Skilaboðaþjónn framtíðar kynntur Óli Kristján Ármannsson skrifar 13. febrúar 2008 02:15 Eric Figueras og Birkir Marteinsson, tveir stofnenda AmiVox, hafa unnið að því hörðum höndum að búa til verðugan arftaka sms-skilaboða sem samskiptaleið um farsíma. Á myndina vantar þriðja frumkvöðulinn, en að fyrirtækinu stendur líka Arnar Gestsson. Markaðurinn/Anton „
Talmálið er framtíðin," segir Eric Figueras, spænskættaður frumkvöðull, sem með þeim Birki Marteinssyni og Arnari Gestssyni hefur komið á fót upplýsingatækni- og farsímafyrirtækinu AmiVox. Þeir hafa þróað og eru með í prófunum búnað í farsíma sem þeir binda vonir við að geti orðið smáskilaboðaþjónusta framtíðarinnar. „Fólk losnar við innsláttinn og sendir raddupptökur. Það er fljótlegra, þægilegra og persónulegra," segir Eric stoltur, en blaðamaður getur vottað um þægindi þjónustunnar sem hann fékk að kynna sér sjálfur. „Svo erum við lausir við vandann sem kenndur hefur verið við fyrsta faxtækið, því með hugbúnaði okkar er hægt að senda skilaboð í síma sem ekki eru með búnaðinn," bætir Birkir við. AmiVox-menn kynna nýjan skilaboðaþjón sinn á alþjóðlegu farsímaráðstefnunni Mobile World Congress, sem hófst á mánudag og lýkur á morgun, í Barcelona á Spáni. Virkni búnaðarins verður helst líkt við blöndu SMS og MSN-skilaboðaþjónustu netsins, þar sem áherslan er þó á talmálið. Þá felur tæknin í sér lægri símakostnað þar sem samskipti notanda eru við efnisveitu innanlands, sem svo sendir skilaboðin áfram yfir netið. „Við teljum að í þessu felist hagnaður fyrir alla, notendur jafnt sem símafyrirtæki, því með þessu kemur inn viðbótarþjónusta," segir Birkir. AmiVox fékk nýverið styrk frá Tækniþróunarsjóði og segja forsvarsmenn fyrirtækisins það mikla viðurkenningu á gæðum hugmyndarinnar. Í umfjöllun sjóðsins er kerfi AmiVox sagt munu valda byltingu fyrir efnisveitur í að koma efni sínu á framfæri. „Kerfið opnar nýjar dreifileiðir fyrir efni, opnar fyrir sendingar á efni sem ekki hefur verið hægt að senda í farsíma áður, lækkar tækniþröskuld fyrir allar efnisveitur verulega og getur sparað efnisveitum verulegar upphæðir. Kerfið mun auka verulega möguleika fyrir íslenskar efnisveitur á að koma sínu efni á framfæri erlendis, og fyrir íslensk farsímafyrirtæki að keppa á alþjóðamarkaði um ódýra skilboðalúkningu." Í Barcelona segir Eric fyrst og fremst verið að kynna hugmyndina efnisveitum, en í mars verði opnað fyrir almenna notkun á kerfinu, sem enn er í prófunum. Grunnvirkni forritsins verður ókeypis, en svo geta notendur skráð sig fyrir fyrirframgreiddri viðbótarþjónustu kjósi þeir það. Þá geta þeir sem nota búnað AmiVox sent félögum sínum hlekk í niðurhal á búnaðinum í eigin síma. Ekki er því loku fyrir það skotið að vöxtur verði nokkuð hraður hjá AmiVox nái skilaboðaþjónusta þeirra að slá í gegn.
Mest lesið Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent 98 prósent loft en gegnir lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi Samstarf Fleiri valkostir í Bónus með Salling Samstarf Uppfærsla setti strik í hleðslureikninginn Neytendur Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum Samstarf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Sjá meira