Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segja mál sjömenninganna eiga heima á Íslandi Ný gögn sem slitastjórn Glitnis hefur lagt fram í New York í skaðabótamálinu gegn sjömenningunum sanna ekkert og sýna að málið á ekki heima þar heldur fyrir íslenskum dómstólum, að mati lögmanna stefndu. Þá telja þeir áhuga íslensku þjóðarinnar á málinu styðja þá kröfu. 12.11.2010 12:18
Tap lánastofnana á gengislánum nemur 108 milljörðum Samkvæmt nýju frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra um gengistryggð lán er tap lánastofnana á ólögmæti þessara lána alls 108 milljarðar króna. Frumvarpið felur í sér að öll gengistryggð bíla- og fasteignalán verði talin í sama flokki. 12.11.2010 12:10
Desemberuppbót skal greiða fyrir 15. desember Samkvæmt almennum kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins (SA) greiðist desemberuppbót eigi síðar en 15. desember. 12.11.2010 09:51
Engar eða litlar fjárfestingar hjá 60% fyrirtækja innan SA Sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum Samtaka atvinnulífsins (SA) hyggjast ekki leggja í umtalsverðar fjárfestingar eða endurbætur á næsta ári, 30% telja það óvíst en einungis 12% hyggjast gera það. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á fjárfestingaráformum fyrirtækjanna. 12.11.2010 09:38
Skuldabréf N1 á athugunarlista í Kauphöllinni Kauphöllin hefur sett skuldabréfaflokk útgefnum af N1 á athugunarlista hjá sér. Ástæðan er tilkynning frá félaginu um að endurfjármögnun og endurfjármögnun BNT, móðurfélags N1, muni ekki ljúka fyrr en á næsta ári. 12.11.2010 09:31
Yfir þriðjungur atvinnulausra án vinnu í meir en eitt ár Enn fjölgar í þeim hópi einstaklinga sem hafa verið án atvinnu í meira en ár. Þeir voru nú í lok október 4.614 talsins en höfðu verið 4.534 í lok september. Þetta jafngildir 35% atvinnulausra í október sem er með hæsta hlutfalli sem mælst hefur. 12.11.2010 09:07
Iceland Glacial útvegar 900 milljónir í nýtt rekstrarfé Iceland Glacial, fyrirtæki Jóns Ólafssonar, hefur útvegað 8 milljónir dollara eða rétt tæpar 900 miljónir kr. í nýtt rekstrarfé. Þetta kemur fram á vefsíðunni BevNET.com en þar er haft eftir Jóni að þetta fé hafi komið frá „vinum og vandamönnum“. 12.11.2010 08:23
Vilja hefja byggingu útgerðarmiðstöðvar á Akranesi Faxaflóahafnir og Akraneskaupstaður leita nú að áhugasömum aðilum til að reisa útgerðarmiðstöð á Akranesi. Unnið hefur verið að undirbúningi málsins um nokkurt skeið. Um er að ræða aðstöðu fyrir útgerð smábáta og aðra hafnsækna starfsemi við Akraneshöfn. 12.11.2010 07:58
Töluverður samdráttur kortaveltu í október Heildarvelta debetkorta í október 2010 var 29,4 milljarða kr. og er þetta 4,4% samdráttur miðað við október 2009 en 4,9% samdráttur miðað við september 2010. 12.11.2010 07:44
Aðild að ESB og upptaka evru leysir myntvandann „Það er alveg klárt að aðild að Evrópusambandinu og evrusvæðinu myndi leysa myntvandann sem birtist í fjármálakreppunni hér, bæði frá sjónarhóli verðstöðugleika og frá sjónarhóli fjármálastöðugleika,“ sagði Már Guðmundsson seðlabankastjóri á hádegisfundi Félags viðskipta- og hagfræðinga (FVH) um peningamál í gær. Um leið áréttaði hann að landið gæti sam 12.11.2010 06:15
Stærsta átak í heimi á sviði nýsköpunar Alþjóðlega athafnavikan á Íslandi hefst á mánudaginn næstkomandi. Að vikunni koma um 100 lönd og er þetta í annað sinn sem vikan er haldin á Íslandi og í þriðja sinn á heimsvísu. 12.11.2010 05:00
