Fleiri fréttir

Fujitsu aftur í boði á Íslandi

Japanski tæknirisinn Fujitsu hefur nú gengið til samstarfs við Opin kerfi um dreifingu, sölu og þjónustu á öllum vörutegundum fyrirtækisins.

Stóri borinn á leið til Færeyja

Olíuborpallurinn Cosl Pioneer er nú á leið á færeyska landgrunnið til að vinna stærsta verkefni í atvinnusögu Færeyja; borun allt að fimm kílómetra djúprar holu fyrir 20 milljarða króna. Ef borinn hittir á það, sem olíufélög telja að þarna leynist undir, gætu Færeyingar á næstu árum orðið ein auðugasta þjóð veraldar.

Mikil aukning í kortanotkun milli ára

Enn er mikill kraftur í aukningu einkaneyslu meðal Íslendinga. Þetta sýnar nýjar tölur um kortanotkun hér á landi sem birtar hafa verið í hagtölum Seðlabankans.

Virðist hafa verið einráður í stjórn sparisjóðsins

Geirmundur Kristinsson, þáverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík, virðist hafa verið nánast einráður við stjórn sparisjóðsins í aðdraganda hruns hans. Stjórn sjóðsins og lánanefnd hafa verið nánast upp á punt, segir fréttastofa RÚV.

Færeyingar ræða við Kínverja um umskipunarhöfn

Atvinnumálaráðherra Færeyja vill að á eyjunum verði umskipunarhöfn vegna norðurslóðasiglinga. Hann ætlar að taka málið upp í viðræðum við kínverska sendinefnd sem væntanleg er til Færeyja í næstu viku. Í viðtali við netmiðilinn oljan.fo segir Johan Dahl landsstýrismaður, en svo nefnast færeysku ráðherrarnir, að þegar skip fari að sigla yfir Norður-Íshafið liggi Færeyjar vel við sem umskipunarhöfn vegna siglingaleiðarinnar.

Skýrsla um SPKEF inn á borð sérstaks saksóknara

Skýrsla sem unnin var fyrir Fjármálaeftirlitið um starfsemi SPKEF er komin á borð embættis sérstaks saksóknara en gert er ráð fyrir því að hún verði kynnt fyrir kröfuhöfum sjóðsins á næstu vikum. Stór hluti skulda SPKEF var vegna lausafjárfyrirgreiðslu seðlabankans.

Sigurður ekki enn greitt 500 milljóna króna skuld

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, hefur enn ekki greitt ríflega 500 milljóna króna skuld sína við þrotabú Kaupþings en hann var dæmdur til þess að greiða þrotabúinu þá fjárháð um miðjan maí síðastliðinn, vegna tíu prósenta persónulegrar ábyrgðar hans á um fimm milljarða króna skuld.

Töluvert líf á fasteignamarkaðinum

Töluvert líf var á fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Alls var þinglýst 126 kaupsamningum en til samanburðar hefur 100 slíkum samnngum verið þinglýst að meðaltali á viku undanfarna þrjá mánuði.

Slitastjórn Kaupþings krefst kyrrsetningar á eignum Hannesar

Slitastjórn Kaupþings krafðist í dag kyrrsetningar á eignum Hannesar Frímanns Hrólfssonar, aðstoðarforstjóra Auðar Capital og fyrrverandi aðstoðarframkvæmastjóra fjárstýringar og markaðsviðskipta Kaupþings. Sýslumaðurinn í Reykjavík hefur ekki tekið afstöðu til kyrrsetningarinnar og verður hún tekin fyrir á fimmtudag, samkvæmt heimildum fréttastofu. Hannes skuldaði Kaupþingi 2,4 milljarða króna við fall bankans 9. október 2008 vegna lána sem hann hafði fengið hjá bankanum til kaupa á hlutabréfum í Kaupþingi, samkvæmt upplýsingum í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Kyrrsetningarbeiðnin tengist m.a. innheimtu slitastjórnarinnar á þessari skuld en samkvæmt heimildum fréttastofu er Hannes í persónulegum ábyrgðum vegna hluta fyrrnefndra skulda við þrotabú Kaupþings. Hannes hefur átt í samningaviðræðum við slitastjórn Kaupþings vegna skuldanna frá hruni. Hannes færði m.a. eignir frá konu sinni yfir á sjálfan sig, sem hann hafði fært á konu sínu í hruninu, eftir samningaviðræður við slitastjórnina. Slitastjórnin hefur nú ákveðið að grípa til fyrrnefndra aðgerða, þ.e. að krefjast kyrrsetningar á eignum, til þess að reyna að tryggja betur að einhverja eignir fáist upp í skuldir.

