Besta deild karla

Besta deild karla

Leikirnir




    Fréttamynd

    „Mark­mið hjá þessum klúbbi að vinna sem flesta titla“

    Gylfi Þór Sigurðsson fagnaði Íslandsmeistaratitlinum með Víkingi annað árið í röð eftir leik liðsins gegn Fram í kvöld. Hann sagðist þegar vera farinn að hlakka til næsta tímabils enda stefnan sett á þriðja Íslandsmeistaratitilinn í röð og betri árangur í Evrópukeppni.

    Sport

    Fréttir í tímaröð

    Fréttamynd

    „Ömur­leg niður­staða“

    „Maður er dofinn og á erfitt með að hugsa skýrt í augnablikinu, mjög sár og svekktur. Þetta er bara ömurlegt. Þetta er ömurleg niðurstaða að við höfum farið niður,“ sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA eftir að fall liðsins úr Bestu deildinni var staðreynd þrátt fyrir 5–1 sigur á ÍBV.

    Sport
    Fréttamynd

    Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fót­bolti er miklu meira en eitt­hvað xG og kjaft­æði“

    Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, var að vonum í skýjunum eftir 2-1 sigur liðsins gegn FH í lokaumferð Bestu deildar karla í Laugardalnum í dag. Með sigrinum tryggðu Þórsarar sér áframhaldandi sæti í efstu deild að ári, eftir afar krefjandi tímabil þar sem liðið hafði meðal annars tapað sjö leikjum í röð.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    Upp­gjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu inni­lega eftir dramatískan sigur í Laugar­dalnum

    Þórsarar tryggðu áframhaldandi veru sína í Bestu deild karla með mikilvægum 2-1 sigri á FH á Pepsi-vellinum í Laugardal í lokaumferð Bestu deildar karla í dag. FH-ingar komust snemma yfir með marki Adolfs Daða Birgissonar en Þorri Ingólfsson sneri leiknum á haus með tveimur mörkum á aðeins tveimur mínútum. Mikil dramatík var í leiknum og fögnuður Þórsara gríðarlegur þegar lokaflautið gall.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    Matthías í stað Viktors við hlið Sölva

    Matthías Vilhjálmsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Víkings í fótbolta. Hann kemur í stað Viktors Bjarka Arnarssonar sem verið hefur aðstoðarþjálfari síðustu tvö ár og fagnað Íslandsmeistaratitli í bæði skiptin.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    Svona missti Aron markið sögu­lega

    Engin formleg markanefnd er til staðar hjá KSÍ heldur var það mótasvið sambandsins sem tók ákvörðunina um að lagfæra leikskýrslu þannig að Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, missti sögulegt mark gegn Fram.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður

    Íslandsmeistarar Víkings spila síðasta leik tímabilsins næstkomandi laugardag í góðgerðartreyju sem er hönnuð af 66°Norður. Takmarkað magn af treyjum er til sölu og mun allur ágóði af sölunni renna óskiptur til markvarðarins Ingvars Jónssonar og fjölskyldu hans en hann greindist með krabbamein fyrr á árinu og háir nú baráttu við það.

    Tíska og hönnun
    Fréttamynd

    ÍA fékk skömm í hattinn en undir­býr byltingu

    Skagamenn vinna nú að því að gera aðalfótboltavöll sinn að gervigrasvelli og ljóst er að þeir munu þurfa að leita í annað bæjarfélag til að spila sína leiki í Bestu deildinni á næstu leiktíð. Þeir fengu ákúrur frá mótanefnd KSÍ fyrir að hafa gert völlinn óleikhæfan fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar í ár.

    Íslenski boltinn
    Fréttamynd

    „Hverjir í fjandanum eru í marka­nefnd?“

    Markametið í efstu deild karla í fótbolta var til umræðu í Stúkunni á Sýn Sport í gær. Þar var staðfest að Aron Sigurðarson hefur ekki jafnað markametið líkt og talið var í fyrstu. KSÍ tók af honum mark sem hann skoraði gegn Fram á dögunum.

    Íslenski boltinn