Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Sigur fyrir mig, starfsfólkið og veitingastaðinn“ Gunnar Karl Gíslason, stofnandi og yfirkokkur veitingastaðarins Dill í Reykjavík, segir það mikinn heiður að staðnum hafi verið veitt Michelin-stjarna annað árið í röð. Slíkar stjörnur eru veittar veitingastöðum sem þykja skara fram úr og eru afar eftirsóttar meðal veitingamanna. 13.9.2021 21:59
Bein útsending: Michelin-stjörnum úthlutað til veitingastaða á Norðurlöndum Tilkynnt verður um hvaða veitingastaðir á Norðurlöndum fá Michelin-stjörnur, eina mestu viðurkenningu í veitingageiranum, á blaðamannafundi sem hefst klukkan 18. 13.9.2021 17:31
Þórey ráðin sem framkvæmdastjóri rannsókna- og þróunarsviðs hjá Florealis Þórey Haraldsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri rannsókna- og þróunarsviðs íslenska lyfjafyrirtækisins Florealis. Þórey er lyfjafræðingur að mennt og hefur áratuga reynslu sem stjórnandi í lyfjaiðnaðinum. 13.9.2021 16:21
SalesCloud bætir við sig fjórum starfsmönnum Hugbúnaðarfyrirtækið SalesCloud hefur ráðið fjóra nýja starfsmenn; Maríu Björk Gísladóttur, Friðrik Má Jensson, Pálma Þormóðsson og Rúnar Leví Jóhannsson. 13.9.2021 09:37
„Ég fékk oft að heyra að þetta væri nú frekar bjartsýnt hjá mér“ „Ég hafði stofnað fyrirtækið Icelandic Coupons, sem er afsláttarapp fyrir ferðamenn og Íslendinga árið 2015. Í þeirri vegferð var ég mikið að funda á veitingahúsum landsins. Mér fannst ótrúlegt að sjá hvað voru margar aðferðir notaðar við að halda utan um borðabókanir. Sumir voru með stílabækur, aðrir voru að notast við Word í tölvum og enn aðrir við erlend bókunarforrit og svo framvegis,“ segir Inga Tinna Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Dineout um aðdragandann að því að Dineout var stofnað. 13.9.2021 07:01
Netárásin umfangsmikil en þrjótarnir náðu engum upplýsingum um viðskiptavini Umfangsmiklar netárásir voru gerðar á íslensk fjármálafyrirtæki í gærkvöldi. Talsverðar truflanir urðu á þjónustu greiðslumiðlunarfyrirtækja vegna þessa. 12.9.2021 13:00
Veitingamenn í vandræðum: Netárás olli truflunum á greiðslumiðlun Truflun hefur verið á þjónustu greiðslumiðlunarfyrirtækja í kvöld líkt og síðasta föstudagskvöld. 11.9.2021 21:48
„Það eru bara fyrstu tvö skrefin sem eru erfið“ Unnur Guðrún Pálsdóttir, sem alltaf er kölluð Lukka, viðurkennir að vinnan í Greenfit á hug hennar allan. Hún segir markmið Greenfit að bjarga heilbrigðiskerfinu og fjárhag landsmanna því þar er viðskiptavinum kennt að lesa lykiltölur sínar varðandi heilsu. Sjálf elskar hún þennan árstíma þegar haustið er að byrja. Sérstaklega þá morgna þegar hún vaknar snemma og skellir sér út að hjóla. 11.9.2021 10:01
Úrskurður dómara í deilu Apple og Epic sagður mikið högg fyrir tæknirisann Dómari í máli tölvuleikjaframleiðandans Epic gegn bandaríska tæknirisanum Apple hefur úrskurðað að Apple megi ekki koma í veg fyrir að framleiðendur smáforrita beini notendum að öðrum greiðslugáttum en þeirri sem Apple býður upp á. Fréttamiðlar ytra slá því upp að úrskurðurinn sé mikið högg fyrir Apple. 10.9.2021 21:01
Falur á 770 milljónir: Gamli sendiherrabústaðurinn hús vikunnar hjá Washington Post Gamli sendiherrabústaður sendiherra Íslands í Bandaríkjunum er hús vikunnar á fasteignavef Washington Post. Bústaðurinn er falur fyrir rétt tæpar sex milljónir dollara, eða um 770 milljónir króna. 10.9.2021 20:37
