Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Myllan mögulega mætt í mæjónesið Myllan-Ora ehf. hefur undirritað samning um kaup á Gunnars ehf. en samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupin eru gerð í kjölfar þess að kaup Kaupfélags Skagfirðinga á Gunnars ehf. voru gerð ógild í janúar á þessu ári. 22.3.2023 15:12
Kerecis númer fimm í Evrópu á lista Financial Times Lækningavörufyrirtækið Kerecis er eitt íslenskra fyrirtækja á nýjum FT-1000 lista Financial Times yfir þau fyrirtæki í Evrópu sem vaxa hraðast. Í flokki fyrirtækja í heilbrigðis- og lífvísindum er Kerecis í fimmta sæti en situr annars í 246. sæti listans sem telur þúsund fyrirtæki 22.3.2023 12:10
„Getum ekki beðið eftir neinum öðrum“ Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir augljóst að peningastefnunefnd Seðlabankans hafi ákveðið að stíga stórt skref til þess að ná tökum á verðbólgunni með því að hækka stýrivexti um eitt prósentustig. Hann segir hjálp við það verkefni úr öðrum áttum vel þegna en Seðlabankinn geti ekki beðið eftir að aðrir grípi til aðgerða. 22.3.2023 10:42
Play flýgur til Amsterdam á ný á kostnað Árósa Flugfélagið Play flaug til Schiphol flugvallar í Amsterdam frá desember árið 2021 til mars 2022. Síðan þá hefur flugfélagið ekki flogið til hollensku höfuðborgarinnar en nú hefur orðið breyting á því flugfélagið hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum þangað á ný. 22.3.2023 10:16
Atvinnuleysi jókst um meira en helming milli mánaða Atvinnuleysi mælist nú fimm prósent og jókst um 1,9 prósentustig milli mánaða. Atvinnulausum karlmönnum fjölgaði til muna og jókst hlutfall þeirra um 3,1 prósentustig milli mánaða. 22.3.2023 09:23
Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður hækkunina Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um eitt prósentustig. 22.3.2023 09:00
Seðlabankinn hækkar enn stýrivexti og nú um heila prósentu Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um eina prósentu. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 6,5 prósentum í 7,5. 22.3.2023 08:31
Fjórir hljóta viðurkenningar Íslenska sjávarklasans Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis, -orku og loftslagsráðherra veitti í dag, þriðjudaginn 21. mars, fjórar viðurkenningar til fólks eða fyrirtækja sem eflt hefur samstarf og nýsköpun innan Sjávarklasans. Viðurkenningarnar voru veittar í Húsi sjávarklasans. 21.3.2023 19:14
Viðsnúningur hjá Isavia á milli ára Isavia tapaði 617 milljónum króna á síðasta ári en félagið skilaði þó 5,2 milljörðum í rekstrarafkomu samanborið við 810 milljóna króna neikvæða rekstrarafkomu á síðasta ári. 21.3.2023 15:03
CCP tryggir sér 5,6 milljarða fyrir bálkakeðjuleik Forsvarsmenn leikjafyrirtækisins CCP hafa tryggt félaginu 5,6 milljarða króna í fjármögnun vegna þróunar nýs tölvuleiks sem byggir á bálkakeðjutækni (e. Blockchain). Þróun leiksins er þegar hafinn í höfuðstöðvum CCP í Reykjavík. 21.3.2023 14:34
Sparisjóðir skoða sameiningu Stjórnir Sparisjóðs Höfðhverfinga og Sparisjóðs Austurlands hafa samþykkt að hefja formlegar viðræður um mögulega sameiningu sjóðanna til að skapa grundvöll til sóknar, líkt og það er orðað í fréttatilkynningu frá stjórnum sparisjóðanna 21.3.2023 14:18