Þarf ekki að taka við stórri lóð Reykjavíkurborg er ekki skyldug til að taka við stórri lóð undir atvinnuhúsnæði í Hádegismóum, samkvæmt nýföllnum dómi Hæstaréttar. Dómurinn, sem er fordæmisgefandi, kann að hafa áhrif á réttindi lóðarhafa sem vilja skila lóðum sínum vegna brostinna forsendna. 11.11.2010 21:21
Bankar og lífeyrissjóðir enn á móti flatri niðurfellingu skulda Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion, sagði þetta að loknum samráðsfundi í dag. „Það er bara verið að velta upp mörgum leiðum, nú þarf að horfa á hvaða leið eru færar.“ Spurður hvort bankinn útiloki almenna aðgerðir sagði Höskuldur: „Já, okkur finnst það liggja í augum uppi að það sé ekki sú leið sem á að fara” 11.11.2010 18:45
Fjölsetinn fundur vegna skuldavanda Samráðsfundur vegna skuldavanda heimilanna fór fram í Þjóðmenningarhúsinu í dag og stendur enn yfir. 11.11.2010 15:54
Um 7,5% atvinnuleysi í október Um 7,5% atvinnuleysi var á Íslandi í október síðastliðnum og eykst um 0,4% frá september. 11.11.2010 12:17
Skýrslan unnin út frá hagsmunum fjármagnseigenda Útreikningarnir eru unnir af fjármagnseigendum og út frá hagsmunum þeirra og eru tölurnar um kostnað því vart marktækar, segir formaður Framsóknarflokksins. Þingmaður Hreyfingarinnar segir vel svigrúm fyrir almenna leiðréttingu á lánum en forsætisráðherra segir líklegt að fara þurfi samsetta leið. 11.11.2010 12:00
Skatttekjur minni en vænst var Þær aðgerðir sem núverandi ríkisstjórn hefur ráðist í með það að markmiði að auka skattheimtu hafa sumar hverjar ekki borið áætlaðan árangur. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka. Þar er vakin áthygli á því að þótt skatttekjur hafi aukist á fyrstu níu mánuðum ársins séu þær ekki eins miklar og áætlanir gerðu ráð fyrir. 11.11.2010 11:58
Líkur á enn frekari fækkun starfa Vandinn sem þjóðin býr við í dag sé heimatilbúinn og aðgerðaleysi eykur enn á vandann, sagði Vilmundur Jósefsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, á fundi samtakanna á Akureyri í morgun. 11.11.2010 10:28
Tvö þúsund fyrirtæki stefna í vanskil „Ef okkur tekst að koma fram með einhver úrræði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki er ég sannfærð um að það muni draga úr alvarlegum vanskilum,“ segir Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Creditinfo á Íslandi. 11.11.2010 06:00
Tekjur GM aukast á milli ára Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors hagnaðist um tvo milljarða Bandaríkjadala, jafnvirði 224 milljarða króna, fyrir skatta og gjöld á þriðja ársfjórðungi. 11.11.2010 06:00
Smáralind skráð í Kauphöllina „Með skráningu eigna á markað fer stór hluti af eignum okkar í einu vetfangi. Þessar eignir sem fóru inn í bankana þurfa að fara úr þeim sem fyrst,“ segir Helgi S. Gunnarsson, forstjóri eignarhaldsfélagsins Regins, dótturfélags Landsbankans. Hann telur dreift eignarhald sem felst í markaðsskráningu farsæla lausn. 11.11.2010 04:00
Þrjú á leið í Kauphöllina Þrjú félög hafa þegar boðað opinberlega skráningu á hlutabréfamarkað á næstunni og þrjátíu félög skoðað þá möguleika sem felast í Kauphallarskráningu. Átta fyrirtæki munu í pípunum og geta íhugað að stíga skrefið inn í Kauphöll á næsta ári. 11.11.2010 04:00
