Viðskipti innlent

Sebastian Vettel kom við á Íslandi á leiðinni á Monza

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vettel virðir fyrir sér hreinsistöðina á Hellisheiðinni á miðvikudaginn.
Vettel virðir fyrir sér hreinsistöðina á Hellisheiðinni á miðvikudaginn. @sebvettelnews

Formúlu 1 ökuþórinn Sebastian Vettvel var staddur á Íslandi á miðvikudag þegar starfsemi hófst í fyrstu og stærstu lofthreinsi- og förgunarstöð í heiminum við Hellisheiðarvirkjun.

Vettel, sem er mikill umhverfissinni, er á meðal fjárfesta í Orca verkefninu sem fjallað var um í fréttum Stöðvar 2.

Svissneska fyrirtækið Climeworks opnaði lofthreinsistöðina Orca með formlegum hætti í dag en aðeins eru liðnir sextán mánuðir frá því uppbygging stöðvarinnar hófst í maí í fyrra. Tæknin byggir á safnkössum sem tiltölulega einfalt er að setja upp og þar með að stækka stöðina og auka afköstin.

Hreinsistöðin fangar fjögur þúsund tonn af koltvísýring úr andrúmsloftinu á ári og fargar því neðanjarðar. Forsvarsmenn verkefnsins tjáðu fréttastofu á miðvikudag að þetta væri ekki töfralausnin við loftslagsvandanum.

Sebastian Vettel hefur verið sigursæll á formúlubrautinni í gegnum tíðina og varð heimsmeistari fjögur ár í röð frá 2010-2013.Nordic Photos/Getty Images

„En með minni losun og öðrum aðferðum við að fjarlægja koltvísýring úr loftinu getur þetta orðið lausnin ef það er byggt upp nógu fljótt,“ sagði Chrostoph Buettler yfirmaður loftlagsstefnu Climeworks.

„Við megum engan tíma að missa,“ segir Vettel sem skrifar um heimsókn sína á heimasíðu sinni. Um sé að ræða mikilvægt tól til að nota í baráttunni við loftslagsvandann.

Vettel gerir mörg samfélagsmál að umtalsefni á heimasíðu sinni. Þar berst hann gegn því að fólk fleygi rusli á víðavangi, minnir á mikilvægi býflugnanna og styður hinsegin fólk í réttindabaráttu sinni.

https://twitter.com/sebvettelnews/status/1435957012320243713

Næsti formúlukappakstur fer fram á Monza brautinni á Ítalíu. Vettel ekur fyrir Aston Martin Mercedes og situr í tólfta sæti í keppni ökuþóra. Max Verstappen hjá Red Bull Racing Honda er efstur með 224,5 stig.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×