Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verka ekki bara saltfiskinn heldur djúpsteikja og setja hann á pizzu Á Hauganesi við Eyjafjörð hefur fiskvinnsla verið að þróast yfir í ferðaþjónustu í kringum saltfisk. Fiskverkunin Ektafiskur er komin eins langt í fullvinnsluna og hugsast getur. Saltfiskurinn er eldaður ofan í viðskiptavini og borinn fram á diskum á veitingastaðnum Baccalá Bar. 18.2.2021 11:03
Dæmdir í fangelsi og greiðslu alls 211 milljóna króna sektar fyrir stórfelld skattsvik Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo menn – framkvæmdastjóra og bókara einkahlutafélags sem var með flutningaþjónustu og rekstur sendibíla – í fangelsi og greiðslu alls 211 milljóna króna sektar fyrir stórfelld skattsvik. 18.2.2021 09:39
„Frábært vörumerki getur verið lítið þekkt á meðal almennings“ „Okkar markmið er sýna hvernig góð vörumerki líta út og að þau verði þannig leiðarljós fyrir önnur fyrirtæki sem vilja vinna markvisst í sínum vörumerkjum. Þegar við segjum góð, þá meinum við góð samkvæmt viðurkenndum hagnýtum og fræðilegum aðferðum. Og góð því þau skila eigendum sínum meiri hagnaði en ella og neytendum skýrum ávinningi,“ segir Friðrik Larsen formaður dómnefndar um valið Bestu íslensku vörumerkin 2020 sem fram fer þann 25.febrúar næstkomandi. 18.2.2021 07:00
Vilja breytingar vegna skorts á innlendum konudagsblómum Íslenskum garðyrkjubændum hefur reynst erfitt að anna eftirspurn eftir blómum að undanförnu og eru dæmi um að blómaverslanir hafi einungis fengið hluta af pöntunum sínum afhenta í aðdraganda Valentínusardagsins og konudagsins sem er næsta sunnudag. 17.2.2021 23:57
Reynir Bjarni tekur við sem framkvæmdastjóri hjá Valitor Reynir Bjarni Egilsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Útgáfulausna hjá Valitor en á sama tíma sameinuðust deildirnar Útgáfulausnir og Útgáfuvinnsla undir nafni þeirrar fyrrgreindu. 17.2.2021 17:27
Tekjur tvöfölduðust á kórónuveiruárinu Tekjur netöryggisfyrirtækisins AwareGo rúmlega tvöfölduðust frá árinu 2019 til 2020. Fyrirtækið þakkar vöxtinn að mestu stórum langtímasamningum við erlend fyrirtæki og endursöluaðila sem hlaupi á milljónum dollara, hundruðum milljóna króna. Framkvæmdastjóri AwareGo segir vöxt fyrirtækisins undanfarin tvö ár hafa verið ævintýralegan. 17.2.2021 16:25
Suðurverk bauð lægst í þverun Þorskafjarðar Suðurverk hf. í Kópavogi átti lægsta boð í þverun Þorskafjarðar en tilboð voru opnuð í gær. Þetta er eitt stærsta verk sem Vegagerðin býður út í ár en tilboð Suðurverks hljóðaði upp á 2.237 milljónir króna. Það reyndist 158 milljónum, eða 7,6 prósentum, yfir kostnaðaráætlun upp á 2.078 milljónir króna. 17.2.2021 09:32
Framtíð ferðaþjónustunnar: Þorgerður Katrín fer yfir stöðu og horfur Á næstu vikum munu Samtök ferðaþjónustunnar bjóða til sín leiðtogum og fulltrúum stjórnmálaflokkanna til að ræða um stöðu og horfur í ferðaþjónustu. Í fyrsta þættinum, sem hefst klukkan 9:15, verður rætt við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar. 17.2.2021 08:45
Um 150 manns mættu á opið hús 140 til 150 manns mættu til að skoða einbýlishús í Hafnarfirði nýlega á opnu húsi. Húsið seldist síðan á 8% yfir ásettu verði. Davíð Ólafsson, löggiltur fasteignasali hjá fasteignasölunni Borg sem sá um söluna á húsinu, segir þetta til marks um skort á íbúðarhúsnæði. 17.2.2021 08:27
Saksóknari fann fleiri milljónir Zuism-bræðra í Bandaríkjunum Héraðssaksóknari hefur gert þá kröfu að fleiri eignir Einars Ágústssonar, annars fyrirsvarsmanna trúfélagsins Zuism, verði gerðar upptækar. Um er að ræða allar eignir Einars á reikningum hjá breska verðbréfafyrirtækinu Interactive Brokers í London. Um er að ræða samanlagt rúmlega 16 þúsund dollara eða andvirði rúmlega tveggja milljóna íslenskra króna. 17.2.2021 06:16
Fyrstu loðnunni landað í Eyjum Fyrsta loðnufarmi íslensks fiskiskips í þrjú ár var landað í Vestmannaeyjum í dag. Um þrjátíu prósent loðnukvótans er gerður út í Vestmannaeyjum og var líf og fjör í Eyjum í dag. 16.2.2021 23:39
H Verslun opnar endurbætta vefverslun með heimsþekkt vörumerki H Verslun er vefverslun vikunnar á Vísi. 16.2.2021 08:50
Eigandi The English Pub stefnir ríkinu vegna sóttvarnaaðgerða Eigandi krárinnar The English Pub hefur stefnt ríkinu á þeim forsendum að ekki hafi mátt loka staðnum í samkomubanni samkvæmt þágildandi sóttvarnareglum. Hann fer fram á skaðabætur og segir ekkert réttlæta að veitingastaðir hafi verið opnir í faraldrinum en barir lokaðir. 15.2.2021 23:27
Byrjaði að brugga sextán ára í bruggverksmiðju foreldranna Bruggverksmiðja er orðin stærsta fyrirtækið í rótgrónu sjávarplássi við Eyjafjörð. Upphafið má rekja til þess að sjómannshjón á Árskógssandi urðu að finna sér ný verkefni þegar eiginmaðurinn neyddist til að hætta sjómennsku. 15.2.2021 23:12
Parler snýr aftur eftir að hafa verið sparkað af internetinu Samfélagsmiðilinn Parler er kominn aftur í loftið um mánuði eftir að Amazon og aðrir tæknirisar kipptu fótunum undan miðlinum í kjölfar árásarinnar á bandaríska þinghúsið. 15.2.2021 22:09
Mikill gleðidagur í Straumsvík og léttir að óvissu um ÍSAL var eytt Óvissu um framtíð álversins í Straumsvík var eytt í dag með nýjum raforkusamningi Landsvirkjunar og Rio Tinto og verður álframleiðslan sett á fulla ferð að nýju. Rannveig Rist forstjóri segir þetta mikinn gleðidag. 15.2.2021 20:50
Engin króna fannst í 310 milljóna gjaldþroti Austur Gjaldþrot einkahlutafélagsins 101 Austurstræti, sem rak skemmtistaðinn Austur í miðbæ Reykjavíkur, nam 310 milljónum króna. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu í dag. Félagið var úrskurðað gjaldþrota þann 7. október síðastliðinn og Sigurður Snædal Júlíusson skipaður skiptastjóri í þrotabúinu. 15.2.2021 16:14
Olíusjóði Noregs verður beitt til að fjölga konum í stjórnum fyrirtækja Forsvarsmenn norska olíusjóðsins ætla að beita sér fyrir því að fleiri konur fái sæti í stjórnum fyrirtækja og félaga sem sjóðurinn hefur fjárfest í. Sjóðurinn er einn sá stærsti í heiminum og á 9.202 fyrirtækjum um heiminn allan 15.2.2021 14:11
Landsvirkjun og Rio Tinto ná samkomulagi Landsvirkjun og Rio Tinto á íslandi hafa samþykkt viðauka við raforkusamning fyrirtækjanna frá árinu 2010, sem ætlað er að auka samkeppnishæfni álversins og er sagður styrkja rekstrargrundvöll álversins á næstu árum. 15.2.2021 11:39
Veitur semja við Securitas um uppsetningu á 160 þúsund snjallmælum Veitur hafa samið við Securitas um uppsetningu á 160 þúsund snjallmælum, í samning sem metinn er á 1,8 milljarð króna. Til stendur að skipta um 102 þúsund rafmagnsmæla, 55 þúsund varmamæla og þrjú þúsund vatnsmæla á þjónustusvæði Veitna. 15.2.2021 10:03
Goldman Sachs kaupir meirihluta í Advania Sjóður í eigu fjárfestingabankans Goldman Sachs hefur fest kaup á meirihluta í Advania. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Sjóðurinn bætist þannig í hluthafahóp Advania sem samanstendur meðal annars af VIA Equity og lykilstjórnendum á Norðurlöndum. Kaupin eru háð samþykki samkeppnisyfirvalda. 15.2.2021 07:23
Álitu sænskar leiklýsingar ólíklegar til vinsælda: Viaplay ýmist sögð ógn eða tímanna tákn „Við höfum ekki keypt sýningarréttinn á leikjum íslenska landsliðsins til að fela þá fyrir íslensku þjóðinni, það væri einfaldlega heimskulegt,“ segir forstöðumaður íþrótta hjá NENT Group. Hinn danski Peter Nørrelund segist ekki geta beðið eftir því að faraldurinn endi svo hann geti sótt frændþjóð sína heim og hafið ráðningar. 15.2.2021 07:01
