Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tíu sóttu um stöðu forstjóra FME Tíu manns sóttu um stöðu forstjóra Fjármálaeftirlitsins sem auglýst var laust til umsóknar fljótlega eftir að Gunnar Andersen lét af starfi. Á meðal umsækjenda eru Unnur Gunnarsdóttir settur forstjóri og Vilhjálmur Bjarnason lektor í viðskiptafræði. Listann yfir umsækjendur má sjá hér að neðan. 23.5.2012 15:29
Mikil starfsemi hjá málsvörum atvinnulífs Velta þeirra hagsmunasamtaka sem starfa fyrir íslenskt atvinnulíf er á annan milljarð á ári. Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög þeirra fá samanlagt nærri milljarð í árgjöld frá aðildarfyrirtækjum. 23.5.2012 15:00
Vöxtur sjávarútvegsins á nýjum stöðum Töluverð tækifæri liggja í því að nýta betur fisk sem veiddur er íslenskri lögsögu, að því er athugun Íslenska sjávarklasans hefur leitt í ljós. Það eru ekki síst tækifæri í heilbrigðisgeiranum þar sem vaxtamöguleikarnir eru. 23.5.2012 14:30
Glitnir vill fá fjórtán milljarða frá Stoðum Slitastjórn Glitnis hefur stefnt Stoðum, sem áður hétu FL Group, til að greiða sér fjórtán milljarða króna auk dráttarvaxta. Auk þess vill slitastjórnin að ráðstöfun Stoða á fyrsta veðrétti í hollenska félaginu Ferskur Holding 1 BV, sem á meðal annars hlut í Refresco, frá því í maí 2008 verði rift. Þá var veðréttur Glitnis í félaginu gefinn eftir til að Stoðir gætu veðsett Landsbanka Íslands fyrir frekari lántökum. Slitastjórnin vill meina að umrædd aðgerð hafi verið svokallaður örlætisgerningur. 23.5.2012 14:00
Papademos: Fyrir alla muni haldið ykkur við áætlunina! Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, segir að Grikkir verði, fyrir alla muni, að halda sig við áætlunina í ríkisfjármálum sem samþykkt var af Evrópusambandinu, Alþjóðagjaldeyrissjóðum, stjórnvöldum í Grikklandi og kröfuhöfum landsins. Einhver önnur leið muni dýpka vandamál landsins til muna og valda stórkostlegu víðtæku efnahagstjóni í Evrópu. 23.5.2012 13:24
Ljósmyndara vísað á dyr á aðalfundi Bakkavarar Ágúst Guðmundsson, sem kenndur er við Bakkavör, ákvað upp á sitt einsdæmi að vísa ljósmyndara Fréttablaðsins á dyr þegar hann mætti á aðalfund félagsins sem hófst á Hótel Sögu í morgun. Hann gaf engar skýringar aðrar en þær að fundurinn væri lokaður. Ágúst meinaði ljósmyndaranum líka að taka myndir fyrir utan fundarsalinn. Bakkavör var stofnað af bræðrunum Ágústi og Lýði Guðmundssyni. Fyrirtækið er nú nánast að öllu leyti undir stjórn lífeyrissjóða og banka. Helstu kröfuhafarnir eru Arion banki, skilanefnd Glitnis, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Gildi lífeyrissjóður. 23.5.2012 10:59
Hætta mögulega Tchenguiz-rannsókn Hugsanlegt er að rannsókn efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, á máli Vincent Tchenguiz verði látin niður falla. Málið snýst sem kunnugt er, um viðskipti Vincents og Roberts bróður hans við Kaupþing banka. Þeir voru á meðal stærstu skuldara bankans þegar hann féll. Í bréfi sem David Green, yfirmaður Serious Fraud Office, sendi frá sér í gær heitir hann því að rannsóknin verði tekin til skoðunar. Serious Fraud Office hefur verið gagnrýnd harðlega fyrir húsleitir og handtökur við rannsókn á máli Tchenguizbræðranna. 23.5.2012 09:36