Flestir búast við að stýrivextir hækki um 0,25 prósentur

Flestir sérfræðingar búast við því að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína á morgun um 0,25 prósentur. Einstaka telur að vöxtunum verði haldið óbreyttum. Greiningar Arion banka og Íslandsbanka telja að vextirnir verði hækkaðir sem og greining IFS. Hagfræðideild Landsbankans telur hinsvegar að stýrivöxtunum verði haldið óbreyttum.

Niðursveifla á mörkuðum

Niðursveifla varð á mörkuðum í Asíu í nótt og evran féll í verði að nýju. Hlutabréfavísitölur í Japan og Hong Kong lækkuðu um rúmt prósent og heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði einnig.

Skuld við Seðlabanka eykur kostnað ríkisins

SpKef, sem áður hét Sparisjóðurinn í Keflavík, skuldar Seðlabankanum og öðrum fjármálafyrirtækjum 13,9 milljarða króna. Heimildir Fréttablaðsins herma að stór hluti skuldarinnar sé vegna lausafjárfyrirgreiðslu sem Seðlabankinn veitti sjóðnum.

Verk eftir danskan málara selt á tæplega 350 milljónir

Málverk eftir danska málarann Vilhelm Hammershöj var slegið á uppboði í London í gærdag fyrir tæplega 350 milljónir króna og er verkið þar með dýrasta málverkið sem selt hefur verið á uppboði í sögu Danmerkur.

Tekjur ríkis aukast en útgjöldin einnig

Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 8,1 milljarð króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það þýðir á mannamáli að hið opinbera eyddi meira en það aflaði sem þeirri upphæð nemur. Þetta er þó umtalsvert betri niðurstaða en á sama tíma í fyrra, þegar afkoman var neikvæð um 11,8 milljarða króna. Raunar hefur hallinn ekki verið minni síðan á öðrum ársfjórðungi 2008.

Innlán sparisjóðanna níu milljörðum meiri en útlán

Innlánsskuldbindingar þeirra tíu sparisjóða sem starfandi voru um síðustu áramót, voru 46,1 milljarður í lok árs í fyrra en útlán, sem teljast til eigna, voru á sama tíma tæplega níu milljörðum minni eða um 37,1 milljarður. Þetta kemur fram í fjármálstöðugleikariti Seðlabanka Íslands sem kom út í síðustu viku.

Hagstofan komin með smáforrit

Hagstofa Íslands hefur látið framleiða smáforrit fyrir sig sem gerir notendum snjallsíma og spjaldtölva kleift að sækja bæklinginn Ísland í tölum og skoða lykiltölur um land og þjóð á handhægan hátt. Þetta er í fyrsta sinn sem Hagstofan miðlar hagtölum með snjallbúnaði. Bæklingurinn, Ísland í tölum, hefur verið gefinn út á ensku síðastliðin 17 ár og hefur verið eitt vinsælasta rit stofnunarinnar. Smáforritið kemur út í netverslun Google Play í dag.

Sigþór Jónsson stýrir Landsbréfum

Stjórn Landsbréfa hf., dótturfélags Landsbankans, hefur ráðið Sigþór Jónsson sem framkvæmdastjóra félagsins. Sigþór Jónsson hefur mikla reynslu af íslenskum fjármálamarkaði og fjárfestingastarfsemi. Hann hefur undanfarið gegnt starfi

Þessir eiga peningana á Íslandi – Einstaklingar með 545,3 milljarða

Innstæður hjá stærstu íslensku viðskiptabönkunum, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum, námu í lok janúar á þessu ári 1.678 milljörðum króna, eða sem nemur svipaðri upphæð og einni árlegri landsframleiðslu Íslands. Það er einnig svipuð upphæð og nemur heildarskuldum ríkissjóðs.

Eignasafn SpKef var ofmetið

Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra segir að eignasafn SpKef hafi verið ofmetið þegar ákveðið var að ráðast í stofnun sparisjóðsins þegar hann var endurreistur 2010. Úrskurðarnefnd komst að þeirri niðurstöðu fyrir helgi að það kostar 19 milljarða að ríkistryggja innistæður sem voru í sparisjóðnum þegar hann var endurreistur.

Gjaldeyrisforðinn aftur yfir 1.000 milljarða

Erlendar eignir Seðlabanka, það er gjaldeyrisforðinn, námu um 1.063 milljörðum kr. í lok maí samanborið við 942 milljarða kr. í lok apríl. Aukning forðans nemur því rúmlega 120 milljörðum kr.

Afkoma ríkissjóðs batnar milli ára

Á fyrsta ársfjórðungi ársins var tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 8,1 milljarð króna sem er nokkru hagstæðari niðurstaða en á sama tíma í fyrra þegar hún var neikvæð um 11,8 milljarða króna.

