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Hann segir að leikurinn hafi í raun verið farinn í hálfleik og að sínir menn hafi einfaldlega átt vondan dag á Selfossi.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - KA 34-24 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik
Selfyssingar unnu afar öruggan tíu marka sigur er liðið tók á móti KA í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 34-24. Heimamenn höfðu níu marka forskot í hálfleik og sigur þeirra var aldrei í hættu eftir það.

Umfjöllun: Fram 29-29 Grótta | Mögnuðum leik í Úlfarsárdal lauk með jafntefli
Fram tók á móti Gróttu í Úlfarsárdal í kvöld í sjöttu umferð Olís-deildar karla. Var leikurinn kaflaskiptur og æsispennandi fram á lokasekúndu, en Grótta leiddi leikinn með fjórum mörkum þegar um þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Lokatölur 29-29 í Úlfarsárdal.

Umfjöllun og viðtöl: Valur 35-25 ÍR | Stórsigur Vals á Hlíðarenda
Valur vann ÍR 35–25 í Origo-höllinni í kvöld. Leikurinn var í 7. umferð Olis-deildar karla.

Kristján markahæstur í sigri AIX
Kristján Örn Kristjánsson, leikmaður AIX, var markahæsti leikmaður vallarins þegar AIX sigraði Toulouse, 26-25, í franska handboltanum í kvöld. Grétar Guðjónsson, markvörður Selestat, beið ósigur gegn Saint-Raphael á sama tíma, 39-30.

Þrettán fengu frímiða en tvö Olís-deildarlið mætast
Dregið var í fyrstu umferð bikarkeppni karla í handbolta í dag en þar eru þó aðeins þrjár viðureignir á dagskrá.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Haukar 27-26 | FH-ingar unnu slaginn um Hafnarfjörð með minnsta mun
FH tryggði sér montréttinn er liðið vann dramatískan sigur gegn Haukum í Hafnarfjarðarslag 6. umferðar Olís-deildar karla í handbolta í kvöld, 27-26.

„Það er alltaf gott að vinna, sérstaklega Hauka
„Ég er ofboðslega glaður. Það er alltaf gott að vinna, sérstaklega Hauka,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, sáttur eftir eins marks sigur á Haukum 27-26. FH hafði yfir höndina bróðurpart leiksins og eftir æsispennandi lokamínútur náðu þeir að sigla þessu í höfn.

Lærisveinar Aðalsteins á toppinn í Sviss
Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten Schaffhausen unnu öruggan sjö marka sigur er liðið heimsótti Suhr Aarau í svissnesku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 22-29.

Arnór og félagar tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum
Arnór Þór Gunnarsson og félagar hans í Bergischer tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handbolta er liðið vann öruggan sex marka sigur gegn Göppingen í kvöld, 32-26.

Ómar og Gísli á leið í undanúrslit heimsmeistaramótsins
Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og félagar þeirra í þýska meistaraliðinu SC Magdeburg eru á leið í undanúrslit heimsmeistaramóts félagsliða í handbolta eftir góðan sex marka sigur gegn Al Khaleej frá Sádí-Arabíu í dag, 35-29.

Haukarnir hafa ekki fagnað sigri í Kaplakrika í sjötíu mánuði
Hafnarfjarðarslagurinn milli FH og Hauka fer fram í Kaplakrika í kvöld en þessir leikir eru oftast miklir baráttuleikir sama hver staða liðanna er í deildinni.

Skildi ríginn þegar Hörður liðsstjóri mætti með kaffið
Þó að „hatur“ sé sennilega fullsterkt orð þá er grunnt á því góða á milli FH og Hauka sem í kvöld berjast um montréttinn í Olís-deild karla í handbolta í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 4.

Haukur Þrastar og félagar fyrstir inn í undanúrslitin
Haukur Þrastarson og félagar í pólska liðinu KS Vive Handball Kielce urðu í dag fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum á heimsmeistarakeppni félagsliða í Sádí Arabíu.

Birgir Steinn brotinn og frá í nokkrar vikur
Birgir Steinn Jónsson, leikmaður Gróttu, handarbrotnaði á æfingu liðsins á mánudaginn og verður frá keppni næstu vikurnar.

Seinni bylgjan: Amma Hanna sagði 99,9 prósent líkur á að hún myndi hætta en er enn að spila
Engin í Olís-deild kvenna í handbolta kemst með tærnar þar sem Hanna G. Stefánsdóttir er með hælana þegar kemur að reynslu. Hún er nefnilega á sínu 27. tímabili í meistaraflokki.

23 íslensk mörk í þýsku bikarkeppninni
Alls voru sjö íslenskir leikmenn sem léku í fjórum leikjum í 2. umferð þýsku bikarkeppninni í handbolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV 26-31 Valur | Valur enn með fullt hús eftir sigur í Eyjum
ÍBV tók á móti Val í fjórðu umferð Olís deild kvenna i handbolta í kvöld en leikurinn var færður vegna þátttöku beggja liða í Evrópukeppninni. Valskonur höfðu ekki tapað stigi í deildinni í vetur og áfram hélt sigurgangan með góðum sigri, 26-31.

Prófa sig áfram með þriggja dómara kerfi á HM félagsliða
Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, er að prófa sig áfram með nýjungar í dómgæslu á heimsmeistaramóti félagsliða í Sádí-Arabíu.

Haukur og félagar í litlum vandræðum í eyðimörkinni
Haukur Þrastarson og félagar í pólska liðinu Vive Kielce byrjuðu heimsmeistarakeppni félagsliða á laufléttum 21 marks sigri á Al Kuwait í dag.

Dæmdur í ellefu leikja bann fyrir brot í sænska handboltanum
Einhver bið verður á því að sænski handboltamaðurinn Christoffer Brännberger spili aftur með liði sínu, Önnered. Hann hefur nefnilega verið dæmdur í ellefu leikja bann fyrir ljótt brot í leik gegn Malmö.

Umfjöllun: Hörður - Selfoss 32-35 | Selfoss hafði betur á Ísafirði
Selfoss vann nauðsynlegan útisigur á Herði 32-35. Leikurinn var jafn framan af en undir lok síðari hálfleiks komst Selfoss fjórum mörkum yfir og var í bílstjórasætinu allan leikinn. Þrátt fyrir hetjulega baráttu Harðar vann Selfoss þriggja marka sigur.

Ísland á sex stórmót í handbolta á næsta ári
Evrópska handknattleikssambandið tilkynnti í dag að Ísland yrði meðal þátttakenda í lokakeppni EM U19 og U17 landsliða kvenna næsta sumar. Þar með spila sex landslið Íslands á stórmóti í handbolta á næsta ári.

Íslensku liðin mæta Elche og Madeira
Valskonur drógust gegn spænska liðinu Elche og Eyjakonur gegn portúgalska liðinu Madeira þegar dregið var í 32 liða úrslit Evrópubikarsins í handbolta í dag.

Einar Rafn bæði markahæstur og stoðsendingahæstur í deildinni
KA-maðurinn Einar Rafn Eiðsson hefur farið mikinn það sem af er Olís deild karla í handbolta því hann er bæði markahæstur og stoðsendingahæstur í deildinni eftir fimm umferðir þegar er litið er á meðaltal í leik.