Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Raforkukostnaðurinn hækkaði um 26% Heildarraforkukostnaður hjá hjá heimilum sem eru í viðskiptum við Orkuveitu Reykjavíkur hefur hækkað um 26% frá því í júní í fyrra. Þetta kemur fram í verðkönnun ASÍ. 26.8.2011 14:12
Meiri undirtektir en búist var við Undirtektir í skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar í fyrradag voru mun meiri en í útboðinu á undan, segir Greining Íslandsbanka. Borgin getur vel unað við niðurstöðuna að mati Greiningar. Í boði var helsti skuldabréfaflokkur borgarinnar, RVK 09 1, og bárust alls tilboð að nafnvirði 2,9 ma.kr. í flokkinn á kröfubilinu 3,89% - 4,07%. Tilboðum að nafnvirði 1,4 ma.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,9%. 26.8.2011 12:07
Hagnaður HS Veitna nam 124 milljónum Hagnaður HS Veitna á fyrri helmingi ársins nam 124 milljónum króna. Þetta kemur fram í árshlutareikningi sem samþykktur var í morgun. Rekstrartekjur félagsins námu tæpum 2700 milljónum krónja á fyrstu sex mánuðum ársins. 26.8.2011 10:45
Síðasta endurskoðunin afgreidd hjá AGS eftir hádegi Síðasta endurskoðun áætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Íslands verður tekin fyrir í stjórn sjóðsins í Washington í dag. Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu er gert ráð fyrir að fundurinn hefjist eftir hádegið í dag. Þar með lýkur formlega samstarfi AGS og Íslands sem staðið hefur yfir frá því eftir hrunið haustið 2008. 26.8.2011 10:13
Ásgeir fær bónusinn viðurkenndan sem forgangskröfu Hæstiréttur Íslands snéri dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í dag þegar rétturinn úrskurðaði að Ásgeir Jónsson skyldi fá bónusgreiðslur sínar hjá Kaupþingi flokkaðar sem forgangskröfur. 25.8.2011 20:33
Sagður hafa beitt bókhaldsbrellum til þess að framlengja líf MP Banka Þáverandi forstjóri MP banka, Styrmir Þór Bragason, seldi veðsett hlutabréf í Landsbankanum fyrir hálfan milljarð króna og bókfærði söluandvirðið sem hagnað til að koma í veg fyrir að bankinn færi á hausinn. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV. 25.8.2011 20:19
SPKef né Byr hafa skilað ársreikningi fyrir síðasta ári Hvorki SPKef né Byr hafa skilað ársreikningi fyrir árið 2010. Þingmaður sjálfstæðisflokksins, Guðlaugur Þór Þórðarson, segir þetta ótrúleg vinnubrögð af hálfu ríkisstjórnarinnar. Skattgreiðendur eigi heimtingu á að sjá stöðu fyrirtækja í opinberri eigu. 25.8.2011 19:00
Verðhjöðnun sé horft framhjá útsölulokum Greiningadeild Arion banka segir að ef horft sé framhjá áhrifum útsöluloka, mælist verðhjöðnun í ágúst. Vegna útsölulokanna hækkaði neysluverðsvísitalan hins vegar um 0,26%. Greining Arion segir að þetta veki sérstaka athygli sökum þess að þegar Seðlabankinn hækkaði vexti um 25 punkta á dögunum hafi hann varað sérstaklega við verri verðbólguhorfum. 25.8.2011 15:58
Þrjú svið sendu frá sér afkomuviðvörun Þrjú svið sem starfa innan Reykjavíkurborgar hafa sent frá sér afkomuviðvörun vegna ársins 2011. Um er að ræða Íþrótta- og tómstundasvið, Menntasvið og Leikskólasvið. Þetta kemur fram í minnisblaði sem fylgir sex mánaða uppgjöri Reykjavíkurborgar. Uppgjörið var kynnt í borgarráði í morgun. 25.8.2011 15:29
Afkoma A-hluta Reykjavíkur fer batnandi Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 996 milljónir kr. en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 1.522 milljónir kr. á tímabilinu. Niðurstaðan er því betri en gert var ráð fyrir, sem nemur 526 milljónum kr. 25.8.2011 11:35
Skuldatryggingaálag Íslands fer hækkandi Skuldatryggingaálag Íslands fer nú hækkandi að nýju. Álagið hefur raunar hækkað síðustu þrjá daga í röð og stendur í 261 punkti í dag. 25.8.2011 10:52
Verðbólgan minni en sérfræðingar spáðu Verðbólgan í ágúst reyndist nokkuð minni en sérfræðingar höfðu spáð. Allar spár gerðu ráð fyrir að verðbólgan myndi aukast en í raun stóð hún í stað í 5% milli mánaða. 25.8.2011 09:25
Eignir sjóða lækkuðu um 3,4 milljarða Eignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða námu 298,8 milljarðar kr. í lok júlí og lækkuðu um 3,4 milljarða kr. milli mánaða. 25.8.2011 09:07
Verðbólgan mælist 5% í ágúst Verðbólgan reyndist vera 5% í ágúst og er því óbreytt frá því í júlí. 25.8.2011 09:03
Kínverjar vilja fjárfesta í ferðaþjónustu Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra fundaði í gær með Huang Nubo, stjórnarformanni kínverska fjárfestingarfyrirtækisins Zhongkun Group. Fyrirtækið áformar að fjárfesta í umhverfistengdri ferðaþjónustu á Íslandi, og taka þátt í uppbyggingu ferðaþjónustu í samstarfi við íslensk stjórnvöld. 25.8.2011 07:10
Bandaríkjamaður fjárfestir fyrir milljarð í fasteignum Bandaríski fjárfestirinn Michael Jenkins hefur verið umsvifamikill á fasteignamarkaði undanfarna mánuði og í dag á hann 23 íbúðir ásamt Kirkjuhvoli, Kaaberhúsinu og hlut í Sætúni 4 og 10. 25.8.2011 06:50
Tengjast rannsókn sérstaks saksóknara Skilanefnd gamla Landsbankans ætlar á ný að reyna að sækja 10 milljónir svissneskra franka, jafnvirði 1,4 milljarða íslenskra króna, til eignarhaldsfélaga feðganna Flosa Valgeirs Jakobssonar og Jakobs Valgeirs Flosasonar í Bolungarvík. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur 31. ágúst næstkomandi. 25.8.2011 06:00
Forstjóri N1 vill 400 milljónir „Málin fara ekki öll fyrir dómstóla. Í einhverjum tilvikum fáum við fordæmi frá öðrum málum sem gilda á línuna,“ segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. 25.8.2011 06:00
Þjóðverjar kannski færðir skör neðar Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody‘s hefur lækkað lánshæfiseinkunnir Japans um eitt stig. Þung skuldabyrði nokkurra evruríkja gæti valdið því að þau horfi upp á sömu örlög á næstu mánuðum. 25.8.2011 05:00
Verður ekki skráð á hlutabréfamarkað Framtakssjóður Íslands hefur sett Húsasmiðjuna í söluferli. Stefnt hefur verið að því frá upphafi að selja fyrirtækið ýmist að öllu leyti eða hluta þótt ýmsir hafi látið að því liggja að hyggilegt væri að skrá það á hlutabréfamarkað. 25.8.2011 05:00
Reisa stærsta sláturhús landsins Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) hefur lánað matvælafyrirtækinu Nortura í Noregi 315 milljónir norskra króna, jafnvirði 6,6 milljarða íslenskra króna. Fyrirtækið vinnur að því að reisa stærsta sláturhús landsins í Malvik í Suður-Þrændalögum. 25.8.2011 04:00
44 ár að skipta upp dánarbúi Hæstiréttur féllst á að skipa nýja skiptastjóra yfir búi Sigurðar Kristjáns Hjaltested, sem andaðist 13. nóvember 1966, en meðal erfingja voru faðir Þorsteins Hjaltesteds, sem var skattakóngur í ár. Búið hefur því legið óskipt í 44 ár. 24.8.2011 20:30
Sekt FME á ekki við um núverandi MP banka Fjármálaeftirlitið (FME) vill að gefnu tilefni ítreka að 15 milljóna kr. stjórnvaldssekt sem sagt er frá í gagnsæistilkynningu sem birtist á á vef Fjármálaeftirlitsins í gær snertir ekki með nokkrum hætti þann MP banka sem nú starfar, eða eigendur hans. 24.8.2011 18:06
