Viðskipti innlent

Mikill gleðidagur í Straumsvík og léttir að óvissu um ÍSAL var eytt

Kristján Már Unnarsson skrifar
Rannveig Rist, forstjóri ÍSAL í Straumsvík.
Rannveig Rist, forstjóri ÍSAL í Straumsvík. Egill Aðalsteinsson

Óvissu um framtíð álversins í Straumsvík var eytt í dag með nýjum raforkusamningi Landsvirkjunar og Rio Tinto og verður álframleiðslan sett á fulla ferð að nýju. Rannveig Rist forstjóri segir þetta mikinn gleðidag.

Mörgum var brugðið, ekki síst fimmhundruð starfsmönnum í Straumsvík, þegar eigandinn Rio Tinto hótaði lokun álversins í febrúar í fyrra og hóf jafnframt opinberar skylmingar við Landsvirkjun. En í dag náðist sátt með undirritun nýs raforkusamnings sem eyðir óvissu um rekstur álversins.

Rannveig Rist, forstjóri álversins í Straumsvík, og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, skrifa undir raforkusamninginn í dag. Með þeim á myndinni eru Sigurður Þór Ásgeirsson, fjármálastjóri Rio Tinto á íslandi, og Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri Orkusölusviðs Landsnets.

„Já, þeirri óvissu er eytt. Við náðum samkomulagi við Landsvirkjun sem gerir okkur samkeppnishæf, - vegna þess að raforkuverðið er komið á þann stað að við erum samkeppnishæf. Og það léttir þá af óvissu um lokunina. Og við munum setja verksmiðjuna á fullan kraft aftur,“ segir Rannveig í viðtali við Stöð 2.

„Við förum upp í full afköst. Við erum búin að vera á minnkuðum afköstum núna um allt of langt skeið og núna förum við á fulla ferð aftur.“

Frá ÍSAL í Straumsvík, álveri Rio Tinto.Vilhelm

Í sameiginlegri fréttatilkynningu fagna báðir aðilar en trúnaður ríkir áfram um orkuverðið. Þó er upplýst að tekin er á ný upp tenging við álverð en að litlum hluta. Þá er samningurinn áfram tengdur við bandaríkjadal og vísitölu í Bandaríkjunum.

„En að hluta til tengdur við álverð sem hjálpar okkur á erfiðum tímum. Síðan er allskonar sveigjanleiki í honum sem hjálpar Landsvirkjun. Þannig að það er í þessum samningi „win-win“ fyrir báða aðila og kemur báðum aðilum vel.

En hann er trúnaðarmál, þessi samningur, þannig að það er ekki hægt að greina nákvæmar frá því,“ segir Rannveig.

Hún segir að starfsmönnum í Straumsvík sé létt.

„Já, það er léttir hjá okkur. Þetta er búið að liggja á okkur eins og farg í dálítið langan tíma og þessi óvissa verður alltaf meiri og meiri eftir því sem tíminn líður. Þannig að það er mikill léttir að þessu skyldi ljúka og það skyldi takast að ná þessu samkomulagi. Það er mjög mikill léttir og mikill gleðidagur hjá okkur,“ segir forstjóri ÍSAL í Straumsvík.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Landsvirkjun og Rio Tinto ná samkomulagi

Landsvirkjun og Rio Tinto á íslandi hafa samþykkt viðauka við raforkusamning fyrirtækjanna frá árinu 2010, sem ætlað er að auka samkeppnishæfni álversins og er sagður styrkja rekstrargrundvöll álversins á næstu árum.

Telja sig peð í tafli Rio Tinto og Landsvirkjunar

Starfsmenn álversins í Straumsvík telja Rio Tinto tefla sér fram í deilu álfyrirtækisins fyrir betri raforkusamningi við Landsvirkjun. Kjaradeilan er komin til ríkissáttasemjara.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×