Vöktun bóluefnis og mikil fjölgun starfsfólks framundan „Hugmyndin að Controlant kviknaði í Háskóla Íslands sem hluti af meistaranámi okkar. Controlant varð til í H1N1 árið 2009, eða Svínaflensunni eins og hún er kölluð. Þá var okkar tækni notuð til þess að verja og stýra dreifingu og hýsingu á bóluefninu á Íslandi,“ segir Gísli Herjólfsson framkvæmdastjóri Controlant um upphafið en fyrirtækið var stofnað af fimm félögum, sem ýmist þekktust úr æsku eða kynntust í háskólanum. 15.2.2021 07:00
Bregðist ferðasumarið þyrfti Icelandair sennilega að draga á lánalínur með ríkisábyrgð Forstjóri Icelandair segir stefnt að því að hefja áætlunarflug til borga í Bandaríkjunum snemma í sumar. Stór hluti af 51 milljarðs króna tapi félagsins á síðasta ári sé vegna afskrifa á flugvélum. Taki ferðalög ekki við sér í sumar þurfi félagið sennilega að draga á lánalínur með ríkisábyrgð í haust. 14.2.2021 18:00
„Ég leiðrétti hana og benti á að ég er ekki mamma mín“ „Ég myndi segja að kvenleggurinn í fjölskyldunni samanstandi af miklum fagurkerum. Við viljum allar hafa fínt í kringum okkur. Meira að segja amma er enn að, nú 92 ára og rétt nýbúin að láta mála hjá sér og skipta um gardínur,“ segir Hrund Kristjánsdóttir og hlær. Hrund rekur húsgagnaverslunina Línuna með eiginmanni sínum Ágústi Jenssyni húsasmíðameistara. Línan var stofnuð árið 1976 og hefur frá upphafi verið í eigu sömu fjölskyldu. 14.2.2021 08:00
Sá sjötti sem kemur til greina í fimm manna stjórn Icelandair Steinn Logi Björnsson, sem starfaði um árabil hjá Icelandair, mun gefa kost á sér í stjórn Icelandair group. Hann er sá sjötti sem gefið hefur kost á sér til setu í fimm manna stjórn félagsins. Aðalfundur félagsins fer fram 12. mars. 13.2.2021 13:44
Vill hafa meira gaman og minna leiðinlegt Þegar Guðný Helga Herbertsdóttir, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar hjá VÍS, varð fertug setti hún sér það markmið að hafa meira gaman en minna leiðinlegt. Þetta markmið hefur gefist vel, ekki síst á tímum Covid. Guðný Helga segist vera svo mikil lista-kona í skipulagi að oft geri fjölskyldan grín að. Þá segist hún hafa lært margt af netinu, til dæmis lærði hún að prjóna af YouTube. 13.2.2021 10:01
Festu kaup á fasteign Sóltúns Reginn hf., eitt stærsta fasteignafélag landsins, gekk frá kaupum á 90 prósenta hlut í félaginu Sóltúni fasteign ehf. sem á fasteign hjúkrunarheimilisins Sóltúns við samnefnda götu í Reykjavík. Um þetta er fjallað í tilkynningu sem fylgdi ársreikningi Regins. 13.2.2021 09:50
Ársreikningar fyrirtækja nú opnir öllum hjá Creditinfo Creditinfo hefur opnað fyrir gjaldfrjálsan aðgang að ársreikningum fyrirtækja. Öllum er heimilt að sækja upplýsingar um stöðu fyrirtækja hjá Creditinfo með þessum hætti. 12.2.2021 20:09
Bláa Lónið nú opið um helgar eftir fjögurra mánaða lokun Bláa Lónið verður opnað á ný á morgun eftir að hafa verið lokað frá 8. október. Bláa Lónið, veitingastaðurinn Lava, Silica hótel og verslun Bláa Lónsins í Svartsengi, verða opin allar helgar fram á vor. Retreat Spa verður opið á laugardögum. 12.2.2021 16:29
Myndband sýnir fyrirhugaða uppbyggingu í miðbæ Akureyrar Tillögur að uppbyggingu á lóðum við Austurbrú og Hafnarstræti í miðbæ Akureyrar liggja nú fyrir en þær voru til umfjöllunar í skipulagsráði bæjarins í gær. Þar var samþykkt að heimila forsvarsmönnum fjárfestingafélagsins Luxor ehf. að hefja vinnu við breytingar á deiliskipulagi í samráði við Akureyrarbæ. Myndband sem sýnir fyrirhugaða uppbyggingu var jafnframt birt í gær sem nálgast má neðar í fréttinni. 12.2.2021 15:01
Björgólfur hættur og Þorsteinn Már aftur einn forstjóri Björgólfur Jóhannsson hefur látið af störfum sem forstjóri Samherja. Hann hefur gegnt því starfi einn frá nóvember 2019 en frá mars 2020 samhliða Þorsteini Má Baldvinssyni. Þorsteinn Már verður nú á ný eini forstjóri félagsins. 12.2.2021 13:39
Loka Vínbúðinni í Borgartúni Vínbúðinni í Borgartúni verður lokað frá og með mánudeginum 22. febrúar og rekstri hætt í núverandi húsnæði. 12.2.2021 12:45
Leggur til að stjórnin verði óbreytt Tilnefninganefnd Icelandair Group hefur lagt til að stjórn félagsins verði óbreytt. Aðalfundur félagsins fer fram hinn 12. mars næst komandi. 12.2.2021 11:06
Ítalía auglýst til sölu Rekstur Veitingahússins Ítalíu hefur verið auglýstur til sölu. Um er að ræða einn rótgrónasta veitingastað landsins. Á Fasteignavef Vísis kemur fram að eftir þrjátíu ára farsælan rekstur hafi þeir Tino og Fabio ákveðið að rétta nýjum aðilum keflið. 12.2.2021 10:11
DNB ekki ákærður í Samherjamáli Rannsókn á aðkomu norska viðskiptabankans DNB að viðskiptum Samherja og meintra mútubrota fyrirtækisins í Namibíu hefur verið lögð niður. Verður bankinn því ekki ákærður í málinu. 12.2.2021 09:25
Sjálfsmyndin oft erfið stjórnendum og hálauna fólki Kanntu að gera skil á milli þín og vinnunnar? Eða byggir sjálfsmatið þitt á stöðugildinu sem þú sinnir í dag? Að starfsferillinn hafi í raun yfirtekið sjálfsmyndina er staða sem margir eru í, en oft óafvitandi. 12.2.2021 07:01
Meira um sýndarneyslu á Íslandi og mikið um að fólk eigi sömu hlutina Ragna Benedikta Garðarsdóttir, dósent í félagssálfræði við Háskóla Íslands, segir að auglýsingar séu stöðugt að reyna að telja okkur trú um að við getum fyllt í andleg göt með kaupum á vörum og þjónustu. 12.2.2021 07:01
Landsbankinn hagnaðist um 10,5 milljarða Landsbankinn hf. hagnaðist um 10,5 milljarða króna í fyrra og arðsemi eiginfjár var 4,3 prósent. Árið 2019 var hagnaður bankans 18,2 milljarðar og arðsemi eiginfjár 7,5 prósent. 11.2.2021 18:41
Guðrún nýr formaður Félags atvinnurekenda Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, var kjörin formaður Félags atvinnurekenda á aðalfundi félagsins í dag. Magnús Óli Ólafsson, forstjóri Innness, lét af formennsku eftir fjögur ár í stóli formanns. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FA. 11.2.2021 16:40
Bein útsending: Samkeppnin eftir heimsfaraldur Félag atvinnurekenda heldur aðalfund sinn í dag og í tengslum við hann verður sýndur fundur í beinni útsendingu þar sem samkeppnismál verða rædd. 11.2.2021 13:21
Raunverð íbúða hefur hækkað meira hér en á hinum Norðurlöndunum Raunverð íbúða hefur hækkað meira hér á landi en í nágrannalöndum á síðustu fimm árum. Mælist hækkunin yfir 40% í heildina frá 2015 á Íslandi en er á bilinu 1 til 20% á hinum Norðurlöndunum. 11.2.2021 12:55
Segja Sýn og Nova hafa gert samkomulag við félag tengt nánum vini Donalds Trump Félag í stýringu bandaríska framtaksfjárfestingafélagsins Digital Colony er langt komið með að ljúka kaupum á óvirkum farsímainnviðum af Sýn og Nova fyrir um 13 milljarða króna, að sögn Viðskiptablaðsins. 11.2.2021 11:54
Góði hirðirinn áfram á Hverfisgötu Rekstri verslunar Góða hirðisins á Hverfisgötu í Reykjavík verður fram haldið, en verslunin var opnuð í tilraunaskyni síðastliðinn nóvember þar sem kannað var hvort rekstrargundvöllur væri fyrir hendi. 11.2.2021 11:17
Icelandair selur restina af hlut sínum í Icelandair Hotels Icelandair Group hefur gert samning við Berjaya um sölu félagsins á 25% eftirstandandi hlut í hótelfélaginu. Berjaya á fyrir 75% hlut í Icelandair Hotels. Söluverðið er um 440 milljónir króna eða 3,4 milljónir Bandaríkjadala og kemur til greiðslu við afhendingu hlutarins og þegar skilmálar samningsins hafa verið uppfylltir. 11.2.2021 09:33