Hunter-Fleming hugleiðir skráningu á AIM 9. maí 2007 04:00 Ernir er meðal stofnenda breska lyfjafyrirtækisins Hunter-Fleming og sat um árabil í stjórn fyrirtækisins. Þegar ljósmyndara bar að garði var Ernir í laug við heimili sitt en vatnið í hana fæst úr borholu í landareign hans. MYND/GVA
Óli Kristján Ármannsson Í bígerð er að skrá breska lyfjafyrirtækið Hunter-Fleming á AIM hlutabréfamarkaðinn í Lundúnakauphöllinni (LSE) á þessu ári, með það fyrir augum að safna hlutafé. Fyrirtækið hóf nýlega annars fasa prófanir (Phase II) á lyfi við Alzheimer-sjúkdómnum. Þá hefur fyrirtækið fært prófanir á gigtarlyfi inn í bandaríska fyrirtækið Trident og á þar 17 prósenta hlut. Í hópi eigenda Hunter-Fleming eru allnokkrir Íslendingar og er Ernir Snorrason, geðlæknir og frumkvöðull í lyfjaþróun, meðal stærstu einstöku hluthafa. AIM-markaðurinn er hliðarmarkaður fyrir smærri félög, sambærilegur við First North-markaði OMX-kauphallarsamstæðunnar. Nokkrar skipulagsbreytingar hafa verið gerðar á Hunter-Fleming í kjölfar aðkomu fjárfestingarfyrirtækisins Advent International í fyrra. Þannig var undir lok síðasta árs ráðinn nýr forstjóri að nafni Miki Capaldi og stofnandinn, Jim Murray, sem gegnt hafði starfinu gerður að forseta. Ernir átti til skamms tíma sæti í stjórn félagsins og kom á sínum tíma að söfnun hlutafjár hér á landi. Hann segist binda nokkrar vonir við Alzheimerlyfið, en félagið sé með þrjú lyf í þróun sem lofi góðu. Hann áréttar þó að lyfjageirinn sé í eðli sínu áhættusamur fyrir fjárfesta. „Hins vegar er nokkuð ljóst að hluthafar mega vænta nokkurrar hækkunar á bréfunum við það eitt að félagið verði skráð. Seinast þegar ég vissi var gengi hlutarins metið á fjóra, en gæti stokkið í 10 til 20 við skráningu,“ segir hann, en kveðst þó ekki fyllilega sannfærður um að lokið verði við skráningu á árinu. „Aðstæður til skráningar á AIM voru um margt betri fyrir ári,“ bætir hann við. Á þeim tíma segir hann að einnig hafi verið tækifæri til sameiningar við annað stórt fyrirtæki sem ekki hafi verið gripið. „Upp úr því ákvað ég nú að draga mig út úr stjórninni, en er samt náttúrlega áfram inni sem hluthafi.“ Hann segir þó ljóst að bæði Advent International og MTI Partners Ltd., sem einnig á í Hunter-Fleming stóran hlut, hafi hug á því að fara með félagið sem fyrst á markað. Hunter-Fleming var stofnað árið 1999, en snemma á ferlinum var tekið að safna hlutafé. „Ég hefði getað safnað meiru hér heima, en lét nægja milli tvö og þrjú hundruð milljónir,“ segir Ernir. Nái fyrirtæki að þróa lyf er hagnaðarvon þeirra mikil, en þróunin og prófanaferlar hennar eru mjög kostnaðarsöm. Ernir segist telja skynsamlegt fyrir hluthafa að bíða aðeins og sjá hvort ekki verði af skráningunni því þá megi gera ráð fyrir gengishækkun. Takist félaginu svo að búa til lyf sem fer á markað gæti gengishagnaðurinn orðið margfalt meiri.
Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Festa og Gildi vilja sameinast Viðskipti innlent Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira