Risastór samningur við fyrirtæki í Kína 2. maí 2012 07:00 Samningurinn nú er sá þriðji sem fyrirtækið hefur náð á undanförnum árum en möguleikarnir eru gríðarlegir í þessu fjölmenna landi.mynd/marel
Fyrirtækið Marel gekk nýlega frá sölu fyrirtækisins í fiskiðnaði með samningum við fiskframleiðanda í norðausturhluta Kína. Um er að ræða nýja flæðilínu fyrir hvítfisk sem verður sérstaklega sniðin að þörfum kínverskra fiskframleiðenda. Fjárhæð samningsins og nafn kínverska fyrirtækisins hefur ekki verið gefið upp en samningurinn samsvarar 1-2% af ársveltu Marel. Ef velta fyrirtækisins árið 2011 er höfð til hliðsjónar, um 700 milljónir evra, er samningurinn 1,1 til 2,2 milljarða króna virði. Flæðilínan er meðal þess hátæknibúnaðar sem Marel sýndi á sjávarútvegssýningunni í Brussel í síðustu viku. Stella Björg Kristinsdóttir, markaðsstjóri Marel fyrir fiskiðnað, segir að aðeins sex mánuðir séu liðnir frá því að svipað kerfi var selt til kínversks framleiðanda og það sé til marks um að Marel hafi tekist að þróa vöru sem hentar kínverskum fyrirtækjum, en markaður tengdur fiskiðnaði í landinu er risavaxinn. Fyrr, eða árið 2006, seldi Marel kínverska matvælaframleiðslufyrirtækinu Pacific Andes upplýsingakerfi fyrir risaverksmiðju í Qingdao-héraði þar sem 13 þúsund manns starfa. Í héraðinu hefur Marel jafnframt byggt upp fiskiðnaðarsetur sem á heiðurinn að samningnum nú. Setrið mun gegna lykilhlutverki við uppbyggingu á starfsemi Marel í Kína þar sem miklu skiptir að viðskiptavinir hafi aðgang að þjónustu nálægt sínu starfssvæði. „Í Kína byggjast viðskipti ekki síst á orðstír og það er erfitt að fá aðgang að þessum viðskiptavinum. Við höfum á undanförnum árum unnið að því að byggja upp nafn fyrirtækisins sem er að skila árangri,“ segir Stella Björg en aðalskrifstofa fyrirtækisins er í Peking. Hún segir jafnframt að aðstæður á vinnumarkaði og hækkandi framleiðslukostnaður í Kína hafi skapað aukna þörf fyrir sjálfvirkni í verksmiðjum þar í landi. Auk Marels komu íslensku fyrirtækin 3X Technology og Skaginn að því að gera verkefnið að veruleika og landa stærsta einstaka samningnum sem fyrirtækið hefur gert í fiskiðnaði. „Við fengum í lið með okkur tvö íslensk fyrirtæki sem koma inn með sína sérþekkingu. Þetta er því stórt samvinnuverkefni og afar ánægjulegt að fleiri fyrirtæki komist að í svona viðskiptum.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Sjá meira