Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eftirlit á netinu eykst ár frá ári Umfang ríkiseftirlits á internetinu er sífellt að aukast að sögn nýútkominnar skýrslu um efnið. Samtökin Óháð Internet stóðu að henni en í þeim eru rannsóknarhópar frá háskólunum í Harvard og Oxford, meðal annarra. 18.5.2007 07:08
Verðbólga mælist tæp 3.732 prósent í Zimbabve Verðbólga jókst um tæp 1.532 prósent á milli mánaða í Afríkuríkinu Zimbave og jafngildir það að verðbólga þar sé nú tæp 3.732 prósent. Verðbólga í heiminum er hvergi jafn há og í Zimbabve í dag. Til samanburðar mælist 4,7 prósenta verðbólga hér á landi. 18.5.2007 07:00
Fyrirtækin hættu við Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) mælti formlega með því í gær að hið áformaða Galileo-gervihnattaleiðsögukerfi yrði fjármagnað að fullu úr ríkiskössum aðildarríkjanna, eftir að upprunaleg áætlun um að samlag einkafyrirtækja frá fimm löndum axlaði meirihluta kostnaðarins fór út um þúfur. 17.5.2007 12:00
Ríkasti Rússinn kaupir í Kanada Rússneski milljarðamæringurinn Oleg Deripaska hefur keypt ráðandi hlut í kanadíska stórfyrirtækinu Magna International, sem framleiðir ýmsa íhluti í bíla. Kaupverð nemur 1,54 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði 98,6 milljarða íslenskra króna. 17.5.2007 06:30
Cardinal Health að yfirtaka Viasys Eitt stærsta heilsutæknifyrirtæki heims, Cardinal Health, hefur gert yfirtökutilboð í Viasys Healthcare. Félagið er tilbúið að greiða 1,5 milljarða Bandaríkjadala að meðtöldum skuldum félagsins. Það gerir 42,75 Bandaríkjadali á hvern hlut sem er 35 prósentum yfir gengi félagsins á markaði daginn áður en yfirtökutilboðið barst. 17.5.2007 05:00
Hagfræðingurinn sem missti allt Breskir fjölmiðlar hafa reglulega birt harðorðar greinar um fjárfestingasjóði. Mikill uppgangur hefur verið hjá sjóðunum í Bretlandi upp á síðkastið og virðist á stundum, ef marka má fjölmiðlaumræðuna, sem þeir ætli að gleypa allt kvikt. 16.5.2007 00:01
Dregur úr verðbólgu í Bretlandi Verðbólga mældist 2,8 prósent í Bretlandi í apríl, samkvæmt útreikningum bresku hagstofunnar sem birtir voru í dag. Þetta er 0,3 prósentustiga lækkun á milli mánaða og í takt við væntingar greinenda, sem telja þetta ekki draga úr líkum á hækkun stýrivaxta í sumar. 15.5.2007 12:21
Eldri iPod notendur missa úr slag Nýleg rannsókn leiðir í ljós að iPod-spilarar geta haft truflandi áhrif á gangráða. Hundrað einstaklingar með gangráða og meðalaldurinn 77 ár tóku þátt í tilraun á áhrifum iPodspilara á gangráða sem fram fór í Stofnun hjarta- og æðasjúkdóma í Michigan-ríki í Bandaríkjunum. 15.5.2007 08:00
Viðhaldið fært til bókar Viðhaldsbókin mín er gagnagrunnur á netinu þar sem hægt er að skrá allar framkvæmdir fasteigna. Upplýsingarnar fylgja síðan eigninni um ókomna tíð. 14.5.2007 21:00
Tölvupóststætari Þessi stórsniðugi pappírstætari kæmi sér vel á hvaða skrifstofu sem er. Tækið er tölva með öflugu varnarforriti gagnvart ruslpósti (spam). Hún er tengd nokkrum öðrum tölvum og í hvert skipti sem notendur þeirra fá ruslpóst prentar vélin hann út, tætir, og setur sendandann á svartan lista. Pappírinn er svo endurunninn svo að hægt sé að tæta hann aftur. 14.5.2007 15:00
