Fleiri fréttir

Framleiðsluverð lækkaði

Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,1% í síðasta mánuði og vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 1,5%. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Tíu prósentum minna í vexti

Íslensk heimili greiddu rúmlega tíu prósentum minna í vexti af íbúðalánum árið 2011 en árið á undan. Þetta kemur fram í úttekt fjármálaráðuneytisins.

Allt gert til að bjarga evrunni

Mario Draghi, yfirmaður Seðlabanka Evrópusambandsins, segir að bankinn muni gera allt sem í hans valdi stendur til að bjarga evrunni úr þeim vanda sem nú steðjar að.

Baldur og Karítas eiga 861 milljón

Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, og Karítas Kvaran, eiginkona hans, eiga 861 milljón króna. Þetta kemur fram í úttekt Viðskiptablaðsins á eignum 170 Íslendinga. Viðskiptablaðið reiknaði eignir þeirra út frá skattskrám sem birtar voru í gær.

Sex buðu í Plastprent

Sex aðilar sendu inn tilboð í fyrirtækið Plastprent sem selt var Kvos, móðurfélagi Odda, á dögunum. Fyrirtækið var áður í eigu Framtakssjóðsins.

Ríkisskattstjóri athugaði rútubílstjóra

Starfsmenn ríkisskattstjóra voru í lögreglufylgd við Þingvallavatn í morgun að taka út hvort rútubifreiðastjórar hefðu tilskilin leyfi til aksturs. Úttektin var þáttur í átakinu Leggur þú þitt af mörkum sem ríkisskattstjóri vinnur í samvinnu við SA og ASÍ.

Óvissa um hagnað Facebook eftir slæmt gengi Zynga

Uppgjör bandaríska tölvuleikjafyrirtækisins Zynga fyrir síðasta ársfjórðung var neikvætt. Margir óttast að slæmt gengi fyrirtækisins gefi til kynna að uppgjör samskiptamiðilsins Facebook verði einnig neikvætt en rekstur fyrirtækjanna er nátengdur.

Stjörnur og áhrifamenn fjárfesta í Stamped

Mikið hefur verið rætt um smáforritið Stamped síðustu vikur. Í dag var nýjasta útgáfa þess kynnt en um leið var opinberað hverjir hafa fjárfest í þessum litla en þó ört stækkandi samskiptamiðli.

Skúli Mogensen er ríkasti Íslendingurinn

Skúli Mogensen og eiginkona hans, Margrét Ásgeirsdóttir, eru ríkustu Íslendingarnir samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins. Blaðið lagðist yfir álagningaskrár ríkisskattstjóra sem birtar voru í gær. Hrein eign þeirra hjóna, það eru eignir umfram skuldir, nemur um 7,5 milljörðum króna samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra sem birtar voru í gær.

Samskiptamiðlar slíta barnsskónum og málin flækjast

Bandaríska greiningarfyrirtækið Gartner áætlar að tekjur samskiptamiðla á þessu ári komi til með að nema tæpum 17 milljörðum dollara, eða það sem nemur 2.114 milljörðum íslenskra króna. Helmingur upphæðarinnar kemur frá auglýsingatekjum.

Sigurður Sigurjónsson tekjuhæsti listamaðurinn

Sigurður Sigurjónsson leikari er tekjuhæsti listamaðurinn á síðasta ári, samkvæmt tölum Frjálsrar verslunar. Hann var með 1253 þúsund krónur í mánaðalaun samkvæmt blaðinu. Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi, var í öðru sæti með tæpar 1100 þúsund krónur. Magnús

Útilokar ekki að fleiri verslanir verði opnaðar

Jóhannes Jónsson kaupmaður útilokar ekki að hann muni opna fleiri en eina matvöruverslun. Fyrsta Iceland verslunin opnar á laugardaginn og verður hún staðsett í Engihjalla í Kópavogi. Þá stendur til að opna Netverslun.

Björn tekjuhæsti forstjóri í ríkisfyrirtæki

Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, er hæstur á lista Frjálsrar verslunar yfir launahæstu embættismenn og forstjóra ríkisfyrirtækja. Hann er með 1590 þúsund krónur á mánuði samkvæmt blaðinu. Gnnar Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, er með 1517 þúsund krónur. Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður í Hafnarfirði, er síðan þriðji á listanum með 1468 þúsund krónur og Guðný Aðalsteinsdóttir deildarstjóri skipulagssviðs Reykjavíkur er fjórða með 1461 þúsund krónur. Páll Magnússon útvarpsstjóri er fimmti á listanum með 1449 þúsund krónur.

