Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eimskip hagnaðist um 2,1 milljarð króna Hagnaður Eimskipafélagsins á síðasta ári eftir skatta var um 2,1 milljarðar króna og rekstrarhagnaður, eða EBITDA, var um 7 milljarðar króna. Heildareignir félagsins í lok ársins voru 45 milljarðar króna og var eiginfjárhlutfallið 62,3%. Vaxtaberandi skuldir voru 9,8 milljarðar króna og handbært fé var 6,9 milljarðar króna. Á vef Eimskips segir að stefnt sé að skráningu í Kauphöll fyrir lok ársins 2012 og vinna við undirbúning þess sé í fullum gangi. 22.3.2012 15:17
Bandarískt lyfjafyrirtæki vill kaupa Actavis Talið er að bandaríska lyfjafyrirtækið Watson Pharmaceuticals Inc. ætli að kaupa Actavis. Fréttastofan Reuters greinir frá þessu í dag en talið er að kaupvirðið sé um 7 milljarðar dollara. 21.3.2012 20:06
Ætla að kæra verkfallsboðun til Félagsdóms Boðun Flugreyjufélags Íslands á verkfalli flugliða hjá Iceland Express eftir viku er ólögleg að mati Iceland Express og verður kærð til Félagsdóms samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. 21.3.2012 23:13
Fjármálastjórar þurfa þekkingu á sífellt fleiri sviðum Dr. David Schwarzkopf er gestaprófessor við Háskólann í Reykjavík. Hann segir framfarir í upplýsingatækni hafa breytt því hvernig endurskoðendur og fjármálastjórar sinna störfum sínum þar sem nýtilkomið flóð tiltækra gagna hafi stórfjölgað mælikvörðum. 21.3.2012 20:00
Rauðar tölur lækkunar á hlutabréfamarkaði Gengi bréfa íslenskra félaga, sem skráð eru í Kauphöll Íslands, lækkuðu flest í dag og sýndu því rauðar tölur. Þannig lækkaði gengi í Haga um 1,12 prósent og er það nú 17,65. Gengi bréfa í Icelandair lækkaði um 0,34 prósent og er 5,90. Gengi bréfa í Marel lækkaði um 0,34 prósent, og er nú 146, og gengi bréfa í Össuri um 0,5 og er nú 198. 21.3.2012 17:16
Fréttaskýring: 150 milljarða hagnaður frá hruni Landsbankinn, Arion banki og Íslandsbanki högnuðust samtals um 30 milljarða króna í fyrra. Þeir færðu niður eignir sínar um 64 milljarða vegna gengislánadómsins sem féll í febrúar síðastliðnum. Landsbankinn tók á sig rúmlega helming þeirrar niðurfærslu. 21.3.2012 15:30
Már um afnámsáætlun: Þú færð hvergi betri ávöxtun Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir það vera það "eina rétta" fyrir íslenska lífeyrissjóði að selja eignir erlendis, og fjárfesta í íslenskum ríkisskuldabréfum, á grundvelli áætlunar Seðlabanka Íslands um afnám gjaldeyrishafta. "Þú færð hvergi betri ávöxtun, það er bara þannig," sagði Már, aðspurður um þátttöku lífeyrissjóðanna í útboðum Seðlabankans, sem eru hluti af áætlun um afnám hafta. 21.3.2012 13:41
Íslenskum krónum verður hleypt út á endanum Nýleg herðing gjaldeyrishafta kemur í veg fyrir greiðslu krafna í íslenskum krónum til erlendra kröfuhafa. Seðlabankastjóri segir slíkar krónur í eðli sínu alveg eins og aflandskrónur. Þeim verður þó hleypt út á endanum. 21.3.2012 11:00
Stefna að óbreyttum rekstri Víkurprjóns eftir söluna Drífa ehf., sem á meðal annars vörumerkið Icewear, hefur keypt sauma- og prjónastofuna Víkurprjón í Vík í Mýrdal. Víkurprjón hefur verið starfrækt í rúm 30 ár og framleiðir sokka og peysur, aðallega úr íslenskri ull, ásamt því að reka verslun í Vík. 21.3.2012 11:15
Fjármálaeftirlitið vill slíta starfsemi Sögu FME hefur höfðað mál gegn Sögu Capital og vill að félagið verði tekið til slitameðferðar vegna þess að það hefur ekki starfsleyfi. Á sama tíma hafa forsvarsmenn Sögu áfrýjað afturköllun starfsleyfis til Hæstaréttar. 21.3.2012 10:30
