Viðskipti innlent

Bauhaus opnar á laugardaginn

Bauhaus er við Vesturlandsveg. Tuttugu og tvö þúsund fermetra verslun.
Bauhaus er við Vesturlandsveg. Tuttugu og tvö þúsund fermetra verslun.
Svissneska byggingavörukeðjan Bauhaus opnar verslun hérlendis á laugardaginn næstkomandi. Um 100 starfsmenn hafa verið ráðnir til vinnu en um 2500 manns sóttu um starf hjá versluninni fyrr á árinu. Starfsmennirnir hafa síðustu vikur unnið hörðum höndum að því að taka á móti vörum og raða í hillur í 22 þúsund fermetra verslun við Vesturlandsveg. Fyrirtækið hugðist opna verslun hér á landi í lok árs 2008 en frestaði þeim áætlunum þegar bankahrunið skall á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×