Ágúst Karl tekur við af Soffíu Eydísi hjá KPMG Law Ágúst Karl Guðmundsson, lögmaður og einn eiganda KPMG Law ehf., hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra KPMG Law. Hann mun sinna starfinu samhliða ráðgjafastörfum á stofunni. 21.3.2023 11:36
36 áfangastaðir hjá Icelandair næsta vetur Flugfélagið Icelandair býður farþegum sínum flugferðir til 36 áfangastaða veturinn 2023 til 2024. Aukning á áætluðu sætaframboði á tímabilinu er 20 til 25 prósent. Í fyrsta sinn boðið upp á dagflug til New York og Boston yfir vetrartímann. 21.3.2023 11:02
Bryndís Kolbrún ráðin árangursstjóri hjá dk Bryndís Kolbrún Sigurðardóttir hefur hefur verið ráðin í starf stjórnanda viðskiptatengsla bókhalds- og endurskoðendaskrifstofa, Customer Success Manager (CSM), hjá dk hugbúnaði. Staðan er ný hjá fyrirtækinu. 21.3.2023 09:57
Opna fjarvinnuaðstöðu í gamla Búnaðarbankahúsinu í Stykkishólmi Samningar hafa náðst um að Regus opni nýja fjarvinnuaðstöðu við Aðalgötu 10 í Stykkishólmi í næsta mánuði. Húsnæðið hýsti áður starfsemi Búnaðarbankans og síðar Arion banka, en hefur síðastliðið ár verið heimili frumkvöðlasetursins Árnasetur. 21.3.2023 07:24
Alls ekki víst að óróleiki á fjármálamörkuðum hverfi í bráð Mikill titringur hefur verið á fjármálamörkuðum úti um allan heim í dag vegna yfirtöku á svissneska bankanum Credit Suisse um helgina. Hagfræðingur segir að það sé alls ekki víst að óróleiki á mörkuðum hverfi í bráð. 20.3.2023 20:30
Nýir sölustjórar hjá A4 Með skipulagsbreytingu hjá A4 hafa orðið til þrjár nýjar sölustjórastöður. Í þær hafa verið ráðin Bylgja Bára Bragadóttir, Ásgrímur Helgi Einarsson og Sigurveig Ágústsdóttir. 20.3.2023 15:31
Tvær nýjar í framkvæmdastjórn Genís Líftæknifyrirtækið Genís hefur ráðið til sín tvo nýja framkvæmdastjóra sem hefja störf á næstu mánuðum. 20.3.2023 13:01
Óvissa eitur í beinum fjárfesta Þrátt fyrir yfirtöku svissneska stórbankans UBS á Credit Suisse í gær reyndist það ekki vera nóg til að róa fjármálamarkaði. Við opnun markaða í morgun lækkuðu hlutabréf í Credit Suisse um 62%. Íslenska Kauphöllin er þá rauðglóandi - forstjóri Kauphallar segir óvissu eitur í beinum fjárfesta. 20.3.2023 12:00
Sólrún og Hildur ráðnar til Terra umhverfisþjónustu Sólrún Hjaltested hefur verið ráðin mannauðsstjóri Terra umhverfisþjónustu og Hildur Emilsdóttir sem verkefnastjóri stefnumótunar og umbóta félagsins. 20.3.2023 11:44
Dró eiginmanninn út í jólabrasið sem tímir nú varla að selja verslunina „Það þarf að vera dálítið klikkaður til að reka jólabúð alla daga ársins,“ segir eigandi Litlu jólabúðarinnar sem hefur nú sett verslunina á sölu. Hún segir þau hjónin vart tíma að selja verslunina þrátt fyrir að þau séu mis mikil jólabörn enda gangi reksturinn vonum framar. 20.3.2023 07:01
Fjármálaráðherra þurfi að gera meira: „Ásgeir er með þriðju vaktina“ Þingmaður Viðreisnar segir seðlabankastjóra sinna þriðju vaktinni í sambandi með fjármálaráðherra, sé litið til verkskiptingar á heimilinu. Ráðherrann þurfi að gera meira en að treysta bara á Seðlabankann og sýna aðhald í ríkisfjármálum. Viðskiptaráðherra segir alla í ríkisstjórn sammála um að ná þurfi verðbólgu, og ekki síður verðbólguvæntingum, niður sem fyrst þar sem ýmsar aðgerðir koma til greina. 19.3.2023 13:04