Auglýsingasölu RÚV settar meiri skorður í nýju lagafrumvarpi Ríkisútvarpið (RÚV) þarf að takmarka hlutfall auglýsinga í dagskrá sinni við átta mínútur á klukkustund, banni við sölu fyrirtækisins á auglýsingum á veraldarvefnum verður viðhaldið og því gert að setja og birta gjaldskrá fyrir viðskiptaboð á vefsíðu sinni þar sem afsláttarkjör fyrir kostunaraðila og auglýsendur séu gagnsæ og standi öllum viðskiptamönnum til boða fyrir sambærilegt umfang viðskipta. Þetta kemur fram í nýju frumvarpi til laga um RÚV sem lagt verður fram á Alþingi á næstu dögum, samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu. 21.3.2012 10:00
Tap ríkisins vegna SpKef verður kunngjört í apríl Málflutningur fyrir úrskurðarnefnd sem á að skera úr um verðmæti eigna SpKef verður daganna 28. Og 29. mars næstkomandi. Í kjölfarið mun nefndin taka sér umhugsunarfrest til að komast að niðurstöðu og er búist við að hún skili niðurstöðum í apríl. Þetta kemur fram í svari Landsbankans við fyrirspurn Markaðarins um málið. 21.3.2012 12:00
Skuldir Reykjavíkur samsvara 3 milljónum á hvern borgarbúa Heildarskuldir Reykjavíkurborgar nema nú um 317 milljörðum króna. Þetta samsvarar því að hver borgarbúi skuldi tæplega 3 milljónir króna. 21.3.2012 10:33
Raunhækkun íbúðaverðs 3,2% á ári síðasta áratuginn Íbúðaverð á Íslandi hækkaði um 37% á tímabilinu frá 2001 til 2011 þegar búið er að taka tillit til verðbólgu. Að raunvirði hækkaði íbúðaverðið að jafnaði um 3,2% á ári á þessu tímabili. 21.3.2012 09:54
Vísitala íbúðaverðs í borginni lækkar Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 332.2 stig í febrúar s.l. og lækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. 21.3.2012 09:13
Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentur Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur. Fara þeir vextir því í 5%. 21.3.2012 08:58
Skuldir Kópavogs samsvara 1,3 milljónum á hvern íbúa Skuldir Kópavogsbæjar nema rétt tæpum 40 milljörðum króna. Þetta samsvarar því að hver íbúi bæjarins skuldi sem svarar til 1,3 milljónum króna. 21.3.2012 08:45
Farþegar skemmtiferðaskipa ánægðir með Reykjavík Í árlegri könnun tímaritsins Cruise Insight sem gefið er út í Bretlandi og fjallar um skemmtiferðaskip, var Reykjavík sett í hóp viðkomustaða sem besti áfangastaður ársins fyrir farþega skemmtiferðaskipa. Ferðaskrifstofan Iceland Travel fékk einnig viðurkenningu. 21.3.2012 08:20
Gerir ráð fyrir 30 milljarða framlagi frá ríki vegna SpKef Landsbankinn bókfærði 30,6 milljarða króna kröfu á ríkissjóð í ársreikningi sínum fyrir árið 2011 vegna yfirtöku bankans á SpKef sparisjóði í fyrra. 21.3.2012 07:00
Krefst þess að tekið verði á vanda Landbúnaðarháskólans Ríkisendurskoðun segir að stjórnendum Landbúnaðarháskóla Íslands hafi ekki tekist að láta enda ná saman í rekstrinum og skuldir hans eru miklar. Ríkisendurskoðun hvetur stjórnendur og yfirvöld menntamála til að taka á þessum vanda. 21.3.2012 06:50
Áhrif gengislána á bankanna 64 milljarðar króna Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn mátu áhrifin af gengislánadómi Hæstaréttar frá fimmtánda febrúar síðastliðnum á tæplega sextíu og fjóra milljarða króna í uppgjörum sínum fyrir síðasta ár. Samanlagður hagnaður bankanna nam þrátt fyrir það tæplega 30 milljörðum. 20.3.2012 18:30
Heiðar Már: Tilrauninni með krónuna lokið Heiðar Már Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir, segir aðkallandi að taka peninga- og gjaldmiðlamál landsins til ítarlegrar skoðunar, það þoli enga bið. Heiðar Már er gestur nýjasta þáttarins af Klinkinu, spjallþáttar á viðskiptavef Vísis, þar sem hann ræðir um gjaldmiðlamál og stöðu mála hér á landi. "Tilrauninni með krónuna er lokið að mínu mati, og leiðin út úr þeim ógöngunum sem hagkerfið er í, með gjaldeyrishöftin, er að verða hluti af alþjóðlegu myntstarfi," segir Heiðar Már m.a. 20.3.2012 15:10