Skráning Facebook dregur dilk á eftir sér Gengi Facebook féll um 9 prósent í gær, en daginn þar á undan féll gengi bréfa félagsins um tæplega 11 prósent. Þetta hrun á markaðsvirði félagsins hefur nú kallað fram sterk viðbrögð hjá fjárfestum sem hafa tapað á fjárfestingunni í Facebook, og er þar ekki síst horft til þess hvernig skráningin var kynnt fyrir þeim sem keyptu bréf strax við skráningu. Þar beinast spjótin að bankanum sem hafði umsjón með skráningarferlinu fyrir hönd Facebook, Morgan Stanley. 23.5.2012 08:49
Fer frá Össuri til Háskóla Íslands Hilmar Bragi Janusson, framkvæmdastjóri vöruþróunar og rannsóknastarfs hjá Össuri hf., tekur við starfi forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands frá 1. júlí næstkomandi. Hilmar Bragi hefur í 20 ár verið í forystu rannsókna- og þróunarstarfs Össurar, sem er eitt framsæknasta fyrirtæki í íslensku atvinnulífi og annað af tveimur stærstu fyrirtækjum í heimi á sínu sviði. 23.5.2012 16:30
Húsdraumar lifna við í snjallsíma Sunnudagsbíltúrinn er orðinn miklum mun líflegri með tilkomu fasteignaleitar Mikluborgar í snjallsíma. Áhugasamir húsleitendur geta nú með einföldum smelli á m.miklaborg.is strax séð hvaða eignir eru til sölu á hverjum stað í leit að draumahúsnæðinu. 23.5.2012 13:00
Stærsta fasteignasala Reykjavíkur Einkunnarorð Fasteignasölunnar Mikluborgar eru gæði, fagmennska og árangur í starfi. Mikil áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð starfsmanna og gagnkvæman ávinning allra hlutaðeigandi í viðskiptum. 23.5.2012 11:00
Hagnaður Arion nam 4,5 milljörðum Hagnaður Arion banka á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 4,5 milljörðum króna eftir skatta en var þrír milljarða á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 16,5% samanborið við 11,3% í fyrra. Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 20,2% en í lok fyrsta ársfjórðungs í fyrra var það 19,2%, krafa Fjármálaeftirlitsins kveður á um 16% eiginfjárhlutfall. 23.5.2012 09:57
Áralöng reynsla og traust þjónusta Hjá fasteignasölunni Fjárfestingu er nóg að gera og hefur verið mikill uppgangur síðustu misseri. Þar er lögð höfuðáhersla á trausta þjónustu og vönduð vinnubrögð og kemur áralöng reynsla starfsmanna að góðum notum. 23.5.2012 09:00
Topp þjónusta hjá fasteignasölunni TORGI Úrvals þjónusta við kaupendur og seljendur fasteigna er kjarninn í starfsemi fasteignasölunnar Torgs í Garðabæ. 23.5.2012 09:00
Ákærður fyrir innherjasvik hjá Glitni Sérstakur saksóknari hefur ákært Friðfinn Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra fjárstýringar Glitnis, fyrir innherjasvik. Honum er gefið að sök að hafa selt hlutabréf sín í bankanum þrátt fyrir að búa yfir vitneskju um slæma stöðu hans í aðdraganda bankahrunsins. 23.5.2012 08:00
Kröfur eru áskorun Húsaskjól fasteignasala býður persónulega þjónustu og vönduð vinnubrögð. Ásdís Ósk Valsdóttir, eigandi Húsaskjóls, segir markmiðið að fara fram úr væntingum viðskiptavina. 23.5.2012 07:00
Reginn hf. hagnaðist um 138 milljónir á fyrsta ársfjórðungi Rekstrartekjur Regins hf. dótturfélags Landsbankans, á fyrsta ársfjórðungi þessa árs námu 849 milljónum króna. Þetta samsvarar 20.8% hækkun samanborið við sama tímabil árið 2011. 22.5.2012 21:57
