Twitter í betri stöðu en samkomulag talið líklegt Samúel Karl Ólason skrifar 11. júlí 2022 15:07 Virði hlutabréfa Twitter hefur lækkað mikið í dag. Getty/Michael M. Santiago Lagasérfræðingar vestanhafs segja samfélagsmiðlafyrirtækið Twitter vera með yfirhöndina gegn auðjöfrinum Elon Musk. Hann tilkynnti fyrir helgi að hann ætlaði að hætta við að kaupa samfélagsmiðilinn, þrátt fyrir að hafa skrifað undir kaupsamning upp á 44 milljarða dala.
Það samsvarar rúmlega sex billjónum íslenskra króna. Virði hlutabréfa Twitter hefur hríðfallið eftir tilkynningu Musks, samkvæmt frétt CNBC. Kaupsamningurinn felur í sér að Musk greiði 54,2 dali fyrir hvern hlut í Twitter. Virði hlutabréfa Twitter stendur nú (klukkan þrjú) í 34,2 dölum á hlut. Þá hefur virði Twitter lækkað um tæplega sjö prósent. Musk lýsti því yfir fyrir helgi að forsvarsmenn Twitter hefðu ekki orðið við kröfum hans um gögn og upplýsingar um raunverulegan fjölda falskra reikninga og svokallaða botta. Hann sagðist þurfa þær upplýsingar til að meta raunverulegt verðmæti Twitter. Forsvarsmenn Twitter sögðust hins vegar hafa orðið við öllum hans kröfum og að þeir myndu höfða mál gegn Musk. Auðjöfurinn nefndi einnig að tveimur háttsettum starfsmönnum Twitter hefði verið sagt upp, án samráðs við sig eins og kaupsamningurinn segir til um. Staða Twitter sögð sterk Sérfræðingar sem ræddu við fréttaveituna Reuters segja Twitter í betri stöðu en Musk, lagalega séð. Deilur sem þessar endi samt oftar en ekki á samningum eða bótum. Það sé í flestum tilfellum metin betri laun sen langvarandi og kostnaðarsöm réttarhöld. Washington Post segir forsvarsmenn Twitter þó tilbúna í réttarhöld og þeir hafi ráðið stóra lögmannastofu frá New York vegna málsins. Lögmenn stofunnar Wachtell, Lipton, Rosen & Katz LLP sérhæfa sig í lögum um samruna fyrirtækja og eru sagðir ætla að leggja fram kæru í Delaware og mögulega strax í þessari viku. Stjórn Twitter barðist upprunalega gegn yfirtöku Musks en samþykkti svo kauptilboð hans í apríl. Skömmu eftir það gaf Musk í skyn óánægju sína með áðurnefnd gögn frá Twitter og voru uppi efasemdir um að hann ætlaði sér að standa við samninginn.
Twitter Bandaríkin Tengdar fréttir Musk vill hætta við en Twitter ætlar í mál Auðjöfurinn Elon Musk segir að hann vilji hætta við að kaupa samfélagsmiðilinn Twitter á 44 milljarða dala. Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast ætla að höfða mál gegn Musk og segjast vongóðir um að þeir muni bera sigur úr bítum. 8. júlí 2022 22:15 Kaup Musks á Twitter sögð „í hættu“ Kaup auðjöfursins Elons Musk á samfélagsmiðlinum Twitter eru sögð í hættu. Musk heldur því fram að ekki sé hægt að sannreyna tölur Twitter um fjölda falskra reikninga og svokallaðra botta á samfélagsmiðlinum og er auðjöfurinn sagður vera hættur viðræðum um fjármögnun kaupanna. 7. júlí 2022 23:29 Mest lesið Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Ætlar að endurreisa Niceair Viðskipti innlent Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Viðskipti innlent Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Viðskipti innlent Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Viðskipti innlent „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Viðskipti innlent Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Viðskipti innlent Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Viðskipti innlent Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Viðskipti innlent „Gæðastimpill sem einfaldlega virkar” Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Lofar að koma böndum á CNN Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Netflix í viðræðum um kaup á HBO frá Warner Bros Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google „Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Fjögurra billjóna hagnaður léttir fyrir fjárfesta Stefna Jóni Þorgrími vegna Rauða heftarans Segir engan óhultan ef gervigreindarbólan springur Trump fellir niður tolla á tugi matvæla Paramount, Comcast og Netflix vilja kaupa Warner Kári og Hannes stofna fyrirtæki: „Erum aðallega bara að velta fyrir okkur heiminum“ PlayStation 5 slær Xbox 360 við Reyna að halda sjaldgæfum málmum frá hernum Jensens Bøfhus lokað Samþykktu stærðarinnar launapakka Musks Græða á tá og fingri á svikum og prettum Fresta reynsluflugi rafmagnsflugvélar Segist engin deili kunna á rafmyntajöfri sem hann náðaði Sjá meira
Musk vill hætta við en Twitter ætlar í mál Auðjöfurinn Elon Musk segir að hann vilji hætta við að kaupa samfélagsmiðilinn Twitter á 44 milljarða dala. Forsvarsmenn fyrirtækisins segjast ætla að höfða mál gegn Musk og segjast vongóðir um að þeir muni bera sigur úr bítum. 8. júlí 2022 22:15
Kaup Musks á Twitter sögð „í hættu“ Kaup auðjöfursins Elons Musk á samfélagsmiðlinum Twitter eru sögð í hættu. Musk heldur því fram að ekki sé hægt að sannreyna tölur Twitter um fjölda falskra reikninga og svokallaðra botta á samfélagsmiðlinum og er auðjöfurinn sagður vera hættur viðræðum um fjármögnun kaupanna. 7. júlí 2022 23:29