Greiðsluvilji þrátt fyrir kaupmáttarhrap Um 12% lántakenda eru með vanskil umfram 60 daga hjá viðskiptabönkunum þremur. Þar af eru um 10,4% sem hafa verið í vanskilum í meira en 90 daga. Þetta kemur fram í skýrslu sérfræðinganefndar Sigurðar Snævars sem fjallaði um skuldavanda heimilanna. Þar kemur líka fram að um 6,4% voru í meira en 90 daga vanskilum hjá Íbúðalánasjóði en um 4% í vanskilum hjá lífeyrissjóðunum. Alls eru þetta um 20% sem eru í verulegum vanskilum. 10.11.2010 20:06
Um 20 þúsund íbúðaeigendur skulda meira en þeir eiga Meðalskuld á hverja íbúð er tæplega 18 milljónir króna, samkvæmt niðurstöðum sérfræðihóps sem hafði það hlutverk að meta kostnað af 10.11.2010 16:59
Flöt niðurfærsla er dýrasta leiðin Flöt niðurfærsla skulda er mjög dýr aðgerð og skilar í raun svipuðum eða minni árangri og aðgerðir á borð við hækkun vaxtabóta eða sértæka skuldaaðlögun. Þetta er mat sérfræðingahóps sem hafði það að markmiði að meta kostnað af ýmsum þeim leiðum sem í umræðu hafa verið til lausnar á skuldavanda heimilanna. 10.11.2010 17:00
IceCapital dæmt til að greiða Arion 3,5 milljarða Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær eignarhaldsfélagið IceCapital til að greiða Arion banka tæpa 3,5 milljarða króna ásamt dráttarvöxtum frá 2. febrúar 2009. 10.11.2010 13:41
Yfir 800 leigusamningum þinglýst í október Alls voru 840 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst á landinu í október. Þetta eru mun færri samningar heldur en í septembermánuði síðastliðnum, en þá var 1.553 leigusamningi þinglýst. Það var jafnframt mesti fjöldi leigusamninga sem þinglýst hefur verið innan eins mánaðar það sem af er þessu ári. 10.11.2010 10:41
Segir óþarft að banna notkun transfitusýra Opinber íhlutun vegna notkunar transfitusýra í matvælum er óþörf, segir Vilhjálmur Þorláksson, framkvæmdastjóri Gæðabaksturs, í samtali við Vísi. Gæðabakstur framleiðir meðal annars ömmukleinur og kleinuhringi. 10.11.2010 10:32
Rekstrarlausnir Skýrr sameinast EJS EJS og rekstrarlausnir Skýrr hafa verið sameinuð undir nafni EJS, sem verður eftirleiðis rekið sem eitt af þremur tekjusviðum Skýrr. Sameiningin var tilkynnt starfsfólki í dag. Starfsfólk sameinaðs fyrirtækis Skýrr og EJS er um 470 talsins, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. 10.11.2010 10:00
Skuldir fyrirtækja stjarnfræðilega háar Þriðjungur íslenskra fyrirtækja skuldar meira en rekstur þeirra stendur undir. Skuldir þeirra umfram eignir eru samtals ríflega sex þúsund og sex hundruð milljarðar króna. 9.11.2010 18:35
Réttarhöldum yfir sjömenningunum frestað Réttarhöldum yfir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og fleirum sem fara áttu fram í dag í New York í Bandaríkjunum hefur verið frestað. 9.11.2010 15:54
90 Icesave-milljarðar falla á ríkið Nú er talið að um níutíu og þrjú prósent fáist upp í Icesave kröfur Landsbankans og hafa endurheimtur aldrei verið hærri. Samkvæmt þessu falla rúmlega níutíu og tveir milljarðar á íslenska ríkið. Tölurnar voru kynntar á kröfuhafafundi í Lundúnum fyrr í dag. 9.11.2010 18:39
Endurheimtur Landsbankans nema 93% af forgangskröfum Endurheimtur Landsbanka Íslands í erlendri mynt nema 93% af forgangskröfum, en vegna mikillar hækkunar íslensku krónunnar á tímabilinu eru endurheimtur í þeirri mynt áætlaðar 86% þann 30. september síðastliðinn. 9.11.2010 16:35
Um 19 milljarða viðskipti með skuldabréf Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,4% í dag í 19 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,6% í 6,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 12,1 ma. viðskiptum. 9.11.2010 16:24
