Viðskipti erlent

Úrskurður dómara í deilu Apple og Epic sagður mikið högg fyrir tæknirisann

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Deilan snýst um greiðslugáttir inn í App Store verslun Apple.
Deilan snýst um greiðslugáttir inn í App Store verslun Apple. Fabian Sommer/picture alliance via Getty Images)

Dómari í máli tölvuleikjaframleiðandans Epic gegn bandaríska tæknirisanum Apple hefur úrskurðað að Apple megi ekki koma í veg fyrir að framleiðendur smáforrita beini notendum að öðrum greiðslugáttum en þeirri sem Apple býður upp á. Fréttamiðlar ytra slá því upp að úrskurðurinn sé  mikið högg fyrir Apple.

Upphaf málsins má rekja til þess að Apple taldi að Epic hefði brotið notendaskilmála sína þegar hugbúnaðarfyrirtækið tók upp eigið greiðslukerfi inni í tölvuleiknum Fortnite sem margir Iphone-notendur spila á símanum sínum. 

Apple krefst ekki aðeins að öll forrit séu seld í gegnum App Store, forritaverslun sína, heldur að hugbúnaðarfyrirtækin notist aðeins við greiðslukerfi þess þar sem Apple smyr 30 prósent þóknun ofan á verðið.

Samkvæmt úrskurði dómarans er Apple nú ekki heimilt að krefja hugbúnaðarfyrirtækin um að notast við greiðslukerfi Apple.

Apple bannaði Epic í App Store fyrir að hafa tekið upp eigið greiðslukerfi upp úr því spratt deilan. Epic stefndi Apple fyrir umdæmisdómstól í Kaliforníu í fyrra og sakaði tæknirisann um samkeppnisbrot. Stefnan byggir meðal annars á því að Apple misnoti vald sitt yfir hugbúnaðarfyrirtækjum sem þróa snjallforrit með notendaskilmálum sínum og greiðslukerfi og skaði þannig samkeppni á milli þeirra. Þá sakaði Epic Apple um að einoka markaðinn.

Í frétt BBC segir að úrskurðurðinn sé „gríðarlegt högg“ fyrir Apple. Undir þetta er tekið í umfjöllun CNN þar sem úrskurðurinn er sagður vera „mikið högg“ fyrir Apple, enda græðir tæknirisinn á tá og fingri á App Store.

Talið líklegt að báðir aðilar áfrýji

Dómari í málinu úrskurðaði að með því að krefja fyrirtæki um að nota greiðslugátt Apple hefði fyrirtækið brotið gegn samkeppnislögum í Kaliforníu. Meinaði hún fyrirtækinu að halda uppteknum hætti. Þetta þýðir að framleiðendur smáforrita geta nú beint viðskiptavinum að öðrum greiðslugáttum, sem taka ekki jafn háa þóknun fyrir viðskiptin.

Framleiðandi tölvuleiksins Fortnite vildi að Apple hætti að krefjast þess að öll snjallforrit séu seld í gegnum forritaverslunina App Store og að hugbúnaðarfyrirtæki verði að nota greiðslukerfi Apple.Vísir/EPA

Dómarinn tók þó ekki undir þá kröfu Epic að hegðun Apple væri úrskurðuð sem ólögleg einokun. Þrátt fyrir að markaðshlutdeild Apple væri há og að tekjurnar væru miklar hefði Epic ekki tekið að sýna fram á að viðskiptahættir Apple væru ígildi einokunar.

Í yfirlýsingu vegna málsins lagði Apple áherslu á þennan hluta niðurstöðu dómarans. Tim Sweeney, forstjóri Epic, virðist ekki vera ánægður með niðurstöðuna ef marka má tíst hans þar sem hann segir að úrskurðurinn sé hvorki sigur fyrir framleiðendur né neytendur.

Í frétt BBC segir að líklegt sé að úrskurðinum verði áfrýjað, mögulega bæði af hálfu Apple og Epic.


Tengdar fréttir

Apple slakar á klónni gagnvart minni hugbúnaðarfyrirtækjum

Samkomulag sem tæknirisinn Apple hefur gert við hóp hugbúnaðarfyrirtækja gerir þeim síðarnefndu kleift að rukka viðskiptavini snjallforrita þeirra beint í stað þess að nota greiðslukerfi Apple. Málaferli standa nú yfir þar sem Apple er sakað um samkeppnisbrot vegna viðskiptahátta forritaverslunar fyrirtækisins.

Cook ber vitni í málferlum Epic gegn Apple

Tim Cook, forstjóri Apple, mun í dag setjast í vitnastúkuna í máli Apple og Epic Games, framleiðenda hins vinsæla leiks Fortnite. Epic hefur sakað Apple um samkeppnisbrot en málaferlin gætu haft gífurleg áhrif stýrikerfi í tækjum Apple og hvernig notendur sækja snjallforrit.

Málaferli sem gætu gerbreytt forritaverslun Apple

Málflutningur á máli Epic, framleiðanda eins vinsælasta tölvuleiks í heimi, gegn tæknirisanum Apple hófst í gær með því að forstjóri Epic sakaði Apple um að hafa „öll völd“ yfir Iphone-símum. Epic sakar Apple um samkeppnisbrot og hafi það betur gæti Apple neyðst til þess að gerbreyta hvernig Iphone-eigendur nálgast snjallforrit.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×