OR tapaði 3,8 milljörðum á fyrri helmingi ársins Tap Orkuveitu Reykjavíkur (OR) á fyrri hluta ársins nam 3,8 milljörðum króna samanborið við 5.1 milljarðs hagnað á sama tímabili 2010, þegar gengisþróun var hagfelldari en nú. 24.8.2011 15:25
Lítið selst af atvinnuhúsnæði utan borgarinnar Einungis 25 kaupsamningum og afsölum var þinglýst utan borgarinnar í júlí síðastliðnum og hafa þeir ekki verið færri í einum mánuði eins langt aftur og tölur Þjóðskrár ná. Í júlí í fyrra var fjöldinn 38 og í júlí árið þar á undan 50 og má því sjá að um töluverðan samdrátt er að ræða milli ára. 24.8.2011 12:37
Langur tími í afléttingu gjaldeyrishaftanna Langur tími mun líða þar til almenn aflétting gjaldeyrishafta verður að veruleika, og er vandséð að skriður komist á hana fyrr en talsvert er liðið á næsta ár. Ísland hefur nú í tæp 3 ár búið við strangari höft á fjármagnsflutninga en þekkist í nokkru öðru þróuðu ríki, og því miður er reynsla undanfarinna mánaða af fyrstu skrefum í afléttingu þeirra ekki til þess fallin að auka bjartsýni á að sú staða breytist umtalsvert í bráð. 24.8.2011 12:26
FME sektar MP banka um 15 milljónir Fjármálaeftirlitið (FME) hefur lagt 15 milljóna kr. stjórnvaldssekt á EA fjárfestingarfélag hf., áður MP banka. Sektin er tilkomin vegna þess vegna þess að áhættuskuldbindingar fóru langt fram úr leyfilegum mörkum eða rúmlega 126% af eiginfjárgrunni. Leyfileg mörk eru 25%. 24.8.2011 12:08
Sjávarútvegsfrumvarp þýðir fjöldagjaldþrot Í umsögn sem borist hefur sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis er bent á að verði sjávarútvegsfrumvarp ríkisstjórnarinnar að lögum muni sjávarútvegsfyrirtækin gjaldfæra samstundis allar eignfærðar aflaheimildir. Þetta mun lækka eigið fé greinarinnar um 180 milljarða króna og leiða til fjöldagjaldþrota í greininni. Einnig hefur frumvarpið þau áhrif að lækka mögulegar skatttekjur ríkissjóðs um marga milljarða króna. 24.8.2011 10:15
Seðlabankinn hækkar dráttarvexti Grunnur dráttarvaxta hækkaði um 0,25 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans hinn 17. ágúst sl. Dráttarvextir hækka því að sama skapi um 0,25 prósentur frá og með 1. september nk. og verða 11,50% fyrir tímabilið 1. - 30. september 2011. 24.8.2011 08:29
Lánasjóður hagnast um hálfan milljarð Hagnaður Lánasjóðs sveitarfélaga á fyrri helmingi ársins nam 519 milljónum króna miðað við 941 milljónir króna á sama tíma árið 2010 og var í samræmi við væntingar sjóðsins. Lækkun hagnaðar milli ára skýrist aðallega af gengisþróun evrunnar sem var sérstaklega hagstæð sjóðnum á árinu 2010. 24.8.2011 07:58
Lífleg viðskipti með atvinnuhúsnæði í júlí Í júlí var 107 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 25 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 2043 milljónir króna en 188 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. 24.8.2011 07:46
Er rekinn á undanþágu FME Sparisjóður Svarfdæla hefur ekki uppfyllt lögbundið lágmark um eigið fé sem Fjármálaeftirlitið hefur sett fjármálafyrirtækjum síðastliðin þrjú ár. Til stendur að selja hlut ríkisins í sparisjóðnum. Nýir eigendur þurfa að leggja honum til á bilinu 100 til 120 milljónir króna að lágmarki til að koma honum á réttan kjöl. 24.8.2011 05:00