Nökkvi fylgir hjartanu og yfirgefur Swipe Nökkvi Fjalar Orrason hefur sagt skilið við fyrirtækið Swipe. Meðeigendur Nökkva taka við keflinu en sjálfur ætlar hann að einbeita sér að nýju félagi sem útbýr hugbúnað fyrir áhrifavalda. 18.3.2023 17:52
Byggja 115 íbúðir á Kirkjusandsreit Alverk hefur samið við 105 Miðborg slhf., sem stýrt er af Íslandssjóðum, um uppbyggingu 115 íbúða ásamt bílageymslu á svonefndum F–reit við Kirkjusand í Reykjavík. 18.3.2023 11:16
Hefja viðræður um kaup Festi á Lyfju fyrir um 7,8 milljarða króna Forsvarsmenn Festi hf. og SID ehf. undirrituðu í dag samkomulag um helstu skilmála vegna fyrirhugaðra kaupa Festi á öllu útgefnu hlutafé Lyfju hf.. Samkomulagið felur í sér að heildarvirði Lyfju sé 7,8 milljarðar króna en endanlegt kaupverð hlutafjár mun ráðast af skuldastöðu félags við afhendingu ásamt gengi hlutabréfa í Festi á þeim tíma. 17.3.2023 17:33
Gunnur Líf framkvæmdastjóri á nýju sviði hjá Samkaupum Gunnur Líf Gunnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs Samkaupa. Hún tekur við stöðunni um næstu mánaðamót og um jafnframt gegna hlutverki staðgengils forstjóra. 17.3.2023 12:00
Gina Tricot opnar á Íslandi í dag Sænska tískufatakeðjan Gina Tricot opnar í dag nýja netverslun á Íslandi, ginatricot.is. 17.3.2023 11:33
Lindarhvoll og ríkið sýknað af kröfum Frigusar Héraðsdómur Reyjavíkur hefur sýknað Lindarhvol og ríkið af kröfum Frigusar II ehf. Dómur féll í málinu nú fyrir stundu. Málskostnaður fellur niður. 17.3.2023 11:04
Sena og Concept Events sameinast Fyrirtækin Sena og Concept Events hafa gengið frá samkomulagi um kaup þess fyrrnefnda á því síðarnefnda. Við þetta munu fyrirtækin sameinast og bætast núverandi eigendur Concept Events í hluthafa- og stjórnendahóp Senu. 16.3.2023 15:59
Jón Ólafur hafði betur gegn Auði í formannskjöri hjá SVÞ Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Marga, var endurkjörinn formaður Samtaka verslunar og þjónustu til tveggja ára í morgun þegar aðalfundur samtakanna fór fram. Jón Ólafur hafði þar betur gegn Auði Daníelsdóttur, forstjóra Orkunnar, sem einnig bauð sig fram. Jón Ólafur hlaut 35.495 atkvæði eða tæplega 56 prósent atkvæða og Auður 27.696 atkvæði eða rúmlega 43 prósent atkvæða. 16.3.2023 12:55
Gera sömuleiðis ráð fyrir 75 punkta hækkun stýrivaxta Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti um 75 punkta á miðvikudaginn þegar tilkynnt verður um næstu ákvörðun. Spáin rímar við spá Greiningar Íslandsbanka sem birt var í gær. 16.3.2023 12:41
Spá því að verðbólga hjaðni á milli mánaða Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans spá því að ársverðbólga hjaðni lítillega þegar næstu verðbólgutölur verða gefnar út. Sérfræðingar beggja deilda sjá fyrir sér að verðbólga lækki hægt næstu mánuði. 16.3.2023 12:39
Kaupmáttur rýrnaði um 1,7 prósent í fyrra Hagstofa Íslands áætlar að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila á mann hafi dregist saman um 1,7 prósent í fyrra borið saman við árið áður. Kaupmáttarrýrnunin var enn meiri á síðasta fjórðungi ársins. 16.3.2023 11:04
„Ef þú ætlar að nálgast þetta þannig, þá lendirðu örugglega í vandræðum“ Daði Kristjánsson hreifst af rafmyntum fyrir nokkrum árum, hætti svo í hefðbundna bankageiranum og rekur nú fyrsta íslenska rafmyntafjárfestingasjóðinn, Viska Digital, ásamt meðstofnendum og viðskiptafélögum. Hann segir rafmyntir langtímaverkefni, nýtt áhugavert hliðarkerfi, en ekki leið til skjótfengins gróða: „Þá lendirðu örugglega í vandræðum,“ segir hann. 16.3.2023 09:00