Vonast til að færeyska olíuævintýrið sé að byrja Dýrasta og viðamesta olíuborun til þessa á landgrunni Færeyja er fyrirhuguð í sumar. Hún gæti jafnframt reynst lykillinn að olíuleit við Ísland. Þetta kemur fram í umfjöllun norskra og færeyskra fjölmiðla um Brugdan 2, en svo nefnist brunnurinn sem olíurisarnir Statoil og Exxon, ásamt færeyska olíufélaginu Atlantic Petroleum, ætla að bora saman við austanverðar eyjarnar. Þetta verður áttunda holan sem olíufélög bora við Færeyjar á tíu árum, en sjö fyrri holurnar hafa til þessar einungist skilað óverulegu magni af gasi. Færeyingar gera sér þó meiri vonir nú en áður enda hefur aldrei verið lagt jafn mikið undir og nú. 22.5.2012 17:45
Gengi Össurar hækkaði skarplega Gengi hlutabréfa í Össuri hækkað um tæplega 3 prósent í dag, eftir að tilkynnt var um boð stærsta hluthafa Össurar, danska fjárfestingafélagsins William Demant, í félagið í heild. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að tilboðið sé gert af tæknilegum ástæðum vegna yfirtökuskyldu. WDI hafi engin áform um að taka yfir fyrirtækið. 22.5.2012 17:23
Bjóðast til að kaupa allt hlutafé í Össuri William Demant lýsti í dag yfir vilja sínum til þess að kaupa öll hlutabréf í stoðtækjafyrirtækinu Össuri. Um er að ræða stærsta hluthafann í félaginu. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að tilboðið sé gert af tæknilegum ástæðum vegna yfirtökuskyldu. WDI hafi engin áform um að taka yfir fyrirtækið. WDI hafi engin áform um að taka fyrirtækið yfir og aðrir hluthafar verði hvorki hvattir né neyddir til þess að selja hlutafé sitt. 22.5.2012 16:09
"Kómískt“ að sjá nefnd snillinga verðleggja fjármuni Gunnlaugur Jónsson fjárfestir segir nýja nálgun að fjármálakerfum vera lífsnauðsynlega svo að markaðir geti orðið skilvirkir, og virkni þeirra eðlileg. Þar sé langsamlega mikilvægast að afnema með öllu ríkisábyrgð á fjármálastarfsemi, þar ekki síst hlutverk seðlabanka við lána til þrautavara. 22.5.2012 15:15
Kjaradeilu sjómanna vísað til sáttasemjara Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins vísuðu í dag kjaraviðræðum útvegsmanna og sjómanna til ríkissáttasemjara. 22.5.2012 13:32
ASÍ telur ríkið brjóta gegn jafnræðisreglu ASÍ telur ríkið brjóta gegn jafnræðisreglu með innheimtu fjársýsluskatts frá lífeyrissjóðunum og undirbýr nú málaferli. Vegið er að lífeyrissjóðskerfinu með skattheimtu og ágengni stjórnmálamanna segir fyrrverandi forseti sambandsins. 22.5.2012 13:20
Dyr að opnast inn á stærsta farsímamarkað heims Markaðurinn fyrir smáforrit (App) í snjallsíma hefur stækkað ógnarhratt síðustu misseri, ekki síst í Asíu. Í Kína eru um einn milljarður farsímanotenda og er hlutdeild snjallsíma sífellt að stækka. Þetta gefur framleiðendum smáforrita mikil tækifæri á því að komast inn á markað sem annars er þekktur fyrir að vera með margvíslegar hindranir fyrir hugbúnaðarframleiðendur. 22.5.2012 11:37
OECD spáir áfram erfiðleikum í Evrópu Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, segir Evrópu geta lent í enn meiri vanda ef ekki verður gripið til nauðsynlegra aðgerða til þess að minnka opinberar skuldir þjóðríkja. Samkvæmt nýrri spá OECD, sem Wall Street Journal vitnar til í morgun, mun landsframleiðsla í Evrópu dragast saman um 0,1 prósent á þessu ári. Til þess að hún aukist þurfa ríkisstjórnir að grípa til víðtækra aðgerða, til þess að auka hagvöxt en fyrri spá stofnunarinnar gerði ráð fyrir hagvexti upp á 0,2 prósent. 22.5.2012 11:02
Sigurjón Sighvatsson vill milljarð frá Glitni Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi hefur stefnt þrotabúi Glitnis vegna viðskipta við bankann í tengslum við kaup á dönsku fasteignafélagi. 22.5.2012 10:37
Launavísitalan lækkar um 0,1 prósent Launavísitala í apríl 2012 er 431,4 stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 11,9%, samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í dag. 22.5.2012 10:24
Aflaverðmæti eykst um 28,1 prósent milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,1 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2012 samanborið við 23,5 milljarða á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 6,6 milljarða eða 28,1% á milli ára, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands í dag. 22.5.2012 10:07
Norðmenn ólíkir Bretum þegar kemur að framtíðarsjóðum Norðmenn njóta góðs af því að hugsa til framtíðar þegar kemur að olíuauði landsins, og aðskilja hann algjörlega frá opinberum sjóðum. Bretar hefðu getað lært mikið af framtíðarhugsjón Norðmanna, segir í myndbandsumfjöllun sem aðgengileg er á viðskiptavef Vísis, þar sem samanburður á stöðu Norðmanna og Breta, þegar kemur að sjóðum fyrir komandi kynslóðir, er til umfjöllunar. 22.5.2012 08:47
Arionbanki hækkar vexti Arion banki hefur hækkað vexti á óverðtryggðum inn- og útlánum. Vaxtahækkunin kemur í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands þann 16. maí síðastliðinn. Óverðtryggðir vextir inn- og útlána hækka um allt að 0,5%. 22.5.2012 09:11
Google Chrome er vinsælasti vafri veraldar Nýjustu netmælingar fyrirtækisins StatCounter gefa til kynna að Chrome, netvafri tæknirisans Google, sé nú vinsælasti vafri veraldar. 21.5.2012 21:21
Hrun á markaðsvirði Facebook - allra augu á Morgan Stanley Augu fjárfesta í Bandaríkjunum beinast nú að Morgan Stanley, helsta viðskiptabanka Facebook, en markaðsvirði Facebook hefur verið í frjálsu falli í dag. "Skráningarverðið hefði átt að vera helmingurinn af því sem það var,“ segir Michael Pachter, greinandi hjá fyrirtækinu Wedbush Securites, í viðtali við Wall Street Journal. 21.5.2012 20:30
Gengi Facebook hrynur Gengi Facebook hefur hrunið í dag, og nemur lækkunin það sem af er degi tæplega 9 prósentum, samkvæmt markaðsvakt Wall Street Journal. 21.5.2012 17:14
Tölvur og linsur á Suðurskautinu Höfuðstöðvar Nýherja iðuðu af lífi þegar fréttastofa heimsótti þær á dögunum. Þetta er önnur heimsókn á vinnustað sem birtist á Vísi, en fyrsti vinnustaðurinn sem var heimsóttur var tölvuleikjaframleiðandinn CCP. Þá heimsókn má sjá hér. 21.5.2012 16:59
Eignarhaldsfélag Hörpu selur í Marel Eignarhaldsfélag Hörpu, þar sem Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, er stór hluthafi, seldi 680 þúsund hluti í Marel í dag á genginu 153, eða fyrir sem nemur um 100 milljónum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu um viðskiptin til Kauphallar Íslands. Eftir viðskiptin eru um 4,7 milljónir hluta í Marel tengdir Helga í gegnum ýmis félög, en markaðsvirði þeirra er um 700 milljónir í dag. 21.5.2012 15:08
Skemmtigarðastríð í uppsiglingu Mikið skemmtigarðastríð virðist í uppsiglingu milli Disney og Universal Studios. Í júní nk. mun Disney opna nýjan Cars-skemmtigarð í Kaliforníu sem kostar um 450 milljónir dala, eða sem nemur yfir 56,7 milljörðum króna. Forsvarsmenn Disney vonast til þess að ná að lokka fjölskyldufólk í garðinn í stórum stíl, en garðurinn verður glæsilegur í alla staði, þar sem Leiftur McQueen og félagar verða í aðalhlutverki. Disney fékk um 73 milljónir gesta í átta skemmtigarða á síðasta ári. 21.5.2012 13:58