Húsasmiðjan verður formlega hluti af Bygma á morgun Húsasmiðjan verður formlega hluti af dönsku byggingavörukeðjunni Bygma, frá og með morgundeginum. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir Peter Christiansen eigandi og stjórnarformaður Bygma að spennandi tímar séu framundan. 20.3.2012 11:57
Sorpa hyggur á eldsneytisframleiðslu Sorpa og Carbon Recycling International (CRI) hafa gengið til samstarfs um að kanna kosti þess að reisa og reka verksmiðju sem framleiðir fljótandi ökutækjaeldsneyti úr úrgangi af höfuðborgarsvæðinu. 20.3.2012 11:04
Rekstur Garðabæjar skilaði 352 milljóna afgangi Rekstur Garðabæjar í fyrra var jákvæður um 352 milljónir kr. sem er langt yfir áætlun sem gerði ráð fyrir afgangi upp á 75 milljónir kr. 20.3.2012 10:56
Spáir því að verðbólgan fari í 6,4% í mars Verðbólguspá IFS greiningar fyrir mars hljóðar upp á hækkun vísitölu neysluverðs um 1%. Gangi spáin eftir fer 12 mánaða verðbólga úr 6,3% í 6,4%. 20.3.2012 09:50
Veltan á fasteignamarkaðinum eykst töluvert Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 93. Þetta er nokkru meira en nemur vikumeðaltalinu undanfarna þrjá mánuði sem er 86 samningar. 20.3.2012 09:38
Byggingarvísitalan hækkar Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan mars 2012 er 113,4 stig sem er hækkun um 0,4% frá fyrri mánuði. Verð á innlendu efni hækkaði um 0,9%, sem skýrir að mestu hækkun vísitölunnar milli mánaða, að því er segir á vefsíðu Hagstofunnar. Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 10,6%. 20.3.2012 09:28
Aflaverðmæti íslenskra skipa 20 milljörðum meira í fyrra en 2010 Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 153 milljörðum króna á árinu 2011 samanborið við tæpa 133 milljarða á árinu 2010. Aflaverðmæti hefur því aukist um 20,3 milljarða króna eða 15,3% á milli ára, samkvæmt tölum um aflaverðmæti sem Hagstofa Íslands birti í morgun. 20.3.2012 09:03
Hagnaður Íslandsbanka nam 1,9 milljörðum króna Hagnaður Íslandsbanka af reglulegri starfsemi á árinu 2011 var 13,9 milljarðar króna, samanborið við 17,8 milljarða árið 2010. Hagnaður ársins eftir skatta að teknu tilliti til einskiptisliða, s.s. væntra áhrifa gengislánadómsins og niðurfærslu á viðskiptavild, nam 1,9 milljörðum króna, samanborið við 29,4 milljarða 2010. 20.3.2012 08:54
Allir búast við 0,25 prósentustiga stýrivaxtahækkun Seðlabankinn tekur næstu ákvörðun um stýrivexti sína á morgun, miðvikudag. Allar greiningar bankanna gera ráð fyrir því að stýrivextir bankans verði hækkaðir um 0,25 prósentustig og fari þar með í 5%. 20.3.2012 06:49
Greiningardeild Arion Banka spáir hækkun stýrivaxta Greiningardeild Arion Banka spáir því að Peningastefnunefnd ákveði að hækka stýrivexti Seðlabanka Íslands um 25 punkta á miðvikudaginn. 19.3.2012 16:33
Grænar tölur hækkunar í Kauphöll Íslands Grænar tölur hækkunar hafa einkennt hlutabréfaviðskipti í Kauphöll Íslands í dag. Gengi bréfa í smásölufyrirtækinu Högum hefur hækkað um 1,7 prósent í dag og stendur gengi bréfa félagsins nú í 17,9. Gengi bréfa í Icelandair Group hefur hækkað um 0,68 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 5,95. Gengi bréfa í Marel hefur hækkað um 0,69 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 146. Þá hefur gengi bréfa í Össuri hækkað um 0,49 prósent og er gengi bréfa félagsins nú 204. 19.3.2012 16:11
Sjálfkjörið í stjórn Icelandair Sjálfkjörið verður í stjórn Icelandair Group á aðalfundi félagsins á föstudaginn kemur en fimm gefa kost á sér í stjórnina. 19.3.2012 10:25
Drífa kaupir Víkurprjón Drífa ehf sem á m.a. vörumerkið Icewear hefur keypt Víkurprjón ehf í Vík í Mýrdal. Í tilkynningu frá Drífu segir að stefnt sé að því að reka fyrirtækið áfram í óbreyttri mynd. 19.3.2012 10:14