Nokia hvetur til orkusparnaðar Nokia hefur sett af stað hvatningarherferð sem fyrirtækið áætlar að muni spara jafnmikla orku á ári og 85 þúsund heimili nota árlega. Áætlunin er einföld. Nokia vill að fólk taki hleðsutækin sín úr sambandi um leið og búið er að hlaða símann. 14.5.2007 13:45
Cerberus kaupir ráðandi hlut í Chrysler Bandaríski fjárfestingasjóðurinn Cerberus Capital Management ætlar að kaupa 80,1 prósent hlut í bandaríska bílaframleiðandanum Chrysler. Kaupverð nemur 5,5 milljörðum evra, jafnvirði 477 milljörðum íslenskra króna. 14.5.2007 09:31
Miklar hækkanir í Asíu Gengi hlutabréfa rauk upp á hlutabréfamarkaði í Hong Kong í dag eftir að stjórnvöld í Kína gáfu stofnanafjárfestum græna ljósið á að fjárfestan utan landsteina. Þetta er þó ekki eina ástæðan því fjárfestar eystra urðu bjartsýnir eftir jákvæðar fréttir af bandarísku efnahagslífi en líkur þykja á að bandaríski seðlabankinn ætli að lækka stýrivexti síðar á árinu. 14.5.2007 08:57
Spá lægri verðbólgu í Bretlandi Gert er ráð fyrir því að verðbólga lækki um 0,3 prósentustig á milli mánaða í Bretlandi í þessum mánuði. Gangi það eftir fer verðbólga úr 3,1 prósenti í 2,8 prósent. Hagstofa Bretlands birtir útreikninga sína um vísitölu neysluverðs í vikunni. 13.5.2007 09:00
Yukos heyrir sögunni til Paran, tiltölulega lítt þekkt fyrirtæki keypti síðustu eignir rússneska orkufyrirtækisins Yukos á uppboði í Moskvu í Rússlandi í gær fyrir 100 milljarða rúblur, tæpan 251 milljarð íslenskra króna. Kaupin komu mjög á óvart enda bauð fyrirtæki fjórum sinnum hærra verð en fyrsta boð hljóðaði upp á. Með sölunni lauk fyrirtækjasögu Yukos, sem lýst var gjaldþrota í fyrra. 12.5.2007 09:15
Thomson selur eignir Kanadíska upplýsingafyrirtækið Thomson Corp. hefur ákveðið að selja eignir fyrir 7,75 milljarða bandaríkadali, rúma 498 milljarða íslenskra króna. Með sölunni styrkjast sjóðir félagsins, sem sagt er íhuga að gera yfirtökutilboð í bresku fréttastofuna Reuters. 12.5.2007 08:00
Fyrirtækjasögu Yukos lýkur í dag Höfuðstöðvar rússneska olíufyrirtækisins Yukos í Moskvu verða boðnar upp í dag til greiðslu risaskattaskuldar við rússneska ríkið. Þetta er síðasta eign orkufyrirtækisins og markar endalok eins stærsta olíufélags Rússa í einkaeigu sem var úrskurðað gjaldþrota í fyrra. 11.5.2007 11:39
Lord Browne hættur hjá Goldman Sachs Lord Browne, fyrrum forstjóri breska olíufyrirtækisins BP, hefur sagt starfi sínu lausu hjá bandaríska fjárfestingabankanum Goldman Sachs. Starfslokin eru liður í brotthvarfi hans úr forstjórastóli BP en hann hætti tveimur mánuðum fyrr en hann ætlaði eftir að hann tapaði dómsmáli í Bretlandi en þar var hulunni svipt af samkynhneigð hans og kynnum hans af ástmanni sínum. 11.5.2007 09:22
Enn minnkar viðskiptahallinn í Bandaríkjunum Viðskiptahalli Bandaríkjanna jókst í marsmánuði þvert á spár og nam 63,9 milljörðum dala í mánuðinum, jafnvirði 4.094 milljörðum íslenskra króna. Þetta er 10,6 prósenta hækkun á milli mánaða en samdráttur frá síðasta ári. Mestu munar um verðhækkanir á hráolíu og eldsneyti. Þá benda bráðabirgðatölur bandaríska viðskiptaráðuneytisins til þess að viðskiptahallinn muni aukast frekar í apríl. 10.5.2007 14:31