Bein útsending: Aðgerðir á vinnumarkaði í heimsfaraldri Norræn ráðstefna stendur nú yfir á Grand Hótel um það hvað Norðurlöndin geta lært af þeim aðgerðum sem þau gripu til á vinnumarkaði vegna heimsfaraldursins. Ráðstefnan hefst klukkan 9 og stendur til klukkan 16 og er haldin í tilefni af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Hægt er að fylgjast með beinu streymi í spilara að neðan. 16.3.2023 08:55
Steindi, Auddi og Egill stofna hlutafélag Félagið Celsius dreifing ehf. var skráð á hlutafélagaskrá ríkisskattstjóra í gærdag en á meðal stofnenda eru fjölmiðlamennirnir góðkunnu Auðunn Blöndal, Egill Einarson og Steinþór Hróar Steindórsson, einnig þekktur sem Steindi Jr. 15.3.2023 15:42
Rúna Dögg nýr framkvæmdastjóri Kolofon Rúna Dögg Cortez er nýr framkvæmdastjóri hönnunarstofunnar Kolofon. Hún hefur starfað hjá stofunni síðan um sumarið 2021. Á þeim tíma hefur hún haldið utan um verkferla og umsjón viðskiptavina sem hönnunarstjóri stofunnar. Síðan í fyrra hefur hún einnig setið í framkvæmdastjórn stofunnar. 15.3.2023 15:06
Margir hafi efni á að kaupa dýrar og vandaðar íbúðir Löggiltur fasteignasali segir að markaðurinn fyrir lúxus íbúðir sé tiltölulega nýr af nálinni hér á landi. Ofsalega margir hafi efni á því að kaupa dýrar og vandaðar íbúðir. 15.3.2023 14:18
Kristín Linda nýr stjórnarformaður Samorku Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunnar, var kjörin stjórnarformaður Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja á aðalfundi samtakanna í dag. Hún tekur við starfinu af Berglindi Rán Ólafsdóttur, framkvæmdastýru Orku náttúrunnar. 15.3.2023 12:08
Heiða Kristín ráðin framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans Heiða Kristín Helgadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans. Hún hefur við starfinu í sumar en hún hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri Niceland Seafood auk þess að hafa komið að stofnun og rekstri hugbúnaðarfyrirtækja hérlendis og í Bandaríkjunum. 15.3.2023 11:58
Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu BPO innheimta hefur ráðið til sín tvo nýja starfsmenn, tvíburabræðurna Guðmar og Hreim Guðlaugssyni. 15.3.2023 10:32
Bein útsending: Kynna yfirlýsingu nefndarinnar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. 15.3.2023 09:00
Lánar Landsneti um níu milljarða fyrir nýrri kynslóð byggðalína Evrópski fjárfestingarbankinn hefur lánað Landsneti 63,7 milljónir dollara, jafnvirði níu milljarða króna, fyrir nýrri kynslóð byggðalínu. 15.3.2023 08:57
Spá 75 punkta stýrivaxtahækkun Seðlabankans Greining Íslandsbanka spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 75 punkta í næstu viku þannig að þeir fari úr 6,5 prósentum í 7,25 prósent. 15.3.2023 08:45
Telja fjármálakerfið hér standa traustum fótum Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans telur að innlent fjármálakerfi standi traustum fótum. Þó hafa fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja farið versnandi vegna mikillar verðbólgu og hærri vaxta. Útlit er fyrir að verðbólga verði þrálát. 15.3.2023 08:43