

Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.
Magdeburg er besta handboltalið heims annað árið í röð eftir tveggja marka sigur á Barcelona í æsispennandi framlengdum úrslitaleik í Dammam í Sádi Arabíu í dag.
Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í Nantes unnu afar öruggan 11 marka sigur er liðið tók á móti Cesson Rennes-Metropole í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 35-24.
Íslendingalið Melsungen vann langþráðan sigur er liðið tók á móti Wetzlar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 21-19. Þá var Viggó Kristjánsson markahæsti maður vallarins er Leipzig tapaði gegn Füchse Berlin, 26-31.
Ýmir Örn Gíslason og félagar hans í Rhein-Neckar Löwen máttu þola sitt fyrsta tap á tímabilinu er liðið heimsótti Kiel í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Ýmir og félagar voru með fullt hús stiga fyrir leikinn, en þurftu að sætta sig við þriggja marka tap, 32-29.
Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur skrifað undir nýjan samning við þýska úrvalsdeildarliðið MT Melsungen. Leikmaðurinn mun því spila með liðinu til ársins 2025.
Janus Daði Smárason var allt í öllu í sóknarleik Kolstad er liðið vann nauman tveggja marka sigur gegn Noregsmeisturum Elverum í Íslendingaslag norsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag, 26-24.
Valur er enn með fullt hús stiga eftir nauman tveggja marka sigur gegn Stjörnunni í toppslag Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld, 25-23.
Teitur Örn Einarsson og félagar hans í Flensburg unnu nauman þriggja marka sigur er liðið tók á móti Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 27-24.
Þjálfari Harðar frá Ísafirði, Carlos Martin Santos, var heilt yfir ánægður með sitt lið eftir tap gegn Stjörnunni í dag í Garðabænum. Hörður leiddi leikinn fyrstu 40 mínúturnar en tapaði á endanum með þriggja marka mun, 28-25.
Haukur Þrastarson og félagar hans í pólska liðinu Vive Kielce máttu þola 11 marka tap er liðið mætti Barcelona í undanúrslitum heimsmeistaramóts félagsliða í handbolta í kvöld, 39-28.
Stjarnan vann sterkan þriggja marka sigur er liðið tók á móti Herði frá Ísafirði í Olís-deild karla í handbolta í dag, 28-25. Stjörnumenn höfðu ekki unnið deildarleik frá því í fyrstu umferð og var sigurinn því langþráður.
Sigtryggur Daði Rúnarsson, leikmaður ÍBV, hefur verið lánaður til Alpha Hard í Austurríki sem Hannes Jón Jónsson stýrir. Erlingur Richardsson, þjálfari ÍBV, staðfesti þetta við Vísi eftir tapið fyrir Aftureldingu, 31-26, í dag.
Afturelding varð í dag fyrsta liðið til að vinna ÍBV í Olís-deild karla þegar liðin áttust við á Varmá í Mosfellsbænum. Lokatölur 31-26, Aftureldingu í vil. Þetta var þriðji sigur liðsins í röð.
HK vann í dag sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið vann sex marka sigur gegn KA/Þór í Olís-deild kvenna, lokatölur 28-22.
Fram vann þriggja marka sigur á Selfossi 27-30. Gestirnir komust snemma yfir og þrátt fyrir hetjulega baráttu Selfoss undir lokin þá hélt Fram sjó sem skilaði tveimur stigum í poka meistaranna.
Aron Pálmarsson og félagar hans í danska úrvalsdeildarliðinu Álaborg styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar er liðið vann þriggja marka útisigur gegn SönderjyskE í dag, 33-36.
ÍBV vann nauman eins marks sigur er liðið heimsótti Hauka í Olís-deild kvenna í handbolta í dag, 23-24.
Ómar Ingi Magnússon var markahæsti maður vallarins með átta mörk er þýska liðið Magdeburg tryggði sér sæti í úrslitum heimsmeistaramóts félagsliða í handbolta í dag, en liðið vann öruggan átta marka sigur gegn egypska liðinu Al Ahli, 36-28.
Róbert Gunnarsson, þjálfari Gróttu, var niðurlútur eftir jafntefli sinna manna gegn Fram í Úlfarsárdal í kvöld. Lokatölur 29-29, en Grótta leiddi leikinn með fjögurra marka mun þegar um þrjár mínútur voru eftir af leiknum.
Jónatan Magnússon, þjálfari KA, var eðlilega ósáttur eftir tíu marka tap sinna manna gegn Selfossi í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Hann segir að leikurinn hafi í raun verið farinn í hálfleik og að sínir menn hafi einfaldlega átt vondan dag á Selfossi.
Selfyssingar unnu afar öruggan tíu marka sigur er liðið tók á móti KA í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 34-24. Heimamenn höfðu níu marka forskot í hálfleik og sigur þeirra var aldrei í hættu eftir það.
Fram tók á móti Gróttu í Úlfarsárdal í kvöld í sjöttu umferð Olís-deildar karla. Var leikurinn kaflaskiptur og æsispennandi fram á lokasekúndu, en Grótta leiddi leikinn með fjórum mörkum þegar um þrjár mínútur voru eftir af leiknum. Lokatölur 29-29 í Úlfarsárdal.
Valur vann ÍR 35–25 í Origo-höllinni í kvöld. Leikurinn var í 7. umferð Olis-deildar karla.
Kristján Örn Kristjánsson, leikmaður AIX, var markahæsti leikmaður vallarins þegar AIX sigraði Toulouse, 26-25, í franska handboltanum í kvöld. Grétar Guðjónsson, markvörður Selestat, beið ósigur gegn Saint-Raphael á sama tíma, 39-30.
Dregið var í fyrstu umferð bikarkeppni karla í handbolta í dag en þar eru þó aðeins þrjár viðureignir á dagskrá.
FH tryggði sér montréttinn er liðið vann dramatískan sigur gegn Haukum í Hafnarfjarðarslag 6. umferðar Olís-deildar karla í handbolta í kvöld, 27-26.
„Ég er ofboðslega glaður. Það er alltaf gott að vinna, sérstaklega Hauka,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, sáttur eftir eins marks sigur á Haukum 27-26. FH hafði yfir höndina bróðurpart leiksins og eftir æsispennandi lokamínútur náðu þeir að sigla þessu í höfn.
Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten Schaffhausen unnu öruggan sjö marka sigur er liðið heimsótti Suhr Aarau í svissnesku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 22-29.
Arnór Þór Gunnarsson og félagar hans í Bergischer tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handbolta er liðið vann öruggan sex marka sigur gegn Göppingen í kvöld, 32-26.
Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og félagar þeirra í þýska meistaraliðinu SC Magdeburg eru á leið í undanúrslit heimsmeistaramóts félagsliða í handbolta eftir góðan sex marka sigur gegn Al Khaleej frá Sádí-Arabíu í dag, 35-29.