Óttast hrun á kínverskum hlutabréfamarkaði Óttast er að hrun vofi yfir kínverskum hlutabréfamarkaði. Þetta segir bandaríski fjárfestingabankinn Goldman Sachs í nýútkominni skýrslu þar sem bent er á að kínverska hlutabréfavísitalan standi í methæðum. Ástæðan er kaupæði á kínverskum hlutabréfamarkaði. Þurfi að leiðrétta gengi vísitölunnar, að mati bankans. 10.5.2007 14:30
Óbreyttir stýrivextir á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum á evrusvæðinu óbreyttum í 3,75 prósentum. Greinendur bjuggust flestir hverjir við þessari niðurstöðu en telja líkur á að bankinn hækki stýrivextina í næsta mánuði. 10.5.2007 12:03
Stýrivextir hækkaðir í Bretlandi Englandsbanki ákvað í dag að hækka stýrivexti um 25 punkta í 5,5 prósent. Þetta er fyrsta hækkunin síðan í febrúar en stýrivextir hafa ekki verið hærri í sex ár. Fastlega var búist var hækkuninni enda stendur verðbólga í 3,1 prósenti og hefur ekki verið hærri í áratug. 10.5.2007 11:10
Verðbólga lækkar í Danmörku Verðbólga mældist 1,7 prósent í Danmörku í síðasta mánuði. Þetta er 0,2 prósenta lækkun frá sama tíma fyrir ári, samkvæmt upplýsingum frá dönsku hagstofunni. Verðlækkanir á raftækjum, ekki síst einkatölvum sem hafa lækkað um 11,6 prósent síðastliðna tólf mánuði, leiða lækkunina nú. Á móti hækkaði verð á matvælum og drykkjum um 5,2 prósent. 10.5.2007 09:21
Óbreyttir stýrivextir í Bandaríkjunum Bandaríski seðlabankinn hélt vöxtum sínum óbreyttum í dag en við því bjuggust helstu fjármálasérfræðingar. Vextirnir verða því áfram í 5,25 prósentum. Fjárfestar hafa þó enn áhyggjur af hagvexti og veikri stöðu fasteignamarkaðarins. 9.5.2007 22:31
Líkur á óbreyttum stýrivöxtum vestra Seðlabanki Bandaríkjanna mun greina frá því síðar í dag hvort ákveðið verði að gera breytingar á stýrivaxtastigi í landinu. Flestir gera ráð fyrir óbreyttum vöxtum en telja líkur á að bankinn muni lækka vexti síðar á árinu. Bankinn hefur haldið vöxtunum óbreyttum í tæpt ár. 9.5.2007 16:17
Murdoch vill enn kaupa Dow Jones Ástralskættaði fjölmiðlajöfurinn Rupert Murdoch greindi frá því í dag að hann hyggðist ekki draga yfirtökutilboð sitt í bandaríska útgáfufélagið Dow Jones til baka þrátt fyrir andstöðu stærstu hluthafa þess. Dow Jones gefur meðal annars út dagblaðið Wall Street Journal og sagði Murdoch, að miðlar undir útgáfuhatti fyrirtækisins hentuðu fyrirtæki hans afar vel. 9.5.2007 15:24
Árásir í Nígeríu hækka olíuverð Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag og fór í tæpa 66 dali á tunnu. Árásir skæruliða á olíuvinnslustöðvar í Nígeríu og væntingar um meiri eftirspurn eftir eldsneyti í Bandaríkjunum á yfirstandandi ársfjórðungi en fyrri spár hljóðuðu upp á eiga helstan þátt í hækkununum. 9.5.2007 14:06