Íslendingar bera traust til vinnuveitenda sinna Íslendingar treysta vinnuveitendum sínum mjög vel en traust til vinnuveitenda fær mjög háa einkunn í árlegum mælingum Capacent á trausti. Aðeins Landhelgisgæslan og lögreglan njóta meira trausts meðal fólks. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök atvinnulífsins. 19.3.2012 09:15
Tískudrottning krefst 100 milljarða í skaðabætur frá Kaupþingi Tískudrottningin Karen Millen og Kevin Stanford fyrrum eiginmaður hennar ætla í mál við Kaupþing í Lúxemborg. Þau gera skaðabótakröfur upp á 500 milljónir punda eða um 100 milljarða króna gegn bankanum. 19.3.2012 07:56
Reykjaneshöfn getur staðið í skilum þrátt fyrir kísilklúður Reykjaneshöfn hefur sent frá sér tilkynningu þar sem segir að þótt hætt verði við áform Íslenska kísilfélagsins um framkvæmdir í Helguvík mun það ekki hafa áhrif á getu Reykjaneshafnar til að greiða af skuldum sínum. 19.3.2012 06:49
FME: Gengisdómur ógnar ekki fjármálastöðugleikanum Fjármálaeftirlitið (FME) telur að nýjasti gengislánadómur Hæstaréttar ógni ekki fjármálastöðugleika landsins. 19.3.2012 06:43
Aflaverðmæti jókst um 28% Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum febrúarmánuði nam alls 312.221 tonni sem er umtalsvert meira en í febrúar í fyrra þar sem aflinn var 210.005 tonn. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Þessi aukning felst að langmestu leyti í tæplega 270.000 tonna loðnuafla í febrúar samanborið við 173.000 tonn í febrúar 2011. Aflaverðmæti á föstu verði var 28,7% meira í síðasta mánuði en í febrúar 2011. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 33,6% miðað við sama tímabil 2011.- þj 19.3.2012 06:00
Samstaða um aðskilnað viðskipta- og fjárfestingarbanka Þingmenn allra flokka eru sammála um nauðsyn þess að aðskilja viðskiptabanka- og fjárfestingarbankastarfsemi. Fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um málið segir þingmenn ætla að drífa í breytingunni. 19.3.2012 00:01
Steinþór ekki hálfdrættingur á við Höskuld Það lætur nærri að Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka, hafi verið með þrefalt hærri mánaðarlaun á síðasta ári en Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. Samkvæmt ársreikningi Arion banka voru heildarlaun Höskuldar 37,1 milljón króna. Það er að meðaltali 3,1 milljón á mánuði. Samkvæmt nýbirtum ársreikningi Landsbankans voru heildarlaun Steinþórs á síðasta ári aftur á móti 13,9 milljónir króna, sem gerir tæplega 1,2 milljónir á mánuði. 18.3.2012 20:22
Hátt í 200 fengu aðstoð frá Lögréttu Hátt í tvö hundruð manns fengu aðstoð við skattframtalið sitt í dag hjá hjálpsömum lögfræðinemum. Meirihluti þeirra sem þurftu aðstoð var útlendingar. Það kvíða margir fyrir að opna skattframtalið og færa inn fjárhagsbókhald heimilisins fyrir síðasta ár, og þó svo að mikið af upplýsingum komi sjálfkrafa inn þá er ýmislegt sem getur vafist fyrir fólki. Það var því fullt út úr dyrum hjá Háskólanum í Reykjavík í dag þegar Lögrétta, félag lögfræðinema við Háskólann í Reykjavík buðu upp á endurgjaldslausa aðstoð við skattframtalið. 18.3.2012 19:18
Ríkissjóður verður af milljörðum Ríkissjóður verður af milljörðum króna vegna kostnaðar bankanna af gengislánadómi Hæstaréttar. Samkvæmt ársreikningum tveggja stóru bankanna er lækkaður tekjuskattur yfir tíu milljarðar króna. 17.3.2012 18:37
Vilja aðskilja fjárfestingabanka og viðskiptabanka Þingmenn úr fjórum þingflokkum á Alþingi vilja að skipuð verði nefnd til að endurskoða skipan bankastarfsemi á landinu með það að markmiði að aðskilja viðskiptabanka og fjárfestingabanka. Markmiðið er að lágmarka áhættuna af áföllum í rekstri banka fyrir þjóðarbúið. Samkvæmt þingsályktunartillögu á nefndin að skila tillögum sínum fyrir 1. október 2012. 17.3.2012 13:29