Fleiri fréttir

Hækkuðu í Kauphöllinni

Spron, FL-Group og Exista hækkuðu öll um rúm 4% í Kauphöllinni í dag. Bakkavör hækkaði einnig um tæp 3% en Century Aluminum Company og 365 hf lækkuðu mest.

Ríkisstjórnin leiðréttir rangfærslur um íslenskt efnahagslíf

Ríkisstjórn Íslands hyggst funda með aðilum á fjármálamarkaði um aðgerðir gegn hugsanlegir lánsfjárkreppu á hér á landi. Hún er auk þess reiðubúin til að fara erlendis og leiðrétta rangfærslur um íslenskt efnahagslíf, að sögn Geirs H. Haarde, forsætisráðherra á Viðskiptaþingi í dag.

Stjórnvöld skortir stefnu í gjaldeyris- og peningamálum

Svo virðist sem stefnumótun stjórnvalda í gjaldeyris- og peningamála skorti, eða hún sé ekki í takt við þarfir atvinnulífs og almennings, að sögn Erlendar Hjaltasonar, formanns Viðskiptaráðs og forstjóra Exista.

Íbúðalánasjóður er ógn við jafnvægi í hagkerfinu

Núverandi rekstrarfyrirkomulag Íbúðalánasjóðs er mein í íslensku hagkerfi og skortir mikið á að almenn umræða um hann sé byggð á traustum grunni. Þetta kom fram í máli Erlendar Hjaltasonar, formanns Viðskiptaráðs, á Viðskiptaþingi í dag.

Ekstra Bladet biður Kaupþing afsökunar og borgar skaðabætur

Danska blaðið Ekstra Bladet hefur beðið Kaupþing afsökunar vegna greinaskrifa um starfsemi bankans haustið 2006. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kaupþingi. Ekstra Bladet mun einnig greiða umtalsverðar skaðabætur og bæta Kaupþingi hæfilegan lögfræðikostnað.

Góð byrjun í Kauphöllinni

Öll félög nema fimm hafa hækkað nú við opnun Kauphallarinnar í morgun. FL Group hefur hækkað mest eða um 3,59% en SPRON, Bakkavör Group og Exista fylgja í humátt á eftir.

FL Group stökk upp í byrjun dags

Gengi bréfa í FL Group rauk upp um 4,3 prósent í upphafi viðskiptadagsins í Kauphöllinni í dag. SPRON og Exista fylgdu fast á eftir. Gengi þeirra hefur fallið mikið frá áramótum og legið í lægsta gildi þeirra frá upphafi upp á síðkastið. Nokkur sætaskipti urðu á efstu sætum þegar lengra leið frá fyrstu viðskiptum.

Dýr dropinn

Bensín hækkaði um rúmar tvær krónur hjá stóru olíufélögunum í gær og er algengt sjálfsafgreiðsluverð nú tæpar 138 krónur fyrir lítrann og díselolíulítrinn fór upp í rúmar 147 krónur.

Skilaboðaþjónn framtíðar kynntur

„Talmálið er framtíðin,“ segir Eric Figueras, spænskættaður frumkvöðull, sem með þeim Birki Marteinssyni og Arnari Gestssyni hefur komið á fót upplýsingatækni- og farsímafyrirtækinu AmiVox. Þeir hafa þróað og eru með í prófunum búnað í farsíma sem þeir binda vonir við að geti orðið smáskilaboðaþjónusta framtíðarinnar.

Hörð lending eða tilslökun vaxta

Skiptar skoðanir eru um hvaða stefnu Seðlabanki Íslands tekur á fyrsta vaxtaákvörðunardegi ársins sem er á morgun. Greiningardeild Kaupþings lýsti nýverið þeirri skoðun að lækkuðu stýrivextir ekki hratt mætti hér gera ráð fyrir mjög harðri lendingu í efnahagslífinu og spáir umtalsverðri lækkun strax. Greiningardeildir Glitnis og Landsbankans spá aftur á móti óbreyttum vöxtum.

Bankahólfið: Tilviljun?

Fjölmiðla- og afþreyingarsamstæðan 365, sem meðal annars gefur út Fréttablaðið og Markaðinn, skilaði sínu besta uppgjöri í rekstri til þessa í síðustu viku þrátt fyrir rúmlega tveggja milljarða króna niðurfærslu á eignarhlut félagsins í olnbogabarninu, bresku prentsmiðjunni Wyndeham.

Þörf á þriðja sæstrengnum eftir fimm ár

Nýr fjarskiptasæstrengur, Danice, verður tekinn í notkun um næstu áramót. Framkvæmdastjóri Farice telur að þörf verði á nýjum streng eftir fimm ár. Forstjóri Hibernia Atlantic segir engar tímasetningar uppi um lagningu strengs frá Írlandi. Ekki sé freistandi að fara í samkeppni við ríkið við svo búið.

Stórfelld fækkun fiskvinnslufólks

Fimm þúsund störf hafa horfið úr fiskvinnslunni undanfarin tíu ár. Konum í fiskvinnslu fækkar meira en körlum. Yfir tíu prósent fiskvinnslufólks hafa misst vinnuna á fiskveiðiárinu.

Saga Capital undirbýr nýtt mál gegn Dögg

Gestur Jónsson, lögmaður Saga Capital, segir að niðurstaða Hæstaréttar í máli skjólstæðings síns gegn Dögg Pálsdóttur og fyrirtæki hennar og sonar hennar, In Solidium, í dag felist enginn dómur um gildi krafna Saga Capital á hendur In Solidium.

FL Group fær 1,7 milljarð í arð frá Glitni

FL Group, sem er stærsti hluthafi Glitnis með rétt rúm 30% hlut, fær 1,7 milljarð króna í arðgreiðslu fyrir árið 2007 ef tillaga stjórnar bankans um að greiða 5,506 milljarða króna í arð af hagnaði rekstrarársins 2007, sem nam 27,651 milljörðum króna eftir skatta.

Hagnaður Marels 602 milljónir króna í fyrra

Marel hagnaðist um 6,1 milljón evra, jafnvirði rúmra 602 milljóna íslenskra króna, á síðasta ári. Til samanburðar nam hagnaðurinn 200 þúsund evrum í hitteðfyrra.

Hefur ekki trú á stýrivaxtalækkun

„Ég hef ekki trú á því að þeir geri það en þörfin er hinsvegar mikil,“ sagði Bjarni Benediktsson þingmaður aðspurður hvort hann héldi að Seðlabankinn myndi lækka stýrivexti á fimmtudaginn. Bjarni var gestur Sindra Sindrasonar í Lok Dags hér á Vísi fyrir stundu.

Eigið fé Kistu aukið þegar eignir rýrna

Kista Fjárfestingafélag, sem er í helmingseigu SPRON, á ekki í vandræðum jafnvel þótt verðmæti eignarhluts félagsins í Exista sé komið rúmum fjórum milljörðum undir skuldir þess. Guðmundur Hauksson, stjórnarformaður félagsins, segir að eigið fé verði aukið eftir þörfum.

Gengi evrunnar við hundraðkallinn

Gengi evrunnar fór í morgun í fyrsta sinn yfir hundrað krónur. Þegar evran tók fyrst gildi 5. janúar árið 1999 var gengi hennar áttatíu og ein króna.

Landsbankinn upp í morgun

Landsbanki Íslands er það félag sem hefur hækkað hvað mest í morgun. Bankinn hefur hækkað um 0,36% síðan markaðir opnuðu í Kauphöllinni og stendur gengi bankans nú í 27,6.

Exista fjarri því að vera tæknilega gjaldþrota

Danska blaðið Börsen heldur því fram í grein í dag um íslenskt efnahagslíf að Exista sé nálægt því vera tæknilega gjaldþrota þar sem eigið fé félagsins hafi gufað upp að undanförnu. Sigurður Nordal, talsmaður Exista, segir það fjarstæðu að eigið fé félagsins sé "tæknilega uppurið".

Álið fram úr sjávarafurðum

Greiningardeild Kaupþings banka áætlar að útflutningsverðmæti áls aukist úr 80 milljörðum króna í fyrra upp í 135 milljarða króna á þessu ári og muni útflutningsverðmæti áls fara fram úr útflutningsverðmæti sjávarafurða. Þessi mikla aukning vegur þungt í minnkandi viðskiptahalla við útlönd, að mati greiningardeildarinnar.

Glitnir bregst við orðum Vilhjálms

Vísi barst fyrir stundu yfirlýsing frá stjórn Glitnis banka vegna þeirra ummæla Vilhjálms Bjarnasonar í Silfri Egils í gær að hann ætlaði að höfða skaðabótamál á hendur Glitnis vegna starfslokasamnings sem bankinn gerði við Bjarna Ármannsson í fyrra.

Exista lækkaði um 5,17%

Íslenska úrvalsvísitalan hefur lækkað um 3,28% í dag. Exista lækkaði mest, eða um um 5,17%. Glitnir banki lækkaði um 4,20% og Landsbanki Íslands lækkaði um 3,68%.