Tap hjá EasyJet EasyJet, annað stærsta lággjaldaflugfélag í Evrópu, skilaði tapi upp á 12,7 milljónir punda, jafnvirði rétt rúmra 1,6 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársins. Þetta er engu að síður betri afkoma en í fyrra en þá nam tap fyrirtækisins 28,9 milljónum punda, 3,7 millörðum króna.Félagið segir hærri álögur á farþega vegna síhækkandi stýrivaxta hafa skilað sér í fækkun farþega. 9.5.2007 11:48
Orðrómur um yfirtöku á Rio Tinto Gengi hlutabréfa í bresk-áströlsku námafélögunum Rio Tinto og BHP Biliton fór í methæðir við opnun kauphallarinnar í Sidney í Ástralíu í gær vegna orðróms um að BHP væri að búa sig undir að leggja fram risastórt yfirtökutilboð í Rio Tinto. Bæði félögin voru fyrr á þessu ári orðuð við hugsanlega yfirtöku á bandaríska álrisanum Alcoa. 9.5.2007 09:58
Hagnaður Carlsberg umfram væntingar Danski bjórframleiðandinn Carlsberg, sem einnig framleiðir mjöð undir merkjum Tuborg, skilaði hagnaði upp á 45 milljónir danskra króna, jafnvirði 525,4 milljóna íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. Þetta er umtalsvert betri afkoma en á sama tíma í fyrra en þá skilaði fyrirtækið tapi upp á 219 milljónir danskra króna, eða rúma 2,5 milljarða íslenskra króna. 9.5.2007 09:15
Svik í stærstu yfirtökunni Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna hefur höfðað mál á hendur starfsmanni svissneska fjárfestingabankans Credit Suisse í Bandaríkjunum vegna innherjasvika í tengslum við yfirtöku fjárfestingafélagsins Kohlberg Kravis Roberts á bandaríska orkufyrirtækinu TXU fyrr á þessu ári. Kaupvirði nam 45 milljörðum bandaríkjadala, tæpum 2.900 milljörðum íslenskra króna. Þetta er einhver stærsta skuldsetta yfirtaka í heimi. 9.5.2007 06:30
EMI kann að verða selt Gengi bréfa í breska útgáfufélaginu EMI hækkaði um 10 prósent skömmu eftir opnun hlutabréfamarkaða í Bretlandi á föstudag eftir að félagið greindi frá því að það ætti í viðræðum um sölu á félaginu. Ekkert hefur verið gefið upp um hverjir hafi hug á að kaupa EMI. 9.5.2007 05:15
Vaxtaákvarðanir í Evrópu á morgun Vaxtaákvörðunardagar eru hjá bæði Englandsbanka og evrópska seðlabankanum á morgun. Greinendur eru sammála um að Englandsbanki hækki vexti til að koma verðbólgu, sem hefur ekki verið hærri í áratug, niður að tveggja prósenta verðbólgumarkmiðum bankans. Reyndar búast flestir við hækkunum á evrusvæðinu á næstunni en hvort 3,75 prósenta stýrivextir fari upp á morgun eður ei er óvíst. 9.5.2007 05:00
Styttist í val á eftir-manni Buffetts Mikil spenna var á árlegum hluthafafundi bandaríska fjárfestingarfélagsins Berkshire Hathaway í Nebraska-ríki í Bandaríkjunum á laugardag en búist er við að forstjórinn aldni Warren Buffett sem í mörg ár hefur verið annar ríkasti maður heims, tilnefni eftirmann sinn á næstunni. 9.5.2007 04:30
Hunter-Fleming hugleiðir skráningu á AIM Breska lyfjafyrirtækið Hunter-Fleming tilkynnti í apríl um annars fasa prófanir á nýju lyfi við Alzheimer-sjúkdómnum. Íslendingar eru meðal stofnfjárfesta í fyrirtækinu. 9.5.2007 04:00
Alcoa býður í Alcan Bandaríski álrisinn Alcoa ætlar í fjandsamlega yfirtöku á kanadíska álfyrirtækimu Alcan, sem meðal annars rekur álverið í Straumsvík. Óformlegt yfirtökutilboð hljóðar upp á 33 milljarða bandaríkjadali, rétt tæpa 2.100 milljarða íslenskra króna. 9.5.2007 04:00
