Viðskipti innlent

Kynna svarið við Amazon Echo sem talar og skilur íslensku

Eiður Þór Árnason skrifar
Katla Ásgeirsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri hjá Miðeind, með frumgerð af Emblu-boxinu.
Katla Ásgeirsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri hjá Miðeind, með frumgerð af Emblu-boxinu. Aðsend

Hugbúnaðarfyrirtækin Miðeind og Reon vinna að þróun Emblu-boxins sem getur svarað fyrirspurnum notenda á íslensku og stýrt snjallheimilistækjum.

Minnir tækið um margt á snjallhátalara frá tæknirisunum Amazon, Google og Apple sem hafa náð gríðarlegum vinsældum víða um heim. Ólíkt hinum víðfrægu Alexu og Siri talar Embla hins vegar íslensku.

Nýja verkefnið byggir á smáforritinu Emblu sem Miðeind gaf út á seinasta ári en fram til þessa hefur einungis verið hægt að nota spjallþjóninn í snjallsímum og spjaldtölvum. Vonir standa til að hægt verði að setja fyrstu útgáfu af Emblu-boxinu á markað áður en mjög langt um líður en með tilkomu vélbúnaðarins verður hægt að nýta hugbúnaðinn í fleiri og flóknari verkefni.

Þrívíddarprentari að útbúa skel Emblu-boxins. Aðsend

„Möguleikarnir varðandi þá virkni sem hægt er að fella inn í Emblu-boxið takmarkast kannski fyrst og fremst af hugmyndaflugi okkar sjálfra,“ segir Katla Ásgeirsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri hjá Miðeind, í tilkynningu.

Prenta skelina á skrifstofunni

Plastskelin á frumgerðum Emblu-boxins eru prentaðar með þrívíddarprentara á skrifstofu Reon þar sem öll þróunarvinna hefur farið fram. Tækið er drifið áfram af Raspberry Pi CM4 örtölvu sem er á stærð við eldspýtustokk og var hönnuð sérstök rafrás með hljóðmagnara og röð hljóðnema fyrir tölvuna. Gerir þetta hugbúnaðinum kleift að greina úr hvaða átt hljóð kemur.

„Markmiðið með þessu fyrirkomulagi er að Emblu-boxið geti greint skipanir og fyrirspurnir notenda frá umhverfishljóðum og einnig þeim hljóðum sem koma úr boxinu sjálfu,“ kemur fram í tilkynningu.

Miðeind og Reon fengu styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna til að ráða til sín þrjá nema sem hafa unnið að þróun Emblu-boxins síðastliðna þrjá mánuði. Því verkefni er nýlokið og nú hafa tveir nemanna snúið aftur til náms og einn hafið störf hjá Reon.

Nemarnir Egill Gunnarsson, Katarina Kekic og Júlía Rut Kristjánsdóttir unnu að þróun Emblu-boxins í sumar. Aðsend

Óttast að yngra fólk venjist því að tala ensku

Utanaðkomandi hugbúnaði, á borð við Emblu, er settur ýmsar takmarkanir af framleiðendum snjallsíma. Til að mynda þurfa notendur að aflæsa símanum sínum, finna forritið og opna það áður en þeir geta talað við Emblu. Á þetta ekki við um erlendar raddir sem fylgja iOS og Android-stýrikerfunum.

Katla Ásgeirsdóttir, viðskiptaþróunarstjóri hjá Miðeind, segir að þessi aukaskref sem þurfi að taka fyrir íslenskuna geti virst einhverjum svo fyrirhafnarsöm að þau verði treg til að taka þau.

„Í því samhengi erum við kannski aðallega að horfa til yngri kynslóða sem hafa alist upp með erlendu talþjónunum og eru vanar að tala ensku við tækin sín. Svo þarf auðvitað að huga vel að hópum sem hafa sérstakar þarfir þegar kemur að því að stjórna snjalltækjum, t.d. hópum á borð við blind og hreyfihömluð. Auðvitað þurfum við að auka aðgengi á íslensku fyrir þessa hópa.“

Skelin utan um vélbúnaðinn hefur verið prentuð í gráum og hvítum lit en fyrirtækin telja að hún verði síðar prentuð í fleiri litum. aðend

Tengdar fréttir

Nýja ofur­tölvan liður í að vernda ís­lenskuna

Gagnaversfyrirtækið atNorth, sem hét áður Advania Data Centers, hefur afhent sprotafyrirtækinu Miðeind eina öflugustu ofurtölvu landsins til afnota. Tölvan verður notuð í verkefnum á sviði máltækni og gervigreindar fyrir íslensku.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×