Sebastian Vettel kom við á Íslandi á leiðinni á Monza Formúlu 1 ökuþórinn Sebastian Vettvel var staddur á Íslandi á miðvikudag þegar starfsemi hófst í fyrstu og stærstu lofthreinsi- og förgunarstöð í heiminum við Hellisheiðarvirkjun. 10.9.2021 15:55
Allt að 143 prósenta verðmunur í verðkönnun ASÍ Bónus var oftast með lægsta verðið í nýrri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ á matvöru og hreinlætis- og snyrtivöru. Iceland var oftast með hæsta verðið. 10.9.2021 15:25
Sekta fjórar verslanir vegna trassaskapar við verðmerkingar Neytendastofa hefur sektað Gulla Arnar bakarí, Kjötbúðina, Kjötkompaní og Sælkerabúðina fyrir að fara ekki að fyrirmælum stofnunarinnar um verðmerkingar. 10.9.2021 14:35
Davíð seldi í Unity fyrir 4,3 milljarða og hyggst nýta auðæfin í þágu loftslagsins Davíð Helgason, fjárfestir og einn stofnandi hugbúnaðarfyrirtækisins Unity Technologies, seldi hluti í félaginu fyrir um 1,7 milljarða króna í lok ágúst. 10.9.2021 14:22
FÍB segir tryggingafélögin sitja á „spikfeitum bótasjóði“ frekar en að lækka iðgjöld Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), átelur íslensku tryggingafyrirtækin fyrir að hækka iðgjöld bifreiðatrygginga á undanförnum árum, umfram vísitölu neysluverðs, þrátt fyrir að umferðaslysum hafi fækkað, sem og slösuðum. Iðgjöld hér á landi væru að jafnaði tvöfalt hærri en tíðkast á hinum Norðurlöndum. 10.9.2021 13:47
Tekur við starfi forseta samfélagssviðs af nýráðnum rektor Bryndís Björk Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin sviðsforseti samfélagssviðs Háskólans í Reykjavík, en undir sviðið heyra sálfræðideild, viðskiptadeild, lagadeild og íþróttafræðideild. 10.9.2021 13:24
Atvinnuleysi heldur áfram að dragast saman Skráð atvinnuleysi var 5,5% í ágúst en mældist 6,1% í júlí. Alls fækkaði atvinnulausum að meðaltali um 1.010 sem nemur rúmlega 8% fækkun atvinnulausra frá júlímánuði. 10.9.2021 13:14
Afsláttardagar ofan á hagstætt verð Lyfjavers Með tilkomu Netapóteks Lyfjavers hefur aðgengi landsmanna stóraukist að fjölbreyttu vöruúrvali á hagstæðu verði. 10.9.2021 08:51
Hlutfall íbúða sem seljast á yfirverði lækkar í fyrsta sinn síðan í janúar Nokkuð hefur dregið úr umsvifum á fasteignamarkaði á undanförnum mánuðum, en á höfuðborgarsvæðinu dróst fjöldi kaupsamninga saman um 20 prósent á milli mánaðanna júní og júlí og um 25 prósent miðað við júlí í fyrra. Verð á sérbýli hækkar áfram meira en verð íbúða í fjölbýli og þá lækkar hlutfall íbúða sem seljast á yfirverði í fyrsta sinn síðan í janúar. 10.9.2021 08:32
Hugmynd fyrir ári orðið að vinsælum Facebookleik „Fyrir ári síðan, rétt þegar önnur COVID bylgjan var að skella á, fékk ég þessa flugu í kollinn á göngu í Elliðarárdal. Mér fannst einhvern veginn allt framundan vera svo undirlagt af alvarleika, mikil þyngsl í fólki, veturinn að koma og myrkrið á næsta leiti,“ segir Rúna Magnúsdóttir aðspurð um það hvernig Facebook-leikurinn Game of Boxes kom eiginlega til. Leikurinn stendur yfir í 21 dag og gengur út á að fólk virkjar ímyndunaraflið sitt til þess að brjótast út úr viðjum vanans og viðhorfum sem eru að hefta þau. 10.9.2021 07:01
Vantar fjölda manns til starfa á Austurlandi vegna mikilla anna Mikil umsvif eru núna í byggingageiranum á Austurlandi og segir framkvæmdastjóri stærsta byggingafélags fjórðungsins að fjölda fólks vanti þar til starfa. 9.9.2021 23:41
Stærsta rafíþróttamót heims haldið á Íslandi í nóvember Stærsta rafíþróttamót heims, heimsmeistaramótið í League of Legends, verður haldið í Reykjavík dagana 5. október til 6. nóvember. Þetta staðfestu Riot Games, framleiðendur vinsæla tölvuleiksins og skipuleggjendur mótsins, fyrr í dag. 9.9.2021 13:11