Villa í lista yfir skattakónga - Guðbjörg á meðal fimm efstu

Villa reyndist vera í lista sem Ríkisskattstjóri sendi fjölmiðlum í morgun yfir þá sem greiddu hæstu opinberu gjöldin í fyrra. Villan fólst í því að það vantaði nokkra menn á listann. Þorsteinn Hjaltested, landeigandi á Vatnsenda, er engu að síður skattakóngur annað árið í röð og Guðbjörg Astrid Skúladóttir er í öðru sæti.

Tæpir 230 milljarðar greiddir í skatta

Ríkisskattstjóri hefur nú lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga. Samanlögð álagningin nemur 228 milljörðum króna og hækkar um 13,5% frá fyrra ári. Til samanburðar jókst álagning þessi um 1,4% milli áranna 2010 og 2011.

Huang vill enn reisa hótel í Reykjavík

Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo stefnir enn að því að reisa 300 herbergja lúxushótel í Reykjavík. Huang lýsti yfir áhuga á slíkri framkvæmd á síðasta ári þegar hann kynnti hugmyndir sínar um uppbyggingu ferðaþjónustu á Grímsstöðum á Fjöllum.

Þorsteinn Hjaltested skattakóngur Íslands

Þorsteinn Hjaltested landeigandi á Vatnsenda er skattakóngur á höfuðborgarsvæðinu árið 2011. Hann greiddi samtals rúmar 185 milljónir króna í opinber gjöld á síðasta ári. Guðbjörg Astrid Skúladóttir, er næstefst, en hún greiddi 140 milljónir tæpar. Poul Jansen, kemur næstur með tæpar 114 milljónir. Listi yfir þá sem greiða mest má sjá hér að neðan.

Advania og Hátækni semja um sölu á Dell fartölvum

Advania og Hátækni hafa gert með sér samkomulag um sölu á Dell fartölvum, en Advania er umboðsaðili Dell á Íslandi. Nú geta viðskiptavinir Hátækni nálgast fjölbreytt úrval Dell tölva í versluninni og mun Hátækni leggja áherslu á að bjóða vandaðar fartölvur sem henta þörfum kröfuharðra einstaklinga.

AGS hefur áhyggjur af þróun mála í Kína

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur áhyggjur af þróun mála í efnahagskerfi Kína. Telur sjóðurinn að hagkerfið sé orðið of háð fjárfestingum og hvetur kínversk stjórnvöld til að auka neyslu Kínverja innanlands samhliða því að beina þeim frá fjárfestingum í fasteignum.

Katalónía þarf sennilega neyðaraðstoð frá stjórnvöldum

Ekkert lát er á efnahagshremmingum Spánverja þessa dagana. Greint er frá því á vefsíðunni CNNMoney að allar líkur séu á að héraðið Katalónía muni þurfa á neyðaraðstoð að halda frá stjórnvöldum til að greiða opinberar skuldir sínar.

Tilboð Kvosar var hagstæðast

Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands, segir að tilboð Kvosar í Plastprent hafi verið hagstæðasta tilboðið sem barst. Hann segir að Framtakssjóðurinn verði að fara eftir verklagsreglum sínum í formlegu söluferli á félagi en geti ekki sest í siðferðilegt dómarasæti og miðað við hvað sé sanngjarnt út frá óskilgreindum forsendum.

Valitor áfrýjar Datacell málinu til Hæstaréttar

Valitor vísaði í dag til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 12. júlí síðastliðinn í máli Datacell gegn Valitor. Í dómi Héraðsdóms var Valitor gert að veita Datacell greiðsluþjónustu.

Katalónía óskar eftir fjárhagsaðstoð

Héraðsstjórn Katalóníu á Spáni mun biðja spænska ríkið um fjárhagsaðstoð. Andreu Mas-Colell, fjármálaráðherra Katalóníu, staðfesti þetta við breska ríkisútvarpið BBC í dag.

Konur eiga sviðið þegar kreppir að

"Að öllu gamni slepptu virðast konur eiga meiri möguleika á að fá tækifæri þegar illa gengur," segir Lilja Lind Pálsdóttir, hagfræðingur, í nýjasta tölublaði Frjálsrar Verslunar þar sem hún veltir upp spurningunni hvort kreppan sé tækifæri fyrir konur.

Fasteignamarkaður ekki líflegri síðan 2007

Velta á fasteignamarkaði hefur aukist um rúma fimmtán milljarða það sem af er þessu ári miðað við sama tímabil í fyrra. Markaðurinn hefur ekki verið líflegri síðan 2007.

Sér ekkert óeðlilegt við kaupin

"Ég sé ekki alveg hvað er óeðlilegt við það," segir Þorgeir Baldursson, forstjóri Kvosar um kaup fyrirtækisins á Plastprenti, en Kvos hafði áður fengið milljarða afskriftir hjá Landsbankanum.

Sjá næstu 50 fréttir