Exista niður um tæp 7%

Gengi Exista hefur lækkað um 6,64% það sem af er degi í Kauphöllinni. Gengi bréfa í félaginu er nú 10,83 og hefur fallið um 45% frá áramótum.

Skoðaði mál Vilhjálms Bjarnasonar gegn Glitni í morgun

„Við fórum í gegnum þetta niður í ráðuneyti í morgun og lögin um hlutafélög eru mjög skýr. Að svo komnu máli sýnist mér að það þurfi ekki að kalla á breytingar á þeim,“ segir Björgvin G Sigurðsson viðskiptaráðherra um mál Vilhjálms Bjarnasonar gegn Glitni.

Exista hefur lækkað mest í morgun

Það er Exista sem hefur lækkað mest frá opnun markaðar í Kauphöllinni í morgun. Félagið hefur lækkað um 3,45% og stendur gengið nú í 11,20. FL Group hefur einnig lækkað um 2,23% og stendur í 9,22.

Exista enn við 20 prósenta þröskuldinn í Sampo

Finnska tryggingafélagið Sampo, sem Exista á stóran hlut í, tilkynnti í morgun að Exista hafi framlengt samkomulag um kaup á bréfum í Sampo sem gert var 9. ágúst 2007, fram til 11. ágúst næstkomandi. Með samningnum getur Exista bætt við hlut sinn og ráðið tuttugu prósentum í finnska tryggingafyrirtækinu.

Neikvæð fjölmiðlaumfjöllun stoppar ekki Icesave

Þrátt fyrir neikvæðar fréttir í garð Icesave, innlánareikning Landsbankans, í Bretlandi halda Bretar áfram að stofna reikninga. Í gær stofnuðu 1100 nýir einstaklingar reikninga í Icesave sem er þrefalt meira en dagsmeðaltal frá stofnun.

Landsbankastjóri hlynntur því að taka upp evruna

Sigurjón Árnason landsbankastjóri er hlynntur því að Íslendingar taki upp evruna sem gjaldmiðil í náninni framtíð. Þetta kom fram hjá honum í spjalli við Sigmund Erni Rúnarsson í þættinum Mannamál á Stöð 2 í kvöld.

Góð afkoma hjá Vinnslustöðinni í Eyjum

Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum, eina útgerðarfélagið sem er eftir á aðallista Kauphallar Íslands, hagnaðist um 636 milljónir kr. á síðasta ári sem var tvöfalt betri afkoma en árið áður.

Nýr forstjóri Icelandic Group

Finnbogi Baldvinsson hefur verið ráðinn forstjóri Icelandic Group, og tekur hann við af Björgólfi Jóhannssyni, sem tók við forstjórastarfi Icelandair Group um miðjan síðasta mánuð.

Laun helstu forstjóra í Kauphöllinni

Laun helstu forstjóra Kauphallarinnar eru allt frá 54 milljónum til 273 milljónum króna á ári. Innifallið í upphæðunum eru auk launa í sumum tilfellum árangurstengdar greiðslur, ýmis hlunnindi og stundum lífeyristengdar greiðslur.

Dagsbrúnardraugurinn er dauður

Ari Edwald, forstjóri 365 hf, segir að eignarhlutur félagsins i bresku prentsmiðjunni Wyndeham, orsaki það tap sem var á rekstrinum árið 2007.

Hagnaður Eyris dróst saman milli ára

Eyrir Invest hagnaðist um 797 milljónir króna á síðasta ári samanborið við tæpa 1,6 milljarða krónur í hitteðfyrra. Eigið fé Eyris jókst um 51 prósent í fyrra með hagnaði og hlutafjáraukningu.

Langþráð hækkun í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum hækkaði um tæp 1,8 prósent þegar viðskipti hófust í Kauphöll Íslands í dag. Á eftir fylgja Exista og FL Group, sem bæði hafa hækkað um rúmt prósent. Önnur félög hafa hækkað minna. Straumur rekur lestina með 0,16 prósenta hækkun.

Álið fram úr fiskinum í ár

Útflutingsverðmæti áls mun í fyrsta sinn fara fram úr verðmæti útfluttra sjávarafuða á þessu ári samkvæmt útreikningum greiningardeildar Kaupþings. Vitnað er til þeirra á vef Samorku, Samtaka orku- og veitufyrirtækja.

Yfirlýsing frá stjórn Spron

Í tilefni af umfjöllun fjölmiðla um viðskipti innherja með stofnfjárhluti í SPRON sem áttu sér stað fyrir breytingu SPRON í hlutafélag og skráningu í Kauphöll Íslands vill stjórn SPRON taka eftirfarandi fram:

Sjá næstu 50 fréttir