Exista fjarri því að vera tæknilega gjaldþrota 12. febrúar 2008 10:27 Erlendur Hjaltason, forstjóri Exista.
Danska blaðið Börsen heldur því fram í grein í dag um íslenskt efnahagslíf að Exista sé nálægt því vera tæknilega gjaldþrota þar sem eigið fé félagsins hafi gufað upp að undanförnu. Sigurður Nordal, talsmaður Exista, segir það fjarstæðu að eigið fé félagsins sé tæknilega uppurið. Blaðið styðst við útreikninga Michael West Hybholt, sem er yfirmaður greiningardeildar Nordea-bankans, í umfjöllun sinni um Exista. Þar kemur fram að markaðsvirði félagsins sé um 140 milljarðar. Eigið fé félagsins var 216 milljarðar um áramótin en ef tekið er mið af hruni á gengi bréfa Exista í félögum á markaði og viðskiptavild er fjarlægð þá er eigið fé þess ekki meira en 12 milljarðar segir í skýrslu Nordea. Samkvæmt útreikningum Nordea segir Börsen að Exista sé næstum tæknilega gjaldþrota. Hypholt bendir þó í greininni í Börsen að Exista hafi tryggt sér fjármögnun fram á mitt ár 2009 og bókhaldslega hafi félagið ekki gert neitt rangt. "Þessi frétt er ekki hófstillt og ber einkenni æsifréttamennsku. Því fer fjarri að eigið fé Exista sé tæknilega uppurið. Við fórum ítarlega yfir stöðu Exista í lok janúar og hún er ekkert lík því sem lýst er í greininni. Það eru til að mynda engin rök fyrir því að færa niður viðskiptavildina sem er tilkominn vegna VÍS og Lýsingar," segir Sigurður Nordal, talsmaður Exista í samtali við Vísi.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira