Viðskipti innlent

Sigþór Jónsson stýrir Landsbréfum

JHH skrifar
Sigþór Jónsson
Sigþór Jónsson
Stjórn Landsbréfa hf., dótturfélags Landsbankans, hefur ráðið Sigþór Jónsson sem framkvæmdastjóra félagsins. Sigþór hefur undanfarið gegnt starfi forstöðumanns sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni hf. og meðal annars leitt uppbyggingu framtakssjóða Stefnis hf. í atvinnuhúsnæði og fyrirtækjum. Þar má helst nefna fjárfestingar í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. og Högum hf. Sigþór er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í löggildri verðbréfamiðlun.

Sigþór tekur við starfi framkvæmdastjóra Landsbréfa hf. þegar fyrirtækið stendur á tímamótum. Honum er ætlað að leiða frekari uppbyggingu þess, viðskiptaþróun og markaðssókn í kjölfar þess að ákvörðun var tekin um að Landsbréf hf. tækju yfir rekstur Horns, fjárfestingarfélags hf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×