Hörð átök innan Vinnslustöðvarinnar Framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum (VSV) hefur sent fjölmiðlum tilkynningu vegna harðvítugra átaka innan félagsins en hluthafafundur fór fram í félaginu í gær. 23.8.2011 17:41
Seðlabankinn ryksugar gjaldeyri á markaðinum Seðlabankinn hefur ryksugað til sín stóran hluta þeirrar veltu sem hefur komið inn á millibankamarkað með gjaldeyri síðastliðið ár. 23.8.2011 15:10
Gengisáhrif koma hraðar fram í hækkun en lækkun vöruverðs Styrking krónunnar hefur minni áhrif til lækkunar á vöruverði heldur en veiking hennar hefur á hækkun á vöruverði. Þetta er meginniðurstaða rannsóknar sem Rannsóknasetur verslunarinnar gerði. 23.8.2011 14:20
Launahækkanir ekki í takt við aðstæður Sú hækkun sem orðið hefur á launum í kjölfar kjarasamninga er ekki í takti við þær aðstæður sem eru á vinnumarkaði hér á landi. Vinnumarkaði sem einkennist enn af töluverðu atvinnuleysi, auk þess sem fjárhagsleg staða og rekstrarumhverfi margra fyrirtækja er enn afar erfitt. 23.8.2011 12:30
Launavísitalan hækkað um 7,8 prósent síðasta árið Launavísitala í júlí 2011 er 409,1 stig og hækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,8%. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. 23.8.2011 09:02
Aukning farþega mest í Leifsstöð Á fyrri helmingi ársins fjölgaði farþegum um nærri fjórðung á Leifsstöð. Það er meiri viðbót en stóru flugvellir frændþjóðanna geta stært sig af. 23.8.2011 08:31
Húsasmiðjan er til sölu Framtakssjóður Íslands (FSÍ), sem er eigandi alls hlutafjár í Húsasmiðjunni, hyggst selja fyrirtækið og hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast söluna. Óskað er eftir óskuldbindandi tilboðum fyrir 29. september. Auglýsing þessa efnis var birt í dagblöðum í morgun. 23.8.2011 08:02
H.F. Verðbréf ráðgjafi við sölu Sparisjóðs Svarfdæla Bankasýsla ríkisins hefur ráðið H.F. Verðbréf sem ráðgjafa við sölu á 90% eignarhlut ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla. Fyrr í þessum mánuði var ákveðið að selja hlut ríkisins í sparisjóðnum í opnu söluferli. 23.8.2011 07:37
HS Orka semur við Stolt Sea Farm Forsvarsmenn HS Orku og alþjóðlega fiskeldisfyrirtækisins Stolt Sea Farm gengu í gær frá samstarfssamningi. Hann felur í sér að Stolt Sea Farm fái að nýta land og heitt vatn frá HS Orku fyrir eldisstöð á Reykjanesi. Áformin miðast við að framkvæmdir við eldisstöðina hefjist í lok árs. 23.8.2011 05:00
Hugsanavilla Hagsmunasamtakanna Þórólfur Matthíasson, forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands, vísar athugasemdum Andreu Ólafsdóttur, formanns Hagsmunasamtaka heimilanna, á bug. Andrea gerði um helgina athugasemdir við gagnrýni Þórólfs á útreikninga samtakanna. 23.8.2011 04:15
Aðeins 23% orkugetunnar nýtt í rammaáætlun Samorka telur að aðeins 23% af orkuvinnslugetu landsins sé að finna í nýtingaflokki. Hin 77% eru annað hvort í biðstöðu- eða verndunarflokki samkvæmt drögum að þingsályktun um rammaáætlun sem kynnt voru nýlega. 22.8.2011 14:26
Ný stjórn Byggðastofnunnar Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn er í dag á Sauðárkróki tók við ný stjórn stofnunarinnar. Nýja stjórnin er skipuð af Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra. 22.8.2011 13:53
Reiknivél ÍSB virkar ekki Í augnablikinu liggur niðri reiknivél inná heimasíðu Íslandsbanka (ÍSB) sem hugsuð er til að reikna heildarkostnað og greiðslubyrði af verðtryggðum lánum. Síðan hefur legið niðri í dag. 22.8.2011 13:15