Kvöldverður með Rupert Murdoch Fortune | Eins og kunnugt er lagði ástralski fjölmiðlajöfurinn Rupert Murdoch fram fimm milljarða dala yfirtökutilboð í útgáfufélag dagblaðsins Wall Street Journal. Ráðandi hluthafar í félaginu höfnuðu tilboðinu hið snarasta. Murdoch mun horfa til þess að nýta félagið sem stuðning við viðskiptafréttastöð sem hann ætlar að setja á laggirnar síðar á árinu. 9.5.2007 03:00
Nýtt Hotmail Microsoft hefur tilkynnt um arftaka MSN Hotmail tölvupóstkerfisins sem verður Windows Live Hotmail. Nýja kerfið kemur út á 36 tungumálum um allan heim. 8.5.2007 16:32
Grunur um innherjasvik í Bandaríkjunum Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna hefur nú til rannsóknar viðskipti með hlutabréf í Dow Jones & Co., útgáfufélagi samnefndrar fréttaveitu og viðskiptadagblaðsins Wall Street Journal. Viðskiptin fóru fram nokkru áður en fjölmiðlajöfurinn Rupert Murdoch gerði fimm milljarða dala yfirtökutilboð í félagið á fyrsta degi maímánaðar. 8.5.2007 15:03
Lánshæfiseinkunnir Alcoa og Alcan lækkaðar Alþjóðalegu matsfyrirtækin Fitch Ratings, Moody's og Standard & Poor's segja öll að svo geti farið að lánshæfiseinkunnir álfyrirtækjanna Alcoa og Alcan verði lækkaðar nokkuð, allt upp undir þrjá flokka, í kjölfar þess að fyrirtækin eru komin í yfirtökuferli. 8.5.2007 10:24
Reuters í yfirtökuviðræðum Breska fréttastofan Reuters hefur staðfest að það eigi í samrunaviðræðum við kanadíska upplýsingatæknifyrirtækið Thomson. Thomson er sagt íhuga að leggja fram yfirtökutilboð í Reuters sem hljóðar upp á 8,8 milljarða punda, jafnvirði 1.117 milljarða íslenskra króna. 8.5.2007 09:17
Tvö félög standa eftir Tvö félög standa eftir í baráttunni um samheitalyfjahluta þýska lyfjafyrirtækisins Merck. Þetta staðhæfir Bloomberg-fréttastofan. Í síðustu viku dró Actavis sig út úr baráttunni um félagið. Fyrirséð var að það yrði dýrara verði keypt en stjórnendur félagsins töldu skynsamlegt. Þá hafa fjárfestingarsjóðirnir Apax Partners og Bain Capital einnig dregið sameiginlegt tilboð sitt til baka. 8.5.2007 06:00
Óbreytt stefna í Bretlandi Baugur Group er ekki að skoða sölu á eignum sínum í Bretlandi líkt og breska dagblaðið Daily Telegraph sagði á sunnudag. „Það stendur ekkert annað til en að halda áfram eins og við höfum gert hingað til," segir Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Baugs í Bretlandi, og vísar frétt breska blaðsins á bug. 8.5.2007 05:30
Hentar nýjum sjónvarpstækjum Stöð 2 og Sýn hafa hafið útsendingar á breiðtjaldsformi, sem hentar nýjum sjónvarpstækjum sem eru hönnuð fyrir hlutföllin 16:9. Í tilkynningu frá Stöð 2 kemur fram að slík sjónvarpstæki séu á um helmingi íslenskra heimila. 8.5.2007 01:15
Dow Jones í nýju meti Dow Jones hlutabréfavísitalan sló enn eitt metið á fjármálamörkuðum í Bandaríkjunum í dag þegar hún hækkaði um 22,75 punkta, 0,17 prósent og fór í 13.287,37 stig. Helsta ástæðan fyrir hækkuninni er yfirtökutilboð álrisans Alcoa í Alcan, annan umsvifamesta álframleiðanda í heimi. 7.5.2007 15:57
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent