Fleiri fréttir

Samdráttur vegna erlendra færsluhirða
Mælanleg erlend kortavelta hefur dregist saman ef litið er til annarra ferðaþjónustufyrirtækja en bílaleiga, hótela og veitingastaða. Þetta sýna tölur Rannsóknarseturs verslunarinnar en kortavelta hefur verið ein helsta leiðin til þess að leggja mat á gengi ferðaþjónustunnar.

Kalla inn Red Super Spicy núðlur
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Shin Red Super Spicy Noodles frá vörumerkinu NONGSHIM. Varnarefnið Ipprodione greindist yfir leyfilegum mörkum í vörunni.

Súrir Selfyssingar slúttuðu sólbaðsstofu
Húseiganda á Selfossi var óheimilt að reka sólbaðsstofu í fjölbýlishúsi. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði beðni eigandans um að fella úr gildi ákvörðun byggingafulltrúa Árborgar sem veitti ekki leyfi fyrir starfseminni.

Íslandsbanki hagnaðist um 5,9 milljarða króna
Íslandsbanki hefur birt uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2022. Í því kemur fram að bankinn hafi hagnast um 5,9 milljarða króna á fjórðungnum. Arðsemi eigin fjár bankans var yfir fjárhagslegum markmiðum bankans og spám greinenda. Hagnaður á fyrri helmingi ársins er 11,1 milljarður króna.

Innkalla Albani Mosaic IPA vegna sprengjuhættu
ÁTVR og Disa ehf. hafa sent út innköllunarboð fyrir bjórinn Albani Mosaic IPA, með 5,7% vínanda, í 330 ml áldós. Hætta er á að dósin geti bólgnað út og sprungið. Innköllunin miðast einungis við birgðir vörunnar sem merktar eru best fyrir dagsetningunni 11/05/2023 sem sjá má á botni dósarinnar.

Simmi selur Bryggjuna og einbeitir sér að Minigarðinum
Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson hefur selt veitingastaðinn Bryggjuna. Hann segist hafa ákveðið að minnka við sig og einbeita sér að rekstri skemmti- og veitingastaðarins Minigarðsins.

Framlegð Marels óviðunandi að mati forstjóra
Tekjur Marels á öðrum ársfjórðungi námu 397.3 milljónum króna en hagnaður var aðeins 25 milljónir evra eða 6,3 prósent af tekjum. Forstjórinn segir framlegðina óviðunandi.

Domus Medica-húsið selt
Domus Medica-húsið hefur verið selt til fyrirtækisins Medicus ehf.. Fyrirtækið á Heilsugæsluna á Höfða og vonast stjórnarmaður eftir því að hægt verði að byggja upp heilbrigðisþjónustu í húsinu.

Hagnaður Arion banka jókst í 9,7 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi
Arion banki hagnaðist um 9.712 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi 2022 samanborið við 7.816 milljónir á sama tímabili í fyrra. Heildareignir námu 1.383 milljörðum króna í lok júní, samanborið við 1.314 milljarða í árslok 2021. Sala á greiðslumiðlunarfyrirtækinu Valitor til Rapyd skilaði bankanum 5,6 milljarða króna söluhagnaði.

Krefjast stjórnarkjörs í Sýn
Gavia Invest ehf. hefur farið fram á að boðað verði hluthafafundar í Sýn hf., en félagið fer nú með atkvæðisrétt fyrir hlutafé í Sýn sem nemur 16,06 prósent. Þess er krafist að umboð núverandi stjórnar verði fellt niður og ný stjórn kjörin.

Örn Arnar nýr sparisjóðsstjóri Suður-Þingeyinga
Örn Arnar Óskarsson hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga. Örn þekkir vel til á starfssvæðinu en hann ólst upp á Kópaskeri.

Fiskur fluttur út fyrir 29 milljarða í júní
Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam rúmum 29 milljörðum króna í júnímánuði. Það er um 8 prósenta aukning í krónum talið frá sama mánuði í fyrra en tæp 12 prósent í erlendri mynt vegna hækkunar á gengi krónunnar.

Heiðar hættir sem forstjóri Sýnar
Heiðar Guðjónsson hefur sagt upp sem forstjóri Sýnar og mun uppsögnin taka gildi fyrir lok þessa mánaðar. Heiðar gekk um helgina frá sölu á öllum 12,72 prósenta hlut sínum í fyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningum til Kauphallar.

Tap Spaðans nam 51 milljón króna
Spaðinn tapaði alls 51 milljón króna árið 2021, samanborið við tveggja milljóna króna tap árið áður.

Samherji fjárfestir í landeldi fyrir 60 milljarða
Samherji ætlar sér að fjárfesta fyrir allt að 60 milljarða króna í fiskeldi á komandi árum og í bígerð er um 40 þúsund tonna landeldi í nágrenni Reykjanesvirkjunar. Forstjórinn segir fjárfestinguna mestu áhættu í sögu félagsins.

Ardian borgar fimm milljörðum minna fyrir Mílu
Síminn og Ardian náðu í dag samkomulagi um breytingar á kaupsamningi Ardian á Mílu ehf.. Meðal breytinanna sem samþykktar voru er að Ardian borgi 73 milljarða króna í staðinn fyrir 78 milljarða líkt og var fyrst samið um.

Spá því að verðbólga aukist áfram og stýrivextir verði hækkaðir
Verðbólgan mældist tæplega tíu prósent í júlí og var langt umfram spár viðskiptabankanna. Forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans segir að gera megi ráð fyrir frekari stýrivaxtahækkunum frá Seðlabankanum í ljósi stöðunnar. Hagfræðiprófessor segir að það taki tíma fyrir aðgerðir stjórnvalda til að bíta, með tilheyrandi aðhaldi og óvissu.

Samherji hf. hagnaðist um 17,8 milljarða
Hagnaður Samherja hf. nam 17,8 milljörðum króna árið 2021 samanborið við 7,8 milljarða árið áður. Eigið fé félagsins var 94,3 milljarðar króna í árslok 2021 og námu heildareignir 128 milljörðum króna.

Ardian ósammála Samkeppniseftirlitinu í öllum efnisþáttum
Fjárfestingarsjóðurinn Ardian lýsir sig ósammála öllum efnisþáttum í frummati Samkeppniseftirlitsins á kaupum sjóðsins á Mílu frá Símanum. Í frummatinu segir að það sé hætta á að keppinautum í innviðastarfsemi fækki og að viðskiptavinir Símans geti orðið af verðlækkunum.

Hlutabréf fara á flug eftir jákvætt uppgjör Icelandair
Gengi hlutabréfa í Icelandair hafa hækkað um 5,59 prósent það sem af er degi. Flugfélagið skilaði rúmlega hálfum milljarði króna í hagnað á öðrum ársfjórðungi.

Verðbólgan nálgast tveggja stafa tölu
Verðbólga mældist 9,9 prósent í júlí og hækkaði um 1,17 prósentustig milli mánaða. Verðbólga hefur ekki verið hærri frá því í september árið 2009.

Magnús Kr. Ingason tekur við sem forstjóri Festi
Stjórn Festi hefur ráðið Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Festi, sem forstjóra félagsins frá næstu mánaðarmótum, þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn.

Eik kaupir Lambhaga á 4,2 milljarða króna
Fasteignafélagið Eik er í þann mund að ganga frá kaupum á garðyrkjustöðvunum Lambhaga í Úlfarsárdal og Lundi í Mosfellsdal. Kaupverðið er áætlað 4,2 milljarðar króna.

„Alveg hræðilegur“ leiðréttingarbúnaður Apple
Sjálfvirkur leiðréttingarbúnaður Apple fyrir íslensku er hörmulegur og með ólíkindum að einhver hafi fengið borgað fyrir að hanna hann, að mati hugbúnaðarhönnuðar. Fyrirtækið virðist ekki nota neinar tölfræðiupplýsingar sem til eru um íslenskan texta, þrátt fyrir vitneskju um þær.

Hálfur milljarður í hagnað á öðrum ársfjórðungi
Icelandair skilar um hálfum milljarði í hagnað á öðrum ársfjórðungi 2022. Lausafjárstaða félagsins hefur aldrei verið sterkari og nam 61,6 milljörðum króna í lok júní.

Miami lokað og nýs eiganda leitað
Skemmtistaðurinn Miami á Hverfisgötu hefur verið lokaður frá byrjun júlí og nú er nýs eiganda leitað til þess að taka við rekstri skemmtistaðarins.

Hagnaður Landsbankans lækkar um fjóra milljarða milli ára
Hagnaður Landsbankans á öðrum ársfjórðungi 2022 nam 2,3 milljörðum króna samanborið við 6,5 milljarða króna á sama ársfjórðungi árið 2021. Arðsemi eigin fjár Landsbankans á fyrri helmingi ársins 2022 4,1 prósent og er því langt undir 10 prósenta markmiði bankans. Ástæðu fyrir dvínandi arðsemi segir bankinn vera lækkun á gangvirði hlutabréfaeignar bankans.

Akademias festir kaup á Tækninámi
Fræðslufyrirtækið Akademias hefur fest kaup á Tækninámi, sem sérhæfir sig í fjarnámi í tækninám.

„Þá erum við í vondum málum, íslenskt samfélag“
Þingmaður segir það mun skaðlegra fyrir orðspor Íslands ef slegið yrði af kröfum um eftirlit með samkeppni, heldur en ef kaup fransks fjárfestingasjóðs á Mílu ná ekki fram að ganga. Samkeppniseftirlitið verði að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu.

Ytri aðstæður haft áhrif á afkomu Össurar
Össur hagnaðist um fjórtán milljónir bandaríkjadala eða 1,9 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2022 eða átta prósent af veltu. Á sama tímabili í fyrra var hagnaður nítján milljónir dala og lækkar því um 26 prósent milli ára.

Opin allan sólarhringinn og enginn á vaktinni
Fyrsta alsjálfvirka hverfisverslun landsins var opnuð í Garðabæ í morgun. Verslunin verður opin allan sólarhringinn, alla daga ársins. Framkvæmdastjóri segir opnunina marka upprisu gömlu hverfisverslananna.