Yahoo selur hlut í Alibaba fyrir stórar upphæðir Bandaríski netrisinn hefur samþykkt að selja hluta af eignarhluta sínum í kínverska netfyrirtækinu Alibaba Group. Um gríðarlegar upphæðir er að ræða en Alibaba kaupir 20 prósenta hlut Yahoo á rúma sjö milljarða dollara, eða um 898 milljarða króna. Eftir viðskiptin mun Yahoo ennþá eiga 20 prósent í fyrirtækinu. 21.5.2012 10:25
Vísitala byggingarkostnaðar lækkar lítið eitt Vísitala byggingarkostnaðar lækkaði um 0,1 prósentustig milli mánaða og er hún nú 114,9 stig. Verð á innfluttu efni lækkaði um 0,6% (áhrif á vísitölu -0,2%) en vélar, flutningur og orkunotkun hækkaði samtals um 0,9% (0,1%). 21.5.2012 09:15
Danir auka þjónustu við BRIC-löndin Danska hagkerfið hefur í sívaxandi mæli snúið sér í það að þjónusta BRIC-löndin svokölluðu, Brasilíu, Rússland, Indland og Kína, þar sem vöxtur hefur verið gríðarlega mikill undanfarin ár, á sama tíma og erfiðleikar hafa verið miklir á alþjóðavettvangi. 21.5.2012 08:52
Fjárfestar óttast áhlaup á evrópska banka Fjárfestar óttast áhlaup á evrópska banka, einkum þá sem eru með höfuðstöðvar í Suður-Evrópu, að því er greint er frá í helgarútgáfu Wall Street Journal. Þrátt fyrir að Seðlabanki Evrópu hafi lánað evrópskum bönkum ríflega þúsund milljarða evra, liðlega 166 þúsund milljarða króna, í lok síðasta árs og byrjun þessa árs, þá hefur áhyggjum fjárfesta ekki verið eytt. Lánin voru veitt á lægri vöxtum en bönkum bauðst á markaði, einkum til þess að þeir gætu endurfjármagnað skuldir ríkissjóða í Evrópu. 20.5.2012 23:41
Rannsóknin á Kaupþingsviðskiptum myndi taka mörg ár Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, eða Serious Fraud Office, varaði bræðurna Robert og Vincent Tchenguiz við því að rannsókn á þeirra málum gæti tekið fimm til tíu ár ef þeir myndu ekki fallast á málamiðlun sem þeim var boðin. Þetta kemur fram á vef breska blaðsins Daily Telegraph. 20.5.2012 20:15
Zuckerberg breytti hjúskaparstöðunni í "Giftur" Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, tilkynnti heiminum í gær að hann hefði gengið í það heilaga með því að breyta hjúskaparstöðu sinni á áðurnefndu sköpunarverki sínu Facebook. 20.5.2012 09:54
Kínverjar leyfa Google að kaupa Motorola Kínversk yfirvöld hafa loks gefið sitt lokasvar um að netrisanum Google sé heimilt að ljúka kaupum á farsímaframleiðandanum Motorola. Verðmiðinn er 12,5 milljarðar dala, eða sem nemur 1.587,6 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Kaupin voru endanlega heimiluð eftir að forsvarsmenn Google féllust á skilyrði kínverskra yfirvalda um að Android stýrikerfið standi öllum opið án kostnaðar næstu fimm árin, af því er New York Times greindi frá í dag. 20.5.2012 14:00
Mátti greiða 10 milljarða fyrir að láta Kaupþingsmál niður falla Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, bauðst til þess að láta rannsókn gegn Robert Tchenguiz niður falla gegn því skilyrði að hann myndi gefa 50 milljónir sterlingspunda til góðgerðastarfa. 19.5.2012 13:27
Mikill áhugi á Facebook Það var líflegur dagur í Nasdaq-Kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum í gær þegar viðskipti hófust með hlutabréf í Facebook. Útboðsverð bréfanna var 38 Bandaríkjadalir en verðið skaust fljótlega upp í 43 dali áður en það féll aftur niður í útboðsverðið. Við lokun markaða var verðið 38,23 dalir á hlut sem jafngildir tæpum 4.900 íslenskum krónum. 19.5.2012 13:00