Kynna svarið við Amazon Echo sem talar og skilur íslensku Hugbúnaðarfyrirtækin Miðeind og Reon vinna að þróun Emblu-boxins sem getur svarað fyrirspurnum notenda á íslensku og stýrt snjallheimilistækjum. 9.9.2021 12:20
Skipta rekstrinum upp og flytja í ný dótturfélög Stjórn Skeljungs hyggst skipta rekstrareiningum félagsins upp og flytja stærstan hluta þeirra í tvö ný dótturfélög. Breytingin er sögð liður í því að skerpa frekar á áherslum í rekstri Skeljungs. 9.9.2021 11:36
Svíar ætla að hætta að niðurgreiða stóra tengitvinnbíla og dýra rafbíla Sænsk stjórnvöld ætla að herða verulega losunarskilyrði fyrir ívilnunum til kaupa á vistvænni bifreiðum. Hætt verður að niðurgreiða stærri tengitvinnbíla og dýra rafbíla. 9.9.2021 11:21
Tveir af fimm vildu hækka stýrivexti meira en gert var Tveir af fimm nefndarmönnum peningastefnunefndar Seðlabankans vildu hækka stýrivexti meira en gert var við síðustu stýrivaxtaákvörðun bankans sem kynnt var fyrir um tveimur vikum. Nefndin ákvað þá að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,25 prósentur í 1,25 prósentur. 9.9.2021 11:09
Nýr 11,5 milljarða vísisjóður vill fjárfesta í konum í tæknigeiranum Íslenski sprota- og vaxtasjóðurinn Crowberry Capital hefur stofnað og fjármagnað 11,5 milljarða króna vísisjóð sem ber heitið Crowberry II. Um er að ræða stærsta vísisjóð sem hefur verið settur saman á Íslandi. 9.9.2021 10:14
Saksóknarar lýstu stofnanda Theranos sem gráðugum svikahrappi Réttarhöld yfir Elizabeth Holmes, stofnanda Theranos sem átti að umbylta blóðrannsóknum, hófust í Kaliforníu í gær. Saksóknarar lýstu Holmes þar sem gráðugum svikahrappi en verjendurnir sögðu hana ástríðufullan lítilmagna. 9.9.2021 10:04
Tekur við starfi markaðsstjóra Klappa Hugbúnaðarfyrirtækið Klappir hefur ráðið Láru Sigríði Lýðsdóttur í stöðu markaðsstjóra fyrirtækisins. 9.9.2021 09:34
Bein útsending: Rannsóknaþing og Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs Bein útsending hefst klukkan 13. 9.9.2021 08:46
Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Ársfundur atvinnulífsins fer fram í rafrænni dagskrá í dag og hefst klukkan níu. Hægt verður að fylgjast með fundinum hér á Vísi í spilara að neðan. 9.9.2021 08:30
Starfsfólki mögulega gert að skila Covid niðurstöðum fyrir viðburði Sóttvarnir virðast vera komnar til að vera en nánast ekkert er um það rætt hjá fyrirtækjum hvort krefja eigi starfsfólk um að fara í bólusetningar. Fyrir fjölmenna viðburði á vegum vinnustaða, velta fyrirtæki hins vegar fyrir sér að krefjast neikvæðra Covid niðurstaðna frá starfsfólki áður en það mætir á viðburðinn. 9.9.2021 07:00
Segja málningarauglýsingar Múrbúðarinnar ekki villandi eftir kvörtun Húsasmiðjunnar Neytendastofa hyggst ekki grípa til aðgerða eftir kvörtun Húsasmiðjunnar vegna auglýsingar Múrbúðarinnar þar sem verð á málningu sem var til sölu í Múrbúðinni var borið saman við verð á annarri málningu í sölu í Danmörku og hjá Húsasmiðjunni á Íslandi. 9.9.2021 07:00
Lóðirnar hans Skúla í Hvammsvík flugu út Vel virðist hafa gengið hjá Skúla Mogensen að selja lóðirnar þrjátíu sem hann setti á sölu í Hvammsvík í Hvalfirði, þar sem hann vinnur nú að uppbyggingu ferðaþjónustu. 8.9.2021 22:33
Arion mátti krefjast fjárnáms hjá forstjóra United Silicon Héraðsdómur Reykjavíkur gaf Arion banka grænt ljóst á að krefjast fjárnáms í fasteign Magnúsar Ólafs Garðarssonar, fyrrverandi forstjóra United Silicon, í mars. Bankinn hefur freistað þess að fá greidda skuld félags í meirihlutaeigu Magnúsar upp á tæpar fimm milljónir króna. 8.9.2021 18:47