Segir marga svekkta sem reyna við fasteignamarkaðinn
Formaður Félags fasteignasala segir marga sitja eftir með sárt ennið sem gera tilboð í fasteignir eins og staðan er á markaðnum í dag. Þrátt fyrir yfirboð nái þeir ekki að festa kaup á húsnæði, samkeppnin sé of hörð.

Markaðurinn róaðist minna en búist var við
Íbúðaverð hækkaði um 2,2 prósent milli maí og júní. Það er minni hækkun en undanfarna mánuði en þó meiri en hagfræðideild Landsbankans hafði reiknað með.

Óskar ráðinn framkvæmdastjóri Smyril line
Óskar Sveinn Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi og tekur við starfinu af Lindu Gunnlaugsdóttir.

Hagnaður Kviku banka tæplega tveimur milljörðum króna undir áætlun
Hagnaður Kviku banka hf. á öðrum ársfjórðungi er áætlaður 450 til 500 milljónir króna samkvæmt drögum að uppgjöri fyrir fjórðunginn. Áætluð afkoma fyrir fjórðunginn var 2,15 til 2,4 milljarðar króna og vantar því mikið upp á, eða 1,8 milljarð króna.

Arion banki varar við fölskum smáskilaboðum
Smáskilaboð sem látin eru líta út eins og þau séu frá Arion banka hafa verið send á fjölmarga landsmenn upp á síðkastið. Arion banki segir þau vera fölsk og varar við því að ýta á hlekkinn sem fylgir skilaboðunum.

Bjartsýnn á farsæla niðurstöðu í Mílusölunni
Kaup franska fyrirtækisins Ardian á Mílu frá Símanum eru í uppnámi þar sem skilyrði Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupunum þykja of íþyngjandi. Forstjóri Símans segir mestu máli skipta hvaða áhrif salan á Mílu mun hafa á neytendur. Hann er bjartsýnn á að farsæl lausn finnist í málið.

Laxeldið á Austfjörðum á fullu í uppbyggingu eftir sjúkdómsáfall
Laxeldið á Austfjörðum er að ná vopnum sínum á ný eftir alvarlegan veirusjúkdóm sem stöðvar alla landvinnslu á Djúpavogi. Byrjað er að setja út fisk að nýju í eldiskvíar og búið að kaupa tvo öfluga fóðurpramma.

Hlutabréfaverð Símans lækkað mikið eftir tíðindi gærdagsins
Gengi hlutabréfa Símans lækkaði um 8,3 prósent í dag eftir að tilkynnt var um það í gær að Ardian France SA væri ekki tilbúið til að ganga frá kaupum á Mílu.

Framkvæmdir við nýjan hringveg þvert yfir Hornafjörð hefjast með haustinu
Vegagerðin og Ístak hafa skrifað undir 6,3 milljarða króna verksamning um gerð nýs vegar þvert yfir Hornafjörð, sem styttir hringveginn um tólf kílómetra. Samningurinn markar tímamót því hann er sá fyrsti á grundvelli laga um samvinnuverkefni, en í því felst einkafjármögnun og að vegfarendur greiði vegtoll.

Telur söluna á Mílu jákvæða fyrir samkeppni á fjarskiptamarkaði
Kaup franska fyrirtækisins Ardian á Mílu eru í uppnámi, en félagið er ekki reiðubúið að ljúka viðskiptum sínum við Símann, eiganda Mílu, vegna skilyrða Samkeppniseftirlitsins. Forstjóri Símans segir helstu áhyggjur eftirlitsins snúa að viðskiptasambandi Símans og Mílu eftir söluna.

Fjallaböðin á lokastigi hönnunar
Fjallaböðin í Þjórsárdal eru á lokastigi hönnunar, en stefnt er að því að byggingarnar verði með þeim allra umhverfisvænstu í Evrópu. Heilt hverfi starfsmannaíbúða mun jafnframt rísa í Árnesi í Gnúpverjahreppi sem unnið er að með heimamönnum.

Ardian ekki reiðubúið að ljúka við kaupin á Mílu
Í tilkynningu Símans til kauphallarinnar í gær kemur fram að Ardian France SA sé ekki reiðubúið til þess að ljúka við kaupin á Mílu ehf.

Hið opinbera hefði þurft að stíga inn á byggingamarkað fyrir áratug
Doktor í hagfræði segir að ekki sé tilefni til að hið opinbera stígi inn á húsnæðismarkað á meðan einkaðilar byggja nóg. Hins vegar hefði það mátt stíga inn fyrir tíu árum þegar lítið var byggt.

Telur að smærri útgerðir sameinist þeim stóru á næstu árum vegna íþyngjandi veiðigjalda
Hagfræðingur telur að á næstu árum muni smærri útgerðir sameinast þeim stærri vegna veiðigjalda sem þær ráði ekki við. Samkvæmt nýjum tölum frá Fiskistofu á Samherji nú aðild að fjórðungi heildarveiðiheimilda landsins eftir sameiningu Vísis í Grindavík við Síldarvinnsluna