Þriðjungur fyrirtækja er tæknilega gjaldþrota Um þriðjungur íslenskra fyrirtækja, eða á bilinu 5-7 þúsund, skulda meira en rekstur þeirra þolir til lengri tíma. Þetta kemur fram í Hagsýn, nýju vefriti efnahags- og viðskiptaráðuneytisins. 9.11.2010 16:14
Bakkavör velti tæpum 333 milljörðum Bakkavör Group var stærsta fyrirtækið á Íslandi í fyrra, samkvæmt tölum Frjálsrar verslunar. Velta fyrirtækisins nam tæpum 333 milljörðum. Rit þeirra, 300 stærstu, kom út í dag. Actavis var næststærsta fyrirtækið með tæplega 267 milljarða króna veltu og Icelandic Group er þriðja fyrirtækið í röðinni með um 179 milljarða veltu. 9.11.2010 13:21
Töluverð fjölgun farþega hjá Icelandair í ár Farþegum Icelandair fjölgaði um 14% á fyrstu níu mánuðum ársins miðað við sama tímabil í ár. Farþegafjöldinn í ár var tæplega 1,3 milljón manns en í fyrra var fjöldinn rúmlega 1,1 milljón manns. 9.11.2010 12:32
Afkoma ríkisins nær 20 milljörðum betri en vænst var Handbært fé frá rekstri ríkissjóðs var neikvætt um 73,6 milljörðum kr. en var neikvætt um 88,7 milljarða kr. á sama tímabili 2009. Þetta er mun betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um tæpa 93 milljarða kr. 9.11.2010 12:11
Lífeyrissjóðirnir enn risastórir í alþjóðlegu samhengi Þrátt fyrir að hrein eign lífeyrissjóðanna sé nú lægri en hún var fyrir hrun bankanna eru þeir enn risastórir í alþjóðlegu samhengi. Hvergi í heiminum, fyrir utan Holland, er stærð sjóðanna jafnhátt hlutfall af landsframleiðslu. 9.11.2010 11:41
Starfsmenn Stálskipa voru tekjuhæstir Meðallaun starfsmanna Stálskipa voru hæst allra fyrirtækja á Íslandi í fyrra. Eftir því sem fram kemur í nýju riti Frjálsrar verslunar, 300 stærstu, fengu starfsmenn fyrirtækisins að meðaltali 17,363 milljónir króna. Það þýðir að hver starfsmaður var með um 1,45 milljónir króna í laun á mánuði í fyrra. 9.11.2010 11:40
Már: Loforð stjórnvalda stoppa endurreisnina Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir að röð loforða stjórnvalda um lausn á skuldavanda heimilanna séu að stöðva endurreisn efnahagslífsins. Þeir sem skuldi dragi lappirnar við að endurskipuleggja fjárhag sinni í þeirri von að betri pakki komi á borðið. 9.11.2010 11:20
Mikil fækkun leigusamninga milli mánaða Heildarfjöldi leigusamninga á landinu var 840 í október 2010 og fækkar þeim um 45,9% frá september 2010 og 1,8% frá október 2009. 9.11.2010 10:58
Vigdís segir loftfimleika með ólíkindum í Avenskaupum Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins segir að það sé með ólíkindum að slíkir loftfimleikar skuli vera stundaðir af Seðlabanka Íslands og lífeyrissjóðunum eins og raunin var með Avenskaupin á sínum tíma. 9.11.2010 10:10
Iceland Airwaves skilaði rúmum 300 milljónum Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) vann í samstarfi við Höfuðborgarstofu könnun á meðal erlendra gesta á nýliðinni Iceland Airwaves-hátíð. 9.11.2010 09:39
Icelandair leikur stórt hlutverk í kynningarherferð Icelandair leikur stórt hlutverk í umfangsmikilli kynningarherferð sem ferðamálaráð Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar standa sameiginlega að í Bandaríkjunum um þessar mundir. Ferðamálastofurnar þrjár, sem heita VisitDenmark, Innovation Norway og VisitSweden hafa tekið höndum saman og kynna löndin þrjú sameiginlega sem áfangastaða ferðamanna með beinum auglýsingum á götum úti og á vefnum. 9.11.2010 09:20