Cardinal Health að yfirtaka Viasys 17. maí 2007 05:00 Kerry Clark forstjóri Cardinal Health
Eitt stærsta heilsutæknifyrirtæki heims, Cardinal Health, hefur gert yfirtökutilboð í Viasys Healthcare. Félagið er tilbúið að greiða 1,5 milljarða Bandaríkjadala að meðtöldum skuldum félagsins. Það gerir 42,75 Bandaríkjadali á hvern hlut sem er 35 prósentum yfir gengi félagsins á markaði daginn áður en yfirtökutilboðið barst. Hjá Cardinal Health starfa meira en 40 þúsund manns um allan heim. Hjá Viasys Healthcare starfa 2.400 manns. Árið 2004 keypti Viasys rekstur íslenska fyrirtækisins Taugagreiningar hf. sem rekur tólf manna þróunarsetur hér á landi. Per Christian Christensen, framkvæmdastjóri Viasys Healthcare á Íslandi segir ekki ljóst hver, ef einhver, áhrifin verð á Taugagreiningu. Hann á þó ekki von á stórvægilegum breytingum. „Við höfum áður verið tekin yfir og allt fór vel þá. Ég á ekki von á því að þetta muni hafa mikil áhrif á okkur. Ég held að Ísland verði ekki fyrsti staðurinn þar sem verður skorið niður.“ Búist er við að kaupin gangi í gegn á næstu átta vikum.
Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent