Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hið opinbera hefði þurft að stíga inn á byggingamarkað fyrir áratug Doktor í hagfræði segir að ekki sé tilefni til að hið opinbera stígi inn á húsnæðismarkað á meðan einkaðilar byggja nóg. Hins vegar hefði það mátt stíga inn fyrir tíu árum þegar lítið var byggt. 17.7.2022 11:49
Telur að smærri útgerðir sameinist þeim stóru á næstu árum vegna íþyngjandi veiðigjalda Hagfræðingur telur að á næstu árum muni smærri útgerðir sameinast þeim stærri vegna veiðigjalda sem þær ráði ekki við. Samkvæmt nýjum tölum frá Fiskistofu á Samherji nú aðild að fjórðungi heildarveiðiheimilda landsins eftir sameiningu Vísis í Grindavík við Síldarvinnsluna 15.7.2022 19:31
Ekki skrítið að lögin séu óbreytt þegar „útgerðarmenn eru með stjórnmálamennina í vasanum“ Samkvæmt endanlegum útreikningum Fiskistofu á Samherji aðild að fjórðungi af heildarkvóta þjóðarinnar. Varaformaður atvinnuveganefndar Alþingis segir Sjálfstæðisflokkinn ekki vilja breyta lögum um kvóta enda hafi útgerðarfélögin stutt við kosningabaráttur flokksins í gegn um árin. 15.7.2022 12:10
Undirbúningur fyrir hressilega góðan mánudag Þótt það sé góður fössari í dag og jafnvel stemning í loftinu fyrir helgina, ætlum við að nýta tækifærið í dag og undirbúa okkur svolítið fyrir hressilega góðan mánudag. 15.7.2022 07:00
Vonast til að auglýsa stöðu forstjóra Festar innan nokkurra vikna Nýkjörin stjórn Festar ráðgerir að auglýsa stöðu forstjóra félagsins á næstu vikum. Mikil ólga hefur verið innan félagsins eftir að eftir að Eggerti Þór Kristóferssyni forstjóra var sagt upp störfum í júní. 14.7.2022 19:25
Guðjón heldur formannsstólnum og Sigurlína er varaformaður Guðjón Karl Reynisson hélt sæti sínu sem stjórnarformaður Festi og Sigurlína Ingvarsdóttir var kosin varaformaður á fyrsta fundi nýrrar stjórnar félagsins. Sigurlína kom ný inn í stjórnina að lokinni kosningu á hluthafafundi í morgun. 14.7.2022 15:32
Rafmyntaverkvangurinn Celsius lýsir yfir gjaldþroti Rafmyntaverkvangurinn Celsius tilkynni gjaldþrot í gær en í seinasta mánuði lokaði verkvangurinn fyrir sölu á rafmyntum til þess að vernda starfsemi sína. 14.7.2022 13:54
Tveir stjórnarmenn héldu sætum sínum Aðeins Guðjón Reynisson og Margrét Guðmundsdóttir héldu sætum sínum í stjórn Festi þegar kosið var til stjórnar í morgun. Þrír nýjir stjórnarmenn koma inn. 14.7.2022 12:51
Búist við að hluthafafundur Festi dragist á langinn Búist er við því að hluthafafundir smásölurisans Festi verði langur þrátt fyrir að aðeins eitt mál sé á dagskrá, stjórnarkjör. 14.7.2022 11:03
Bill Gates heitir því að detta af listanum yfir auðugustu menn heims Auðjöfurinn og frumkvöðullinn Bill Gates hefur heitið því enn og aftur að gefa auðæfi sín og segist stefna að því að detta af listum yfir ríkustu einstaklinga veraldar. Eins og stendur er hann í fjórða sæti, á eftir Elon Musk, Jeff Bezos og Bernard Arnault og fjölskyldu. 14.7.2022 10:51
Aldrei verið mikilvægara að huga að okkar mikilvægustu auðlind, mannauðnum „Ef fólki líður vel í vinnunni og það upplifir öryggi og traust líður því svo miklu betur, skilar betra starfi sem skilar sér svo bæði inná heimili þeirra og út í allt samfélagið.“ Segir Auður Þórhallsdóttir, mannauðsstjóri VIRK. 14.7.2022 09:44
Stefna á að geta fargað þremur milljónum tonna af koltvísýringi á ári Íslenska kolefnisbindifyrirtækið Carbfix hefur fengið sextán milljarða króna styrk úr nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins. Fjármununum verður varið í uppbyggingu stöðvar sem mun taka á móti og farga koltvísýringi frá öðru löndum. Stefnt er að því að stöðin nái fullum afköstum eftir tíu ár. 13.7.2022 23:02
Ósamræmi í lögum því sjávarútvegur sker sig frá öðrum greinum Fiskistofustjóri segir ósamræmi í löggjöf milli atvinnugreina um skilgreiningu á tengdum aðilum. Fyrirtæki teljast ráðandi aðilar með mun lægra eignarhlutfall í flestum öðrum greinum en í sjávarútvegi. 13.7.2022 19:08
Ná þurfi verðbólguvæntingum niður til að stuðla að lægri verðbólgu Verðbólga kemur til með að hækka um nærri hálft prósentustig milli mánaða gangi spár eftir. Forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans segir húsnæðismál vega þyngst, þó merki séu um viðsnúning á fasteignamarkaði. Háar verðbólguvæntingar heimila og fyrirtækja valdi ákveðnum áhyggjum. 13.7.2022 18:13
Mesta verðbólga Bandaríkjanna í fjörutíu ár Verðbólga í Bandaríkjunum í júní mældist 9,1 prósent á milli ára og hefur hún ekki mælst hærri vestanhafs í rúm fjörutíu ár. Í maí hafði verðbólgan mælst 8,6 prósent en hækkunin er að mestu rakin til hærra verðs eldsneytis og matvæla, auk hækkunar í leigu. 13.7.2022 16:42
Nova og Sýn samnýta 5G senda Forsvarsmenn Nova hf. og Sýnar hf. skrifuðu í dag undir samning um samstarf félaganna við uppbyggingu og samnýtingu sendastaða vegna 5G uppbyggingar. Það felur í sér uppbyggingu og samnýtingu á tvö hundruð 5G sendum á samningstímanum en hann gildi til loka ársins 2028. 13.7.2022 16:18
Þýskt flugfélag hefur flug til Akureyrar og Egilsstaða 2023 Þýska flugfélagið Condor mun hefja áætlunarflug til Akureyrar og Egilsstaða og verður flogið frá maí til loka október. Flug hefst sumarið 2023. 13.7.2022 10:48
Spá rúmlega níu prósent verðbólgu í júli Hagsjá Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um hálft prósent milli júní og júlí. Gangi sú spá eftir fari ársverðbólga upp í 9,2 prósent, en hún mældist 8,8 prósent í júní. Talið er að verðbólga fari hæst í 9,5 prósent í ágúst áður en hún lækkar aftur. 13.7.2022 09:38
Carbfix hlýtur sextán milljarða króna styrk frá Evrópusambandinu Íslenska kolefnisbindingarfyrirtækið Carbfix hefur hlotið styrk frá Evrópusambandinu til uppbyggingar á móttöku- og förgunarmiðstöðinni Coda Terminal sem á að rísa í Straumsvík. Styrkurinn er sá stærsti sem íslenskt fyrirtæki hefur fengið úr sjóðum sambandsins og nemur 16 milljörðum króna. 13.7.2022 08:56
Ný Barbídúkka Jane Goodall komin á markað Mattel, framleiðendur Barbí hafa nú gefið út dúkku eftir útliti fremdardýrafræðingsins, Dr. Jane Goodall. Dúkka Goodall er hluti af línu Barbí sem einblínir á hvetjandi konur. 13.7.2022 07:48
Stjórnendur Twitter höfða mál gegn Musk Stjórnendur Twitter hafa ákveðið að höfða mál gegn Elon Musk, eftir að auðjöfurinn hætti við 44 milljarða dala yfirtöku á fyrirtækinu. Forsvarsmenn Twitter hafa nú krafist þess fyrir dómstól í Delaware að Musk verði látin standa við tilboð sitt, upp á 54 dali fyrir hvern hlut. 13.7.2022 07:48
Salmonella í karrý kryddi Matvælastofnun (MAST) hefur varað við neyslu á einni framleiðslulotu af Karríi Hot madras curry sem Lagsmaður ehf. flytur inn vegna gruns um salmonellusmit. 12.7.2022 17:27
Kormákur & Skjöldur og Epal opna í Leifsstöð Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar og hönnunarverslunin Epal opnuðu í dag nýja verslun í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli. Verslunin verður í sama rými og verslun Eymundssonar var áður. 12.7.2022 16:07
Evran fékkst á dollara í fyrsta sinn í tuttugu ár Evran og Bandaríkjadollari voru jafn mikils virði fyrr í dag. Það er í fyrsta sinn í 20 ár sem gengi gjaldmiðlanna tveggja er það sama. 12.7.2022 14:10
Rebekka og Karen til liðs við Hér & Nú Rebekka Líf Albertsdóttir og Karen Sigurlaugsdóttir hafa slegist í hóp starfsmanna Hér & Nú, samskiptastofu. Gengið var frá ráðningu þeirra fyrir skemmstu. Rebekka Líf bætist í teymi grafískra hönnuða fyrirtækisins og Karen mun gegna nýrri stöðu birtingaráðgjafa. 12.7.2022 13:24
Aðgerðir Seðlabankans farnar að bíta og óverðtryggð lán áfram hagstæðari Merki eru um viðsnúning á fasteignamarkaði þar sem aðgerðir Seðlabankans undanfarna tvo mánuði virðast farnar að bíta fast að sögn hagfræðings hjá Húsnæðis og mannvirkjastofnun. Aðgengi að lánsfé hefur verið takmarkað verulega og má áætla að óverðtryggð lán verði áfram hagstæðari. Líklegast muni þróunin enda með hóflegum verðhækkunum en ólíklegt að íbúðaverð lækki. 12.7.2022 13:01
Kortavelta erlendra ferðamanna aldrei meiri Kortavelta erlendra ferðamanna hér á landi var 28,3 milljarðar króna í júní. Það er aukning um 27,4 prósent á milli ára og hefur veltan aldrei mælst hærri í júnímánuði frá því mælingar hófust árið 2012. 12.7.2022 11:10
Fljúga hlaðmönnum til Amsterdam vegna gríðarlega tafa Icelandair tekur nú hlaðmenn með í flug til Amsterdam, til þess að halda ferðum sínum til og frá borginni á áætlun. Langar raðir og tafir eru daglegt brauð á flugvellinum í borginni. Félagið hefur fellt niður fjórum sinnum fleiri ferðir en á sama tíma fyrir faraldurinn. 11.7.2022 20:02
Ólöglegt varnarefni í vanilluís frá Häagen-Dazs Matvælastofnun varar við neyslu á þremur framleiðslulotum af Häagen-Dazs vanilluís þar sem ólöglegt varnarefni hefur greinst í ísnum. 11.7.2022 17:15
Halldór þarf ekki að leggja fram tölvupósta og greinagerð Halldór Kristmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Alvogen og Alvotech, þarf ekki að verða við dómkröfu Björgólfs Thors um að leggja fram tugi tölvupósta, greinargerð og önnur dómsskjöl í máli Alvogen gegn Halldóri. Björgólfur stendur nú í málaferlum vegna falls Landsbankans árið 2008 og gerði kröfuna í tengslum við þau skaðabótamál. 11.7.2022 15:53
Twitter í betri stöðu en samkomulag talið líklegt Lagasérfræðingar vestanhafs segja samfélagsmiðlafyrirtækið Twitter vera með yfirhöndina gegn auðjöfrinum Elon Musk. Hann tilkynnti fyrir helgi að hann ætlaði að hætta við að kaupa samfélagsmiðilinn, þrátt fyrir að hafa skrifað undir kaupsamning upp á 44 milljarða dala. 11.7.2022 15:07
Guðný Arna frá Kviku til Össurar Guðný Arna Sveinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Össurar og mun hefja störf í september. 11.7.2022 11:29
Hugmyndir til að hrista af okkur sumarletina í vinnunni Yfir hásumarið þekkja það margir að finnast hálf tómlegt í vinnunni. Margir vinnufélagar í sumarfríi og við ýmist nýkomin úr fríi eða að bíða eftir langþráðu sumarfríi. 11.7.2022 07:01
Þorskur úr plöntum á markað á næsta ári Frumkvöðlafyrirtækið Loki foods hyggst setja fiskflök sem hæfa plöntumiðuðu fæði á markað árið 2023. Fyrirtækið hefur hlotið 85 milljóna króna fjárfestingu frá hinum ýmsu fjárfestum. 10.7.2022 22:03
Verðbólgan ekki á förum þó verð á ákveðnum vörum lækki Verðlækkanir í ákveðnum vöruflokkum eru ekki endilega til marks um hjaðnandi verðbólgu. Þættir sem stuðla að aukinni verðbólgu vega á móti þeim sem hægja ættu á henni. Hagfræðingur segir verðbólguna ekkert á förum. 10.7.2022 19:29
„Netverslun með áfengi er smásala áfengis“ Þingmaður Flokks fólksins segir vefverslun með áfengi vera skýrt brot á áfengislögum. Hann ræddi málið við þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem segist ekki deila þeirri skoðun með honum, í Sprengisandi í morgun. 10.7.2022 15:48
Afla meiri raforku úr Svartsengi þrátt fyrir óróann undir Þorbirni Ráðamenn HS Orku stefna að því að auka raforkuframleiðslu í Svartsengi um þrjátíu til fjörutíu megavött á næstu þremur árum, aðallega með endurnýjun vélbúnaðar. Þeir óttast ekki fjárfestingar svo nálægt óróafjallinu Þorbirni. 10.7.2022 06:50
Pringles biðlar til félags áttfætlufræða Snakkframleiðandinn Pringles vill að köngulóar tegund þekkt sem Kidney Garden spider (Araneus mitificus), verði nefnd Pringles spider eða Pringles köngulóin. Pringles biðlar nú til félags áttfætlufræða með undirskriftalista. 9.7.2022 21:51
Eina lausnin að borga aukalega til að sitja með börnum sínum Anna Gunndís Guðmundsdóttir gagnrýnir Icelandair harðlega fyrir viðmót gagnvart henni nú nýverið þegar hún keypti flugmiða fyrir sig og börnin sín til Kaupmannahafnar. Upplýsingafulltrúi Icelandair segir sveigjanleikann ekki jafn mikinn með litlum fyrirvara. 9.7.2022 19:00
Musk vill hætta við en Twitter ætlar í mál Auðjöfurinn Elon Musk segir að hann vilji hætta við að kaupa samfélagsmiðilinn Twitter á 44 milljarða dala. Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast ætla að höfða mál gegn Musk og segjast vongóðir um að þeir muni bera sigur úr bítum. 8.7.2022 22:15
Olís selur Mjöll Frigg Olís ehf., dótturfélag Haga hf. og Takk Hreinlæti ehf. undirrituðu í dag kaupsamning um kaup Takk Hreinlætis á öllu hlutafé Mjallar Friggjar. Kaupin eru gerð með fyrirvara um afstöðu Samkeppniseftirlitsins 8.7.2022 17:00
Innnes kaupir Arka Heilsuvörur Innnes ehf. hefur keypt innflutningsfyrirtækið Arka Heilsuvörur ehf.. Arka sem stofnað var árið 2002 hefur lagt áherslu á innfutning og dreifingu á heilsu- og lífstílsvörum. 8.7.2022 16:52
Atvinnulausum fækkað um þúsund milli mánaða Skráð atvinnuleysi var 3,3 prósent í júní og minnkaði úr 0,6 prósent frá því í maí. Að meðaltali fækkaði atvinnulausum því um 1.042 frá maímánuði. 8.7.2022 15:51
Krónan styrkist en ekki á móti Bandaríkjadal Íslenska krónan hefur styrkst það sem af er ári á móti gjaldmiðlum helstu viðskiptalanda okkar, að Bandaríkjadal undanskildum. Bandaríkjadalur hefur ekki verið sterkari á móti evru í 20 ár. 8.7.2022 10:53
Tilboð hefur borist í Laugar í Sælingsdal Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur borist tilboð í ferðaþjónustuþorpið Laugar í Sælingsdal. Þorpið hefur verið til sölu frá árinu 2016 og illa hefur gengið að selja það. 8.7.2022 10:41
Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Viðskipti innlent