Leiðréttur launamunur kynjanna 4,1 prósent Launamunur kynjanna hefur dregist saman frá árinu 2010 en kynbundin skipting í störf og atvinnugreinar skýrir að miklu leyti þann launamun sem enn er til staðar. Á sama tíma hafa áhrif menntunarstigs og lýðfræðilegra þátta á launamun minnkað. 8.9.2021 15:23
Bein útsending: Kosningafundur Samtaka iðnaðarins Samtök iðnaðarins standa fyrir sérstökum kosningafundi með forystufólki stjórnmálaflokkanna í Hörpu í dag. Með fundinum vonast samtökin til að leggja sitt af mörkum til uppbyggilegrar umræðu í aðdraganda kosninga og vekja athygli á þeim málefnum sem brýnust séu fyrir samkeppnishæfni landsins. 8.9.2021 12:31
Senda skýr skilaboð til næstu ríkisstjórnar Stjórnendur íslenskra iðnfyrirtækja telja mikilvægast að næsta ríkisstjórn leggi áherslu á að einfalda laga- og reglugerðarumhverfi fyrirtækja. Einnig er mikið ákall eftir að skilvirkni verði aukin í framkvæmd eftirlits opinberra aðila. 8.9.2021 12:07
Kaupa allt hlutafé í íslenska sprotafyrirtækinu Sea Data Center Norska hugbúnaðarfyrirtækið Maritech hefur fest kaup á öllu hlutafé í íslenska sprotafyrirtækinu Sea Data Center, sem rekur upplýsingaveitu fyrir sjávarútveg. 8.9.2021 11:46
Tekur við stjórn Ilvu og fer beint í að flytja verslunina frá Korputorgi Kristján Geir Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri húsgagnaverslunarinnar Ilvu og hefur þegar hafið störf. Kristján Geir var áður framkvæmdastjóri Odda, Kassagerðar Reykjavíkur og sölu- og markaðssviðs Nóa Síríus. 8.9.2021 10:48
Loka í Aðalstræti og leggja minni áherslu á miðbæinn Te og kaffi hefur lokað kaffihúsi sínu við Aðalstræti í Reykjavík eftir níu ára rekstur. Aðstoðarframkvæmdastjóri segir að miðbærinn hafi tekið breytingum og keðjan leggi nú meiri áherslu á önnur svæði. 8.9.2021 08:00
Getur leitt til uppsagnar ef fólk vill ekki bólusetningu Erlend stórfyrirtæki hafa sum hver sett þá kröfu á starfsmenn sína að þeir séu bólusettir gegn Covid. Nýleg dæmi eru fyrirtæki eins og Facebook, Google og Uber og fyrir stuttu var þremur starfsmönnum CNN sagt upp þegar þeir mættu óbólusettir til vinnu. Þá hefur Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagt að vinnustaðir eins og skólar geti gert kröfu um að starfsfólk sé bólusett á þeim forsendum að starfsmennirnir starfi með viðkvæmum hópum, sbr. börnum. 8.9.2021 07:01
Lofaði tæknibyltingu en svarar til saka fyrir svik og pretti Búast má við fjölmiðlasirkus þegar réttarhöld yfir Elizabeth Holmes, stofnanda nýsköpunarfyrirtækisins Theranos, hefjast í Kaliforníu í dag. Holmes boðaði byltingu í tækni við blóðprufur en gæti nú átt yfir höfði sér áralangt fangelsi fyrir stórfelld svik og blekkingar. 8.9.2021 00:02
Sigurður selur allt í Bláa lóninu til lífeyrissjóða fyrir nærri 4 milljarða Sigurður Arngrímsson, fjárfestir og einn af stærri hluthöfum Bláa lónsins um árabil í gegnum eignarhaldsfélagið Saffron Holding, er að ljúka við sölu á rúmlega sex prósenta hlut sínum í fyrirtækinu til hóps íslenskra lífeyrissjóða. 7.9.2021 16:36
Vonar að ráðherra sjái ljósið Sellerí er nú víða ófáanlegt í matvöruverslunum og beina innflutningsaðilar sökinni að innflutningstollum sem voru lagðir á sellerí um þarsíðustu mánaðamót. Á sama tíma hefur innlend uppskera gengið illa og íslenskt sellerí skilað sér stopult til verslana. 7.9.2021 15:43