IceCapital dæmt til að greiða Arion 3,5 milljarða Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. nóvember 2010 13:41 Kaupþing. Mynd/ Stefán.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær eignarhaldsfélagið IceCapital til að greiða Arion banka tæpa 3,5 milljarða króna ásamt dráttarvöxtum frá 2. febrúar 2009. Málið snýst um lán sem Sund fékk árið 2006 hjá Kaupþingi, sem Arion banki er reistur á, að andvirði 3 milljarðar króna. Gjalddagi lánsins var í febrúar 2009 og eru áfallnir vextir um 465 milljónir króna. Lánið var veitt til fjármögnunar á hlut í Kaupþingi. Það var ekki greitt til baka eftir gjalddaga. Fram kom í máli lögmanna IceCapital fyrir dómi að forsvarsmenn félagsins teldu sig óbundna af lánasamningnum þar sem stefnandi hafi misnotað viðskiptavini sína til að hafa áhrif á verðmyndun hluta í bankanum og lánið hafi verið veitt til að blekkja stefnda. Þá töldu lögmenn IceCapital að forsendur fyrir lántökunni hafi brostið við fall Kaupþings í byrjun októbermánaðar 2008. Héraðsdómur kemst að þeirri niðurstöðu að IceCapital sé bundinn af samningnum þrátt fyrir fall Kaupþings og ásakanir um að stjórnendur bankans hafi unnið gegn hluthöfum í aðdraganda falls bankans. Þær ásakanir séu ósannaðar. Almennt fylgi því áhætta að eiga viðskipti með hlutabréf. Það sé aldrei hægt að treysta því að þau einungis hækki í verði og skili hagnaði eins og IceCapital geri í málatilbúnaði sínum.
Mest lesið Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Atvinnulíf Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Sjá meira