Útflutningur eykst skarplega í Kína en samt merki um minni hagvöxt

Þrátt fyrir að útflutningur frá Kína inn á erlenda markaði hafi verið 15,3 prósentum meiri í maí en í sama mánuði í fyrra, eru áhyggjuraddir vegna hjöðnunar í Kína orðnar háværar. Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC kemur fram að þessi mikla hækkun bendi ekki til mikils vaxtar heldur sé um að ræða skammtímasveiflu, sem sé ekki svo mikil þegar horft sé ársins í heild.

Gjaldeyrishöftin eru skjól

Ísland er að mörgu leyti í vari innan gjaldeyrishafta, segir Sigríður Benediktsdóttir, nýr framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands. Höftin séu lán í óláni í þeim alþjóðlegu erfiðleikum sem nú einkenni alþjóðamarkaði.

Íslandsbanki mun ekki sækja ríkið um skaðabætur

Það stendur ekki til að Íslandsbanki sæki íslenska ríkið um skaðabætur vegna laga sem skylduðu bankann til að endurútreikna lán sem bankinn veitti og voru miðuð við gengi erlendra gjaldmiðla. Þessari spurningu var velt upp eftir að Hæstiréttur kvað upp dóm síðasta fimmtudag þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að lán frá Íslandsbanka sem voru miðuð við erlenda gjaldmiðla væru lögmæt.

Lán til Spánverja góð tíðindi fyrir íslensk fyrirtæki í saltfiski

Vandi hefði getað skapast fyrir íslensk útflutningsfyrirtæki í saltfiski ef spænska ríkið hefði ekki fengið fjárhagsaðstoð til að endurfjármagna bankakerfið þar í landi. Þorbjörn hf. í Grindavík á í gríðarlega miklum viðskiptum við spænsk fyrirtæki en stjórnendur Þorbjarnar segja að til þessa hafi allt gengið eins og í sögu.

Neyðarlán Spánar jákvæð fyrir Íslendinga

Það að Spánn fái fjárhagsaðstoð er að vissu leyti jákvætt fyrir Íslendinga, segir Már Guðmundsson, Seðlabankastjóri. Evrukrísan hefur slæm áhrif á Ísland, sem fyrst og fremst koma fram með því að hér verður veikari útflutningur, verri viðskipti, minni bein fjárfesting til landsins og þar af leiðandi verður erfiðara að afnema gjaldeyrishöftin.

Spurning hvort Íslandsbanki eignist skaðabótakröfu á ríkið

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu á fimmtudaginn var að ákveðin tegund lána sem miðuð eru við erlenda gjaldmiðla sé lögmæt. Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, telur fordæmisgildi dómsins aðeins taka til lána frá Íslandsbanka.

Skuldir lækkuðu vegna afskriftagleði lánardrottna

Ástæðan fyrir því að skuldir heimila hafa lækkað er sú að bankar og lánardrottnar séu orðnir fúsari til að afskrifa skuldir. Þetta sagði Sigríður Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri Fjármálastöðugleika hjá Seðlabankanum.

"Eins og Steingrímur haldi að hann sé hafinn yfir lög“

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir að fjármálaráðuneytið, undir stjórn Steingríms J. Sigfússonar, hafi leppað hlut kröfuhafa SpKef. Guðlaugur gagnrýnir að aðkoma Steingríms að bankanum hafi ekki verið formlega rannsökuð.

Spánverjar óska eftir neyðaraðstoð

Spánn hefur óskað eftir neyðaraðstoð vegna spænskra banka. Þetta gaf fjármálaráðherra Spánar upp eftir að fjármálaráðherrar Evrópusambandsins héldu neyðarfund í dag.

Obama hefur áhyggjur af evrusvæðinu

Barack Obama, bandaríkjaforseti, sagði í gær að þjóðarleiðtogar í Evrópusambandinu þyrftu að taka erfiðar ákvarðanir til að forða evrusvæðinu undan kreppu. Hann sagði að djúp kreppa í Evrópu myndi hafa áhrif á bandarískan efnahag, enda er Evrópusambandið stærsti viðskiptaaðili Bandaríkjanna.

Liggur á að leysa vanda Spánar

Það liggur á að leysa vandamál Spánar miðað við orð Jean-Claude Juncker, sem stýrir fundum fjármálaráðherra Evrópusambandsins (ESB). Talið er að stjórnvöld í Brussel og Þýskalandi vilji afgreiða vandamál Spánar fyrir þingkosningar sem fara fram í Grikklandi 17. júní næstkomandi.

Skattar á tekjuháa hækkuðu um tæp 40%

Það eina prósent fjölskyldna sem var með hæstar tekjur árið 2010 greiddi 138,3% hærri skatta af tekjum það ár en á góðærisárinu 2007. Þetta kemur fram í nýjasta hefti Tíundar.

Sjá næstu 50 fréttir